Morgunblaðið - 24.09.2009, Side 18
18 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2009
BARACK Obama, forseti Banda-
ríkjanna, skoraði á þjóðir heims að
taka höndum saman til að leysa al-
varlegustu vandamál heimsins þegar
hann ávarpaði allsherjarþing Sam-
einuðu þjóðanna í fyrsta skipti í gær.
Í ræðunni lagði forsetinn áherslu á
nauðsyn þess að þjóðir heims ynnu
saman í þágu friðar og í baráttunni
gegn útbreiðslu kjarnavopna, lofts-
lagsbreytingum og efnahagskreppu.
„Þeir sem skömmuðu Bandaríkin
fyrir að grípa til aðgerða ein síns liðs
geta nú ekki staðið aðgerðalausir og
beðið eftir því að Bandaríkin leysi
vandamál heimsins ein síns liðs,“
sagði Obama þegar hann ávarpaði
leiðtoga um 120 ríkja í höfuðstöðvum
Sameinuðu þjóðanna. „Vegna þess
að nú er kominn tími til að heimurinn
færist í aðra átt,“ hélt forsetinn
áfram. „Við þurfum að hefja með
glöðu geði nýtt tímabil baráttu sem
byggist á gagnkvæmum hagsmun-
um og gagnkvæmri virðingu og starf
okkar þarf að hefjast núna.“
Forveri hans í forsetaembættinu,
George W. Bush, var sakaður um að
sniðganga og lítilsvirða Sameinuðu
þjóðirnar en Obama hét nánu sam-
starfi við samtökin. Hann kvaðst
harma að Sameinuðu þjóðirnar
hefðu oft verið notaðar sem „vett-
vangur til að sá fræjum deilna í stað
samstöðu“. „Þegar öllu er á botninn
hvolft er auðvelt að fara á þennan
pall, benda fullur vandlætingar á
aðra og ala á óeiningu. Ekkert er
auðveldara en að kenna öðrum um
vandamál okkar og firra sig ábyrgð á
gerðum okkar.“
Mikið í húfi
Obama varaði við því að ef leiðtog-
ar ríkja heims gæfu eftir í baráttunni
gegn hryðjuverkamönnum gæti það
haft mjög alvarlegar afleiðingar.
Forsetinn skoraði á Sameinuðu þjóð-
irnar að taka hart á kjarnorkuáform-
um Írans og Norður-Kóreu og varaði
við vaxandi hættu á útbreiðslu ger-
eyðingarvopna. „Ef við látum hjá
líða að grípa til aðgerða leiðir það til
vígbúnaðarkapphlaups í öllum
heimshlutum, hættu á stríðum og
hryðjuverkum af stærðargráðu sem
við getum varla ímyndað okkur.“
bogi@mbl.is
„Bandaríkin leysa ekki
vandamálin ein síns liðs“
Obama hvetur til alþjóðlegs samstarfs í
fyrstu ræðu sinni á allsherjarþingi SÞ
Reuters
Jómfrúræðan Barack Obama flytur fyrstu ræðu sína á allsherjarþingi Sam-
einuðu þjóðanna í höfuðstöðvum samtakanna í New York.
STARFSMENN sumra verksmiðja
í Indónesíu og Víetnam, sem fram-
leiða íþróttaskó fyrir erlend fyr-
irtæki, þræla oft á sultarlaunum, að
sögn norsku
Neytenda-
samtakanna.
„Í sumum
verksmiðjum
komumst við að
því að dregið var
af laununum fyrir
útgjöldum vegna
rafmagns, vatns
og matar, einnig
fyrir hreingern-
ingum á salargólfinu,“ segir Inger
Johanne Birkeland, fulltrúi Neyt-
endasamtakanna, við Aftenposten.
Fólkið sé einnig óvarið fyrir hættu-
legum efnum og vélum.
Stærstu skófyrirtækin, Adidas,
Reebok og Puma, eru sögð hafa sýnt
mikinn samstarfsvilja, þau geri einn-
ig miklar kröfur til undirverktaka
sem framleiða íhluti í skóna. Asics,
Brooks og Saucony vildu ekki veita
neinn aðgang eða upplýsingar.
