Morgunblaðið - 15.12.2009, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2009
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Ímyndarfræð-ingar haldaþví að for-
ystumönnum
stjórnmála og at-
vinnulífs að þeir
eigi að leitast við að segja
góðar fréttir sem oftast. Boð-
berar slakra tíðinda blettist
sjálfir af slíkum boðskap.
Óháð spuna og skoðana-
sköpun er örugglega mik-
ilvægt á erfiðum tímum að
opna augu fólks fyrir nýjum
tækifærum, vekja athygli á
sólarglennum í svartnætti og
að oft megi sjá heiðríkjubletti
á þungskýjuðum himni ef vel
er að gáð.
Svo rétt sem þetta er verð-
ur boðskapur um bjartari tíð
að standast skoðun. Ella ger-
ir hann illt verra. Bakslagið
sem verður eftir bjartsýnis-
hjalið blandast við vonbrigði
og falskar væntingar og verð-
ur meira en þurfti. Íslend-
ingar eru fjarri því að vera
komnir í gegnum verstu erf-
iðleikana og stjórnvalds-
aðgerðir eru einmitt um
þessar mundir að magna þá
upp. Þar gera þeir sem síst
skyldu illt verra. Ef sá
heimatilbúni viðbótarvandi
væri ekki að hrjá okkur væri
auðvelt að teikna upp fjölda
tákna um að hinir efnahags-
legu afturkippir gætu verið á
hröðu undanhaldi hér á landi.
Meginástæða þess er tvíþætt.
Stjórnvöld fyrri ára höfðu
búið í haginn með
því að greiða
mjög niður skuld-
ir ríkisins og sett
til hliðar fjár-
muni, bæði inn í
eigið lífeyriskerfi og önnur
efnahagsleg svarthol sem
lengi virtust óviðráðanleg, og
myndu ella hafa aukið mjög á
vanda þjóðarinnar í erfiðu ár-
ferði. Hinn þátturinn er að
við búum enn við sjálfstæðan
gjaldmiðil sem endurspeglar
íslenskan veruleika og ís-
lenskar þarfir. Lettar, Eist-
ar, Grikkir og Írar gætu sagt
okkur af sínum raunum, þar
sem gjaldmiðillinn sem þeir
búa við eða eru bundnir við
endurspeglar þróun í Þýska-
landi og Frakklandi en ekki
þrúgandi erfiðleika fram-
antaldra þjóða. Spánn gæti
einnig sagt frá því að þar er
atvinnuleysi ungs fólks nú
komið í 40 prósent og horfur
ekki góðar. Evran á drýgstan
hlut í þeirri stöðu. Ef Íslend-
ingar bera gæfu til að nota
sér hagfelld skilyrði sem fel-
ast í sjálfstæðri mynt á upp-
byggingartímum, láta ekki
hengja á sig ólögmætar hel-
klyfjar og spyrna á móti til-
raunum stjórnvalda til að
eyðileggja skattkerfið og
kyrkja atvinnulífið væri hægt
að fylla þá af sannri bjartsýni
og sönnum baráttuanda.
Hvort tveggja vantar sárlega
um þessar mundir.
Skapa þarf rétt
skilyrði bjartsýni og
baráttuhugar. }
Hvar er baráttuandinn?
Menn finnafyrir þungri
undiröldu vegna
tilburða stjórn-
valda til að
hengja skuldbind-
ingar sem heima
eiga í Bretlandi og Hollandi
án lagaforsendna á íslensku
þjóðina.
