Morgunblaðið - 16.12.2009, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 16.12.2009, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2009 www.noatun.is ELDAÐUR LAMBABÓGUR KR./STK. 1498 MEÐ HEIM! HEITT Ódýrt, fljótlegt og gott! FRÉTTASKÝRING Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is FJÁRHAGSLEG staða sveitarfé- lagsins Álftaness er kolsvört. Skuldir og skuldbindingar þessa fámenna sveitarfélags (2.500 íbúar) nema samtals 7,4 milljörðum króna, skv. skýrslu eftirlitsnefndar með fjár- málum sveitarfélaga. Álftanes er komið í greiðsluþrot og getur ekki staðið við skuldbindingar sínar. Til að sveitarfélagið geti greitt laun og forgangskröfur og haldið úti lögbundinni þjónustu þarf það að fá sérstaka fyrirframgreiðslu úr Jöfn- unarsjóði sveitarfélaga. Aðrar leiðir voru lokaðar því samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins hafa tilraunir sveitarfélagsins til að fá lán úr Lána- sjóði sveitarfélaga vegna lausa- fjárskorts mistekist og viðskipta- banki þess hefur lokað á alla fyrir- greiðslu. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er talið að útgjöld sveitarfé- lagsins þyrftu að minnka um 900 milljónir á næsta ári, miðað við sömu tekjur, ætti sveitarfélagið að standa undir skuldbindingum sínum. Þetta jafngildir nánast öllum launakostn- aði sveitarfélagsins en hann var 760 milljónir árið 2008. Sama ár voru rekstrartekjur um 1,3 milljarðar. Í ljósi tapreksturs upp á mörg hundruð milljónir á síðustu tveimur árum er vandséð hvernig hægt verð- ur að rétta reksturinn af án þess að skuldir verðir gefnar eftir að veru- legu leyti eða greiddar af öðrum. Útsvar og gjöld hækka Gera má ráð fyrir því að Álftnes- ingar standi frammi fyrir verulegum gjaldahækkunum og töluverðum nið- urskurði á þjónustu. Líklegt má telja að samgöngu- ráðherra muni veita heimild til að út- svarið verði hækkað upp fyrir há- markshlutfallið. Í mesta lagi má hækka útsvarið um 25% en telja má ólíklegt að sú heimild verði fullnýtt. Þá má búast við að önnur gjöld, s.s. fasteignaskattar, verði hækkuð.. Þegar Bolvíkingar fengu heimild til hækkunar var álagið 10%. Álagið á Álftnesinga gæti þó orðið hærra en sem því nemur enda er skuldastaðan þar sýnu verri og þar að auki getur sveitarfélagið ekki vænst aukinna tekna frá atvinnulífi líkt og Bolvík- ingar, enda nánast engin atvinnu- starfsemi sem fer þar fram. Hrunið ekki rót vandans Samgönguráðuneytið hefur ekki birt skýrslu eftirlitsnefndar sveitar- félaga um fjárhag Álftaness en sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins kemur þar fram veruleg gagnrýni á bæjarstjórnina sem er ekki sögð hafa brugðist af nægilegum krafti við tap- rekstrinum. Hann nam um 830 millj- ónum í fyrra og enn stefnir í að tapið verði nokkur hundruð milljónir, skv. heimildum Morgunblaðsins. Þótt vandi bæjarfélagsins hafi versnað mjög við gengis- og efna- hagshrunið er vandinn ekki til kom- inn vegna þess. Meðal annars má benda á að árið 2006, sama ár og bæjarstjórn ákvað einróma að ráðast í byggingu nýrrar sundlaugar og endurbæta íþróttahúsið með vegleg- um hætti, nam tap á rekstri sveitar- félagsins 332 milljónum króna. Taprekstur í mörg ár Tap á rekstri hafði reyndar verið langvarandi. Það er samt sérlega eft- irtektarvert að í endurskoðun- arskýrslu sem endurskoðunarfyr- irtækið Grant Thornton vann fyrir árið 2006 kemur fram að í grein- argerð fyrir fyrstu fimm mánuði árs- ins 2006 hafi fyrirtækið „bent for- ráðamönnum sveitarfélagsins á að bregðast strax við þeim rekstrar- halla sem við blasti“. Árið 2006 var fráveita Álftaness seld og um svipað leyti var samið við ýmsa aðila um uppbyggingu miðsvæðis sem átti að skila sveitarfélaginu „verulegum tekjum í formi lóðasölu og gatna- gerðar“ segir í skýrslunni. Þrátt fyr- ir þessar aðgerðir sagði Grant Thornton að enn yrði að hagræða í rekstri. Sjálfstæðismenn bókuðu reyndar sérstaklega að ekki væri hægt að sjá að leitað væri ýtrustu hagkvæmni við uppbyggingu íþróttamiðstöðvar- innar áður en þeir samþykktu fram- kvæmdirnar. Bæjarstjórnin hefur bent á að ald- urssamsetning íbúa sé óhagkvæm, þ.e.a.s. að hlutfallslega mörg börn séu í bæjarfélaginu og það kalli á aukin útgjöld til menntamála. Sveit- arfélagið ætti með réttu að fá aukin útgjöld úr Jöfnunarsjóði. Þau myndu þó hvergi duga