Morgunblaðið - 15.12.2009, Page 40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2009
aldrei náð að slá almennilega í gegn
varð hún fyrirmynd banda á boð við
Metallicu, Slayer og Anthrax sem
síðar hafa orðið goðsagnakennd. Nú
eru vinirnir í Anvil komnir á sex-
tugsaldur en neita staðfastlega að
láta deigan síga. Þeir fara í hroða-
lega misheppnaða tónleikaferð um
Evrópu og ráðast í metnaðarfulla og
kostnaðarsama útgáfu á þrettándu
plötu sinni í veikri von um að æsku-
draumar um frægð og frama geti
enn ræst.
Myndin er einstaklega áhugaverð
og grátbrosleg vegna þess að aðal-
hetjurnar eru þrautseigari og
skrautlegri en gengur og gerist.
Lips og Robb hafa öll járn í eldi og
hamra stöðugt á draumnum en veru-
leiki þeirra er óbilgjarn eins og
steðjinn sem hljómsveitinn kennir
sig við. Félagarnir hafa orðið eftir í
lífsgæðakapphlaupinu á meðan aðrir
ættingjar hafa siglt inn í öryggi efri-
miðstéttar. Þeir fóru ekki mennta-
veginn og hafa alla tíð unnið lág-
launastörf í dagvinnu en daðrað við
draum sinn og spilað tónlist í frítíma.
Nú eru þeir orðnir að gangandi
tímaskekkjum þar sem hugarfar
þeirra og útlit minnir enn á ung-
rokkara níunda áratugar síðustu
aldar.
Inn í frásögnina er fléttað mynd-
skeiði frá blómatíma hljómsveitar-
innar sem sýnir Lips á tónleikum,
Rokk-heimildarmyndin (e.rockumentary) Anvil!Saga Anvil sem Grænaljósið hefur tekið til sýn-
inga ætti að geta skemmt þorra
áhorfenda ærlega. Sagan segir af
Robb og Lips sem strengdu þess
heit á unglingsaldri að rokka saman
um ókomna tíð. Hljómsveit þeirra
lofaði upphaflega góðu og skipaði
sér í fylkingarbrodd kanadísks
þungarokks. Þrátt fyrir að hún hafi
íklæddan beisli, renna (e. slide)
gervilim eftir gítarhálsi og geifla
munninn með afar leikrænum til-
þrifum. Það kemur þó í ljós að undir
þessu rokkaða útliti hljómsveitar-
meðlima leynast mýkstu menn sem
sögur fara af. Þeir eru tryggir fjöl-
skyldufeður og ævarandi vinir sem
skýla sér ekki bak við töffarastæla í
daglega lífinu. Áhorfendur geta ekki
annað en hrifist af einlægni þeirra
og brosað að jafnri hrynjandi væm-
inna ástarjátninga og argra blóts-
yrða.
Það má helst finna myndinni til
foráttu að hún beinir ekki sjónum
sínum að tökuferlinu né kvikmynda-
forminu sem slíku. Áhorfendur eru
saumaðir inn í framvinduna líkt og
um frásagnarkvikmynd með ríkt af-
þreyingargildi sé að ræða en ekki
gagnrýna heimildarmynd sem nálg-
ast viðfang sitt úr viðeigandi fjar-
lægð. Hetjurnar eru lofsamaðar og
sjónarhornið nánast alfarið bundið
við þær en það auðveldar áhorf-
endum að samsama sig við raunir
þeirra og gerir áhorfið skemmti-
legra, svo lestirnir fyrirgefast fljótt.
Myndin hefur unnið til fjölda áhorf-
endaverðlauna á erlendum kvik-
myndahátíðum og hefur jafnvel ver-
ið orðuð við Óskarsverðlaun í flokki
heimildarmynda, svo óhætt er að
mæla með henni fyrir alla áhorf-
endahópa.
