Morgunblaðið - 15.12.2009, Qupperneq 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2009
Um 30% aukn-
ing í skóla-
heilsugæsluna
Ekki liggur fyrir hvort og þá hvaða
áhrif niðurskurður í grunnskólunum
hefur á nemendur, en í fyrravetur
var um 30% aukning á komum nem-
enda í skólaheilsugæsluna á höf-
uðborgarsvæðinu samanborið við
veturinn á undan, að sögn Mar-
grétar Héðinsdóttur, sviðsstjóra
heilsuverndar skólabarna á Þróun-
arstofu heilsugæslunar.
Um 120 til 130 hjúkrunarfræð-
ingar á vegum heilsugæslunnar
sinna heilsuverns skólabarna í
grunnskólum landsins og eru um
800 nemendur á hvert stöðugildi.
Margrét Héðinsdóttir segir að þessi
stöðugildi hafi ekki verið skorin nið-
ur og fullur vilji sé til að halda
óbreyttri þjónustu þrátt fyrir nið-
urskurð hjá heilsugæslunni. Nem-
endur í grunnskóla hafa frjálsan að-
gang að skólahjúkrunarfræðingum.
Margrét segir að algengasta ástæð-
an fyrir komu þeirra sé að þeir hafi
meitt sig eða að þeir finni til. Reynsl-
an sýni að þegar barn kvarti vegna
þess að það sé með höfuðverk eða
magaverk liggi oft eitthvað annað
að baki vanlíðaninni. Gjarnan komi
til dæmis í ljós að viðkomandi barn
hafi ekki borðað morgunmat, en það
nefnir það ekki í fyrstu heldur segist
vera með magaverk.
Rekstrarkostnaður grunnskóla
nam um 41,4 milljörðum króna
2004 en um 52,3 milljörðum 2008,
sem er um 26% hækkun. Laun og
launatengd gjöld námu um 2⁄3 af
heildarkostnaði eða liðlega 33
milljörðum. Rekstrarkostnaðurinn
jókst um 13 milljarða eða um 33%
á árunum 2005-2008, þar af um
níu milljarða á milli áranna 2005
og 2006. Á umræddu tímabili jókst
kostnaðurinn við grunnskóla á
höfuðborgarsvæðinu um 6,2 millj-
arða.
Á árunum 1998-2008 fjölgaði
stöðugildum annars starfsfólks um
897 eða um rúm 63%. Stöðugildin
voru 2.175 2005 en 2.316 2008 og
fjölgaði því um 141. Þar af fjölg-
aði námsráðgjöfum um 25 stöðu-
gildi eða um 56%, þroskaþjálfum
um 46 stöðugildi eða um 65% og
stuðningsfulltrúum um 83 stöðu-
gildi eða um 19%.
Kostnaður
52 milljarðar
Fjallað verður um 850 milljóna
króna niðurskurð ríkisins til
framhaldsskóla og afleiðingar
hans, ekki síst fyrir nemendur
og kennara í fjarnámi og
kvöldskóla.
Á morgun
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
FULLTRÚAR Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru
bjartsýnir á að áætlun sjóðsins haldi og að innan
nokkurra ára verði staða Íslands önnur og bjartari
en hún er nú.
Á blaðamannafundi í húsakynnum Seðlabanka
Íslands í gær greindu þeir Mark Flanagan og
Franek Rozwadowski frá viðræðum, sem starfs-
hópur AGS hefur átt hér á landi undanfarnar vikur
í tengslum við aðra endurskoðun á áætlun sjóðsins.
Sagði Flanagan að nú liti út fyrir að samdráttur
vergrar landsframleiðslu í ár yrði um 7-8 prósent í
stað 10 prósenta eins og spá sjóðsins gerði áður
ráð fyrir og að hagvöxtur hæfist að nýju á næsta
ári.
