Morgunblaðið - 24.09.2009, Page 26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2009
Á UNDANFÖRN-
UM vikum hafa lands-
menn orðið varir við
söfnunarátak Eddu
Heiðrúnar Backman
undir heitinu „Á rás
fyrir Grensás“ sem hún
á frumkvæði að með
góðum stuðningi Holl-
vina Grensásdeildar.
Markmið átaksins er
að safna 500 milljónum
króna til að byggja
þjálfunarhúsnæði við Grensásdeild-
ina og bæta aðstöðu sjúklinga og
fjölskyldna þeirra á deildinni.
Starfsemi
Grensásdeildin hefur verið starf-
rækt frá 1973. Frá upphafi hefur
endurhæfing verið rauði þráðurinn í
starfseminni, í fyrstu sem hluti af
Borgarspítalanum en frá árinu 2000
sem hluti af Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi og gegnir deildin nú
þjónustu við allar bráðadeildir sam-
einaðs sjúkrahúss. Flestir þekkja
hlutverk deildarinnar gagnvart slös-
uðum enda þjónar hún mörgum sem
hlotið hafa fötlun vegna slysa. Fjöl-
áverkar, mænuskaðar og heilaskað-
ar eru þar á meðal. Deildin hefur
einnig stórt hlutverk gagnvart þeim
sem verða fyrir alvarlegum afleið-
ingum sjúkdóma, s.s. heilablóðfalla,
krabbameina, sýkinga og útlima-
missis. Fleiri lifa af alvarleg veikindi
en áður var og margir búa við var-
anlegar afleiðingar þeirra, m.a. fötl-
un. Framfarir hafa orðið miklar í
endurhæfingu, hjálpartækjum og
lækningum, m.a. með ígræddum
lækningabúnaði sem gefur fleirum
kost á meiri lífsgæðum en áður
þekktist.
Grensásdeild þjónar
árlega á milli 5-600
manns á legudeild.
Daglega eru um 60
manns í endurhæfingu
á legudeild og dagdeild.
Auk þessa er starfrækt
fjölbreytt göngudeild
og heilsurækt. Í þjálf-
unarlaug koma 70-100
manns dag hvern.
Húsnæði
Húsnæði deild-
arinnar er barn síns
tíma. Eðli starfseminnar hefur
breyst og kröfur samfélagsins einn-
ig. Flestir sjúklingar þurfa einhvers
konar hjálpartæki, s.s. göngugrind-
ur eða hjólastóla, sumir fá næringu
um slöngu eða þurfa á súrefnisgjöf
að halda. Hjálpartæki taka eðlilega
talsvert pláss. Þjálfunarhúsnæðið er
löngu orðið allt of þröngt, bæði
vegna framangreinds en einnig
vegna þess að þjálfunarbúnaður þarf
mikið rými. Hluti þjálfunarhúsnæð-
isins er í kjallara með lágri lofthæð
en slík starfsemi var aldrei hugsuð
þar. Of fá sjúkraherbergi eru eins
manns herbergi. Þrír til fjórir sjúk-
lingar eru um hvert salerni. Nýir
tímar krefjast betri aðstöðu til sótt-
varna. Aðstaða fjölskyldna er ekki
góð og krafa um bætta aðstöðu ást-
vina er bæði eðlileg og sanngjörn.
Aðstandendur eru oft mikilvægir að-
ilar í endurhæfingarferlinu og leggja
margir þeirra mikið á sig í nærveru
og stuðningi og taka virkan þátt í því
sem fram fer. Stundum nær dvöl á
legudeild yfir marga mánuði. Fjölg-
un eins manns herbergja þar sem
gert er ráð fyrir aðstandendum og
plássfrekum búnaði er því brýnt úr-
lausnarefni.
