Morgunblaðið - 14.11.2009, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 14.11.2009, Qupperneq 60
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 318. DAGUR ÁRSINS 2009 Heimild: Seðlabanki Íslands DOLLARI STERLINGSPUND KANADADOLLARI DÖNSK KRÓNA NORSK KRÓNA SÆNSK KRÓNA SVISSN. FRANKI JAPANSKT JEN SDR EVRA MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG 124,73 208,06 118,16 24,925 22,155 18,119 122,81 1,388 199,13 185,48 Gengisskráning 13. nóvember 2009 125,03 208,57 118,51 24,998 22,22 18,172 123,15 1,3921 199,72 186,0 239,4267 MiðKaup Sala 125,33 209,08 118,86 25,071 22,285 18,225 123,49 1,3962 200,31 186,52  Það hefur verið í nógu að snúast hjá Bryndísi Krist- jánsdóttur skatt- rannsóknarstjóra að undanförnu. En nú bíður Bryndísar nýtt og spennandi verkefni því frá og með þessari helgi fer hún í fæðingarorlof, sem standa mun fram í júní á næsta ári. Fjármálaráðherra hefur ákveðið að Stefán Skjaldarson, skattstjóri Vesturlandsumdæmis, verði settur skattrannsóknarstjóri þennan tíma. Stefán er gamalreyndur og hefur starfað við skattamál frá 1981. SKATTAMÁL Skattrannsóknarstjóri er farinn í fæðingarorlof  Eyjólfur Sverr- isson sat á meðal áhorfenda í bænum Serravalle í San Marínó í gærkvöld og horfði á læri- sveina sína í 21 árs landsliðinu í fót- bolta bursta heimamenn, 6:0. Eyjólf- ur þurfti að taka út eins leiks bann og mátti því ekki stjórna liðinu en Tómas Ingi Tómasson sá um það í staðinn. Eyjólfur sagði við Morg- unblaðið að hann hefði skemmt sér konunglega í stúkunni, enda hefðu strákarnir spilað frábæran fótbolta frá fyrstu mínútu. Þeir hafa nú gert 22 mörk í síðustu fjórum leikjum. FÓTBOLTI Eyjólfur skemmti sér vel á meðal áhorfenda  Í næstu viku hefst alþjóðleg at- hafnavika. Andrea Róbertsdóttir verður þá með „gjörning“ að eigin sögn en hún hefur elt nokkrar ís- lenskar konur á röndum undanfarið og tappað orkunni sem af þeim gust- ar á tóbakshorn. Þau verða seld í nýrri verslun Eymundsson á Skóla- vörðustíg á 1.000 íslenskar krónur og rennur ágóðinn í innkaup fyrir iðjuþjálfun heimilismanna á Hrafn- istu og Grund. ORKUMÁL Átöppuð kvenorka seld á alþjóðlegri athafnaviku Heitast 8°C | Kaldast 2°C  Rigning eða súld með köflum á aust- anverðu landinu en yf- irleitt þurrt vestan til » 10 FÓLK Í FRÉTTUM» TÓNLIST» Egill vill vinna nýtt Þursaefni. »54 Ísland verður heið- ursgestur á bóka- messunni í Frank- furt 2011. Halldór Guðmundsson stýrir vinnunni. »50 BÓKMENNTIR» Frankfurt 2011 LEIKLIST» Megan Fox gerir það ekki endasleppt. »59 TÓNLIST» Metal-munkar þrífast á Ítalíu!? »58 Ingveldur Geirs- dóttir skrifar um svokallaðar „chick lit“-bækur, sem sýna konur í raun- verulegu ljósi. »56 Burt með falsið AF LISTUM» reykjavíkreykjavík 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 VEÐUR» » VEÐUR mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Ríkustu fjölskyldur skera sig úr 2. Héldu að þau hefðu unnið 16.000 3. Valdur að banaslysi 4. Facebook kom honum til bjargar Íslenska krónan styrktist um 1,1% Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is „ÞAÐ hefur verið gaman og fræð- andi að taka þátt í sjálfboðaliðastarf- inu og það hefur opnað augu mín fyrir því um hvað þetta snýst. Ég hef meðal annars verið að vinna í Dvöl, athvarfi sem Kópavogsdeild Rauða krossins rekur fyrir fólk með geð- raskanir,“ segir Valtýr Ingþórsson en hann er einn af þeim nemendum Menntaskólans í Kópavogi sem hafa verið í áfanga við