Morgunblaðið - 15.12.2009, Side 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2009
NOKKRAR gerðir björgunarhringja
eru taldar geta verið varasamar að
því er greint er frá á heimasíðu Sigl-
ingastofnunar. Nefndar eru fjórar
tegundir og segir að mjög líklegt sé
að hringir af þessum tegundum hafi
verið settir um borð í íslensk skip.
Beinir Siglingastofnun því til sjó-
manna og útgerða að athuga vel þá
björgunarhringi sem eru um borð í
þeirra skipum.
„Fyrir skömmu setti Siglinga-
stofnun á heimasíðu sína viðvörun til
sjómanna og útgerða um gallaða
björgunarhringi frá framleiðanda á
Ítalíu af gerðinni Altura. Nú hefur
borist viðvörun frá samgöngusviði
framkvæmdastjórnar EB um að fleiri
tegundir björgunarhringja geti verið
varasamir. Þetta eru auk áðurtaldra
hringja, hringir af gerðinni „EVAL,
Livebuoy Code: 542“ líklega af grísk-
um uppruna. Sami aðili vísar einnig í
óstaðfesta viðvörun um aðra tegund
björgunarhringja með sama vand-
kvæði. Þeir eru af gerðinni „Perry-
buoy Cosalt“ framleiddir í Bretlandi,
ásamt einni tegund enn framleiddri
eða dreift af fyrirtækinu UNITOR,“
segir á sigling.is
Minni flothæfni
Allir þessir hringir eru með ytri
skel úr harðplasti en holrými þeirra
er fyllt með frauði, sem skapar flot-
hæfni þeirra. Í nokkrum tilfellum hef-
ur vatn eða sjór komist að frauðinu
sem þá rýrnar og flothæfni hringsins
minnkar verulega. aij@mbl.is
Varasamir björgunarhringir
RAGNHILDUR Erla Bjarnadóttir,
sviðsstjóri leikskólasviðs Reykjavík-
urborgar, leggur
áherslu á að ör-
yggi barna í leik-
skólum borg-
arinnar sé ekki í
hættu og vill leið-
rétta sumt sem
haft er eftir Krist-
ínu Bjarnadóttur
hjá Samtökum
foreldrafélaga
leikskóla í blaðinu
í gær.
Haft var eftir Kristínu að hagræð-
ing í leikskólum bitnaði á fæði, hrein-
læti, búnaði og öryggi barnanna.
Ragnhildur Erla segir þetta ekki alls-
kostar rétt. Leikskólarnir séu vel
mannaðir. Ekki eigi að ráða í stöður
sem losna á skrifstofunni en það eigi
ekki við um leikskólana. Það sé held-
ur ekki rétt að afleysingum fækki
vegna þess að aðstoðar-
leikskólastjórar verði deildarstjórar.
Útboð á ræstingu spari 80 milljónir,
eins og fram komi í fréttaskýring-
unni, en bitni ekki á börnunum, eins
og Kristín segi. Klósettpappír sé ekki
skammtaður hjá leikskólum borg-
arinnar. „Svo segir hún að sparnaður-
inn hafi áhrif á menntun, heilsu og
þroska barnanna,“ segir Ragnhildur
Erla. „Þetta eru stór orð þegar verið
er að hagræða um 1,85% inni í leik-
skólunum sjálfum.“
steinthor@mbl.is
Öryggi barna í leik-
skólum ekki í hættu
Sviðsstjóri segir leikskóla vel mannaða
Að leik Sparnaður
á ekki að bitna á
börnunum.
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Str. 38-56
MUNIÐ
GJAFAKORTIN!
J ó l a s ö f n u n
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
er hafin
Oft var þörf en nú er nauðsyn
Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega
hafið samband á skrifstofutíma í síma 551 4349
eða á netfangið maedur@simnet.is.
Einnig er hægt að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur,
Hátúni 12b.
Hæðasmára 4 · 201 Kópavogur
- Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind
Símar 555 7355 og 553 7355 - www.selena.is
• Undirföt
• Náttföt
• Sloppar
Eddufelli 2, sími 557 1730
Bæjarlind 6, sími 554 7030
www.rita.is
- Munið gjafakortin -
Litir: svart og fjólublátt
Kjólar
Verð kr. 6.900
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími 568 2870 – www.friendtex.is
Jólagjöfina
færðu hjá okkur
Opið mán.-fös. kl. 11.00-18.00, lau 11.00-16.00
30-50% AFSLÁTTUR
AF HAUST- OG
VETRARLISTANUM
Minnum á Friendtex bangsana
á kr. 1.000 til styrktar
Krabbameinsfélaginu.
Neyðarkall
frá Fjölskylduhjálp Íslands
Hátt í 16000 einstaklingar eru nú án atvinnu auk þeirra þúsunda, sem
minna mega sín í þjóðfélaginu. Stór hópur þessa fólks reiðir sig á að-
stoð Fjölskylduhjálparinnar nú um hátíðirnar.
Tökum höndum saman og leggjum okkar að mörkum til að allir geti
haldið gleðileg jól.
Tekið er á móti matföngum að Eskihlíð 2-4
í Reykjavík þriðjudaga kl. 9-13, miðviku-
daga kl. 9-18 og fimmtudaga kl. 9-13. Símar
Fjölskylduhjálparinnar eru 551 3360 og 892
9603. Einnig er tekið á móti framlögum á
reikningi Fjölskylduhjálpar Íslands bnr.
101-26-66090, kt. 660903-2590. Netfang:
fjolskylduhjalp@simnet.is
VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson, forseti borgarstjórnar,
ætlar ekki að gefa kost á sér í næsta prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins vegna borgarstjórnarkosninganna í maí n.k.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Vilhjálmi. Hann hefur
verið borgarfulltrúi í 28 ár og var borgarstjóri á árunum
2006 til 2007, síðan formaður borgarráðs á fyrri hluta árs-
ins 2008 en var kjörinn forseti borgarstjórnar í ágúst það
ár.
Ætlar ekki að gefa kost á sér
LÖGREGLAN á höfuðborg-
arsvæðinu leitar að leigubílstjóra
vegna nauðgunar sem er til rann-
sóknar hjá embættinu. Maðurinn
er talinn um fertugt, 175 sm á
hæð með dökkskollitað hár og
um 10 kg yfir kjörþyngd.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu tók umræddur maður
konu á þrítugsaldri upp í leigu-
bílinn, sem var jepplingur, á
gatnamótum Bankastrætis og
Lækjargötu um fjögurleytið að-
faranótt sunnudagsins 29. nóv-
ember. Maðurinn ók konunni að
heimili hennar í Árbænum, þar
sem hann fór með henni inn og
hafði við hana samræði.
Konan var verulega ölvuð og
man atburði óljóst. Hún er um
160 sm á hæð með axlarsítt, svart
hár og var klædd í svartan jakka
og fjólubláan kjól. Þeir sem geta
veitt upplýsingar um málið eru
beðnir um að hafa samband við
lögreglu í síma 444-1000.
Leita leigubílstjóra vegna nauðgunar