Morgunblaðið - 14.11.2009, Side 41

Morgunblaðið - 14.11.2009, Side 41
Minningar 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2009 fyrst. Eftir það varð ekki aftur snúið. Takk fyrir allt, elsku Ransý mín, það var mér sannur heiður að fá að kynnast þér. Hvíldu í friði og Guð blessi þig. Ég elska þig alltaf. Þín Michelle. Elsku Rannsý mín. Hún er runnin upp kveðjustundin alltof fljótt, fallega vinkona mín, og þó svo ég hafi verið hrædd um það af og til að þessi barátta myndi tapast hjá þér, gastu alltaf fullvissað mig um að allt yrði í lagi að lokum. Og ég virkilega vildi trúa því. Enda, hvernig er annað hægt, fjör- ið í augunum og dugnaðurinn sem þú sýndir gáfu fyrirheit um að allt yrði sennilega í lagi. Ég vissi af þér í mörg ár, áður en við urðum vinkonur, það þyrlaðist í kring um þig lífið og fjörið og sem áhorfandi í fjarlægð var ég viss um að ég væri ekki, hvað segir maður, þín týpa? En svo hittumst við, og ég skildi að þér fannst allt fólk þín týpa, og að fjörið og dugnaðurinn kom frá einlægri stúlku sem ekkert aumt mátti sjá og vildi öllum svo mikið vel, hvort sem um var að ræða ókunnuga eða vini og vandamenn. Og ég hafði þau forréttindi að vera þér náin í mörg ár þegar þér leið svo vel og varst svo hamingjusöm og ánægð, með börnunum þínum og fjöl- skyldu, þær stundir ætla ég að varð- veita vel í hjartanu og muna. Það er svo margt að rifja upp elsku vinkona, vilja þinn til þess að vera til staðar fyrir vini þína og fjölskyldu, heimili þitt sem, hvar sem þú bjóst var alltaf rómantískt og fallegt, ást- ina sem þú barst til barnanna þinna. Já, og líka orðheppnina, þú gast sagt ótrúlegustu hluti sem út úr öðr- um myndu hljóma, ja ekki nógu vel, en voru fullkomlega í lagi komandi frá þér. Ræktaðu garðinn þinn, sagðirðu einu sinni við mig þegar þér fannst of langt síðan þú hafðir heyrt í mér, og ég reyndi upp frá því að gera einmitt það þegar við hittumst. Og þegar við töluðum síðast saman í síma, var ákveðið að við yrðum að fara að hittast, ég var erlendis þegar þetta símtal átti sér stað, og mikið er ég fegin að hafa talað við þig þann daginn, annars hefði verið óbærilega langt síðan við töluðum saman. Og þó svo að hittingnum sé frestað veit ég að á móti þér tekur breiður faðmur þeirra sem á undan fóru, og ég veit líka að þinn æðri máttur bíður þín með frið ást og ró. Ég sendi börnum þínum og fjöl- skyldu allri mínar innilegustu samúð- arkveðjur og bið guð að styrkja ykkur öll á þessum erfiða tíma. Ég ætla líka að trúa þvi að nú sé allt í lagi. Harpa. Elsku besta vinkona, nú kveðjumst við í hinsta sinn. Við vorum búnar að vera vinkonur í 35 ár og áttum yndislegan tíma sam- an. Allar minningarnar geymi ég í mínu hjarta. Þetta er stórt skarð sem þú skilur eftir. Nú veit ég að þú ert komin í Paradís og öllum þínum þján- ingum lokið. Ég mun ætíð geyma þig í mínu hjarta og þar átt þú stórt pláss og ég er svo lánsöm að eiga svo margt fallegt sem þú hefur gefið mér í gegn- um tíðina. Elsku Ransý mín, hvíldu í friði. Samúðarkveðjur til Tryggva, Íris- ar og barna. Til Kristínar og Klöru dætra þinna. Til Jenna litla sonar þíns og Michelle fósturdóttur þinnar. Einnig vil ég votta Georg og Súsönnu mína dýpstu samúð. