Morgunblaðið - 15.12.2009, Side 31
Minningar 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2009
✝ Sigurþór Árnasonvar fæddur í Ak-
urgerði í Innri-
Njarðvík 18. desem-
ber 1933. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
Hlévangi 5. desember
síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Ásta Karítas
Einarsdóttir og Árni
Sigurðsson, þau slitu
samvistum. Systkini
Sigurþórs eru Einar
Árnason, f. 1. sept-
ember 1930. Guðríður
Eygló Árnadóttir, f. 15. október
1932, d. 25. nóvember 2009. Óskírð-
ur Árnason, f. 9. júlí 1935, d. 30.
september 1935. Sveinn Guðbergs-
son, f. 10. janúar 1943. Sigríður
Guðbergsdóttir, f. 9 september
1945. Aðalsteinn Guð-
bergsson, f. 9. janúar
1948. Sigurþór ólst
upp í Innri- og Ytri-
Njarðvík hjá for-
eldrum sínum og síð-
an móður sinni og
eiginmanni hennar
Guðbergi Sveinssyni.
Vann verkamanna-
vinnu og lengst af á
Keflavíkurflugvelli í
yfir 50 ár. Sigurþór
bjó í Njarðvík og síð-
ast í Keflavík þar til í
mars 2009 að hann
fór á hjúkrunarheimilið Hlévang.
Útför Sigurþórs fer fram frá
Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag, þriðju-
daginn 15. desember og hefst at-
höfnin kl.13.
Meira: mbl.is/minningar
Það er skrítið til þess að vita að
frændi okkar, hann Siggi, eins og
hann var jafnan nefndur, sé ekki
lengur hér á meðal okkar og að
hann hafi kvatt þennan heim að-
eins tíu dögum á eftir systur sinni,
Guðríði. Því svo lengi sem við
munum þá var Siggi táknmynd
hins eina sanna frænda, sem ávallt
var til staðar þegar eitthvað bját-
aði á, þótt hann sjálfur gengi ekki
heill til skógar.
Þegar foreldrar okkur bjuggu á
Gufuá og raunar meðan þau lifðu
voru heimsóknir Sigga til okkar
jafn öruggar sem árstíðaskiptin.
Við vissum að sumarið var örugg-
lega komið þegar Siggi kom að
sunnan í stífpressuðum buxum,
fallega straujaðri skyrtu og ang-
andi af hreinlæti og þegar hann
stakk höndunum í buxnavasana
heyrðist hringla í lyklum og smá-
mynt. Hann vann megnið af sínum
starfsaldri í þvottahúsi bandaríska
hersins í Keflavík og fyrir vikið
færði hann okkur systkinunum
jafnan heil ósköp af „amerísku“
tyggjói sem var sjaldgæfur mun-
aður í sveitinni. Sömuleiðis færði
hann móður okkar fáséð kex í
dunkum með myndum á og ým-
islegt annað smálegt sem ekki
fékkst í Kaupfélaginu í Borgar-
nesi. Hann færði okkur líka fréttir
af giftingum, trúlofunum og fæð-
ingum hjá skyldfólkinu og vinum á
Suðurnesjum og var þá setið lengi
fram eftir á kvöldin. Siggi var stál-
minnugur og fylgdist náið með
daglegu lífi síns fólks og okkur
lærðist fljótt að rengja hann ekki
því hann hafði jafnan rétt fyrir sér
þegar einhver atburðurinn var
rifjaður upp. Hann var líka Hauk-
ur í horni ef þörf var á upplýs-
ingum um menn og málefni, en
naut þess stundum að stríða okkur
systrunum ef hann frétti að kær-
asti væri með í spilunum.
Siggi var ljúfmenni og vildi öll-
um vel. Umhyggjusemi hans kom
þó e.t.v. skýrast í ljós með ein-
stakri natni hans og umönnun
móður sinnar, henni Ástu frænku,
einkum síðustu æviár hennar, og
einnig gagnvart þeim sem áttu um
sárt að binda, bæði innan fjöl-
skyldunnar sem utan. Það fylgdi
honum gleði, það var bjart yfir
honum og hjálpsemi hans var við
brugðið. Skipti það þá ekki máli
hvort þurfti að rétta hjálparhönd
við fjósmokstur og heyskap eða
uppvask og þrif innandyra, alltaf
var Siggi til staðar ef á þurfti að
halda meðan hann dvaldi hjá okk-
ur í fríum sínum. Hann geymdi þó
jafnan hluta frídaga sinna til
haustsins til að fara í réttir sem
voru honum sannir hátíðisdagar.
Þá notaði hann líka tækifærið til
að heimsækja skyldfólkið á Haug-
um og á Hofstöðum. Mættum við
mörg taka ræktarsemi hans við
vini og skyldmenni okkur til fyr-
irmyndar.
