Morgunblaðið - 15.12.2009, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2009
Sjálfstætt framhald barna-myndarinnar Artúrs ogMinnimóanna (’06) reynistþegar upp er staðið aðeins
fyrri helmingur, þriðjungur eða guð
má vita hvað af framhaldsmynd.
Artúr litli er á búgarðinum hjá afa
og ömmu þegar hann fær skilaboð
frá Seleníu, prinsessu Minnimóanna,
sem búa í annarri vídd og Artúr
kynntist í fyrstu myndinni. Selenía
er að biðja um hjálp og Artúr (sem
er bálskotinn í stelpunni) bregst við
snarlega og er dúndrað yfir í víddina
þeirra. Þar kemst hann að því að
skilaboðin voru komin frá illmenninu
Maltasar, sem er með ýmisleg
gruggug vélabrögð í huga.
Við vorum sammála um það ég og
barnabarnið að myndin væri vel
gerð, hugmyndarík, full af jákvæð-
um, grænum boðskap en heldur
barnaleg fyrir jafnþroskað fólk og
okkur, enda sú stutta orðin átta ára!
Spennan og efnisþráðurinn frekar
við hæfi yngri barna. Það sem okkur
þótti gremjulegast er að myndinni
lýkur í miðju kafi á tilkynningu um
framhaldsmynd. Engin bráða-
birgðakaflaskipti og við komin út í
svalt, myrkt og blautt skammdegið
áður en við vissum af. Litríkur æv-
intýraheimurinn snögglega að baki
með sínum kúnstugu persónum.
Myndin er leikin að hluta en Minni-
móarnir eru tölvuteiknaðir og flétt-
ast vinnan snyrtilega saman.
Brellan virkaði því barnabarnið
tók af mér loforð um að ég byði
henni með á þriðju myndina um
strákinn Túra. Og við það verð ég að
standa, hvað sem tautar og raular.
saebjorn@heimsnet.is
Endasleppt ævintýri
Artúr 2 Myndin er leikin að hluta en Minnimóarnir eru tölvuteiknaðir og
fléttast vinnan snyrtilega saman.
Laugarásbíó, Smárabíó
Artúr 2: Maltasar snýr aftur –
Arthur et la vengeance de Maltazard
bbmnn
Leikstjórn: Luc Besson. Leikin og teikn-
uð. Íslensk talsetning. Íslenskar leik-
raddir: Árni Beinteinn Árnason, Guðjón
Davíð Karlsson, Sigríður Björk, Örn
Árnason, Björgvin Franz Gíslason, Sig-
urður Sigurjónsson og Inga María Valdi-
marsdóttir. Aðalleikarar: Freddie High-
more, Penny Balfour, Robert Stanton,
Ron Crawford, Mia Farrow, Matthew
Gonde. 100 mín. Frakkland. 2009.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND Franski leikstjórinn, handrits-
höfundurinn og stórframleið-
andinn Luc Besson (’59), er orð-
inn lang-farsælasti og
umsvifamesti kvikmyndagerð-
armaður
Evrópu. Hef-
ur sannað
að Evr-
ópubúar
geta slegið í
gegn á
heimsvísu,
rétt eins og
Hollywood,
ef seigla,
heppni og
hæfileikar fá að njóta sín. Bes-
son hóf ferilinn sem leikstjóri
og höfundur spennumynda á
borð við Subway, Nikita og
Léon, sem slógu í gegn langt út
fyrir heimalandið. Besson
reyndist einnig hafa got fjár-
málavit því hann fór snemma að
framleiða myndirnar sínar og
ekki leið á löngu und hann
stofnaði dreifingar-og fram-
leiðslufyrirtækið Europa Corp.
Með vinsælum myndum eins og
Taxi- og Transporter bálkunum,
jókst Europa fiskur um hrygg og
er orðið stærsta fyrirtæki sinn-
ar tegundar í Evrópu og er farið
að gera alþjóðleg kassastykki á
borð við Taken með Liam Nee-
son. Hún er fyrsta Eur-
opa-myndin sem gekk jafnvel
betur í Bandaríkjunum en Evr-
ópu.
Evrópski kvikmynda-
jöfurinn Luc Besson
Luc Besson
ÞAÐ ER ekki
tekið út með
sældinni að bera
eftirnafnið
Woods eða
Wood þessa
dagana. Í síð-
ustu viku slitu
Rolling Stones
rokkarinn Ronn-
ie Wood og unga
ástkonan hans Ekaterina Iv-
anova sambandi sínu. Wood
yfirgaf eiginkonu sína til 23
ára í fyrra fyrir Ivanovu sem
þá var aðeins 18 ára en rokk-
arinn 61 árs. Hún hefur nú op-
inberlega gagnrýnt Wood fyr-
ir að vera barnalegur
drykkjurútur.
Að sögn Ivanovu byrjaði að
hrikta í stoðunum þegar parið
flutti inn í kastala sem var
eins og klipptur úr ævintýr-
unum. „Þetta byrjaði eins og
ævintýri. Síð-
an varð þetta
eins og ljótt
ævintýri. Þeg-
ar Ronnie og
ég fluttum inn
hlógu vinir
mínir og
sögðu að ég
væri eins og
prinsessa sem
væri læst inn í turni. Ég væri
föst þar með illgjörnum púka-
kóngi,“ segir Ivanova.