Viðskiptablaðið birti fyrir
fáeinum dögum athygl-
isverða skoðanakönnun, sem
sýnir að hvorki meira né
minna en 70 prósent þjóð-
arinnar vilja að forseti synji
ríkisábyrgðarlögum berist
þau inn á hans borð. Hópur
áhugafólks um réttláta máls-
meðferð Icesave hefur staðið
fyrir undirskriftasöfnun af
sama tilefni. Hefur furðu lít-
ið farið fyrir kynningu á
henni en samt eru undir-
skriftirnar að nálgast fjöru-
tíu þúsund. Er það sennilega
mesti fjöldi sem sent hefur
slíka beiðni til forseta
nokkru sinni í sögu þjóð-
arinnar. Þessi þjóðarhreyf-
ing sem þannig
beinist öll í eina
átt hefur bersýni-
lega skotið ein-
hverjum skelk í
bringu og gert
aðra órólega. Og
viðbrögðin eru ótrúleg. Að-
standendur undirskriftasöfn-
unarinnar hafa skýrt frá
ítrekuðum tilburðum til að
skaða hana og skemma. Og
þar eru ekki neinir venjuleg-
ir pörupiltar á ferð ef marka
má frásagnirnar. Þau tölvu-
lén sem einkum eru notuð til
skemmdarverka reyndust að
sögn vera á Fréttablaðinu,
RÚV og í Stjórnarráðinu!
Menntamálaráðherra lýsti á
þingi í gær áhyggjum sínum
af málinu. Það þarf engan að
undra. En það dugar ekki til.
Ráðherrann hlýtur að óska
eftir opinberri lögreglurann-
sókn á málinu, að minnsta
kosti í tilviki tveggja af
þremur grunuðum spell-
virkjum. Sú beiðni má ekki
dragast.
Hvað eiga RÚV,
Fréttablaðið og
Stjórnarráðið
sameiginlegt?}
Tafarlaus rannsókn fari fram
S
teinar Bragi sagði fyrir nokkru í
Kiljunni að sig langaði til að skrifa
um blóm í haga og grænar grund-
ir en svo kæmi bara eitthvað allt
annað. Í bókinni Konur eftir rit-
höfundinn er slíkur óhugnaður að miðað við
orð hans um að eitthvað allt annað komi en
hann langar til að skrifa er ekki hægt annað
en velta fyrir sér hvað brýst um í huga manns
sem skrifar slíkan texta. Vissulega er þetta
skáldsaga og kannski á sagan að vera ein stór
myndhverfing og í raun eitthvað allt annað
sagt en skrifað stendur. Hins vegar ef textinn
kemur ósjálfrátt án þess að hugsun liggi að
baki er ekki hægt að skilja það á annan veg
en hjarta mannsins stjórni skrifunum.
Þeir sem skrifa frá eigin brjósti leggja um
leið tilfinningar sínar í dóm þjóðarinnar. Nægir að benda á
að landinn hefur getað fylgst með ástum og vansæld
Bubba Morthens í gegnum textasmíð hans, t.d. á plötunni
Kona sem kom út fyrir löngu. Helber tilviljun að téð bók
og téð plata bera svo svipað nafn. Löngu síðar söng Bubbi
Það er gott að elska og þar er ljóst að hann er hamingju-
samur. Í enn öðru lagi má ljóst vera að hann hefur gert
eitthvað á hlut sinnar heittelskuðu: Fyrirgefðu mér.
Fyrir margt löngu söng Bubbi frekar ádeilu á lýð og
land. Lagið Síðasta blómið með Utangarðsmönnum er
gott dæmi um slíkt. Alvöru reggítaktur grípur hlustand-
ann og textinn er tímalaus og á jafn vel við í dag og á þeim
tíma sem lagið kom út. Auðvelt er að finna textann ef
gúgglað er Síðasta blómið. Ef textar Bubba og
lagasmíðar eru skoðaðar í gegnum langan tíma
má sjá hvernig hann hefur þróast sem listamað-
ur og tilfinningavera.
Stefán Hilmarsson söngvari hefur líka, ef að
líkum lætur, sungið og samið um eigið líf. Hver
man ekki eftir lagi hans Líf, sem samið var eftir
að hann eignaðist sitt fyrsta barn, ef ég man rétt.