Stærsta skófyrirtækið, Nike, hafn-
aði að vísu samvinnu en virtist samt
tryggja að lágmarkskröfur væru
virtar. kjon@mbl.is
Illa þefjandi
íþróttaskór
rannsakaðir
Brooks-
íþróttaskór
Framleiddir í þræla-
kistum þróunarríkja
RÁÐAMENN heilsuverndar í
Washington hafa nú lagt bann við
sölu á sígarettum með súkkulaði-,
jarðarberja- og vanillubragði, að
sögn The New York Times. Talið er
að umræddar rettur lokki marga
unglinga til að byrja að reykja.
Könnun árið 2004 leiddi í ljós að
17 ára reykingamenn voru þrisvar
sinnum líklegri til að nota sígarettur
með slíku bragði en þeir sem komnir
voru yfir 25. Bandarískir framleið-
endur hafa þegar hætt að mestu að
framleiða rettur af þessu tagi þar
sem þeir gerðu ráð fyrir banninu.
Banna súkku-
laðisígarettur
Muammar Gaddafi Líbíuleiðtogi
fór mikinn í ræðu sinni á alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóðanna í
New York í gær, þeirri fyrstu sem
hann heldur á þeim vettvangi í
rúmlega 40 ára valdatíð sinni.
Gaddafi steig í pontu að lokinni
ræðu Obama og var þá af stakri
hógværð kynntur fyrir samkund-
inni sem „konungur konunganna“.
Líbíuleiðtoga lá mikið á hjarta
og hundsaði hann ítrekaða beiðni
um að stytta mál sitt – honum var
úthlutað stundarfjórðungi til ræð-
unnar – og hélt áfram eins og ekk-
ert lægi á í rétt rúma klukkustund.
Ræðan þótti samhengislaus en í
henni hlóð hann lofi á Obama, sem
hann vonaði að yrði forseti til ei-
lífðar, ásamt því að krefjast 7,7
billjóna dala í bætur til Afríku
vegna nýlendustefnunnar.
Þá fór hann fram á að fá að vita
hver hefði ráðið John F. Kennedy
Bandaríkjaforseta af dögum
haustið 1963. baldura@mbl.is
Konungur konunganna
ÞAÐ er vel hugsanlegt að eftir um
tvo áratugi verði nanótæknin,
tækni hins örsmáa, og tölvutæknin
almennt orðin svo háþróuð að hægt
verði að sérsmíða líffæri og skipta
út gömlum og slitnum.
Framtíðarfræðingurinn Ray
Kurzweil hefur fulla trú á þessu:
„Ég og margir aðrir vísindamenn
erum nú þeirrar skoðunar að eftir
um 20 ár verðum við í aðstöðu til að
endurforrita steinaldarhugbúnað-
inn í líkama okkar þannig að okkur
takist að hægja á og loks snúa við
öldrun. Nanótæknin mun gera okk-
ur kleift að lifa að eilífu [...] Vél-
menni á nanóskala munu að lokum
geta komið í stað blóðkorna og unn-
ið verkið með mörg þúsund sinnum
meiri skilvirkni.“
Kurzweil hefur í gegnum tíðina
þótt glöggskyggn á tækni-
framþróun en
hann telur að sí-
vaxandi skiln-
ingur á erfða-
fræði og tölvum
muni gera það
kleift að skapa
nýja kynslóð of-
urmanna.
„Innan 25 ára
munum við geta
hlaupið spretthlaup viðstöðulaust í
stundarfjórðung án þess að draga
andann, eða kafað svo klukku-
stundum skiptir án súrefnis.“
Og svo eru það vitsmunirnir:
„Nanótæknin mun auka andlegt
atgervi svo mjög að við munum
geta skrifað bækur á nokkrum mín-
útum,“ segir Kurzweil sem hlakkar
til þess dags er maður og vél renna
saman. baldura@mbl.is
Í eilífum æskublóma
Að eilífu? Sýn Kurzweil gengur út á að hægt verði að snúa við öldrun.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
ÞEGAR Barack Obama var kjörinn
forseti Bandaríkjanna voru miklar
vonir bundnar við hann í öðrum
löndum og margir væntu mikilla
breytinga á stefnu Bandaríkjanna
eftir átta ára valdatíð George W.