Viðbygging
Með nýrri byggingu fyrir sjúkra-
þjálfun og iðjuþjálfun skapast bætt
aðstaða til að sinna þjálfun og jafn-
vel taka við fleiri verkefnum. Við
flutning þessarar starfsemi úr
gamla húsnæðinu losnar pláss sem
gefur olnbogarými til annarra nauð-
synlegra breytinga, má þar nefna
matsal fyrir starfsfólk og dag-
sjúklinga, þjálfunaríbúð, dagdeild,
aðra lyftu o.fl. Samhliða þessu gefst
tækifæri til að lagfæra aðgengi og
umhverfi með nýju anddyri, lagfær-
ingu bílastæða og stíga, gerð end-
urhæfingargarðs og margs fleira.
Sem hluti af þjónustu Landspítala
sem landssjúkrahúss gegnir Grens-
ásdeildin lykilhlutverki í endurhæf-
ingu á Íslandi. Verkefni deild-
arinnar eru umfangsmikil og
krefjandi og varða okkur öll. Kom-
inn er tími til að bæta aðstöðu sjúk-
linga, aðstandenda og starfsfólks í
takt við breytta tíma. Söfnunarátak
Eddu Heiðrúnar er sprottið úr gras-
rót þeirra sem sjálf hafa reynslu af
þessum vettvangi og vilja bæta úr
með fjársöfnun til viðbyggingar og
endurbóta. 500 milljóna takmarkið
endurspeglar þann kraft og fram-
sýni sem einkennir átakið. Fyrir fáa
er það há fjárhæð en saman náum
við settu marki, aðeins þarf um 1.600
krónur á hvert mannsbarn á Íslandi
til að ná því.
Á rás fyrir Grensás
Eftir Stefán
Yngvason
» Grensásdeild þjónar
árlega á milli 5-600
manns á legudeild. Dag-
lega eru um 60 manns í
endurhæfingu á legu-
deild og dagdeild.
Stefán
Yngvason
Höfundur er yfirlæknir endurhæfing-
ardeildar Landspítala á Grensási.
Svakalega er skrýt-
ið að verða löggilt
gamalmenni á Íslandi
í dag. Sá sem er ör-
yrki, þegar hann
verður 67 ára, er ekki
lengur öryrki. Hann
er allt í einu orðinn
sprellfjörugur ellilíf-
eyrisþegi (ath.
„þegi“).
Hvað þýðir það?
Það þýðir að hann er greinilega
ekki lengur ófær um að vinna, get-
ur loksins stokkið alheill, hress og
kampakátur út á blómlegan vinnu-
markaðinn, ef hann bara nennir.
Hann þarf ekki lengur að borða
eins mikið og áður, ekki að kaupa
sér fatnað, ekki að fara eitt eða
neitt eða gera eitthvað sem kostar.
Hann þarf hvorki að greiða af-
borganir af lánum sínum né standa
við aðrar, áður gerðar skuldbind-
ingar.
Dæmi frá TRST, þegi á 67 ára
afmæli í september:
Kr. 60.000 útborgaðar ör-
orkubætur jan.-júní 2009, lækkuðu
síðan í júlí-sept. í liðlega 50.000,
samkvæmt nýjum lögum og verða
kr. 48.000 okt. til áramóta 2009.
Samtals kr. 12.000 skerðing eða
20%. Greiðslur úr lífeyrissjóði hafa
hins vegar ekki hækkað nema um
nokkra vísitöluhundraðkalla í senn,
samtals um kr. 4.000 frá áramót-
um. Á meðan grasserar verðbólg-
an og dýrtíðin og ómögulegt er að
ná endum saman. Tekjur hans frá
Tryggingastofnun ríkisins skerðast
nefnilega um 20% um leið og hann
hættir að vera öryrki og verður 67
ára, samkvæmt lögum, sem sér-
fróðir menn hafa samið og aðrir
pólitískir töframenn á
alþingi hafa samþykkt
og sett, þrátt fyrir að
hafa sagt okkur að
aldrei verði hróflað
við kjörum þeirra sem
verst eru settir í þjóð-
félaginu. Það var að
minnsta kosti for-
senda núverandi vald-
hafa, sem við trúðum
og við kusum þá,
kannski einmitt út frá
þessari fullyrðingu.
