Morgunblaðið - 14.11.2009, Qupperneq 15
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2009
VM Stórhöfða 25 110 Reykjavík sími 575 9800 www.vm.is
DagSkRá
Vilhjálmur Bjarnason ræðir hrunið, reglurnar
og framtíð okkar Íslendinga
Málefni VM
Önnur mál
VÉLASALAN ehf. færði í
fyrradag Slysavarnaskóla sjó-
manna að gjöf tíu Typhoon
þurrbúninga ásamt Geco ör-
yggishjálmum til notkunar við
kennslu í skólanum.
Vélasalan var á sínum tíma
stofnuð af Gunnari Friðriks-
syni, fyrrum formanni Slysa-
varnafélags Íslands, og með
gjöfinni vill fyrirtækið leggja starfi Slysavarnaskóla sjómanna lið í því
mikilvæga verkefni að fækka slysum á sjó. Gjöf þessi mun nýtast skólanum
vel við alla þjálfun og jafnframt sýna sjómönnum hversu mikilvægt er að
búnaður manna sé alltaf sem bestur.
Slysavarnaskóli sjómanna fær
góða gjöf frá Vélasölunni
FYRSTA opna danssýning íþróttafræðaseturs Háskóla Íslands verður
haldin 25. nóvember nk. Sýningin er í samstarfi við tvo grunnskóla í ná-
grenni Laugarvatns, Grunnskóla Bláskógabyggðar og Grunnskólann
Ljósaborg og verða dansararnir á aldursbilinu 6-39 ára.
Danssýningin er haldin í íþróttahúsi Háskóla Íslands að Laugarvatni og
hefst kl. 15. Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis.
Sporið tekið við Laugarvatn
LEIKFÉLAG Akureyrar stendur
fyrir málþingi um mansal í Ketil-
húsinu á Akureyri þann 17. nóv-
ember nk.
Á málþinginu mun dómsmála-
ráðherra flytja erindi ásamt Mar-
gréti Steinarsdóttur, framkvæmda-
stjóra Alþjóðahúss, Guðrúnu Jóns-
dóttur, forstöðukonu Stígamóta, og
Fríðu Rós Valdimarsdóttur mann-
fræðingi. Málþingið hefst með sýn-
ingu á Lilju í Rýminu kl. 15. Að
henni lokinni hefjast framsögu-
erindi og pallborðsumræður.
Málþing um
mansal
DAGUR íslenskrar tungu er nk.
mánudag og að því tilefni stendur
Ársafn Borgarbókasafnsins, í
Hraunbæ 119, fyrir maraþon-
upplestri frá kl. kl. 11-19.
Góðir grannar frá vinnustöðum,
skólum og heimilum í hverfinu ætla
að lesa upp og starfsmenn taka
einnig þátt, en þema dagsins er ást
og vinátta í öllum sínum myndum.
Lesefnið verður fjölbreytt því hver
lesari getur komið með efnið sem
hann langar til að lesa. Safnið býð-
ur kaffi, djús og ástarpunga í tilefni
dagsins. Allir eru velkomnir.
Maraþonupp-
lestur í Ársafni
VÉLSLEÐAMÖNNUM gefst um
helgina færi á að hittast og bera
saman bækur sínar á sleðamessu
björgunarsveitanna. Á laugardag-
inn koma björgunarsveitarmenn
saman í húsi Björgunarsveitar
Hafnarfjarðar, en á sunnudag verð-
ur sleðamessan opnuð almenningi í
Sporthúsinu, Dalsmára. Þar má
m.a. fræðast um leit í snjóflóðum og
félagabjörgun, ofkælingu, búnað
sleðans, sprungur og svelgi. Einnig
munu fyrirtæki sýna búnað er teng-
ist ferðamennsku á vélsleðum.
Björgunarsveitirnar
efna til sleðamessu
NORRÆNA fé-
lagið stendur nk.
miðvikudag fyrir
námskeiði á Aku-
eyri sem ætlað er
fólki sem hyggur
á flutning til
hinna Norður-
landanna. Nám-
skeiðið er haldið
í samvinnu við Eures, evrópska
vinnumiðlun, og Norrænu upp-
lýsingaskrifstofuna á Akureyri.
Námskeiðið er stutt, en farið
verður yfir helstu atriði sem þarf
að hafa í huga við flutning. Það
hefst kl. 16.30 í Deiglunni, Kaup-
vangsstræti 23 á Akureyri og er
ókeypis og öllum opið. Skrá þarf þó
þátttöku fyrir 16. nóvember nk. á
netfanginu mariajons@akureyri.is
eða í síma 462 7000.
Flutningur til
Norðurlanda
kynntur
RÍKHARÐUR Jónsson fagnaði áttræðisafmæli sínu á fimmtudag. Af því til-
efni tóku félagar í Knattspyrnufélagi ÍA hús á honum og sést Gísli Gísla-
son, formaður knattspyrnuráðs ÍA, hér ásamt Ríkharði og konu hans Hall-
beru Guðnýju Leósdóttur.
Ríkharður var formaður ÍA um árabil og er nú heiðursfélagi Íþrótta-
bandalags Akraness og Knattspyrnufélags ÍA. Hann lék líka með fyrsta
meistaraflokksliði ÍA 1946, þá aðeins 16 ára gamall og í heildina lék hann
alls 185 leiki með liðinu. Ríkharður hefur einnig verið sæmdur æðstu heið-
ursmerkjum ÍSÍ og KSÍ, sem og fálkaorðu hins íslenska lýðveldis.
Heiðursfélaginn hylltur
STUTT
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
„ÞETTA er mikill munur. Við vor-
um í bráðabirgðahúsum við grunn-
skólann. Nú gefst nemendum kost-
ur á að ljúka tónlistarnáminu á
meðan þeir eru í skólanum. Það er
sérstaklega gott fyrir nemendur úr
sveitinni,“ segir Lázló Czenek,
skólastjóri Tónlistarskóla Rang-
æinga. Tekið hefur verið í notkun
nýtt sérbyggt húsnæði fyrir tón-
listarskólann á Hvolsvelli.
Húsnæði tónlistarskólans er í
viðbyggingu við Hvolsskóla, 802
fermetrar að stærð á þremur hæð-
um. Auk aðstöðu fyrir tónlistar-
skólann er hluti hússins samnýttur
með Héraðsbókasafni Rangæinga
og Hvolsskóla, svo sem fyrir
kennslu- og fundarstofu með fjar-
fundarbúnaði og geymslur í kjall-
ara.
Byggingin kostaði með húsbún-
aði um 265 milljónir kr. Sveitarfé-
lagið tók 75 milljónir að láni vegna
verksins.
Sérútbúnar stofur
Lázló er ánægður með húsnæðið.
Á efstu hæðinni eru sérútbúnar
stofur til hljóðfærakennslu. Þær
eru vel einangraðar auk þess sem
einn veggur í hverri stofu er skakk-
ur til að drepa niður bergmál.
„Við fundum fyrir auknum áhuga
strax í haust. Það hefur gengið vel
hjá okkur, þrátt fyrir þrengingar í
efnahagslífinu og nemendur eru
fleiri en í fyrra,“ segir Lázló.
Nemendum fjölgar
í tónlistarskólanum
Tónlistarskóli
Rangæinga í
nýtt húsnæði á
Hvolsvelli
Ljósmynd/Ólafur Eggertsson
Framfarir Hús tónlistarskólans á Hvolsvelli er viðbygging við Hvolsskóla.
Ljósmynd/Þuríður H. Aradóttir
Tónlist Strákaband leikur við opnun nýja tónlistarskólans.