Við kveðjum nú Sigga með
þakklæti fyrir allar þær góðu
stundir sem við áttum með honum
og fyrir alla hans hjálpsemi og
umhyggju. Hans verður lengi
saknað. Um leið minnumst við
einnig Guðríðar – Gauju – systur
hans með hlýju og þökk.
Eftirlifandi skyldmennum öllum
og venslafólki vottum við okkar
innilegustu samúð.
Gróa, Sesselja, Guðmundur og
Sólveig – systkinin frá Gufuá.
Elsku Siggi frændi
Ég ætla að minnast þín í nokkr-
um orðum. Það fljúga margar
minningar í gegnum huga minn
núna frá því ég var barn. Þú varst
mér eins og afi. Rúntaðir með mig
um sveitirnar í Borgarfirði, kom-
um við á Hofstöðum að sjá lömbin
og kisurnar og þar var boðið upp á
volga mjólk beint úr beljunni, ekki
þótti mér hún góð. Oft var komið
við á Baulu og keyptur ís. Einnig
man ég vel eftir því þegar við fór-
um að Hrútsholti að skoða minka-
búið.
Alltaf þótti mér gaman að koma
niður í kjallarann hjá ykkur ömmu
á Þórustígnum og skoða herbergið
þitt, allt dótið þitt var sem fjár-
sjóður í mínum augum. Þú komst
til okkar á Hlíðarveginn daglega
og yfirleitt færandi hendi. Þú
varst alltaf tilbúinn að skutlast
með mann þegar á þurfti að halda.
Svo þegar þú varst hættur að
keyra fannst mér gott að geta
launað þér greiðann og skutlað þér
þangað sem þú þurftir að fara og
aðstoða þig við hitt og þetta eins
og við að setja upp jólaskrautið
fyrir jólin.
Þegar við komum til þín um
daginn töluðum við um að setja
upp litla jólatréð þitt svona rétt
fyrir jól en við náðum því ekki.
Það var svolítið erfitt að útskýra
fyrir Berglaugu Aþenu að nú væri
ekki hægt að heimsækja Sigga
frænda á Hlévang lengur, henni
þótti mjög gaman að fara með
Svenna afa og færa þér mola eða
súkkulaðirúsínur og alltaf áttir þú
svala í ísskápnum handa henni.
Þegar hún var að fara með bæn-
irnar með pabba sínum fyrir
nokkrum dögum þá vildi hún biðja
Guð um að passa Sigga frænda.
Þú spurðir mikið um hana Kar-
ítas Önju og hvenær ég kæmi með
hana í heimsókn til þín, ég er svo
ánægð að þú hafir náð að hitta
hana þegar við mæðgurnar heim-
sóttum þig örfáum dögum áður en
þú kvaddir þennan heim.
Ég kveð þig nú, elsku frændi, þú
munt ávallt verða í minningu
minni.
Kveðja,
Þórdís.
Elsku Siggi frændi
Það er skrýtin hugsun að þú sért
farinn. Minningarnar eru margar.
Á þessum tíma árs þegar við
systkinin vorum yngri fórum við
með þér að bera út jólakortin,
keyrðir þú og við hlupum með
kortin. Alltaf sami hringurinn.
Á aðfangadag þegar litið var yfir
að jólatrénu og kíkt á merkimið-
anna voru oftast stærstu pakkarnir
frá þér.
Þegar ég var hjá ömmu spurði
ég þig hvort ég mætti fara niður í
herbergið þitt og hlusta á plötur.
Þú sagðir alltaf já, það var sjálf-
sagt. Og ég þorði ekki annað en
sitja kyrr í sófanum og fikta ekk-
ert. Því þetta var svo gaman.
Nokkur sumur fór ég í sveitad-
völ, þá varst þú mættur áður en ég
fór með stóran kassa sem var full-
ur af sælgæti og sagðir, ... svo þú
hafir eitthvað að narta í og bjóða
öðrum.
Alltaf varstu boðinn og búinn að
skutla mér ef ég bað þig, ég var
ekki komin í skóna þegar þú varst
kominn út í bíl.
Síðar þegar ég eignaðist mín
börn kölluðu þau þig alltaf Sigga
afa og varst þú mjög ánægður með
það.
Þear þau áttu afmæli varst þú
alltaf efstur á gestalistanum, það
mátti ekki gleyma að bjóða Sigga
afa.
Mikið var gott að vita að þú
hafðir alltaf áhuga á því sem við
vorum að gera og fylgdist vel með
.
Takk fyrir allt, góði frændi.
Hafðu það sem allra best þar
sem þú ert núna
Kveðja,
Gerður.