Bush. Nú þegar Obama hefur verið
við völd í átta mánuði er farið að
gæta vaxandi óþolinmæði í garð
hans. Margir hafa orðið fyrir von-
brigðum með hversu hægt hefur
gengið að koma umbótastefnu hans í
framkvæmd.
Obama hefur ekki aðeins átt undir
högg að sækja heima fyrir vegna
vaxandi andstöðu við áform hans um
breytingar á heilbrigðiskerfinu held-
ur stendur hann frammi fyrir vax-
andi óánægju meðal annarra þjóða
sem bundu miklar vonir við hann.
Eftirgjöf í deilu við Netanyahu
Hafa þarf í huga að Obama tók við
forsetaembættinu á mjög erfiðum
tíma vegna efnahagskreppunnar og
mörg af vandamálunum eru torleyst.
Til að mynda hefur hvorki gengið né
rekið í friðarumleitunum Banda-
ríkjastjórnar í Mið-Austurlöndum.
Obama hefur lagt fast að Ísraelum
síðustu fjóra mánuði að stöðva öll
áform um stækkun landtökubyggða
gyðinga á Vesturbakkanum og sagt
það nauðsynlegt til að fá araba að
samningaborðinu. Forsetinn hefur
nú í raun lagt þessa kröfu til hliðar
vegna mótþróa Benjamins Netanya-
hus, forsætisráðherra Ísraels, og
sagt að viðræðurnar þurfi að hefjast
þótt Ísraelar hafi ekki fallist á kröf-
una.
Obama sagði þessa eftirgjöf nauð-
synlega til að friðarviðræður gætu
hafist milli Ísraela og Palest-
ínumanna. „Nú er tími til að sýna
þann sveigjanleika, þá heilbrigðu
skynsemi og málamiðlun sem þarf til
að ná markmiðum okkar,“ sagði
Obama fyrir fund með Mahmoud
Abbas, forseta Palestínumanna, og
Netanyahu í New York í fyrradag.
Aðstoðarmaður Abbas sagði að þessi
eftirgjöf Obama veikti hann í augum
Palestínumanna og vekti efasemdir
um að hann gæti haft næg áhrif á
Ísraela ef friðarviðræður hæfust.
Framganga Obama í umhverf-
ismálum hefur einnig valdið von-
brigðum. Í kosningabaráttunni lof-
aði Obama því að gerbreyta stefnu
Bandaríkjanna í umhverfismálum,
einkum hvað varðar aðgerðir til að
stemma stigu við loftslagsbreyt-
ingum í heiminum.
Framganga Obama í þessum
málaflokki hefur einkennst af yf-
irlýsingum, sem hafa aðallega tákn-
rænt gildi, en minna hefur verið um
raunverulegar aðgerðir. Obama get-
ur einkum státað sig af reglum sem
hann setti um aukna sparneytni
nýrra bíla. Með nýju reglunum voru
sett markmið, sem eiga að nást fyrir
árið 2020, en evrópskir og japanskir
bílaframleiðendur náðu sömu mark-
miðum fyrir nokkrum árum og Kín-
verjar hafa þegar náð þeim, að sögn
breska dagblaðsins Guardian.
Evrópusambandið hefur lagt til að
iðnríkin skuldbindi sig til að minnka
losun gróðurhúsalofttegunda um
20% fyrir árið 2020 eða um 30% ef öll
iðnríkin samþykkja það. Stjórn
Obama hefur ekki viljað ganga svo
langt og hún segir að iðnríkjunum
eigi að vera í sjálfsvald sett hvort
þau setji sér slík markmið.
Vaxandi óþolinmæði og
óánægja í garð Obama
Margir hafa orðið fyrir von-
brigðum með hversu hægt hefur
gengið að koma umbótastefnu
Baracks Obama í framkvæmd á
þeim átta mánuðum sem liðnir
eru frá því að hann varð forseti.
Munum senn geta snúið öldrun við
„Steinaldarlíkamanum“ skipt út
Ray Kurzweil