Þá sagði hann að skuldir hins opinbera væru
minni en spáð hafði verið, einkum vegna þess að
kostnaður við endurfjármögnun bankanna var
minni en gert var ráð fyrir. „Hins vegar lítur út
fyrir að skuldir einkaaðila séu hærri en spár okkar
gerðu ráð fyrir og gerir að verkum að skuldir þjóð-
arbúsins í heild eru hærri en við spáðum áður.“
Sagðist hann ekki að svo stöddu geta sagt ná-
kvæmlega hver skuldastaða þjóðarbúsins væri, en
sagði hana þó nær fyrri spám um 307 prósent af
vergri landsframleiðslu, en þeim 350 prósentum
sem nefnd hafa verið í umræðunni.
Sagði hann að þótt skuldirnar væru meiri en
spáð hefði verið væru þær þó enn innan marka
þess sem þjóðarbúið gæti staðið undir. Við gerð
áætlunarinnar hefði verið reynt að miða við raun-
hæfa skuldabyrði, sem Ísland gæti staðið undir
þótt aðstæður breyttust til hins verra. Nefndi hann
sem dæmi að þótt vextir yrðu hærri og gengi krón-
unnar lægra en spáð hefði verið ætti Ísland samt
sem áður að geta staðið við skuldbindingar sínar.
Flanagan sagði að ástandið hefði vissulega áhrif
á lífskjör í landinu, enda hefði kaupmáttur þegar
rýrnað til muna m.a. vegna gengisfalls krónunnar.
Staðan ætti hins vegar að batna aftur á næstu ár-
um.
Tillit tekið til Icesave-samkomulagsins
Hvað varðar fjármál ríkisins og fjárlög sagði
Flanagan að sjóðurinn skipti sér ekki af því hvern-
ig markmiðum áætlunarinnar væri náð í þeim efn-
um svo lengi sem fjárlög væru í takt við hana. „Það
er Íslendinga og íslenskra stjórnvalda að ákveða
hvernig markmiðum um að jafna rekstur rík-
issjóðs er náð. Við komum því aðeins með ábend-
ingar ef við teljum að ákveðnar ráðstafanir muni
ekki skila tilætluðum árangri eða valda skaða.“
Nefndi hann sem dæmi að sjóðurinn hefði varað
við hugmyndum um fyrirfram innheimtu skatta.
„Við höfum varað almennt við slíkum hugmyndum
án þess að farið sé í einstök atriði. Slíkar aðgerðir
fresta í raun aðeins nauðsynlegri aðlögun í rík-
isrekstri. Tölurnar líta betur út til skemmri tíma
litið, en þegar fram í sækir versna þær.“
Sagði hann að í útreikningum sjóðsins varðandi
skuldir hins opinbera og nauðsynlega aðlögun rík-
isrekstrar væri nú þegar tekið tillit til rík-
isábyrgðar á Icesave-sáttmálanum við Breta og
Hollendinga. Vaxtagreiðslur vegna þeirra væru
reiknaðar inn í áætlanir um aðlögun á rekstri rík-
issjóðs.
Hvað varðar lán frá Norðurlandaþjóðum og öðr-
um vinaþjóðum Íslendinga sagði Flanagan að mat
sjóðsins væri að nauðsynlegt yrði fyrir Íslendinga
að nýta þau að fullu, en eftir væri að ganga frá
ákveðnum þáttum áður en það yrði hægt. Varðandi
það af hverju svo mjög dróst að afgreiða lán sjóðs-
ins til Íslands segir Flanagan að það mál hafi þeg-
ar verið afgreitt í fjölmiðlum. Hafa Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn, Norðurlöndin og
Evrópusambandið vísað hvert á annað í þeim efn-
um, en allir eru þó sammála um að afgreiðsla Ice-
save-málsins hafi verið ástæða tafanna.
Þróun mála enn í sam-
ræmi við áætlun AGS
Skuldir hins opinbera minni en gert var ráð fyrir en skuldir þjóðarbúsins meiri
Mrogunblaðið/RAX
Sjóður Franek Rozwadowski og Mark Flanagan, fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, kynntu stöðu
mála á fundi í húsakynnum Seðlabanka Íslands í gær og sögðu þróunina í samræmi við áætlun.