Fallinn ertu frá, kæri frændi.
Þú sem gerðir heiminn betri með
því einfaldlega að vera jákvæður
og almennilegur við allt og alla,
stóra sem smáa.
Margar eru góðu minningarnar
sem við eigum, enda varstu svo til
daglegur gestur á Brekkustígnum
þegar við vorum að alast upp. En
kannski sitja hvað fastast minn-
ingarnar um allar jólahátíðirnar
sem við deildum. Þar komu svo
skýrt fram þínir mörgu góðu
mannkostir, velvildin, umhyggjan
og ekki síst hve barngóður þú
varst. En það þurfti nú engin jól
til að þú sýndir af þér gjafmildi.
Ósjaldan komstu með einhvern
glaðning fyrir Bergdísi systur
eins og pakka af M&M, jafnvel
áður en það fékkst fyrir utan hlið.
Þar átti hún svo sannarlega hauk í
horni.
„Ætli þeir séu með réttir á
himnum?“ Þessari hugsun skaut
upp þegar sorgarfréttirnar bárust
um daginn. Því sjaldan varstu
spenntari en þegar líða fór að
hausti og styttist í réttir. Þar
naustu þín svo sannarlega, enda
áttirðu auðvelt með að tengjast
fólki og segja sögur.
Og hver veit. Kannski ertu á
„vellinum“ í efra að segja sögur,
hlæja, gleðjast og gefa af þér.
Kíkir svo í mat til ömmu og brun-
ar því næst í bæinn á vörubílnum
hans Bigga.
Sorglegt sem fráfall þitt er og
söknuðurinn mikill þá er svo
sannarlega huggun í því að þú
lifðir góðu lífi og skildir eftir
ómetanlegar minningar hjá öllum
sem þig þekktu. Okkur er því efst
í huga þakklæti fyrir að hafa átt
þig að frænda.
Með innilegri samúðarkveðju til
systkina og ástvina. Farðu í friði,
kæri frændi.
Ingimundur og Ása.
Sigurþór Árnason
Atvinnuauglýsingar
Útskrift
verður í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
föstudaginn 18. desember kl. 14.00.
Allir nemendur dag- og kvöldskóla, er lokið
hafa eftirtöldum prófum, eiga að koma
og taka á móti prófskírteinum:
Handíðabraut
Sjúkraliðanámi
Snyrtifræðinganámi
Burtfararprófi af húsasmiðabraut
Burtfararprófi af rafvirkjabraut
Stúdentsprófi
Skólameistari.
Austurbergi 5, 111 Reykjavík
Sími 570 5600, símbréf 567 0389
Tölvupóstur: fb@fb.is
www.fb.is
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Skúlagarður hf.
Aðalfundur
Aðalfundur Skúlagarðs hf. vegna reiknings-
ársins 2007 og 2008 verður haldinn á Hverfis-
götu 33, 2. hæð, þriðjudaginn 22. desember
kl. 16.00.
Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf
samkvæmt grein 3.4 í samþykktum félagsins.
Stjórnin.
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Hafnarstræti
107, Akureyri, sem hér segir, á eftirfarandi eignum:
Helgamagrastræti 26, eignarhl. íb. 01-0101 (214-7292) Akureyri, þingl.
eig. Jónborg Sigurðardóttir og Sigurður Guðmundsson, gerðar-
beiðandi Sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 18. desember 2009
kl. 10:00.
Svarfaðarbraut 6, einbýli (215-5280), Dalvíkurbyggð, þingl. eig.
Gunnar L. Hjartarson og Sigyn Georgsdóttir, gerðarbeiðandi Spari-
sjóður Svarfdæla, föstudaginn 18. desember 2009 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
14. desember 2009.
Halla Einarsdóttir, ftr.
Tilkynningar
Stjórn Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf.
auglýsir eftir áhugasömum aðilum umhugsanlegt samstarf, sameiningu eða annað samstarf
um rekstur Kölku. Erindi þess efnis skal senda til Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf.,
Berghólabraut 7, 230 Reykjanesbæ eigi síðar en mánudaginn 11. janúar 2010.
Nánari upplýsingar um rekstrarleg atriði veitir framkvæmdastjóri félagsins, Berglind
Kristinsdóttir, netfang berglind@sss.is.
Upplýsingar um tæknileg atriði veitir umhverfisfulltrúi Sorpeyðingarstöðvarinnar,
Aron Jóhannsson, netfang aron@kalka.is.
Félagslíf
FJÖLNIR 6009121519 I Jf.
I.O.O.F. Rb. 4 15812157- I.O.O.F. Ob.1,Petrus 19012158
Jf. ET II.
Smáauglýsingar augl@mbl.is
Farðu inn á mbl.is/smaaugl