skólann um sjálf- boðið Rauðakrossstarf, en það er kennt í samstarfi við Kópavogsdeild Rauða kross Íslands. Lokaverkefni áfangans felst í því að nemendur skipuleggja og hafa umsjón með árlegum handverks- markaði Rauða krossins sem verður í dag í sjálfboðaliðamiðstöðinni Hamraborg 11 í Kópavogi. Þar ætla krakkarnir að selja fjölbreytt hand- verk sem allt er unnið af sjálf- boðaliðum. Þar má finna fjölbreyttar og fallegar sauma- og prjónavörur, kökur, jólakort og föndur. Einnig verður Afríkuhorn þar sem selt verður handverk frá Mósambík, skartgripir, box, töskur, batikmynd- ir og fleira. Allur ágóði rennur til neyðaraðstoðar innanlands. Ætlar til Afríku seinna meir Hafdís Rún Gylfadóttir tekur nú í annað sinn þátt í þessum áfanga, enda er hún mjög áhugasöm um sjálfboðaliðastarf almennt. „Ég ákvað þegar ég var lítil stelpa að ég ætlaði að vinna fyrir Rauða krossinn þegar ég yrði stór. Strax og ég hef aldur til ætla ég að bjóða mig fram í sjálfboðaliðastörf í Afríku eða ann- ars staðar þar sem þörf er fyrir hjálp. Ég hvet líka vini og fólk í fjöl- skyldunni minni til að leggja sitt af mörkum, það er þörf á mörgum stöðum hér á landi,“ segir Hafdís sem starfaði í fyrri áfanganum í Rjóðrinu sem er hvíldarstaður fyrir langveik börn. „Við vorum að lesa fyrir þau, spjalla og leika, fara með þau út í göngutúra og halda þeim fé- lagsskap. Við aðstoðuðum líka starfsfólkið eftir þörfum. Núna í seinni áfanganum hef ég verið í Eld- hugum, en það er félagsstarf fyrir unglinga af erlendum og íslenskum uppruna, það hefur verið mjög gam- an.“ Nemendur sem velja áfangann Sjálfboðið starf fá fræðslu um hug- sjónir og störf Rauðakrosshreyfing- arinnar og sækja námskeið fyrir sjálfboðaliða. Þau geta valið áfang- ann aftur og allir nemar innan Menntaskólans í Kópavogi geta ver- ið með en í sum verkefnin þurfa þau reyndar að vera orðin 18 ára. Markaðurinn verður opinn frá kl. 11-16 í dag. Menntskælingar með Rauðakrossmarkað í dag Þátttaka í sjálf- boðaliðastarfi er valfag fyrir nema Morgunblaðið/Ómar Gaman Stemningin var góð hjá krökkunum sem voru á fullu í gær að undirbúa markaðinn, raða upp vörunum, verðmerkja og sjá um annað skipulag. Svo er nauðsynlegt að sprella aðeins með fjölbreytt og fallegt handverkið. ÍSLANDSMEISTURUM KR í körfuknattleik karla hefur verið boðið til Chengdu í Kína. Þeir fara þangað skömmu fyrir jólin og spila tvo sýn- ingarleiki gegn sterku kínversku atvinnuliði, Beijing Aoshen. Leikirnir eru liðir í viðamikilli aðstoð við fórnarlömb jarðskjálfta sem reið yfir nágrenni Chengdu á síðasta ári en fjöldi fólks á þar enn um sárt að binda. | Íþróttir KR-ingar til Kína EIVÖR Pálsdóttir gaf í vikunni út tónleikaplöt- una Eivör Live sem hefur að geyma lög frá hin- um og þessum skeiðum í hennar tiltölulega stutta en um leið frjóa ferli. Hún gerði stuttan stans hér á landi í gær og tók upp strengi ásamt félögum úr Caput-hópnum fyrir nýja hljóðvers- plötu sem út kemur í mars á næsta ári. Á henni vinnur hún með hljómsveit, gömlum félögum úr heimabænum Götu, og segist hún hafa rokkað sig nokkuð upp, meira sé um læti og heilnæman hávaða en á fyrri plötum. Í viðtali við Arnar Eggert Thoroddsen segist hún ávallt glöð yfir því að vera komin „heim“, þó að stoppin kunni stundum að vera stutt. | 52 Eivör með tónleikaplötu Færeyska drottningin gerði hér stuttan stans Gyðja Er glöð yfir því að vera komin „heim“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.