Núna hljómar lag á útvarpsstöðvunum, og nýtur
vinsælda, þar sem hann þakkar fyrir sameig-
inlega göngu í gegnum tíðina. Tilfinningaþrung-
inn texti sem auðveldlega má lesa ýmislegt út úr
um flytjandann og förunauta hans.
Þeir sem skrifa um sjálfan sig, eða frá sjálfum
sér, opinbera um leið eigið sjálf. Þeir sem það
geta hljóta að vera sterkir á andlega svellinu og
tilbúnir að taka því að þjóðin dæmi þá út frá
sjálfri sér. Um leið eru þeir kannski enn viðkvæmari fyrir
orðum en þeir höfundar sem skálda eitthvað um þriðja að-
ila. Þeir sem gagnrýna ættu þess vegna að vara sig á því að
orð særa og sögð orð verða ekki aftur tekin.
Vert er að taka það fram að ofangreindir listamenn eru
teknir sem dæmi af tilviljun einni og engin sérstök hugsun
liggur þar að baki.
Ég get ekki annað en tekið ofan fyrir listamönnum eins
og Steinari Braga, Bubba Morthens og Stebba Hilmars,
sem geta opinberað sig á þennan hátt. Burt séð frá því
hvort mér líkar verk þeirra eða ekki. Sá sem getur stigið
fram og sagt svona er ég og þetta er hugsun mín er hug-
rakkur maður. sia@mbl.is
Sigrún
Ásmundar
Pistill
Sjálfið opinberað
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
Selfyssingar ekki
lengur í alfaraleið?
FRÉTTASKÝRING
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
M
eð þessari fram-
kvæmd, sem enn er
óvissa um hvenær
eða hvort verður
ráðist í á næstu
misserum, er ætlun Vegagerðarinnar
að auka umferðaröryggi og afkasta-
getu Suðurlandsvegar frá Hvera-
gerði og austur fyrir Selfoss. Alls er
um nærri 14 kílómetra kafla að ræða,
einn fjölfarnasta þjóðveg landsins
þar sem fara hátt í 7.500 bílar um á
sólarhring að jafnaði.
Þjóðvegurinn verður færður norð-
ur fyrir Selfoss, ný brú byggð yfir
Ölfusá, akstursstefnur aðskildar og
akreinum fjölgað. Í frummatsskýrslu
er fjallað um tvær akstursleiðir í
hvora átt, svokallaðan 2+2 veg, hlið-
arvegi, mislæg gatnamót á fjórum
stöðum, tvær leiðir yfir Ölfusá og
tvær brúargerðir á hvorum stað.
Veglína 1 er inni á aðalskipulagi
Árborgar og á að liggja yfir miðja
Efri-Laugardælaeyju í Ölfusá með
tveimur brúm og koma að landi
Laugardæla austan árinnar, þar sem
nú er rekinn Golfklúbbur Selfoss.
Vegagerðin leggur til veglínu 2,
þ.e. að sveigja veginn upp með ánni
og þvera hana með einni brú neðan
Grímskletts og yfir á austurbakkann
við Ferjuhól, hið gamla ferjustæði
Laugardælaferju. Sú veglína myndi
kljúfa útivistarsvæðið við Hellisskóg,
sem og golfvöllinn og fyrirhugaða
íbúabyggð Flóahrepps við Svarfhól
austan Ölfusár.
Kostnaður við þessar fram-
kvæmdir er áætlaður um 11,4 millj-
arðar króna, miðað við 2+2 veg alla
leið og fjögurra akreina Ölfusárbrú,
en með áfangaskiptu verki telur
Vegagerðin kostnaðinn vera 9,2 millj-
arða króna. Með því að fara veglínu 2,
með einni brú, er kostnaðurinn 400-
700 milljónum kr. lægri, allt eftir því
hvaða brúargerð verður fyrir valinu;
bogabrú eða svonefnd stagbrú.
Vegagerðin telur framkvæmdina
hafa jákvæð áhrif á samfélagið, um-
ferðaröryggi verði betra og sam-
göngur greiðari um Suðurlandsveg.
