Morgunblaðið - 15.12.2009, Side 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2009
Jón Magnússon, hæstaréttar-lögmaður og fyrrverandi alþing-
ismaður, segir frá því á vefsíðu
sinni að Ögmundur Jónasson, al-
þingismaður og fyrrverandi heil-
brigðisráðherra, hafi í gærmorgun
upplýst um það í viðtali á Rás 2 að
skrifað hefði verið undir Icesave-
samninginn í vor þó að vitað væri
að ekki væri þingmeirihluti fyrir
málinu.
Jón bendir rétti-lega á að þessi
yfirlýsing Ög-
mundar hafi
komið á óvart og
að sennilega sé
einsdæmi í lýð-
veldissögunni að
skrifað hafi verið
upp á milliríkja-
samning sem vit-
að hafi verið að ekki væri þing-
meirihluti fyrir.
Ekki er að undra, fyrst ríkis-stjórnin lagði af stað í Icesave-
leiðangurinn á þessum vafasömu
forsendum, þótt þvælst hafi fyrir
henni að koma málinu í gegnum
þingið.
Þrátt fyrir allar þumalskrúfurnarsem hertar hafa verið að þing-
mönnum stjórnarflokkanna er enn
svo tæpt að meirihluti sé fyrir mál-
inu að ríkisstjórnin á í mestu vand-
ræðum með að senda það í at-
kvæðagreiðslu í þinginu.
En þegar svona uppljóstrun ergerð er ekki síst áhugavert að
velta því fyrir sér hvernig núver-
andi ráðherrar og stjórnarþing-
menn hefðu brugðist við ef þeir
hefðu verið í stjórnarandstöðu þeg-
ar ríkisstjórn samdi án umboðs um
gríðarlegan skuldaklafa á þjóðina.
Hvað hefðu Steingrímur J. og Jó-hanna sagt um slíka fram-
göngu?
Ögmundur
Jónasson
Samið án umboðs
SÁÁ boða til útifundar á Aust-
urvelli í dag kl. 17 og skora á lands-
menn að mæta og sýna þannig sam-
stöðu sína með baráttu samtak-
anna. Í tilkynningu segir að SÁÁ
hafi náð góðum árangri en nú sé
hann hins vegar í hættu nái skerð-
ingartillögur fjárlagafrumvarpsins
fram að ganga. Þá verði alvarlegt
og óbætanlegt skarð höggvið í starf
SÁÁ.
Á útifundinum á Austurvelli
munu Páll Óskar Hjálmtýsson og
Bubbi Morthens syngja kjark og
æðruleysi í fundarmenn. Kveikt
verður á kertum sem þakklæt-
isvotti fyrir þau líf sem starfsemi
SÁÁ hefur bjargað og bætt.
Útifundur SÁÁ
MENNTAMÁLANEFND Alþingis leggur til að
Edda Heiðrún Backman leikkona, bætist í hóp
þeirra sem hljóta heiðurslaun listamanna. Sam-
kvæmt tillögu nefndarinnar hljóta 29 listamenn
þessi laun á næsta ári. Edda Heiðrún er jafnframt
yngst þeirra listamanna, sem hljóta heiðurslaunin,
en hún er 52 ára gömul.
Nefndin leggur einnig til, að launin verði lækk-
uð, úr 1,8 milljónum í 1,6 milljóna. Samkvæmt því
verður heildarupphæðin 46,4 milljónir og lækkar
um 4 milljónir króna frá yfirstandandi ári.
Samkvæmt tillögu nefndarinnar skipa eftirtald-
ir listamenn heiðurslaunaflokkinn:
Atli Heimir Sveinsson, Ásgerður Búadóttir,
Edda Heiðrún Backman, Erró,
Fríða Á. Sigurðardóttir, Guð-
bergur Bergsson, Guðmunda
Elíasdóttir, Gunnar Eyjólfs-
son, Hannes Pétursson, Herdís
Þorvaldsdóttir, Jóhann Hjálm-
arsson, Jón Nordal, Jón Sigur-
björnsson, Jón Þórarinsson,
Jónas Ingimundarson, Jórunn
Viðar, Kristbjörg Kjeld, Krist-
ján Davíðsson, Magnús Páls-
son, Matthías Johannessen,
Megas, Róbert Arnfinnsson, Thor Vilhjálmsson,
Vigdís Grímsdóttir, Vilborg Dagbjartsdóttir, Þor-
björg Höskuldsdóttir, Þorsteinn frá Hamri, Þrá-
inn Bertelsson og Þuríður Pálsdóttir.
