Morgunblaðið - 15.12.2009, Side 44
ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 349. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
Heimild: Seðlabanki Íslands
DOLLARI
STERLINGSPUND
KANADADOLLARI
DÖNSK KRÓNA
NORSK KRÓNA
SÆNSK KRÓNA
SVISSN. FRANKI
JAPANSKT JEN
SDR
EVRA
MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG
125,34
203,43
117,91
24,659
21,683
17,625
121,37
1,4151
198,8
183,54
Gengisskráning 14. desember 2009
125,64
203,92
118,26
24,731
21,747
17,677
121,71
1,4192
199,39
184,05
236,9912
MiðKaup Sala
125,94
204,41
118,61
24,803
21,811
17,729
122,05
1,4233
199,98
184,56
Heitast 8°C | Kaldast 2°C
Hæg vestlæg átt, en
annars svipað veður.
Sums staðar vægt frost
í innsveitum norðan-
og austanlands. » 10
Íslendingar eru
komnir í jólabíóstuð
og Skröggur gamli
sest því öruggur í
fyrsta sæti bíólist-
ans. »39
KVIKMYNDIR»
Jólamynd á
toppnum
KVIKMYNDIR»
Heimildarmyndin Anvil
er þrekvirki. »40
Gagnrýnandi fer
fögrum orðum og
fallegum um nýjan
klassískan hljóm-
disk Gunnars Þórð-
arsonar. »37
TÓNLIST»
Góður Gunni
Þórðar
TÓNLIST»
Ronnie Wood gerir það
ekki endasleppt. »40
BÆKUR»
Nýjasta bók Yrsu Sig-
urðardóttur ritrýnd. »37
Menning
VEÐUR»
1. Eins og blaut tuska í andlitið
2. Dómari bjargaði lífi leikmanns
3. Rektorsskipti í HR
4. Afdrifarík mistök
Íslenska krónan veiktist um 0,6%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Sjálfboðaliðar
bera uppi starf
björgunarsveita
um landið og gríð-
arlega mikilvægt
að í þann hóp bæt-
ist gott fólk. Einn
af þeim sem hófu
nýliðaþjálfun í Flugbjörgunarsveit-
inni í Reykjavík í haust er Óskar
Jónasson, sem er betur þekktur
sem leikstjóri kvikmynda og sjón-
varpsefnis en björgunarsveitar-
maður. Hann hefur leikstýrt kvik-
myndum á borð við hinar vinsælu
Sódómu Reykjavík, Perlur og svín
og síðast en ekki síst Reykjavík
Rotterdam auk áramótaskaupsins
og sjónvarpsþáttanna Svartra engla
og Pressu.
BJÖRGUNARSTÖRF
Úr bíói í björgun
Þeir sem hafa átt
fundi á skrifstofu
Álfheiðar Inga-
dóttur í heilbrigð-
isráðuneytinu hafa
tekið eftir því að
heiðblátt sófasett
er þar ekki lengur,
heldur hvítt sófasett ættað úr IKEA.
Fljótlega eftir síðustu ráðherraskipti
fóru einnig fram skipti á sófasettum.
Hvíta sófasettið var sótt í móttöku á
hæðinni fyrir neðan ráðherrann og
hið bláa sent þangað í staðinn.
HÚSGÖGN
Færði til bláa sófasettið í
heilbrigðisráðuneytinu
Ríkisháskólinn í
Ohio, fjölmennasti
háskóli Bandaríkj-
anna, gerði forseta
Íslands, Ólaf
Ragnar Gríms-
son, að heiðurs-
doktor við hátíð-
lega athöfn sl. sunnudag. Honum er
veittur þessi heiður m.a. fyrir fram-
lag sitt til alþjóðasamfélagsins og
baráttunnar gegn loftslagsbreyt-
ingum. Athöfnina sóttu um fimm-
tán þúsund manns: prófessorar,
kennarar og starfslið háskólans og
útskriftarnemendur. Kvöldið áður
sat forseti hátíðarkvöldverð í boði
rektors háskólans, Gordon Gee.
VIÐURKENNING
Forsetinn gerður að heið-
ursdoktor í Ohio-háskóla
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
SAMNINGAR voru í gær undirrit-
aðir milli Reykjavíkurborgar og fé-
lagasamtakanna Toppstöðvarinnar,
sem hafa tekið á leigu samnefnt hús í
Elliðaárdal til næstu þriggja ára.
Þar stendur til að koma á laggirnar
miðstöð hugvits og verkþekkingar
og hafa fyrstu skrefin í þá átt þegar
verið tekin. Toppstöðin mun á kom-
andi mánuðum byggja upp öflugt
starf með fjölbreyttri dagskrá, fyr-
irlestrum, vinnustofum, námskeið-
um og þróunarverkefnum. Á kom-
andi vetri verður á vefsíðu Topp-
stöðvarinnar opnaður tengslabanki
þar sem ætlunin er að kortleggja
sérhæfða iðnþekkingu í samfélaginu
og stuðla að samstarfi hönnuða og
iðnaðarmanna.
