Morgunblaðið - 15.12.2009, Page 30
30 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2009
✝ Sigdór ÓlafurSigmarsson fædd-
ist 1. ágúst. 1927.
Hann lést á Landspít-
alanum, Landakoti 5.
desember sl. For-
eldrar hans voru Sig-
fús Sigmar Sigurðsson
vélstjóri og sjómaður,
f. 25.4. 1904, d. 23.3.
1935 og Jóhanna Torf-
hildur Þorleifsdóttir
húsmóðir, f. 4.4. 1905,
d. 17.3. 1979. Systkyni
Sigdórs eru Sigþór
Sigmarsson, f. 17.6.
1929, d. 25.7. 1954, Guðmundur
Ingvar Sigmarsson vélstjóri, f.
hannesson. Samtals átti Sigdór 12
barnabörn og 14 barnabarnabörn.
Sigdór Ólafur fæddist á Nes-
kaupsstað og ólst þar upp. Hann
stundaði þar barnaskóla og flutti svo
til Hafnafjarðar 1956 og svo til
Reykjavíkur. Sigdór stundaði nám í
Sjómannaskólanum í Reykjavík og
útskifaðist þaðan árið 1951 með
fiskimannapróf 2. Stig. Sigdór
stundaði almenn sveitastörf, var við
beitningu og í fiskivinnslu á unglis-
árunum sínum. Hann fór tvítugur á
togara og var til sjós í alls fimmtíu
ár, sem háseti, stýrimaður og skip-
stjóri á hinum ýmsum skipum. Hann
vann í fimmtán ár á hafrann-
sóknaskipum og gerði svo út sinn
eigin bát síðustu starfsárin sín.
Sigdór verður jarðsunginn frá
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag,
þriðjudaginn 15. desember, kl. 13.
Jarðsett verður í Norðfjarð-
arkirkjugarði miðvikudaginn 16.
desember kl. 14.
17.11. 1930 og Sigrún
Margrét Sigmars-
dóttir sjúkraliði, f.
29.1. 1935.
Árið 1955 kvæntist
Sigdór Önnu Jónu
Loftsdóttur, f. 22.8.
1930, d. 15.3. 1986 en
þau skildu 1962. Börn
Sigdórs og Önnu Jónu
eru: Hafdís Sigdórs-
dóttir, f. 14.6. 1952, d.
16.8. 2009, Jóhann
Sigfús Sigdórsson , f.
19.4. 1956, Loftur Sig-
dórsson, f. 14.3. 1957,
og Dagbjört Hanna Sigdórsdóttir, f.
28.1. 1960. Maki hennar er Jónas Jó-
Elsku pabbi, mig langar að kveðja
þig með nokkrum orðum.
Nú ert þú búinn að fá þína hvíld og
ró og ég veit að þú hefur það gott þar
sem þú ert núna. Ég er þakklát fyrir
að hafa fengið að vera með þér þína
seinustu dagana og stundirnar sem
þú lifðir. Það var búið að vera erfitt
að horfa upp á þig svona veikan,
manninn sem vildi gera allt sjálfur, á
sinn eigin hátt og vildi aldrei sýna
neinn veikleika.
Ég er sannfærð um að þú sért
kominn í góðan og glaðan hóp, for-
eldra þinna, bróður þíns og dóttur og
að þú munt vaka yfir okkur systk-
inunum, barnabörnunum og barna-
barnabörnunum þínum.
Guð geymi þig og varðveiti.
Með söknuði kveð ég þig með
þessu ljóði:
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson)
Þín dóttir,
Hanna.
Elsku afi, við trúum því varla
bræðurnir að þú sért farinn. Afi, þú
kvaddir svo snögglega þetta jarð-
neska líf, en það sem situr eftir eru
góðar minningar um þig. Við hefðum
báðir bræðurnir óskað þess að við
hefðum átt fleiri minningar og fleiri
stundir með þér, elsku afi, en þær
minningar og stundir sem við áttum
með þér eru yndislegar, hláturinn og
húmorinn var aldrei langt undan. En
eitt erum við báðir vissir um, að nú
ert þú kominn á betri stað. Blessuð
sé minning þín, elsku afi.
Jesús sagði:
Ég er upprisan og lífið.
Sá sem trúir á mig,
mun lifa, þótt hann deyi.
Og hver sem lifir og trúir á mig,
mun aldrei að eilífu deyja.
(Jóhannes 11:25-26)
Nú verð ég að kveðja
Fæ ekkert um það að velja
Þú kvaddir mig með hlátri
Það er ekki skrítið að ég gráti.
Í hjarta mér þú verður
Þaðan aldrei hverfur
Ég minningu þína geymi
En aldrei gleymi.
Elsku hjartans afi minn
Nú friðinn ég finn
Þá kveð ég þig um sinn
Og kyssi þína kinn.
(Ágústa Kristín Jónsdóttir.)