„Hann var eins og barn í
frekjukasti þegar hann var
drukkinn, henti vatnsflöskum
og hermdi eftir röddinni
minni. Þetta var eins og að
reyna að hafa hemil á barni.
Undir lokin gafst ég upp. Ég
hugsaði: Til hvers að vera með
eldri manni ef hann hegðar
sér eins og 12 ára? En brjóst-
umkennanleg manneskja.“
Kallar Wood púka
Wood og Ivanova
Meðan allt lék í lyndi.
JUDE Law og Sienna Miller hafa ákveðið að taka
aftur saman en þau slitu trúlofun sinni árið 2006
þegar upp komst að Law hafði átt í ástarsambandi
við barnfóstru barna sinna frá fyrra sambandi.
Heimildir herma að Law og Miller séu svo ást-
fangin að þau ætli að kaupa saman íbúð í London
fljótlega eftir áramótin svo þau geti eytt sem mest-
um tíma saman. Eiga þau að hafa sagt starfsfólki
sínu og vinum frá þessu. Law og Miller byrjuðu að
hittast á ný þegar þau léku í sínu hvoru Broadway
leikritinu í New York. Örfáar vikur eru síðan Mill-
er sást yfirgefa íbúð Law og fóru þá sögusagnir af
stað. Þau kynntust árið 2004 þegar þau léku í
myndinni Alfie og trúlofuðu sig sama ár.
Fallegt par Law og Miller fyrir nokkrum árum.
Tekin saman aftur
Stórfréttir
í tölvupósti
HHH
„HRÖÐ, SPENNANDI... OG SNARKLIKKUÐ
MYND FRÁ A-Ö... EKTA AFÞREYINGARBÍÓ!”
T.V - KVIKMYNDIR.IS
HHH
„ÓSVIKINN GEIMHROLLUR SEM SVER
SIG Í HEFÐINA, MINNIR EINKUM Á ALIEN-MYNDIRNAR.“
„GÓÐ SKEMMTUN OG DÁLÍTIÐ GEGGJUÐ.“
S.V. - MBL
EKKI VIÐ HÆFI
UNGRA BARNA
JIM CARREY
Sýnd með íslensku
og ensku tali
HHHH
„JÓLASAGA Í FRÁBÆRRI, NÝRRI ÞRÍVÍDD
SEM SLÆR ÚT ANNAÐ ÁÐUR HEFUR SÉST“
„CARRY ER ENGUM LÍKUR...“
– S.V – MBL
BYGGT Á HINNI GRÍÐARLEGU VINSÆLU BÓKASERÍU STEPHENIE MEYER
Robert Pattinson og
Kristen Stewart eru
mætt í einni stærstu
kvikmyndaseríu
allra tíma!
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
ÞRIÐJA STÆRSTA FRUM-
SÝNINGARHELGI ALLRA
TÍMA Í USA
STÆRSTA BÍÓOPNUN
Í USA Í ÁR!
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI, 2 VIKUR Í RÖÐ!
LET’S BE HONEST, KILLING IS THIS FILM’S BUSINESS...
AND BUSINESS IS GOOD.
CHRIS NASHAWATY / ENTERTAINMENT WEEKLY
“ROARING ACTION.”
KYLE SMITH / NEW YORK POST
HÖRKU
HASARMYND
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU
OKKUR MATRIX ÞRÍLEIKINN
EINHVER FLOTTUSTU BARDAGAATRIÐI SEM SÉST
HAFA Í LAAANGAN TÍMA!
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
GERRARD BUTLER OG JAMIE
FOXX Í EINHVERRI MÖGNUÐUSTU
HASARMYND Á ÞESSU ÁRI!
FRÁ LEIKSTJÓRA THE ITALIAN JOB
„ÞEIR SEM DÝRKUÐU
FYRSTU MYNDINA...
MUNU ÁBYGGILEGA
ELSKA ÞESSA ÚTAF
LÍFINU.“
T.V. KVIKMYNDIR.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR
„AFÞREYING MEÐ
HRÖÐUM HASAR, SJÓN-
RÆNUM NAUTNUM...
SEM HALDA ATHYGLI
ÁHORFANDANS.“
*** H.S.-MBL
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
THE TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 8 12
LAW ABIDING CITIZEN kl. 10:40 16
MY LIFE IN RUINS kl. 8 L
PANDORUM kl. 10:20 16
MORE THAN A GAME kl. 5:50 7
A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl. 5:50 7
OLD DOGS kl. 6 - 8 - 10 L
A CHRISTMAS CAROL kl. 6 7
THE TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 8 12
NINJA ASSASSIN kl. 10:30 16
OLD DOGS kl. 6 - 8 - 10 L
A CHRISTMAS CAROL kl. 5:50 7
THE TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 8 12
PARANORMAL ACTIVITY kl. 10:30 16
12.12.2009
7 27 30 34 38
5 7 9 8 3
6 3 1 3 8
33
9.12.2009
8 13 16 25 31 41
639 42