Morgunblaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 38
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Washingtoneyja „Aðalból“ stóð á ströndinni, á suðurhluta Washingtoneyjar, skammt austan við útivistarsvæðið
Sand Dunes Park. Húsið var rifið á seinni hluta síðustu aldar en hafði þá staðið ónotað í mörg herrans ár.
Þar kemur fram að viðarskilti
hafi verið yfir dyrum hússins.
Orðið „ATHABOLD“ hafi verið
skorið þar út og sagt að það
þýddi að allir væru velkomnir.
Telur höfundur að þessar mót-
tökur hljóti að hafa haft mikla
þýðingu fyrir fólkið sem þangað
kom og var í fyrsta skipti að tak-
ast á við lífið í nýju landi.
Þetta skrítna orð, „athabold“,er vitaskuld framandi fyrir
nútíma Íslendinga og einhvern
veginn ómögulegt að tengja það
þessari fallegu kveðju. Þegar höf-
Hús sem byggt var á suður-strönd Washingtoneyjar íMichiganvatni í Banda-
ríkjunum á landnámstíma Íslend-
inga var gjarnan kallað „Íslenski
kastalinn“. Venjulegt tveggja
hæða timburhús og ekki líkt evr-
ópskum kastala á nokkurn hátt.
Gælunafnið hefur verið notað í
gamni en náð að festast við húsið.
Oddur Magnússon kom ungurfrá Íslandi og settist að á
Washingtoneyju. Þar myndaðist
íslensk byggð í upphafi vest-
urferðanna enda var eyjan
áfangastaður Íslendinganna sem
fyrstir fóru í stóru bylgjunni.
Ekki hafði Oddur búið nema í eitt
ár á eyjunni þegar hann byggði
sér hús. Hið formlega nafn þess
var annað en „Íslenski kastalinn“.
Komið verður að því síðar.
Margir af íslensku frumbyggj-unum á Washingtoneyju
stofnuðu sitt fyrsta heimili í kast-
alanum og þar fæddust mörg af
fyrstu börnunum í íslensku
byggðinni. Húsið þjónaði jafn-
framt sem óformlegt innflytjenda-
hús því þar fengu oft inni nýir
íbúar eyjarinnar, ekki síst Íslend-
ingar sem komu að heiman. Það
orð lá á að allir væru velkomnir í
„Íslenska kastalann“.
Saga „Íslenska kastalans“ ersögð í riti sem skrifað var í
tilefni af 100 ára kaupstað-
arafmæli Washingtoneyjar, 1950.
undur listapistils las frásögnina
og fann engin líkindi í orðabókum
fór hann að velta því fyrir sér
hvort verið gæti að þetta væri ein
birtingarmynd þeirra breytinga á
íslenskum orðum sem þekktar eru
meðal Íslendinga vestanhafs.
Ekki leiddu þessar hugrenningar
til neins, nema ímyndunar um að
þetta kynni að vera örnefni frá
tíma indíánanna sem byggðu eyj-
una áður. Orðið kemur einu sinni
upp þegar það er gúglað á netinu.
Í vefbók um fiskveiðar á svæðinu
er sagt frá umræddu húsi og sagt
að „athabold“ sé gamalt íslenskt
orð sem þýði „allir velkomnir“.
Ekki höfðu íslenskir fræðimenn
sem leitað var til neina skýringu
á takteinum og ekki heldur menn
sem kunnugir eru löndum okkar
vestra. Einn fann orðið í ritgerð
frá Green Bay þar sem áðurnefnd
þýðing er gefin upp. Bæði þessi
dæmi gætu verið smit úr fyrr-
nefndri sögubók.
Skiltið góða er varðveitt áskjalasafni Washingtoneyjar.
Maður sem vinnur fyrir safnið var
svo vinsamlegur að senda ljós-
mynd af því. Það leysti gátuna.
Fyrsti eigandi hússins, OddurMagnússon, fór frá Íslandi til
Milwaukee í Bandaríkjunum 1873,
þá 20 ára gamall. Árið eftir flutti
hann til Washingtoneyjar. Hann
kom frá Arnórsstöðum á Jök-
uldal. Sama ár fór Pétur Gunn-
laugsson frá Brú á Jökuldal út en
settist strax að á eyjunni. Pétur
byggði húsið fyrir Odd 1875. Þeir
tengdust síðar fjölskylduböndum.
Telja verður sennilegt að Oddur
hafi haft í huga heimasveit sína
og landnámsjörð Hrafnkels sem
nefndur var Freysgoði, þegar
hann gaf húsi sínu nafn. Á skilt-
inu stendur nefnilega „ADAL-
BOL“.
Allir velkomnir á Aðalból
AF MENNINGU
Helgi Bjarnason
Ljósm./Washington Island History Archives
Aðalból Skiltið sem var við dyrnar
á „Íslenska kastalanum“ er varð-
veitt í Skjalasafni Washingtoneyjar
ásamt málverki af húsinu.
»Húsið þjónaði jafn-framt sem óformlegt
innflytjendahús því þar
fengu oft inni nýir íbúar
eyjarinnar, ekki síst Ís-
lendingar sem komu að
heiman.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2009
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Spennumynd af bestu gerð þar sem
Nicolas Cage fer á kostum í hlutverki spillta
lögreglumannsins Terence McDonagh.
SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI
SÝND Í REGNBOGANUM
HHHH
„Taugatrekkjandi og
vægast sagt óþægileg”
T.V. - Kvikmyndir.is
SÝND HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI
Meistarar svarta húmorsins,
Coen-bræður er mættir aftur
með frábært meistarverk.
Í HÁSKÓLABÍÓI
Snillingarnir Woody
Allen og Larry David
snúa saman bökum
og útkoman er „feel-
good” mynd ársins
að mati gagnrýnenda.
HHH
„Frammistaða leikara er í
heildina sannfærandi og einlæg...
stendur fyllilega fyrir sínu“
-H.J., MBL
SÝND Í BORGARBÍÓI OG REGNBOGANUM SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
Bad Lieutenant kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 ára
Julie and Julia kl. 5:20 - 8 - 10:35 LEYFÐ
2012 kl. 6 - 9:15 B.i.10 ára
Paranormal Activity kl. 10:30 B.i.16 ára
Love Happens kl. 5:30 - 8 LEYFÐ
Anvil kl. 6 - 8 - 10 B.i.7 ára
Whatever Works kl. 8 - 10:10 B.i.7 ára
A Serious Man kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.12 ára
Desember kl. 6 - 8 - 10 B.i.10 ára
Capitalism: A Love Story kl. 8 B.i. 7 ára
The Box kl. 10:15 B.i.16 ára
2012 kl. 8 B.i.10 ára
Love Happens kl. 6 LEYFÐ
9 kl. 6 B.i.10 ára
600 kr.
600 kr.
600 kr.
700 kr.
600 kr.
600 kr.
600 kr. 6
00 kr.
HHHH
„Ein magnaðasta
mynd ársins”
S.V. - MBL
HHHH
Roger Ebert -
Chicago Sun-Times
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
ATH. ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIÐ GILDIR EKKI Í BORGARBÍÓI, LÚXUS, 3-D MYNDIR OG ÍSLENSKAR MYNDIR Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Há