(Sérfræðingar virðast
vera menn sem vita mjög mikið
um afar lítið. Ekki má því ætlast
til að sérfræðingar hafi þar að
auki almenna dómgreind. Það er
til of mikils mælst eftir allt, sem
þeir hafa þurft að læra af bók-
unum.)
Þeir gleymdu einu, sem hefði
komið sér vel fyrir „þegaræfilinn“.
Þeir hefðu átt að gefa honum upp-
skrift að því hvernig hann getur
nú lifað af 20% lægri bótum, þegar
allt kostar helmingi meira en í
fyrra, þegar þær dugðu ekki. Þeir
mega samt eiga það greyin, að
honum er boðið í sund, strætó og
Húsdýragarðinn. Þótt öryrkinn
hafi ekki haft þrek til að notfæra
sér þessi hlunnindi hlýtur aft-
urbataellismellurinn að leika sér
að því.
Aldraðir og öryrkjar: Gengur
það lengur að láta ljúga svona
stanslaust að sér, láta svíkja okkur
ár og áratugi eða þurfum við að
stofna margrætt stjórnmálaafl (A-
Ö-listann), sem ekki náðist sátt um
á sínum tíma, til ná rétti okkar frá
þessum gjörspilltu siðblindingjum,
sem keyptu bankana á lánum, sem
þeir gátu svo ekki greitt þegar til
kom, óðu inn á reikningana okkar
með einbeittum afbrotavilja og
tæmdu þá og skildu hvarvetna eft-
ir sig ónýta pappíra í staðinn, til
þess að svala geðveikri græðgi
sinni, til þess að leggja meira og
meira að veði í spilavítum í útlönd-
um og tapa síðan öllu okkar fé. Og
ekki bara okkar heldur komandi
kynslóða líka.
Gleymum ekki öllum þeim, sem
þóttust hafa umboð þjóðarinnar til
að ýta undir þessa glæpastarfsemi
og þeim sem með grunnhyggnum,
heimskum lagasetningum, sam-
þykktum og reglugerðum létu
þetta viðgangast. Allt eru þetta
landráðamenn og bar að fara með
þá sem slíka strax. Nú er hins
vegar líklega of seint að taka þá
úr umferð, enda sýnist mér að
áfram skuli haldið á sömu braut
með sömu grundvallarhugmyndum
og komu okkur í þrot.
Þar að auki hafa þessir „snill-
ingar“ eytt gögnum og hulið slóð
sína eins vel og þeim var unnt
þetta ár sem liðið er síðan upp
komst. Og svo til að kóróna þessa
forheimsku eigum við saklausir
þegnar þessa lands að greiða öðr-
um þjóðum það sem þetta glæpa-
hyski skuldar þeim, sem sagt féð
sem þeir stálu upphaflega af
reikningunum okkar í bönkunum
okkar og skildu eftir verðlausa
skuldaviðurkenningarmiða í stað-
inn.
Af óvinnufærum öryrkjum og
eldsprækum ellismellum
Eftir Stefán
Aðalsteinsson » Sá sem er öryrki,
þegar hann verður
67 ára, er ekki lengur
öryrki. Hann er allt í
einu orðinn sprellfjör-
ugur ellilífeyrisþegi …
Stefán Aðalsteinsson
Höfundur er fv. verslunarmaður.
– meira fyrir áskrifendur
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan
16.00 mánudaginn 28. september.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105, kata@mbl.is
Morgunblaðið gefur út glæsilegt
sérblað um vinnuvélar,
atvinnubíla, jeppa, pallbíla,
fjölskyldubíla og fl.
föstudaginn 2. október 2009.
Í þessu blaði verða kynntar
margar þær nýjungar sem í boði
eru fyrir leika og lærða
Meðal efnis verður :
Vinnuvélar
Námskeið um vinnuvélar.
Atvinnubílar.
Fjölskyldubílar.
Pallbílar.
Jeppar.
Nýjustu græjur í bíla og vélar.
Varahlutir.
Dekk.
Vinnufatnaður.
Hreyfing og slökun atvinnubílstjóra.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni og
fróðleiksmolum.
Vinnuvélar
og bílar