Morgunblaðið - 15.12.2009, Síða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2009
Morgunblaðið birtir fram til jóla
upplýsingar um einhverja þeirra
viðburða sem eru á dagskrá vítt
og breitt um landið.
9 dagar til jóla
GRÆNA kaffi-
húsið var opnað
á laugardag sl.
Húsið er lítið
kaffihús sem
stendur inni í
lystigarðinum
Hellisgerði í
Hafnarfirði.
Græna kaffihúsið
vinnur með álfaþema og selur ís-
lenskt handverk. Ýmsar óvæntar
uppákomur eru á döfinni. Á mat-
seðlinum verða meðal annars belg-
ískar vöfflur, jólaglögg, heitt
súkkulaði, Stollen-jólabrauð og
margt fleira.
Græna kaffihúsið
í Hafnarfirði
ÍSLANDSDEILD Amnesty Int-
ernational hefur hafið sölu á jóla-
kortum. Myndin á kortinu ber heit-
ið „Málverk af málverki“, og er
eftir Húbert Nóa Jóhannesson
myndlistarmann. Kortin eru seld á
skrifstofu deildarinnar í Þingholts-
stræti 27 og í ýmsum bókabúðum.
Einnig má panta þau á heimasíðu
Amnesty og í síma.
Jólakort Amnesty
International
JÓLATRJÁASALA Flugbjörg-
unarsveitarinnar í Reykjavík er
hafin og stendur fram á að-
fangadag, 24. desember. Í dag kl.
15-15.30 verður mikil stemning
þegar jólasveinninn kemur í heim-
sókn og syngur með börnunum við
undirspil tveggja hljóðfæraleikara
sveitarinnar
Jólasveinar og tré
JÓLAFUNDUR Handarinnar verð-
ur á morgun, miðvikudaginn 16.
desember nk. kl. 20.30 í neðri sal
Áskirkju.
Nokkrir félagar úr kór Áskirkju
syngja jólalög undir stjórn Magn-
úsar Ragnarssonar og Jón Júl-
íusson leikari les jólasögu auk fleiri
atriða. Kaffi og piparkökur.
Fundur Handarinnar
Fjöldamörg framlög til end-
urbóta og viðhalds á vegum
Húsafriðunarnefndar er að
finna í breytingartillögum
meiri hluta fjárlaganefndar
við fjárlagafrumvarpið.
Þar er m.a. lagt til 1 millj-
ónar kr. framlag vegna Pakk-
húss í Ólafsvík, 3,1 milljón
vegna Faktorshússins á
Djúpavogi, 1 milljón vegna
Salthússins á Þingeyri, 2,4
milljónir vegna gamla kaupfélagsins á Breið-
dalsvík, 4,2 millj. kr. tímabundið framlag vegna
Kvennaskólans á Blönduósi og 2,4 milljónir
vegna gamla mjólkursamlagsins í Borgarnesi.
Framlög til friðunar
Friðað Faktorshús
á Djúpavogi.
„Fyrir 2. umræðu fjárlagafrumvarpsins slakar
stjórnarmeirihlutinn á aðhaldskröfu ríkisstjórn-
arinnar á útgjaldahlið fjárlaga,“ segja þingmenn
Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í nefnd-
aráliti. Þeir gagnrýna frumvarpið harðlega og
segja nauðsynlegt að grípa til sársaukafullra að-
haldsaðgerða til að rétta þjóðarskútuna.
Hins vegar sé gagnrýnivert hversu mikið
rekstur ríkisins þandist út á liðnum árum.
Ástæða hefði verið til, þegar slátturinn í hagkerf-
inu var mikill, að draga úr opinberum rekstri.
Ríkisstjórnin sé einnig „að kasta ísmolum inn í
hagkerfið með skattalagatillögum sínum.“ Þór
Saari, Hreyfingunni, gagnrýnir framlög í fjölda-
mörgum safnliðum frumvarpsins en segir grund-
vallarbreytingar á skattkerfinu til bóta.
Kastar ísmolum
Gerð er tillaga um 75 millj-
óna kr. framlag til Þjóð-
skjalasafnsins til að halda
áfram grunnskráningu og
endurskráningu á lítt eða
óskráðum skjalasöfnum og
vinnu við stafræna gerð
manntala.
Þessu verkefni var komið
á fót í kjölfar tillagna rík-
isstjórnarinnar um mót-
vægisaðgerðir vegna niðurskurðar í þorskkvóta.
Verkefnið hefur skapað fjölda starfa við skjala-
skráningu í einum fimm héraðsskjalasöfnum á
landsbyggðinni og starfa nú 32 einstaklingar við
það.
75 millj. í skjalasöfn
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
MEIRI hluti fjárlaganefndar leggur
til fjölda smærri framlaga til við-
fangsefna af ólíku tagi í breyting-
artillögum við fjárlagafrumvarp
næsta árs. Á sérstöku yfirliti er að
finna hundruð tillagna um aukin út-
gjöld, m.a. til safna og setra víðs
vegar um landið, húsafriðunar, lista
og menningarstarfsemi svo eitthvað
sé nefnt. Önnur umræða um fjár-
lagafrumvarpið hófst í gær og stóð
fram eftir kvöldi.
