Morgunblaðið - 19.09.2009, Blaðsíða 44
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
JOMAR er þunglyndur fyrrverandi
skíðakappi sem kemst að því að hann
á barn í nyrstu héruðum Noregs.
Eðlilega fyllir
hann snjósleðann
sinn af bensíni og
heldur af stað
með sitt eigið
bensín í fartesk-
inu, fimm lítra af
áfengi og stóran
pakka af kvíða-
stillandi verkja-
töflum. „Titillinn,
Norður (Nord),
kemur frá Erlend
Loe [handritshöfundinum sem Ís-
lendingar þekkja margir fyrir skáld-
sögurnar Ofurnæfur og Maður og
elgur] og hann fylgdi okkur. Hann er
stór en samt líka svo smár,“ segir
leikstjórinn Rune Denstad Langlo.
En var ekkert erfitt að kvikmynda
í svona fábreyttu landslagi? „Það er
náttúran sjálf sem gerir kvikmynda-
tökuna athyglisverða. Náttúran er á
vissan hátt andstæðingurinn, að-
alpersónan þarf að yfirvinna hana til
að komast á áfangastað.“
Sveitalubbar eða dæmigerðir
Norðmenn?
Þótt Jomar ferðist yfir eyðilegt og
strjálbýlt svæði þá hittir hann þó-
nokkuð af sérkennilegum karakter-
um á leiðinni. Eru þetta dæmigerðir
Norðmenn? „Já,“ svarar Langlo
strax og bætir svo við: „Þegar við
sýndum hana fyrir norðan könnuðust
allir við persónurnar. En í Ósló
sögðu menn að þetta væru bara
sveitalubbar, þetta væri ekki raunsæ
lýsing á Noregi. En þetta er það
skemmtilega við að vinna að vega-
mynd, þú getur haft stutta fundi eða
langa … hann hittir þrjár lyk-
ilpersónur, litlu stúlkuna, hómófób-
íska strákinn og gamla Samann.
Saminn var persóna í skúffunni hjá
Loe, hann var að hugsa um að skrifa
skáldsögu um hann, en svo var hann
bara svo fullkominn fyrir þessa
mynd. Jomar sjálfur er svo mestan
part byggður á mér, ég var óttalega
þunglyndur fyrir nokkrum árum. Og
myndin speglar þessar andstæður,
að vera nánast á þaki veraldarinnar
en samt á botninum.“
Í hvert skipti sem Jomar kveður
einhverja af aukapersónunum staldr-
ar myndavélin við í einar fimm sek-
úndur á andliti þeirra á meðan Jom-
ar hverfur út í buskann, það er eins
og Jomar sé að taka minnismynd af
þeim. „Ég vildi skapa þeim von, sýna
að þau hefðu lært eitthvað, grætt
eitthvað, á heimsókn Jomars,“ segir
Langlo en flestir aukaleikararnir
voru áhugamenn. „Gamli Saminn var
í áhugaleikhóp á sjöunda áratugnum,
litla stúlkan hafði aldrei leikið neitt.“
Og hann tekur undir með mér að
það sé mikil gróska í norskri kvik-
myndagerð þessi misserin. „Við er-
um mjög ung kvikmyndaþjóð, stofn-
uðum til dæmis ekki kvikmyndaskóla
fyrr en árið 1999. Fyrir tíu-tuttugu
RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK
Einsemd skíðamannsins
Leikstjóri kvikmyndarinnar Nord, eða Norður, segir söguhetju myndarinnar,
þunglyndan fyrrum skíðakappa, að mestu leyti byggða á honum sjálfum
Eðlilegt? Söguhetjan fyllir snjósleða af bensíni, tekur með áfengi í lítravís og pakka af kvíðastillandi verkjatöflum.