Tilgangur heimsóknar sendinefndar Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins var að fara yfir árangur ís-
lenskra stjórnvalda til þessa og ræða við hags-
munaaðila af ýmsu tagi, stjórnvöld, stéttarfélög
og samtök atvinnulífsins þar á meðal.
Samkomulag hefur náðst um afgreiðslu
næsta hluta láns sjóðsins, en framkvæmda-
stjórn AGS þarf að samþykkja það áður en til af-
greiðslu kemur. Er gert ráð fyrir því að málið
verði tekið til afgreiðslu hjá sjóðnum um miðjan
janúarmánuð.
Meðal þess sem þarf að klára er endurfjár-
mögnun bankanna og styrking opinbers eftirlits
með bankakerfinu. Þá verður að ganga frá af-
greiðslu lána frá vinaþjóðum Íslands, en skilja
mátti af orðum Marks Flanagans, fulltrúa AGS,
að enn væri því verkefni ólokið.
Gæta þyrfti jafnræðis meðal kröfuhafa bank-
anna, en hann sagði einnig að óhjákvæmilegt
væri að einhver lán einkaaðila yrðu endur-
skipulögð. Mikilvægt væri að gæta sanngirni við
þá vinnu.
Fulltrúar AGS ræddu við fjölda hagsmunaaðila
Drög að samkomulagi liggja fyrir um af-
greiðslu annarrar endurskoðunar á áætlun
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og verður hún tek-
in fyrir á fundi framkvæmdastjórnar sjóðsins
um miðjan janúar næstkomandi.
GYLFI Magnússon viðskiptaráð-
herra sagði á Alþingi í gær að
Seðlabankinn hefði gert af-
drifarík mistök þegar hann ákvað
hvaða veða hann krafðist fyrir
lánum til fjármálastofnana. Hefði
bankinn að verulegu leyti tekið
svokölluð ástarbréf að veði og
þau væru nú verðlítil eða verð-
laus.
Gylfi var að svara fyrirspurn
frá Birni Val Gíslasyni, þingmanni
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, um málið. Gylfi sagði
að ekkert væri við því að segja að
seðlabanki veitti bankakerfi
lausafjárfyrirgreiðslu. Það mætti
hins vegar velta því fyrir sér
hvort lausafjárfyrirgreiðslan væri
of mikil.
„En það er alveg ljóst að Seðla-
bankinn gerði afdrifarík mistök
þegar hann ákvað hvaða veða
hann krafðist fyrir þessum lán-
um,“ sagði Gylfi. Hann sagði að
til samanburðar mætti bera sam-
an kröfur, sem
seðlabanki Evr-
ópu, gegnum
seðlabanka Lúx-
emborgar,
krafðist þegar
íslensku bank-
arnir fóru fram
á að fá lausa-
fjárfyrirgreiðslu
þar. Evrópski
seðlabankinn hefði krafist veða í
ríkisskuldabréfum og útlánasöfn-
um bankanna og þegar upp væri
staðið væri útlit fyrir að bankinn
tapaði ekki einni einustu evru á
íslensku bönkunum.
Gylfi sagði aðspurður að það
mætti vel vera að tilefni væri til
rannsóknar á málinu. Hann sagði
hins vegar rétt að bíða niðurstöðu
rannsóknarnefndar Alþingis og
bregðast við ef sú niðurstaða gæfi
tilefni til frekari rannsóknar eða
breytingar á lögum um ábyrgð
stjórnenda Seðlabankans.
Segir bankann hafa
átt að taka betri veð
Gylfi Magnússon
Í takt við tímann
kr.998
Grillaður kj
úklingur,
2 l Pepsi eð
a Pepsi Ma
x
KJÚKLINGA
TILBOÐ