Alls er lögð til rúmlega 50 milljóna
kr. hækkun stofnkostnaðarframlaga
til 32 viðfangsefna og stofnana. Með-
al þess sem meirihlutinn leggur fyrir
2. umræðu er að einni milljón kr.
verði varið til endurgerðar Skaft-
holtsrétta, 1,1 milljón fari í stofn-
kostnað vegna Fræðaseturs um
náttúruhamfarir vegna gosa í Mýr-
dals- og Eyjafjallajökli og að Félag
áhugamanna um Skrímslasetur fái
2,1 milljón kr. Meirihlutinn vill að
2,8 milljónum verði varið til Salt-
fiskseturs Íslands í Grindavík og 1,7
milljónir kr. fari í kaup á húsnæði
fyrir Sauðfjársetrið á Ströndum, svo
dæmi séu tekin.
Undir liðnum listir er m.a. gerð
tillaga um 15 milljóna kr. framlag til
Leikfélags Reykjavíkur, eina milljón
vegna sumartónleika í Skálholts-
kirkju og tvær milljónir til Drauma-
smiðjunnar – döff-leikhúss.
Á yfirliti um styrki til útgáfumála
er að finna tillögu um þriggja millj-
óna kr. styrk vegna færeysk-
íslenskrar orðabókar, þriggja millj-
óna kr. styrk til heildarútgáfu Ís-
lendingasagna á dönsku, norsku og
sænsku og 1,5 millj. kr. í útgáfu
Charlie Strand, bókar um íslenska
tískuhönnun.
Meirihluti fjárlaganefndar leggur
til að 6 milljónir kr. verði veittar
samtökunum Heimili og skóla og 5
milljónum verði varið vegna rekst-
urs Kvenfélagasambands Íslands.
Rannsaka menninguna
Rökstuðningur að baki tillögum
meirihluta nefndarinnar er oftar en
ekki sá að með þessum útgjöldum sé
stuðlað að atvinnu við þessi við-
fangsefni auk þess að styrkja og
styðja menningarlífið. Alls er gert
ráð fyrir 131 milljónar kr. útgjöldum
á yfirliti yfir ýmis framlög mennta-
og menningarmálaráðuneytisins.
Þar á meðal eru 4 milljónir til menn-
ingarrannsókna, 7,5 milljónir til
uppbyggingar Þórbergsseturs og
1,4 milljónir vegna bókmennta-
hátíðar í Reykjavík.
Af öðrum verkum og viðfangs-
efnum sem fá framlög úr ríkissjóði,
verði tillögurnar samþykktar, eru
Landnámssetur Íslands sem á að fá
5,6 milljónir, verkefnið Vest-
mannaeyjabær – ,,handritin heim“
sem lagt er til að fái 2,8 milljónir og
Heimskautsgerði á Raufarhöfn, 10,5
milljónir króna.
Hundruð tillagna um
framlög til verkefna
Morgunblaðið/Heiddi
Þingfundur Breytingartillögur fjárlaganefndar eru ræddar á Alþingi.
Styrkja menn-
inguna og stuðla
að aukinni atvinnu
50
milljóna kr. lækkun á rekstr-
arframlagi til sendiráða
175
milljónir kr. til að ljúka fram-
kvæmdum við kennsluálmu
Háskólans á Akureyri
30
milljóna kr. hækkun á nið-
urgreiðslum til lýsingar í yl-
rækt vegna hækkunar á raf-
orkuverði
55,3
milljóna kr. hækkun á fjárheim-
ild vegna viðbúnaðar gegn
svínaflensu, bætist við 95
millj. í fjárlagafrumvarpinu
1.167
milljóna hækkun á fjárheimild
vegna S-merktra lyfja stóru
sjúkrahúsanna skv. tillögu
meirihluta fjárlaganefndar
1.500
þúsund króna framlag til jóla-
sveina í Mývatnssveit undir
liðnum ferðamál
Áskriftarsjóður
ríkisverðbréfa
Góður ávöxtunarkostur – einnig í áskrift
Hafðu samband við
ráðgjafa okkar í
síma 460 4700 eða
kynntu þér málið
á www.iv.is
*Árleg meðalávöxtun frá 15.01.2001 til 31.10.2009. Ávöxtun í fortíð er ekki
ávísun á ávöxtun í framtíð.
Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003
um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV
hf. er rekstrarfélag sjóðsins. Útboðslýsingu og nánari upplýsingar er hægt
að nálgast á heimasíðu www.iv.is. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér
útboðslýsingu sjóðsins og þá sérstaklega umfjöllun um áhættuþætti.
Við öflum fyrir þig
9,8%
100%RÍKISTRYGGING
MEÐALÁVÖXTUN*
Strandgata 3 600 Akureyri I Sigtún 42 105 RVK
Sími: 460 4700 I www.iv.is I iv@iv.is