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Reinhold Niebuhr.) Einnig senda Haukur Sveinn Hauksson og Gísli Þór Hauksson sín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Þín Anna Aðalsteinsdóttir og Róbert M. Elsku kæra vinkona. Nú ertu farin yfir móðuna miklu og komin til Jesú Krists og Maríu meyj- ar, þar sem allt er fallegt og gott og nú hefur þú fengið friðinn sem þú þráðir svo mikið. Það var okkur heið- ur að fá að kynnast þér og áttum við rúmlega þrjátíu ár saman. Við þökk- um þér fyrir samveruna í gegnum ár- in, bæði fyrir súrt, sætt, tár og gleði. Strákarnir okkar léku sér mikið sam- an yngri árum og frömdu mörg prakkarastrikin saman. Elsku Rannsý mín, ég þakka þér fyrir að elska dóttur mína Michelle Marie frá fæðingu og vera henni stoð og styrkur í lífinu. Við kveðjum þig, elsku Rannsý og eigum eftir að sakna þín mikið, elsku stelpan okkar. Við vottum börnum þínum og systkinum þínum okkar dýpstu sam- úð. Guð veri með ykkur. Við látum þetta litla ljóð fylgja með þér, elsku Rannsý. Í sólhvítu ljósi hinna síðhærðu daga býr svipur þinn. Eins og tálblátt regn sé ég tár þín falla yfir trega minn. Og fjarlægð þín sefur í faðmi mínum í fyrsta sinn. (Steinn Steinarr.) Bless í bili. Þínar Gayle og Hólmfríður (Íja). Í dag kveðjum við vinkonu okkar, hana Ransí. Við vorum 6 hressar, ungar konur sem lærðum svæðanudd fyrir 11 árum og höfum alltaf haldið sambandi í gegnum árin. Á þessum tíma hafðir þú nýlega eignast hann Jenna þinn og allt gekk vel. Þetta voru góð ár. Við kláruðum skólann og héldum sambandi, einu sinni á ári hittumst við í sumarbústaðnum hennar Ingu og þá skemmtum við okkur konung- lega. Þú varst ávallt hress og skemmtileg. Þín verður sárt saknað, kæra vinkona. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Við þökkum þér, kæra vinkona, all- ar stundirnar sem við áttum saman. Þú verður með okkur áfram í minn- ingunni. Við vottum börnum þínum innilega samúð og biðjum um styrk fyrir þau. Nuddurnar, Kristín, Vilhelmína, Sigríður, Anna og Ingibjörg. ✝ Gísli Gíslasonfæddist í Hvammi á Barðaströnd 21. maí 1918. Foreldrar hans voru hjónin Salóme Guðmundsdóttir og Gísli Gíslason er þar bjuggu. Gísli var þriðji í röð sjö barna þeirra hjóna. Af þeim eru á lífi Guðmundur og Gunnar en látin eru systurnar Guðrún og Hákonía, sem voru eldri, og bræðurnir Kristján Pétur og Hjalti. Föður sinn missti Gísli þegar hann var aðeins fimm ára gamall. Móðir hans stóð áfram fyrir búi næsta áratuginn. Gísli var hjá nýj- um ábúanda í Hvammi til vors 1934, fór þá í vinnumennsku að Saurbæ á Rauðasandi. Frá Saurbæ kom hann aftur að Hvammi árið 1943, en þá reksfirði og hafði ekki misst úr sumar þegar sunnanverðir Vest- firðir tengdust þjóðvegakerfi landsins við Fjarðarhornsá austan Klettsháls. Þá var tekið til við að leggja veg frá Hellu í Vatnsfirði á Barðaströnd upp á Dynjandisheiði. Var Gísli í hópi þeirra vegagerð- armanna sem fögnuðu, ásamt fleir- um, tengingu norðanverðra Vest- fjarða við þjóðvegakerfið fyrir hálfri öld.Við þjóðveginn upp á Dynjandisheiði skammt fyrir norð- an Hellu stendur minnisvarði um vegagerðarmanninn. Kunnugir telja sig þekkja andlitsdrætti Gísla á styttunni. Á Tálknafjarðarár- unum vann Gísli mest við fisk- verkun. Árin 1966 til 1971 vann hann við saltfiskverkun í Grindavík á vetrum og með símavinnuflokki á sumrum. Eftir að Gísli fluttist til Patreksfjarðar fór hann fljótlega að vinna hjá Áhaldahúsi Patreks- hrepps og vann þar til starfsloka. Útför Gísla fer fram frá Ísafjarð- arkirkju í dag, 14. nóvember, og hefst athöfnin kl. 14. bjuggu þar Hákonía systir hans og maður hennar Karl Sveins- son. Til Tálkna- fjarðar fluttist hann árið 1961 en aftur að Hvammi í árslok 1965. Frá Hvammi fluttist Gísli síðan al- farið til Patreks- fjarðar í árslok 1971 og bjó þar í íbúð sinni að Urðargötu 9 til hausts 