Morgunblaðið - 15.12.2009, Qupperneq 19
Daglegt líf 19ÚR BÆJARLÍFINU
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2009
Í Borgarfirði hefur haustið liðið við
ýmis störf. Bændur hafa að mestu
heimt fé sitt af fjalli og innlegg
haustslátrunar komið inn á reikn-
inga. Keppst hefur verið við að
byrgja sig upp fyrir komandi vetur.
Slátur búið til, bjúgu, kæfa, rúllu-
pylsa og jólahangiketið komið úr
reykkofanum. Allt tilbúið til jólahá-
tíðar og komandi vetrar. Ekki ama-
legt að vera sjálfum sér nægur í
mat.
Borgfirskir sauðfjárbændur eru
farnir að huga að framtíðinni, eins
og jafnan á þessum árstíma sem er
fengitími. Flestir hafa sætt ær sínar,
sem það ætla að gera, þuklað hrút-
ana og ákveðið hverjir eru vænlegir
til undaneldis. Hér áður hleyptu
margir bændur til ánna á Þorláks-
messu eða aðfangadag. Nú þykir
það heldur seint því síðfædd lömb
gefa ávísun á minni dilka að hausti.
Borgfirðingar láta því ekki deigan
síga þrátt fyrir blikur á lofti. Í Staf-
holtsprestakalli hafa sóknarbörn
verið að lagfæra kirkjur sínar sem
veitt hefur smiðum heimahéraðs
vinnu. Turninn á Hvammskirkju var
endurgerður í upphaflegri mynd.
Skipt var um turn á kirkjunni í
Norðtungu og gagnger viðgerð
kirkjunnar í Stafholti er hafin. Sú
kirkja á engan sinn líka á landinu,
vígð árið 1877 og óvenjulega stór
miðað við sveitakirkju, tekur um
hundrað manns í sæti. Lýsir bygg-
ingin vel stórhug sóknarbarna og
prests á sínum tíma. Sóknarnefnd
Stafholtskirkju hefur látið prenta
jólakort til styrktar uppbyggingu
kirkjunnar. Kortið prýðir mynd af
altaristöflunni sem Einar Jónsson
gerði. Eins og oft tíðkaðist stendur
kirkjan á hól og er kennileiti víða í
héraði. Staðinn átti ekki ómerkari
maður en Snorri Sturluson í önd-
verðu og var kirkjan afar rík af landi
og lausum aurum. Nú er Snorrabúð
stekkur þar sem víða annars staðar
en jörðin hefur þó enn hlunninda-
tekjur af Norðurá og Hvítá.
Borgfirðingar hafa um nokkurt
skeið blásið til samsöngs á aðventu í
Reykholtskirkju. Sparisjóður Mýra-
sýslu, heitinn, var styrktaraðili tón-
leikanna. Er líða tók á haustið fór
söngfólk að velta því fyrir sér hvort
hinn nýji banki, Arionbanki, sæi sér
fært að styrkja samkomuna. Svo
reyndist ekki vera. Heimamönnum
fannst ótækt að ekki yrði af hinni ár-
legu, notalegu samverustund og með
samstilltu átaki urðu tónleikarnir að
veruleika. Sóknarnefnd og staðar-
haldarar í Reykholti léðu kirkjuna
endurgjaldslaust og söngfólk hér-
aðsins kom saman síðasta föstudag
og hélt veglega tónleika. Konur af
öllu svæðinu gáfu smákökur með
kaffinu og fyrirtæki styrktu með
ýmsum hætti. Var mál manna að allt
væri vel heppnað og fyrirséð að
framhald verður á. Með helgihljóm
og frið í hjarta ganga Borgfirðingar
því inn í aðventu og jólahald þar sem
mannlífið blómstrar þótt blási kalt
um Frón sem stendur.
BORGARFJÖRÐUR
Birna G. Konráðsdóttir fréttaritari
Morgunblaðið/Golli
Í jötunni lá Líflegt er í fjárhúsum landsins þessa dagana.
Áhaustdögum gengur sá tími ígarð sem að mestur hrossa-útflutningur er frá landinu
en kaupendur erlendis velja þennan
tíma vegna þess að þá er engin fluga
lengur að plaga hestana erlendis.
Það eru flutt út um eitt hundrað
hross á viku um þessar mundir og
fara flest til Svíþjóðar og Þýska-
lands. Hrossin fara öll með flug-
vélum og aðal áfangastaðir eru
Norrköping í Svíþjóð og Liege í
Belgíu, en á þessum stöðum eru sér-
stakar landamærastöðvar, sem taka
við hrossum inn í Evrópu frá svoköll-
uðum þriðju löndum, eins og Íslandi.
Það ætti að vera metnaður ís-
lenskra hrossaræktenda að senda
frá sér heilbrigð, vel hirt og snyrti-
leg hross til útflutnings. Gullna regl-
an á að vera að senda hrossið frá sér
í því ástandi sem maður vildi sjálfur
taka á móti því. Hrossið sem flytja
skal út á að vera rétt skráð í World-
feng, sem er skráningargrunnur ís-
lenska hestsins áður en það er sent
af stað til útflutningsskoðunar. Eftir
þeim gögnum sem skráð eru í
Worldfeng, er gefið út hestavega-
bréf fyrir hestinn, þar sem meðal
annars kemur fram hver hesturinn
er, aldur, litur, merking og ætt hans
og uppruna er lýst. En langflest
hross eru í dag merkt með svoköll-
uðu örmerki, sem komið hefur verið
fyrir í makka hestsins, en þar er um
að ræða 15 tölustafa einkvæmt núm-
er, sem lesið er af með sérstöku af-
lestrartæki.
Hrossin verða að vera heilbrigð og
í góðum holdum við útflutning og
þau skulu vera vel hirt og hrein.
Ekki er heimilt að flytja járnuð
hross úr landi, en þessi regla er sett
til að síður komi til þess að þau meiði
hvort annað í flutningnum. Mjög
æskilegt er að hrossin séu bandvön
við útflutning, bæði er miklu léttara
að skoða hross sem eru eitthvað
tamin og einnig hitt að miklu betra
er fyrir hrossin að þau séu mannvön,
þegar senda þarf þau milli landa.
Hross sem eru stygg og hrædd eiga
miklu erfiðar með að ganga í gegn-
um feril skoðanna og flutnings.
Óheimilt er að flytja úr landi fyl-
fullar hryssur sem gengnar eru með
sjö mánuði eða lengur.
Heilbrigði og velferð dýra
Ástand hrossa
við útflutning
Gunnar Örn Guðmundsson, héraðs-
dýralæknir hjá Matvælastofnun.
Morgunblaðið/Ómar
Ferðalag Útflutningur hrossa skap-
ar töluverðar tekjur.
Arion banki býður
nú viðskiptavinum
með erlend og innlend
íbúðalán lausnir sem
lækka höfuðstól lána
og létta greiðslubyrði.
Hafðu samband
sími 444 7000 • arionbanki.is
Skoðaðu hvaða leið gæti hentað þér á arionbanki.is. Nánari upplýsingar fást
hjá þjónusturáðgjöfum í útibúum Arion banka eða í síma 444 7000.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
A
R
I
48
40
9
12
/0
9