Toppstöðin hóf starf sitt nú í
haust í 600 m² hluta byggingarinnar
og skiptist aðstaðan þar í verkstæði,
vinnustofur og fundasali. Gert er ráð
fyrir að um 20 manns fái vinnustöðv-
ar í þessum fyrsta áfanga verkefn-
isins.
Fólk skapandi greina
„Við finnum fyrir miklum áhuga
fólks í ýmsum hinna skapandi greina
á að fá hér inni fyrir starfsemi sína.
Hér verða arkitektar, vöruhönnuðir,
járnsmiðir og leikfangagerð. Þá geta
til dæmis einyrkjar á ýmsum sviðum
komið og fengið hér inni til skemmri
tíma, jafnvel í einn dag. Í raun er hér
verið að opna nýjan og ákaflega
skemmtilegan möguleika fyrir hvers
konar sprotastarfsemi og ef vel
tekst til vænti ég þess að hér fjölgi í
hópum og innan ekki langs tíma
gætu orðið hér um sextíu manns. Og
þá þurfum við meira húsnæði, en
þessi bygging hér í Elliðaárdalnum
hefur staðið auð og lítið sem ekkert
notuð í áraraðir,“ segir Þórunn
Jónsdóttir, talsmaður Toppstöðv-
arfólks. Stuðningur Reykjavíkur-
borgar við þetta verkefni er að hús-
næði er látið í té, upphitað og með
rafmagni.
Toppstöð Landsvirkjunar var
reist af Rafmagnsveitu Reykjavíkur
og tekin í notkun 1947. Hún þjónaði
höfuðborgarsvæðinu lengi sem vara-
aflsstöð og til orkuframleiðslu á
álagstoppum auk þess sem þar var
skerpt á heita vatninu frá Reykjum.
Síðast var stöðin notuð um 1990.
Gamla Toppstöðin verður
setur fyrir skapandi fólk
Sprotafólk fær
inni í gömlu orku-
veri í Elliðaárdal
Morgunblaðið/Ómar
Á toppnum Margvísleg hönnunar- og nýsköpunarstarfsemi verður í Toppstöðinni. Hönnu Birnu Kristjánsdóttur
borgarstjóra var kynnt starfið en samningar um leigu á húsnæðinu, sem borgin lætur í té, voru undirritaðir í gær.
FABÚLA er listamannsnafn Margrétar Kristínar
Sigurðardóttur en fjórða plata hennar, In your
skin, kom út fyrir stuttu. Fabúla gefur sjálf út en
tónlistina segir hún einkennast af tregablandinni
leikgleði, líkt og raunin hefur verið með fyrri
plötur hennar. Nýjustu afurðinni vill hún þó lýsa
sem ívið poppaðri en þeim sem á undan hafa kom-
ið, bjartari tónar leiki um hljóðrásirnar en oftast
áður. Plötuna vann hún í Sundlauginni og Studio
Error ásamt Birki Rafni Gíslasyni og við sögu
kom jafnframt einvalalið úrvals hljómlist-
armanna. Platan er sungin á ensku nema hvað tvö
lög eru á hinu ylhýra og eru þau tileinkuð for-
eldrum Margrétar.
Fabúla hyggst fylgja plötunni eftir með tón-
leikum innanlands sem utan næstu vikurnar. | 36
Fjórða sóló-
plata Fabúlu
LANDSLIÐSMAÐURINN í fótbolta, Rúrik
Gíslason, kann vel við sig í herbúðum OB í Dan-
mörku en þar leikur hann stórt hlutverk í fram-
línu liðsins. Rúrik er uppalinn hjá HK í Kópavogi
og þar lék hann til 17 ára aldurs. Þrátt fyrir að
vera aðeins 21 árs gamall hefur Rúrik komið víða
við, en 17 ára samdi hann við enska liðið Charlton
sem lék á þeim tíma í úrvalsdeildinni. „Ég fékk
gríðarlega reynslu þar, en kannski um leið dálítið
ranga mynd af fótboltaheiminum. Það besta sem
ég gat gert var að fara í lítið félag í Danmörku,
æfa helmingi meira, komast niður á jörðina og
gera mér fulla grein fyrir því hvað þyrfti að gera
til að ná langt,“ segir Rúrik m.a. | Íþróttir
Gæfuspor á ferlinum
Rúrik Gíslason er í
lykilhlutverki hjá OB
Morgunblaðið/Eggert
Ánægður Rúrik Gíslason, landsliðsmaður í fót-
bolta, fagnar marki í landsleik gegn Noregi.