Morgunblaðið - 15.12.2009, Qupperneq 36
36 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2009
Gríndávaldurinn Sailesh er á
leiðinni í fjórða sinn til Íslands og
heldur sýningu á Broadway 19.
mars 2010. Sýningin er síbreytileg
og byggir á þátttöku og við-
brögðum áhorfenda.
Miðaverð er 2.500 kr. og miða-
sala hófst í gær á Miði.is og öllum
sölustöðum Miða.is.
Sailesh æstur í að
dáleiða Íslendinga
Fólk
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
„ÞAÐ er aðfangadagskvöld og amma er drukk-
in,“ segir í byrjun lagsins Aðfangadagskvöld frá
hljómsveitinni Teinum. Í hljómsveitinni eru
bræðurnir Jón Hallur og Hermann Stefánssynir
en Jón Hallur semur textana og lögin. Þeir klár-
uðu plötuna Svarthvít jól tveimur dögum fyrir
jól í fyrra og var ákveðið að birta hana í heild
sinni á netinu. „Þetta eru öðruvísi jólalög en
gengur og gerist því þó þetta sé engin andjóla-
plata er hugmyndin á bak við plötuna að taka all-
an tilfinningaskalann, ekki þetta jólaglys sem
venjulega tengist jólalögum. Þarna eru lög um
jólaþunglyndi, jóladrykkju, jólafælni og jóla-
trega sem er stór hluti af jólaupplifun margra.
Þetta er flókinn tilfinningalegur pakki og ég var
aðeins að reyna að rekja nokkra þræði úr þeim
tilfinningahnút sem jólin eru.“
Verður fáanleg á geisladiski
Bræðurnir stóðu ekki einir að gerð plötunnar.
Í lið með þeim bættust bræðurnir Árni og Þór-
arinn Kristjánssynir en þeir fjórir voru saman í
hljómsveitinni Lestir frá Reykjavík. Þá bættust
við Guðlaug D. Gunnarsdóttir og Einar Sigurðs-
son. Plötuna er hægt að nálgast á slóðinni
this.is/teinar en Jón Hallur ætlar að gefa Svart-
hvít jól út á geisladiski á næstu dögum fyrir þá
sem vilja eiga hana á því formi. Platan verður þó
enn fáanleg gjaldfrjálst á fyrrgreindri síðu.
Lög um jólaþunglyndi og jólatrega
Morgunblaðið/Kristinn
Bræður Jón Hallur og Hermann mynda Teina.
Kosning um besta íslenska kvik-
myndaplakat áratugarins fór fram
á vefsíðunni Icelandcinem-
anow.com á dögunum. Það var
plakat heimildarmyndarinnar
From Oakland to Iceland: A Hip
Hop Homecoming sem bar sigur
úr bítum. Myndin er eftir Ragnhildi
Magnúsdóttur og segir af för bróð-
ur hennar, Illuga Magnússonar, til
Íslands en Illugi er uppalinn í
Bandaríkjunum og er vinsæll plötu-
snúður þar í landi. Plakatið var
hannað af Þórdísi Claessen. Á því
má sjá Illuga standa í íslensku
landslagi með plötuspilara í ann-
arri hendinni en þorsk í hinni.
Í öðru sæti í kosningunni var
plakat myndarinnar Mr. Bjarn-
fredarson sem verður frumsýnd um
jólin. Plakat Engla Alheimsins var
þriðja, Nóa albínóa fjórða og Sól-
skinsdrengsins fimmta.
Kosið um besta
kvikmyndaplakatið
Verslunin Nexus verður með
sérstaka forsýningu á stór-
ævintýramyndinni Avatar í leik-
stjórn James Cameron á morgun,
miðvikudaginn 16. desember, kl. 20
í Smárabíó. Myndin er sýnd í staf-
rænni þrívídd og án hlés. Miðasala
er hafin í Nexus, Hverfisgötu, og
það er selt í númeruð sæti, sem
kaupendur velja sjálfir. Þetta er
fyrsta sýning myndarinnar á Ís-
landi, tveim dögum fyrir heims-
frumsýningu.
Í tilkynningu segir að þessi for-
sýning á Avatar sé sú Nexusforsýn-
ing sem mest hefur verið beðið eftir
síðan Lord of the Rings. Þetta er
líka fyrsta leikna mynd Cameron í
12 ár, síðan hann sigraði kvik-
myndaheiminn með Titanic.
Nexusforsýning á
ævintýrinu Avatar
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
TÓNLISTARKONAN Margrét
Kristín Sigurðardóttir, öðru nafni
Fabúla, sendi frá sér sína fjórðu
sólóplötu á dögunum. Platan nefn-
ist In your skin og segir Margrét
lögin á plötunni einkennast af
tregablandinni leikgleði eins og á
fyrri plötum hennar.
„Þegar fólk biður mig um að lýsa
tónlistinni minni hefur tregablandin
leikgleði komist næst því,“ segir
Margrét og bætir við: „Annars er
fyrsta lag plötunnar ásamt titillag-
inu ágætir fulltrúar fyrir innihald
plötunnar.
Fyrsta lagið, „Monster“, fjallar
um það hverju við fáum breytt og
hverju ekki í þessari tilveru og við
hvað við fáum ráðið; náttúruöflin
eru voldug og sumt er ekki á okkar
valdsviði en þónokkuð margt er í
okkar höndum.
