Morgunblaðið - 14.11.2009, Qupperneq 49
Velvakandi 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2009
Gæsin er talin mjög styggur fugl. Fuglarnir á Tjörninni laðast hinsvegar
að mannfólkinu sem gefur þeim brauð á góðum degi. Mannfólkið laðast
ekki síður að þeim eins og þessi unga stúlka sem gefur þeim brauðið sitt.
Morgunblaðið/Heiddi
Mannelskir fuglar
Óðinssjóður
ÉG sá það í Morg-
unblaðinu 7. nóvember
síðastliðinn að varð-
skipið Óðinn væri far-
inn að láta ásjá, sem
von er. Hann þarf að
fara í slipp og láta
mála hann. Lífið er um
aura í dag eins og allir
vita. Því legg ég til að
við gamlir sjóarar
stofnum Óðinssjóð til
að létta undir með við-
haldið og þar borgi
þeir sem vilja eftir efn-
um og aðstæðum.
Guðmundur Bergsson.
Heyrnartappi/tæki týndist
HEYRNARTAPPI/tæki inn í eyra
tapaðist á göngu frá Alþingi um
Vesturgötu til Kaffivagnsins á
Granda, milli klukkan 14 og 15,
fimmtudaginn 5. nóvember. Ef ein-
hver hefur fundið heyrnartappann/
tækið þá er þess sárt saknað og er
hægt að koma því til skila með því
að hringja í síma 867-
5205.
Leðurarmband
fannst
LEÐURARMBAND
með þremur steinum
fannst á milli Lista-
brautar og Kringlu-
mýrarbrautar 10. nóv-
ember síðastliðinn.
Eigandi þess getur
hringt í síma 553-5710.
Gucci-herraúr
tapaðist
DÝRMÆTT Gucci-herraúr tapaðist
í World Class í Orkuhúsinu, mögu-
lega í World Class í Laugardal, fyr-
ir u.þ.b. 2-3 vikum síðan. Úrsins er
sárt saknað. Finnandi vinsamlega
hafi samband við Sigurð í síma 866-
3665.
Ást er…
… að hlusta á sögurnar.
Bórisfrísa
Eftir: Þorgrím Kára Snævarr
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Seinni lota deildakeppninnar
um helgina
Mikil spenna er í deildakeppni
Bridssambands Íslands og Iceland
Express, sem fer fram um næstu
helgi 14. og 15. nóvember. Þetta er
seinni umferðin, fyrri umferðin var
spiluð 17. og 18. okt. sl. en keppt
er í tveimur deildum að þessu
sinni.
Í 1. deild eru 8 lið sem spila ein-
falda umferð og fæst þá úr því
skorið hvaða sveit verður deild-
armeistari.
Eftir fyrri hluta keppninnar er
staðan þessi:
Sveit Júlíusar Sigurjónssonar 135
Sveit Eyktar 122
Sveit Breka 110
Sveit Grant Thornton 104
Sveit Tryggingamiðstöðvarinnar 103
Sigurvegari mun hljóta 300 þús.
kr. ferðavinning frá Iceland Ex-
press. Deildameistarar síðasta árs
urðu sveit Eyktar og spiluðu þeir
fyrir Íslands hönd á Norðurlanda-
mótinu í Finnlandi 2009.
Í 2. deild eru 18 lið og hefur
þátttakan aldrei verið meiri. Þar
verða spilaðar 9 umferðir eftir
Monrad-fyrirkomulaginu, en eftir
það skiptist hópurinn. Efstu 6
sveitirnar fara í A-riðil og keppa
um tvö sæti í 1. deild. Hinar 12
sveitirnar fara í B-riðil og spila 5
umferðir eftir Monrad-kerfinu.
Staðan nú er þessi:
Sveit Sagaplast 148
Sveit Kjarans 135
Sveit Garðsapóteks 128
Sveit Riddaranna 120
Sveit Munins 111
Keppnin hefst í báðum deildum
klukkan 11 á laugardagsmorgun í
húsnæði Bridssambandsins í Síðu-
múla 37. Reiknað er með að keppn-
inni ljúki síðdegis á sunnudag.
Allar frekari upplýsingar veitir
Ólöf í síma 898-7162. Hægt er að
fylgjast með keppninni á vefsíð-
unni www.bridge.is
Glæsilegt skor hjá
konunum í Siglufirði
Mánudaginn 2. nóvember var
spilaður eins kvölds tvímenningur,
sem var loka-upphitun fyrir vænt-
anlegt fjögurra kvölda Siglufjarð-
armót í tvímenningi. Ekki fer á
milli mála að þær Kristín Boga-
dóttir og Guðrún Jakobína Ólafs-
dóttir virðast komnar í afgerandi
spilaform, en þær enduðu með
73,75% skor, auk þess að taka
helminginn af öllum toppum sem í
boði voru og að líkindum hafa þær
sett Siglufjarðarmet.
Úrslit urðu annars þessi:
Kristín Bogadóttir – Guðrún J. Ólafsd. 118
Ólafur Jónss. – Guðlaug Márusdóttir 96
Jóhann Jónss. – Gottskálk Rögnvaldss. 92
„Sigurðarmót“, kennt við hinn
kunna bridsfrömuð Sigurð Krist-
jánsson sparisjóðsstjóra, hófst
mánudaginn 9. nóvember sl. Til
leiks mættu 14 pör. Mótið er fjög-
urra kvölda og mun spilað næstu 3
mánudaga. Eins og sjá má af úr-
slitum fyrsta kvöldsins virðist ætla
að verða um jafna og skemmtilega
keppni að ræða, en efstu sæti
skipa:
Anton Sigurbjss. – Bogi Sigurbjss. 188
Hreinn Magnúss. – Friðfinnur Haukss.188
Sigurður Hafliðason – Björn Ólafsson 177
Jóhann Jónss. – Gottskálk Rögnvaldss.177
Ólafur Jónsson – Guðlaug Márusd. 173
Þorsteinn Jóhannss. – Reynir Karlss. 173
Staða efstu spilara í bronsstiga-
baráttunni er nú þessi:
Anton Sigurbjörnsson 64
Bogi Sigurbjörnsson 64
Sigurður Hafliðason 62
Björn Ólafsson 62
Þorsteinn Jóhannesson 27
Friðfinnur Hauksson 24
Hreinn Magnússon 24
Þeir bræður Anton og Bogi virð-
ast því ætla að verjast af hörku
ásókn félaga sinna í að ná af þeim
bronsmeistaratitlinum.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is