www.riff.is
Rune Denstad
Langlo
árum voru þetta alltaf sömu mynd-
irnar, annaðhvort miklar vinsælda-
myndir eða ofboðslega listrænar, nú
er breiddin miklu meiri – og miklu
meiri fagmennska.“
Langlo hefur unnið í kvikmyndabransanum norska í ellefu ár en þetta er
fyrsta leikna myndin hans. „Lengst af hef ég verið að vinna að heimild-
armyndum, þetta er fyrsta leikna myndin mín, ég hef ekki einu sinni gert
leiknar suttmyndir áður. En nú er ég að vinna að hvoru tveggja, nokkrum
heimildarmyndum og annarri mynd með Erlend Loe.“
Þekktasta heimildarmynd hans er líklega 99% hreinskilin (99% Ærlig),
þar sem hann fylgir eftir hipphopp-sveitinni Forente Minoriteter (Samein-
aðir minnihlutahópar) í tvö ár og notar örlög hljómsveitarinnar sem speg-
il á norska fjölmenningarsamfélagið.
Úr hipphoppi á snjósleða
44 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2009
Kvikmyndaunnendur vita vart í
hvorn fótinn þeir eiga að stíga
þessa dagana. RIFF-hátíðin er á
fullum dampi og um leið og henni
lýkur tekur önnur hátíð við, Nor-
disk Panorama, norræn stutt- og
heimildarmyndahátíð í Regnbog-
anum. Á henni verður m.a. sérstök
dagskrá með stuttmyndum Gríms
Hákonarsonar, Rúnars Rúnars-
sonar og Dags Kára Péturssonar.
Verður þar m.a. sýnd merkileg
stuttmynd sem Grímur og Rúnar
gerðu saman 17 ára, Klósettmenn-
ing. Myndina tóku þeir upp um kló-
settop og sýnir hún fólk við ýmsa
iðju á almenningssalerni.
Í lokaatriðinu kúkar kunningi
þeirra félaga í klósettið og segja
þeir að þetta atriði hafi komið svo
vel út í myndinni að fólk haldi að
þar séu tæknibrellur á ferð. Sann-
arlega áhugavert sjónarhorn!
Kúkað í stuttmynd
Dags og Rúnars
Fólk
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
HAVARÍ er ný plötubúð í miðbæ Reykjavíkur sem verð-
ur opnuð í dag. „Við seljum plötur í bland við annað
popp, eins og myndlist, hönnun og allskonar hluti sem
tínast til. Svo höldum við líka tónleika og myndlist-
arsýningar,“ segir Svavar Pétur Eysteinsson sem
sér um búðina ásamt konu sinni, Berglindi Häsler.
Havarí er staðsett í Austurstræti 6 og er sam-
starfsverkefni fjögurra fyrirtækja, Kimi Records,
Borgin hljómplötur, Gogoyoko og Skakkapopp.
„Búðin er stofnuð í kringum þessar útgáfur og því
verðum við aðallega með tónlist frá þeim en við
verðum líka með aðra tónlist. Havarí mun hanga á
jaðrinum, bæði í tónlist og myndlist,“ segir Svavar.
Eins og gera má ráð fyrir verður búðin opnuð með miklu ha-
varíi í dag kl. 13 með forsölu á nýjustu plötu Hjálma. Hjálm-
ar sjálfir kíkja í heimsókn og taka lagið og ýmis tilboð
verða í gangi.
Að sögn Svavars er um tilraunaverkefni að ræða og
því sé í bili aðeins stefnt að því að hafa búðina
opna til ársloka. „Ef við erum áfram í stuði í jan-
úar höldum við áfram. Þetta er tilraunaverk-
efni sem á kannski eftir að vinda upp á sig.“
Í húsnæðinu sem hýsir Havarí var Kaffi
Austurstræti áður til húsa eða Kaffi Oj eins
og Svavar kallar það. „Félagarnir eru aðeins
að reka inn nefið, þeir sjá að það er eitthvað í
gangi og spyrja hvort það sé verið að opna
gamlan íverustað með vonarglætu í augum.“
Havarí á opnunardegi plötubúðarinnar Havarí
„Mig langar að deila með ykkur
myndum úr módellífi mínu, leyfa
ykkur að skyggnast á bak við
tjöldin hjá fjölskyldu atvinnuknatt-
spyrnumannsins og fjalla um það
sem mér finnst heitt og sniðugt í
heimi tískunnar og skemmtanaiðn-
aðarins,“ segir Ásdís Rán ofurfyr-
irsæta og ísdrottning, í sinni
fyrstu færslu sem Pressupenni á
vefnum Pressan.is. Ásdís hefur til
þessa bloggað á mbl.is og einnig
haldið úti Facebook-síðu.