Mjúkur kjarni
í hörðum skráp
Græna ljósið, Háskólabíó
Anvil! Saga Anvil bbbbm
Leikstjórn: Sascha Gervasi. Aðal-
hlutverk: Steve „Lips“ Kudlow og Robb
Reiner. Heimildarmynd. 90 mín. Banda-
ríkin, 2008.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Saga Anvil minnir um margt á hina
rómuðu stælingu á
heimildarmyndarforminu (e.
mockumentary), This is Spinal
Tap, frá árinu 1984, sem leikstýrt
var af alnafna trommuleikara An-
vil, Robb Reiner. Myndin er ærsla-
fenginn skáldskapur frá upphafi til
enda er segir af hárprúðum brjál-
sömum rokkurum og þeim van-
sæmandi aðstæðum sem þeir rata
í. Hún gerir stólpagrín að óhefluðu
framferði, tættu útliti og tónlist-
arlegu drambi harðkjarna rokk-
banda um leið og hæðst er að til-
hneigingu rokk-heimildarmynda til
þess að oflofa gagnrýnislaust við-
föng sín. Það er með ólíkindum
hversu áþekkar myndirnar eru þó
að hæðnin sé ekki jafnaugljóst
keppikefli beggja og veruleikinn
gefur skáldskapnum ekkert eftir.
Anvil sem arftaki Spinal Tap
Anvil Áhugaverð og grátbrosleg kvikmynd og aðalhetjurnar „þrautseigari og skrautlegri en gengur og gerist“.
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
FRÁBÆR SPENNUMYND Í ANDA SCREAM OG I KNOW
WHAT YOU DID LAST SUMMER
ÞÆR ÆTLA AÐ REYNA AÐ ÞAGA
YFIR LEYNDARMÁLI DAUÐANS!
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
TVEIR VINIR
TAKA AÐ SÉR 7 ÁRA
TVÍBURA MEÐ
ÁKAFLEGA
FYNDNUM
AFLEIÐINGUM
OldDogs
JOHN TRAVOLTA OG ROB-
IN WILLIAMS FARA Á KOS-
TUM Í ÞESSARI SPRENG-
HLÆGILEGU MYND
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR
/ KRINGLUNNI
OLD DOGS kl.6 -8-10 L DIGITAL
SORORITY ROW kl.8 -10:20 16
NINJA ASSASSIN kl.10:40 16
THE TWILIGHT NEW MOON kl.5:30-8 12
A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl.5:503D ótextuð 7 3D-DIGITAL
/ ÁLFABAKKA
OLDDOGS kl. 6-8D-10:10D L DIGITAL ACHRISTMASCAROLm.enskutali kl.5:503D ótextuð 7
OLDDOGS kl. 8 - 10:10 LÚXUS ACHRISTMASCAROLm.ísl.tali kl.5:50 7
SORORITYROW kl. 8 -10:20 16 ACHRISTMASCAROLm.enskutali kl.8 7
NINJAASSASSIN kl. 8 - 10:10 16 PANDORUM kl.5:50 16
THETWILIGHT2NEWMOON kl. 5:30-8-10:30 12 LAW ABIDING CITIZEN kl.10:10 16
THETWILIGHT2NEWMOON kl. 5:30 LÚXUS
– meira fyrir áskrifendur
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askriftPöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16.00
föstudaginn 18. desember 2009.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105, kata@mbl.is
Í þessu blaði verða kynntir fullt af þeim mögu-
leikum sem í boði eru fyrir þá sem stefna á
heilsuátak og bættan lífstíl í byrjun ársins 2010.
Heilsa og
lífsstíll
Morgunblaðið gefur út
glæsilegt sérblað um
heilsu og lífstíl mánudaginn
4. janúar 2010.
Meðal efnis verður:
Hreyfing og líkamsrækt.
Hvað þarf að hafa í ræktina.
Vinsælar æfingar.
Heilsusamlegar uppskriftir.
Andleg vellíðan.
Bætt heilsa.
Ráð næringarráðgjafa.
Umfjöllun um fitness.
Jurtir og heilsa.
Hollir safar.
Ný og spennandi námskeið
á líkamsræktarstöðvum.
Skaðsemi reykinga.
Ásamt fullt af
fróðleiksmolum og
spennandi viðtölum.