til. Álftanes fær neyðarhjálp  Fær sérstaka fyrirframgreiðslu úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að hægt sé að greiða laun og standa undir þjónustu  Íbúar þurfa væntanlega að greiða enn hærra útsvar og fasteignaskatta Í HNOTSKURN » Þegar ákvörðunin umíþróttamannvirkin var tekin var Á-listinn við völd. » Fyrir kosningarnar 2006voru bæði Á- og D-listi með það á sinni stefnuskrá að byggja sundlaug og stækka íþróttahúsið. » Það þarf því ekki að komaá óvart að framkvæmd- irnar, sem nú eiga stóran þátt í að sliga bæjarfélagið, voru samþykktar einróma. Álftnesingar munu á næstu árum þurfa að greiða hærra útsvar og hærri gjöld til að greiða niður gríðarlegar skuldir og rekstrar- halla sveitarfélagsins. Það dugir þó ekki til. Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, segir að Álftanes hafi nú frest til 20. janúar til að koma fjármálum sveitarfé- lagsins á réttan kjöl. Komi í ljós að greiðslubyrði lána sé of há sé hægt að skipa sveitarfélaginu svokallaða fjárhaldsstjórn. Þá komi til álita hvort heimild verði veitt til að hækka hámarksútsvar og fast- eignaskatt. Kristján segir aðspurður að staða Álftaness gefi aukið tilefni til þess að herða eftirlit með fjár- málum sveitarfélaga og kanna hvort ástæða sé til að setja hámark á þær skuldir sem sveitarfélag get- ur safnað. Ætli mætti að hefðu slíkar reglur verið í gildi þegar til skuldanna var stofnað hefði mátt koma í veg fyrir vanda Álftnesinga. Vinna við að herða reglurnar hafi þó verið hafin áður en til þessa kom. „Og þar munum við herða á ákveðnum þátt- um og ég mun í reglugerð gera sveitarfélögum skylt að skila rekstraryfirliti á þriggja mán- aða fresti á næsta ári.“ Lækkað í Bolungarvík Kristján segir að staða Álftaness sé vissulega alvarleg. Hann bendir þó á að þegar Bolvíkingar lentu í vandræðum í fyrra hafi 10% álag verið sett á hámarksútsvarshlutfall en þar hafi staðan batnað og nú sé búið að veita heimild til að lækka álagið í 5%. Nettóskuldir Bolung- arvíkur nema 970 milljónum. Sveitarfélagið fær frest til 20. janúar Kristján Möller Ný sundlaug og stórendurbætt íþróttahús er þungur baggi fyrir Álftanes. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er komist að þeirri niðurstöðu í skýrslu sem unnin var fyrir eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga að skuld- bindingar vegna mannvirkjanna nemi þremur milljörðum króna. Álftanes leigir mannvirkin af Fasteign skv. samn- ingi til 30 ára. Fasteign tilkynnti nýlega að leigan yrði lækkuð. Verði sú lækkun varanleg nema skuldbindingarnar 2,1 milljarði. Á myndinni má sjá að í gær var verið að lagfæra rennibrautina. Morgunblaðið/Golli Íþróttamannvirki kosta 3 milljarða Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is „EF þetta heldur svona áfram verð- um við að opna aðra búð,“ segir Jón Gerald Sullenberger, framkvæmda- stjóri matvöruverslunarinnar Kosts í Kópavogi. Verslunin var opnuð fyrir mánuði og segir Jón Gerald viðskipt- in jöfn og góð. Jón Gerald er byrjaður að leita að húsnæði fyrir aðra verslun. Hún verði annað hvort á Ártúnshöfða eða í vesturbæ Reykjavíkur og verður hugsanlega opnuð á næstu mánuðum. Vilja ódýrari vörur Kostur er byrjaður að selja vörur út á land. Fyrsta sendingin er farin til Fjölvals á Patreksfirði. „Við viljum lækka vöruverðið úti á landi,“ segir Jón Gerald og bætir því við að góðir samningar hafi náðst við Eimskip um flutninga. „Við finnum það, eftir að kreppan brast á, að fólk ásælist ódýrari vöru. Ef við getum ekki boðið hana fer fólk annað,“ segir Haukur Már Sigurðs- son, kaupmaður í Fjölvali á Patreks- firði. Hann segist hafa komið að lok- uðum dyrum hjá stóru verslana- keðjunum. Haukur hefur lokið við að taka upp tilraunasendingu frá Kosti og seg- ist þurfa að gera aðra pöntun. „Þetta kemur frábærlega út fyrir lands- byggðarfólkið sem aldrei fær að kaupa inn á tilboðum,“ segir Haukur Már. Hann segir algengt að vörurnar frá Kosti séu 20-40% ódýrari en sambæri- legar vörur frá birgjum verslunarinn- ar og nefnir dæmi um meiri mun. Þetta skili sér að fullu í lægra vöru- verði. Leitar að húsi fyrir nýjan Kost Kaupmaður á Pat- reksfirði kaupir vörur hjá Kosti og lækkar verð um 20-40% Jólalegt Viðskiptavinir Fjölvals kynntu sér vörurnar frá Kosti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.