Óveruleg áhrif eru sögð verða á jarð-
myndanir, svæði á náttúruminjaskrá,
vatnafar og vatnalíf. Neikvæð áhrif
eru helst á gróður og ásýnd og þá
með báðum veglínum. Meiri áhrif
verða þó af veglínu 2 á fornleifar og
útivistarsvæði í Hellisskógi.
Drög að tillögu um matsáætlun
voru kynnt í upphafi ársins og að
fengnum nokkrum athugasemdum
féllst Skipulagsstofnun á matsáætl-
unina í mars sl. Að sögn Árna Braga-
sonar hjá verkfræðistofunni Eflu,
sem annaðist gerð frummatsskýrsl-
unnar, er helsta breytingin frá til-
lögudrögum sú að ekki er lengur gert
ráð fyrir svonefndum 2+1 vegi þar
sem hann þótti ekki hagkvæmur.
Gamla brúarstæðið frá 1891
Gangi þessi áform um breytta legu
Suðurlandsvegar eftir er ljóst að inn-
an fárra ára verða Selfyssingar ekki
lengur í þeirri alfaraleið sem þeir
hafa verið í frá því að bærinn tók að
myndast. Suðurlandsvegur hefur leg-
ið um Selfoss frá því að Ölfusá var
brúuð árið 1891. Núverandi brú var
tekin í notkun í árslok 1945.
Skiptar skoðanir eru um það meðal
Selfyssinga að færa þjóðleiðina út
fyrir bæinn. Hætt er við að straumur
ferðamanna minnki eitthvað en á
móti flyst úr bænum umferð vöru-
flutningabíla og annarra þungaflutn-
inga, sem hefur verið að aukast á
seinni árum. Sömuleiðis heyrist
gagnrýni í garð Vegagerðarinnar fyr-
ir að leggja til aðra veglínu en þá sem
hefur verið inni á skipulagi viðkom-
andi sveitarfélaga, þ.e. Árborgar og
Flóahrepps.
Samsett mynd/Efla verkfræðistofa
Breyting Horft til austurs yfir Selfoss, þar sem nýjum veglínum hefur verið
bætt við ásamt tveimur brúarstæðum yfir Ölfusá sem eru til skoðunar.
Vegagerðin hefur sent frum-
matsskýrslu um tvöföldun Suð-
urlandsvegar frá Hveragerði og
austur fyrir Selfoss til athugunar
hjá Skipulagsstofnun. Tvær veg-
línur eru enn til skoðunar
framhjá Selfossi, auk nýrra brúa.
„Leiðin liggur í gegnum hjartað á
okkur, ef svo má segja,“ segir
Bárður Guðmundarson, formaður
Golfklúbbs Selfoss, GOS, um fyr-
irhugaðar vegaframkvæmdir.
Hvort sem ákveðið verður að
fara veglínu 1 eða 2 mun nýr Suð-
urlandsvegur kljúfa golfvöllinn að
Svarfhóli, sem hefur verið þar frá
árinu 1986 og gengið nýlega í
gegnum breytingar á nokkrum
brautum. Áhrifin eru enn meiri
með veglínu 2. Einnig myndi at-
hafnasvæði vélhjólaklúbbsins fara
forgörðum, sem og töluverð rösk-
um verða á skógræktarsvæði í
Hellisskógi.
GOS er með bráðabirgðaleyfi
fyrir vellinum á þessum stað og
Bárður segir klúbbinn hafa verið
að huga að nýju framtíðarskipu-
lagi, sem næst íbúabyggðinni á
Selfossi. „Aðalatriðið er að vita
hvar brúin verður, þessi hringl-
andaháttur er ekki viðunandi. Við
viljum sjá skipulag til lengri tíma
þannig að völlurinn verði áfram
meðfram byggðinni, þetta fer vel
saman eins og reynslan hefur sýnt
með Korpúlfsstaðavöllinn,“ segir
Bárður.
„GEGNUM
HJARTAГ››