Í þessum flokki eru skáld og rithöfundar fjöl-
mennasti hópurinn eða 9 talsins. Næst koma tón-
listarmenn og tónskáld, 8 að tölu, leikarar á listan-
um er 6 talsins, myndlistarmenn eru 5 talsins og
einn kvikmyndagerðarmaður.
Heiðurslaun listamanna voru veitt samkvæmt
lögum nr. 29/1967 fram til 1991 þegar þau lög voru
felld úr gildi en ný lög um listamannalaun, nr. 35/
1991, tóku við. Í hinum nýju lögum var ekkert
ákvæði um heiðurslaunin og hefur Alþingi síðan
samþykkt að veita þau frá ári til árs í tengslum við
fjárlagaumræðu að hausti. sisi@mbl.is
Edda Heiðrún í heiðurslaunaflokk
Edda Heiðrún
Backman
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 8 skýjað Lúxemborg -3 skýjað Algarve 13 heiðskírt
Bolungarvík 6 alskýjað Brussel -1 léttskýjað Madríd 5 heiðskírt
Akureyri 1 léttskýjað Dublin 5 skýjað Barcelona 10 súld
Egilsstaðir -1 heiðskírt Glasgow 4 léttskýjað Mallorca 12 skýjað
Kirkjubæjarkl. 7 alskýjað London 6 léttskýjað Róm 9 skúrir
Nuuk 0 alskýjað París 0 skýjað Aþena 12 skýjað
Þórshöfn 6 heiðskírt Amsterdam -2 skýjað Winnipeg -24 skýjað
Ósló -2 snjókoma Hamborg 0 þoka Montreal -1 alskýjað
Kaupmannahöfn 0 alskýjað Berlín 0 skýjað New York 6 heiðskírt
Stokkhólmur -3 skýjað Vín -3 skýjað Chicago 3 súld
Helsinki -15 heiðskírt Moskva -20 léttskýjað Orlando 20 þoka
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
15. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5.34 3,9 11.50 0,8 17.50 3,5 23.56 0,8 11:17 15:30
ÍSAFJÖRÐUR 1.15 0,5 7.33 2,1 13.57 0,4 19.42 1,8 12:03 14:54
SIGLUFJÖRÐUR 3.21 0,3 9.29 1,2 15.49 0,1 22.22 1,0 11:47 14:35
DJÚPIVOGUR 2.43 2,0 9.00 0,5 14.50 1,7 20.54 0,3 10:55 14:50
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á miðvikudag
Hæg vestlæg eða breytileg átt
og skýjað með köflum. Hiti víða
2 til 7 stig, en um eða rétt undir
frostmarki í innsveitum.
Á fimmtudag
Hæg vestlæg og síðar breytileg
átt. Skýjað og úrkomulítið, en
stöku skúrir eða él norðantil á
landinu. Heldur kólnandi.
Á föstudag
Snýst í norðanátt með éljum
NA-lands er líður á daginn, en
bjartviðri S- og V-lands. Kóln-
andi veður.
Á laugardag og sunnudag
Norðanátt með éljum N- og NA-
lands, en bjartviðri að mestu S-
og V-lands. Frost um allt land.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Hæg vestlæg átt, en annars
svipað veður. Hiti 2 til 8 stig, en
sums staðar vægt frost í inn-
sveitum N- og A-lands.
Miðvikudaginn 16. desember kl. 17.00
Opinn fundur velferðarnefndar
Sjálfstæðisflokksins
Velferðarnefnd Sjálfstæðisflokksins boðar til opins fundar
miðvikudaginn 16. desember kl. 17.00 í Valhöll.
Framsögu flytja þau Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga; Þorbjörn Jónsson,
formaður Læknaráðs LSH og Guðlaugur Þór Þórðarson
alþingismaður.
Fundarstjóri er Ásta Möller. Allir velkomnir !
Áhrif niðurskurðar á
heilbrigðisþjónustuna