2008. Þá var hann fluttur sjúkur á Fjórðungssjúkra- húsið á Ísafirði þar sem hann var í góðu yfirlæti uns hann lést 31. októ- ber sl. Fram um 1960 vann Gísli vega- vinnu á sumrum og ýmsa vinnu til sveita og við sjávarsíðuna á öðrum árstímum. Hann mun hafa byrjað vegavinnu á Raknadalshlíð í Pat- Okkur langar að minnast góðs vinar, Gísla Gíslasonar, sem lést hinn 31. okt. sl., 91 árs að aldri. Gísli var stórbrotinn persónu- leiki, hann var það sem nútíma vís- indi myndu sennilega kalla mis- þroska. Hann eignaðist marga góða vini og fjölda kunningja, en til voru líka einstaklingar sem nýttu sér annmarka hans. Orðið vinur hafði stóra merkingu í hans huga. Sumarið 2008 heimsóttum við Gísla á heimili hans á Patreksfirði, þar sat einmana gamall maður í óhrjálegu umhverfi. Í rúmt ár hafði Gísli átt heima á öldrunardeild Fjórðungssjúkra- hússins á Ísafirði. Þar leið honum vel, og þar sáum við aftur þann Gísla sem við þekktum áður, kátan og félagslyndan, með brennandi áhuga á pólitík og íslenskri knatt- spyrnu. Fyrir mánuði sagði hann orðrétt „Ég verð hér þann tíma sem mér er ætlaður, ég fékk nú eitt gott ár í lokin“. Gísli minn, við vitum að þú færð góðar móttökur á nýjum stað. Afrek þín verða ekki í annálum talin né upphafið nafn þitt á gullnum skýjum, en í hjarta mannsins er fegurðin falin fagnað þér verður í heimkynnum nýjum. (G.G.) Farðu vel vinur, Hrafn og Guðríður. Gísli Gíslason ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, PÉTURS ÓLAFS WELKER ÓLAFSSONAR, Frostafold 2, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við gjörgæsludeild Landspítalans Fossvogi og Axel Sigurðssyni hjartalækni fyrir góða umönnun og hlýju. Guð blessi ykkur öll. Sigrún Þ. Welker Friðgeirsdóttir, Guðrún Ólöf Sumarliðadóttir, Þorbjörn Ásgeirsson, Hrólfur Arnar Sumarliðason, Sólveig R. Sæbergsdóttir, Pétur Ólafur Pétursson, Jónheiður B. Kristjánsdóttir, Rúnar Þór Pétursson, Heiða Steinarsdóttir, Karen Welker Pétursdóttir, Stefán Viðar Egilsson, Birgir M. Welker Pétursson, Stefanía Helga Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn.                          ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, MARGRÉTAR SCHEVING, Hringbraut 45, Reykjavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar A2 á Grund fyrir umönnun og hlýlegt viðmót. Guð blessi ykkur öll. Ágústa Erlendsdóttir, Baldur Sveinn Scheving, Konný Hansen, Gylfi Guðmundur Scheving, Jóhanna Guðríður Hjelm, Knútur Örn Scheving, Anna Helga Kristinsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RÓSU GEIRÞRÚÐAR HALLDÓRSDÓTTUR, Rjúpufelli 31, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild B2 Landspítala Fossvogi og starfsfólki á deild K2 Landspítala Landakoti fyrir hlýhug og góða umönnun. Rósa Sigríður Sigurðardóttir, Þorleifur Már Sigurðsson Dóra Guðný Sigurðardóttir, Jón Harry Óskarsson, Elmar Örn Sigurðsson, Tinna Sigurðsson, Kristján Guðni Sigurðsson, Heimir V. Pálmason, Emil Thorarensen, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVANFRÍÐAR KRISTÍNAR BENEDIKTSDÓTTUR frá Hnífsdal, Sóltúni 2, Reykjavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á hjúkrunarheimilinu Sóltúni fyrir frábæra umönnun. Guð blessi ykkur öll. Ágúst Jónsson, Birna Geirsdóttir, Sigurborg Sveinbjörnsdóttir, Jón K. Guðbergsson, Anna Jenný Rafnsdóttir, Gylfi Ingólfsson, Ásdís Lára Rafnsdóttir, Elinborg Jóna Rafnsdóttir, Edda Maggý Rafnsdóttir, Þórarinn Kópsson, Aðalheiður Arna Rafnsdóttir, ömmubörn og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.