Fyrirsætan er nýkomin frá
Sunny Beach í Kaliforníu ásamt
fjölskyldunni og segir fjölskylduna
aðallega hafa verið þar út af
„raunveruleikaþættinum hennar“,
Footballers’ wives, því taka þurfti
upp efni fyrir þættina um fjöl-
skylduna. Garðar Gunnlaugsson,
eiginmaður hennar og knatt-
spyrnumaður, er atvinnulaus sem
stendur, í leit að knattspyrnuliði,
en Ásdís Rán vonast að sjálfsögðu
til þess að hann „negli einhvern
feitan díl“. Annars verður hún
varla lengur „footballer’s wife“,
eða hvað?
Ásdís Rán og módel-
lífið á Pressunni
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
TVEIR af vinsælustu söngvurum
þjóðarinnar, Jógvan Hansen og
Friðrik Ómar, hafa tekið höndum
saman og senda frá sér tvöfaldan
geisladisk í byrjun október.
Diskurinn ber heitið Vinalög og
er hálfgerður vináttuvottur á milli
Íslands og Færeyja að sögn Jógv-
ans. „Ég lét Friðrik hafa tíu uppá-
haldslögin mín frá Færeyjum, sem
voru þýdd yfir á íslensku af Val-
geiri Skagfjörð, og Friðrik lét mig
hafa tíu uppáhalds íslensku dæg-
urlögin sín og þau hafa verið þýdd
yfir á færeysku af Boga Gotfred,“
segir Jógvan um formið á Vinalög-
um.
Spurður hvaða lög þetta séu
svarar Jógvan snöggt: „Það þýðir
ekkert að segja hver færeysku lög-
in eru, þau þekkir enginn,“ segir
hann og hlær. „En íslensku lögin
sem ég syng á færeysku eru t.d
„Lítill drengur“, „Ég er á leiðinni“,
„Söknuður“ og „Þú komst við hjart-
að í mér“ með Páli Óskari, það heit-
ir „Nart víð hjartað á mær“ á fær-
eysku.“
Íslendingar poppaðri
Jógvan og Friðrik Ómar hafa
unnið nokkuð saman í gegnum tíð-
an. „Ég kynntist honum þegar ég
söng bakraddir í Söngvakeppninni
2005, síðan vorum við báðir í
George Michael-sýningu á Broad-
way og upp frá því hef ég séð um
hárið á honum,“ segir Jógvan sem
stundar nú nám hjá Keili.
Um aðdraganda þessarar vinnu
segir Jógvan að hann og Friðrik
hafi lengi rætt um að gera eitthvað
saman. „Ég hef lengi spáð í af
hverju Íslendingar og Færeyingar
þekkja ekki tónlistina hvor hjá öðr-
um betur. Við Friðrik fórum að
ræða þetta og út frá því kom hug-
myndin að disknum. Lögin eru
nokkuð ólík enda hafa Færeyingar
samið mikið af vísnalögum í gegn-
um árin og eru ekki eins popplegir
og Íslendingar þegar kemur að
uppáhalds-dægurlögunum þeirra,“
segir Jógvan.
Vinalög á að koma út 8. október
og stefna þeir piltar á útgáfu-
tónleika 16. og 17. október í Salnum
í Kópavogi. Helgina eftir verða þeir
með tónleika í Norðurlandahúsinu í
Færeyjum.
Jógvan og Friðrik í eina sæng
Vinalög Jógvan Hansen og Friðrik Ómar horfa út í bláinn.
Havarí-hjón Berglind og Svavar sjá um Havarí.