Þau eru ófá skrímslin sem við
þurfum að glíma við í þessari til-
veru s.s. eigingirni, græðgi og af-
skiptaleysi. Það síðastnefnda er
ekkert síður hættulegt en önnur
fyrirferðarmeiri, þó það sé svona
látlaust, nánast ósýnilegt. Það veð-
ur uppi í okkar vestræna heimi á
meðan við nýtum okkur auðlindir
annarra þjóða til að auka á eigin
velsæld, og það veður uppi í mínu
lífi þegar ég kaupi einhvern óþarfa
í stað þess að setja aurana í söfn-
unarbauk.“
Textarnir skipta miklu máli
„Í titillaginu, „In Your Skin“, er
húðin fulltrúi skynfæranna. Þar
segir:
Is your life perfect
the frog asked the ducks.
They answered quite
frankly, well, no,
sometimes it sucks.
Froskurinn og endurnar velta
svo fyrir sér hvers virði lífið sé og
komast að því að svarið sé að hluta
til að finna í húðinni – skynfær-
unum,“ segir Margrét.
„Textarnir skipta mig miklu
máli, þeir koma oft á undan tónlist-
inni og leiða lögin í rauninni.
Yrkisefnin eru margvísleg en
þau snúast oftast um þessa tilveru,
sem er undur létt og óbærileg í
senn. Stundum nota ég sögur og
reyni að nota sjónarhorn sem eru
ekki þau augljósustu, en ég fjalla
um upplifanir og tilfinningar sem
eru okkur öllum sameiginlegar.
Það skiptir mig mjög miklu máli
á tónleikum þegar ég finn að áhorf-
endur eru að finna sig í textunum
og við erum að tala saman.“
Tileinkuð foreldrunum
Lögin á plötunni eru öll eftir
Margréti sem og textarnir, fyrir
utan einn sem er eftir hina þýsku
Friederike Hesselmann.
„Lögin eru á ensku fyrir utan
þau tvö síðustu sem eru á íslensku
og tileinkuð foreldrum mínum.
Pabbi og mamma áttu gullbrúð-
kaupsafmæli í fyrra og þá samdi ég
lög við ljóð sem ég hafði samið til
þeirra. Þegar ég var að gera þessa
plötu fann ég fljótt að þessi lög
yrðu með og platan yrði tileinkuð
þeim,“ segir Margrét en í plötu-
umslaginu má sjá gamlar myndir af
foreldrum hennar.
Skipuleggur tónleikaferð
Fyrsta sólóplata Margrétar bar
nafnið Cut My Strings og kom út
árið 1996, næst kom Krossfar á il-
inni árið 2002 og Dusk árið 2006,
In Your Skin er fjórða sólóplatan
og segir hún hana í góðu samhengi
við hinar plöturnar þrjár.
„Eins og ég sagði áðan má segja
að tregablandin leikgleði einkenni
allar mínar plötur, en þessi er svo-
lítið poppaðri, glaðværari taktar á
henni,“ segir Margrét og kveðst
alltaf semja tónlistina út frá eigin
lífi. „Ef ég er ekki að gefa neitt af
sjálfri mér í tónlistina er kannski
bara betur heima setið.“
Margrét fékk úrvalslið til að
vinna plötuna með sér en Birkir
Rafn Gíslason stjórnaði upptökum.
Sjálf leikur Margrét á píanó og
hljómborð á plötunni ásamt því að
syngja. Hún hefur verið að fylgja
plötunni eftir að undanförnu með
tónleikum víða. Hún hélt tónleika-
röð á Rósenberg áður en platan
kom út og skipuleggur nú tónleika-
ferðalög eftir áramót bæði innan-
lands og utan.
„Ég ætla að ferðast um Norður-
löndin með vorinu, ég ákvað með
þessa plötu að leita ekki langt yfir
skammt og byrja þar,“ segir Mar-
grét. Hún gefur plötuna út sjálf en
Afkimi dreifir henni. „Ég ákvað að
fara þessa leið núna því ég ætla að
ferðast mikið með plötuna og vildi
því eiga hana sjálf, það er einfald-
ara.“
Tregablandin leikgleði
Margrét Kristín Sigurðardóttir, Fabúla, gefur út In your skin Fjórða
sólóplatan og aðeins poppaðri en hinar Ætlar í tónleikaferð með vorinu
Morgunblaðið/Kristinn
Fabúla Textarnir skipta hana miklu máli og koma oft á undan lögunum.
Margir landsmenn kannast við
Margréti Kristínu Sigurðar-
dóttur úr Söngvakeppni Sjón-
varpsins en hún hefur tvisvar
tekið þátt í Íslensku undan-
keppninni fyrir Eurovision. Fyrst
var það árið 2001 en þá lenti
hún í þriðja sæti með lagið
„Röddin þín“, sem hún samdi
og flutti sjálf. Það ár vann lagið
„Birta“ eftir Einar Bárðarson.
Árið 2008 var hún einn af
nokkrum lagahöfundum sem
voru fengnir til að semja þrjú
lög hver fyrir söngvakeppnina
sem fór það árið fram í sjón-
varpsþættinum Laugardags-
lögin. Margrét komst með eitt
lag í úrslit, „Don’t wake me up“
sem Ragnheiður Gröndal flutti.
Það ár sigraði Eurobandið með
„Fullkomið líf“ eftir Örlyg
Smára.
„Ég er ekki með í söngva-
keppninni í ár, ætli því sé ekki
lokið í bili, þetta var ágætis
skammtur síðast,“ segir Mar-
grét kímin spurð hvort hún
verði með í ár.
Ekki með í Söngva-
keppninni í ár
www.fabula.is.