Elsku afi, við geymum minning-
arnar um þig í hjartanu.
Þín verður sárt saknað.
Ólafur Kristján og Jóhann
Kristinn (Óli og Kiddi).
Sigdór Ólafur
Sigmarsson
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
HARALDUR ÓLI VALDIMARSSON
kjötiðnaðarmeistari,
sem lést föstudaginn 4. desember, verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn
17. desember kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Ólína Lilja Sigurjónsdóttir,
Ragnheiður Haraldsdóttir, Haukur Jóhannsson,
Þórunn Anna Haraldsdóttir, Örn Jóhannsson,
Erla Margrét Haraldsdóttir, Gunnlaugur Þráinsson,
afabörn og langafabörn.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalang-
afi,
VIGFÚS SIGURÐSSON
húsasmíðameistari,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtu-
daginn 17. desember kl. 13.00.
Inga Sigrún Vigfúsdóttir, Óli Rafn Sumarliðason,
Guðfinna Vigfúsdóttir, Aðalsteinn Valdimarsson
og afabörnin.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGIBJÖRG GÍSLADÓTTIR,
Miðvangi 118,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Viðistaðakirkju miðvikudaginn
16. desember kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir.
Sigurbergur Sveinsson
Hjördís Sigurbergsdóttir, Ingvar S. Jónsson,
Rósa Sigurbergsdóttir, Jónatan Garðarsson,
Sveinn Sigurbergsson, Björk Pétursdóttir,
Gísli Sigurbergsson, Hafdís Sigursteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ERIKU ÖNNU EINARSSON,
Hraunvangi 1,
Hafnarfirði.
Ingvar G. Snæbjörnsson, Ingigerður Guðmundsdóttir,
Einar F. Snæbjörnsson, Ólafía Agnarsdóttir,
Fannlaug S. Snæbjörnsdóttir,
Guðjón S. Snæbjörnsson, Soffía Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
Sigríður Stefánsdóttir
frá Hofi í Öræfum,
lést á hjúkrunarheimili HSSA á Höfn fimmtudaginn
10. desember.
Hún verður jarðsungin frá Hofskirkju í Öræfum
laugardaginn 19. desember kl. 14.00.
Gunnar Páll Bjarnason, Ingibjörg Ingimundardóttir,
Sigurjón Arnar Bjarnason,
Unnur Bjarnadóttir,
Jón Sigurbergur Bjarnason, Áslaug Guðmundsdóttir,
Stefán Bjarnason, Margrét Guðbrandsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN ELÍSABET ÞÓRÐARDÓTTIR,
áður Heiðargerði 1,
Reykjavík,
og Víðihóli,
Mosfellsdal,
lést á Droplaugarstöðum fimmtudaginn
3. desember.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
16. desember kl. 13.00.
Þórdís Árnadóttir, Ingvar Birgir Friðleifsson,
Þórður Árnason, Vilborg Oddsdóttir,
Guðrún Ingvarsdóttir, Hildur Ingvarsdóttir,
Árný Ingvarsdóttir, Elísabet Þórðardóttir.
✝
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
KRISTINN MÁR HAFSTEINSSON,
Þverholti 19,
Mosfellsbæ,
áður til heimilis á Tjaldanesi,
verður jarðsunginn frá Mosfellskirkju föstudaginn
18. desember kl 1300.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á samtökin
Einstök börn
Ragnheiður Sara Hafsteinsdóttir, Ingvi Hrafn Jónsson,
Ólöf Lára Hafsteinsdóttir,
Ragnheiður Sara Heimisdóttir,
Hafsteinn Orri Ingvason,
Ingvi Örn Ingvason.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir,
PÉTUR H. ÓLAFSSON,
Lindargötu 61,
Reykjavík,
sem lést laugardaginn 5. desember á líknardeild
Landspítala, Landakoti, verður jarðsunginn frá
Hallgrímskirkju miðvikudaginn 16. desember og
hefst athöfnin kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
Péturs er bent á Minningarsjóð Félags eldri borgara í Reykjavík og
líknarstofnanir.
Hrefna Pétursdóttir,
Hugrún Pétursdóttir, Marteinn Elí Geirsson,
Pétur K. Pétursson, Anna S. Einarsdóttir,
Ólína Björk Pétursdóttir,
afabörnin öll og systkini hins látna.
✝
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur hlýhug
og samúð við andlát móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
BJARGAR SIGVARÐSDÓTTUR,
Brekkuseli 12,
Reykjavík,
sem lést mánudaginn 7. desember.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 2, Hjúkrunar-
heimilinu Sólvangi, Hafnarfirði.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Smári G. Snædal, Sigþrúður Ingimundardóttir,
Ásrún Snædal, Svavar Björnsson,
Óttar G. Snædal,
barnabörn og barnabarnabörn.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda efni
til Morgunblaðsins – þá birtist val-
kosturinn Minningargreinar ásamt
frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar