Morgunblaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2009
Auglýsingagerð er list, listsem oft misheppnast enheppnast líka stundum
mjög vel. Mér finnst auglýsingar yf-
irleitt leiðinlegar og nota tækifærið
þegar tími þeirra er í sjónvarpinu
til að gera eitthvað annað en að
horfa. Auðvitað er auðvelt að skrifa
um leiðinlegu, háværu og hallær-
islegu auglýsingarnar en í þetta
skiptið verð ég að hrósa auglýs-
ingum sem eiga það skilið, nefni-
lega nýju Lottó-auglýsingunum.
Í þeim eru lottókúlurnar, eðalottótölurnar væri nær aðsegja, persónugerðar.
Fyrst birtist fyrirsætan Ásdís
Rán sem talan 21. 21 er sú tala sem
hefur oftast komið upp í íslenska
lottóinu, frægasta lottótalan og
með tilheyrandi stjörnustæla. Ásdís
Rán er tilvalin í hlutverk kúlu nr.
21 enda fræg eins og talan og veit
hvernig það er að vera í kastljósinu.
Mér finnst Ásdís Rán frábær í
hlutverki lottókúlunnar og sýna
þar óvænta leikræna hæfileika. Því
varð ég undrandi þegar frétt þess
efnis birtist að auglýsingastofan
Fíton, sem gerir auglýsinguna, hafi
þurft að taka við símtölum þar sem
kvartað er yfir því að Ásdís Rán
leiki í auglýsingunni. Væru það
helst konur úti í bæ sem hringdu
inn og kvörtuðu. Reyndar gæti
þetta verið auglýsingatrix hjá Fíton
því ekkert er betra fyrir vöru en
umfjöllun. Ásdís Rán er umdeild
fyrir og því ekki að búa til smá
fjaðrafok? En hvað sem líður lífi
Ásdísar Ránar og skoðunum fólks á
hlutverki hennar í auglýsingunni
þá finnst mér hún góð sem kúla 21.
Nýlega birtist önnur Lottó-auglýsing, Siggi Sigurjóns í
hlutverki kúlu nr. 34.
34 er sú tala sem hefur komið
sjaldnast upp og á það örugglega til
að gleymast þegar Lottóspilarar
handvelja tölurnar, það á t.d eng-
inn afmæli 34 mánaðarins. Talan
þarf því að vera öflug í sinni mark-
aðsherferð til að vera valin. Siggi
stendur sig vel í hlutverki hinnar
eljusömu tölu sem er dugleg að
minna á sig.
Talan 34 kom upp í Lottóinu álaugardaginn var og var að
vonum ánægð með það. Þakkaði
meira að segja stuðninginn í tölvu-
bréfi; „Með samstilltu átaki stuðn-
ingsmanna um allt land tókst okkur
í sameiningu að gera #34 að einni
af þeim 5 tölum sem komu upp í
sexföldum Lottópotti á laugardag-
inn. Sem er frábær árangur!
Slíkur árangur er að sjálfsögðu
ekki einvörðungu byggður á
heppni. Að baki liggur þrotlaus
vinna og kynningarstarf, sem skilar
sér með þessum hætti,“ segir í
þakkar- og baráttubréfi 34.
Þessar Lottóauglýsingar eruekki flóknar, frekar einföld
hugmynd sem virkar vel. Allir taka
eftir þeim, nenna að horfa á þær og
tala um þær. Þá er tilganginum náð
og líklegt er að fleiri spili í Lottóinu
í kjölfarið.
Að baki flestum sjónvarpsauglýs-
ingum stendur hópur fólks, stund-
um tekst vel til, eins og með Lottó-
ið, en það er ótrúlegt hvað margar
þeirra eru slæmar. Kemur þá sér-
staklega upp í hugann; hreinlætis-
efni, Dominos-pitsa og bankar.
Í hreinlætisefnis-, dömubindis-,
bleyju- og klósettpappírsauglýs-
ingum er farið svo í kringum raun-
verulegan tilgang vörunnar að aug-
lýsingarnar verða yfirleitt hall-
ærislegar og pempíulegar.
Dömubindi taka við tíðarblóði ekki
bláum vökva, þetta vita allir og sér-
staklega markhópur auglýsing-
anna, hvers vegna að fara leynt
með það?
Dominos-auglýsingarnar eru svo
háværar, leiðinlegar og æstar að
það eru ekki hægt að horfa á þær
nema áhorfandinn vilji hækka blóð-
þrýstinginn. Bankaauglýsingar eru
síðan svo falskar að maður fær smá
velgju af því að sjá dregna upp
mynd af trausti og þjónustulund
þegar maður veit betur.
Ef fleiri auglýsingastofur fara að
gera „Lottó“-auglýsingar gæti aug-
lýsingatíminn orðið besta sjón-
varpsefnið. Stefnið að því.
34 dansandi dvergar
Tala nr. 34 Eljusöm í eigin markaðssetningu. Kom líka upp á laugardaginn.
AF FJÖLMIÐLUM
Ingveldur Geirsdóttir
» Ásdís Rán er tilvaliní hlutverk kúlu nr. 21
enda fræg eins og talan
og veit hvernig það er
að vera í kastljósinu.
KVIKMYNDIN Up In The Air, með
George Clooney í aðalhlutverki,
hlaut flestar tilnefningar til Golden
Globe-verðlaunanna, sem verða af-
hent 17. janúar nk. Myndin er til-
nefnd í sex flokkum, m.a. sem besta
dramatíska kvikmyndin. Þá er
Clooney tilnefndur fyrir leik í aðal-
hlutverki og Jason Reitman fyrir
leikstjórn.
Meryl Streep hlaut tvær tilnefn-
ingar fyrir bestan leik í kvikmynd-
unum Julie and Julia og It’s Comp-
licated. Þá hafa sir Paul McCartney
og írsku rokkararnir í U2 verið til-
nefndir í flokknum besta frumsamda
lagið.
Stórmyndin Avatar, sem kemur
úr smiðju James Camerons, er til-
nefnd til fernra verðlauna, m.a. í
flokknum besta dramatíska myndin
og Cameron er tilnefndur fyrir leik-
stjórn.
Söngleikurinn Nine hlaut fimm
tilnefningar, Daniel Day-Lewis og
Penelope Cruz eru tilnefnd fyrir leik
í myndinni auk þess sem myndin er
tilnefnd sem besta myndin í flokki
gamanmynda eða söngleikja.
Reuters
Tilnefndur Clooney er kátur.
Clooney
tilnefndur
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Spennumynd af bestu gerð þar sem
Nicolas Cage fer á kostum í hlutverki spillta
lögreglumannsins Terence McDonagh.
SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI
SÝND Í REGNBOGANUM
HHHH
„Taugatrekkjandi og
vægast sagt óþægileg”
T.V. - Kvikmyndir.is
SÝND HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI
Meistarar svarta húmorsins,
Coen-bræður er mættir aftur
með frábært meistarverk.
Í HÁSKÓLABÍÓI
Snillingarnir Woody
Allen og Larry David
snúa saman bökum
og útkoman er „feel-
good” mynd ársins
að mati gagnrýnenda.
HHH
„Frammistaða leikara er í
heildina sannfærandi og einlæg...
stendur fyllilega fyrir sínu“
-H.J., MBL
SÝND Í BORGARBÍÓI OG REGNBOGANUM SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
Bad Lieutenant kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 ára
Julie and Julia kl. 5:20 - 8 - 10:35 LEYFÐ
2012 kl. 6 - 9:15 B.i.10 ára
Paranormal Activity kl. 10:30 B.i.16 ára
Love Happens kl. 5:30 - 8 LEYFÐ
Anvil kl. 6 - 8 - 10 B.i.7 ára
Whatever Works kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.7 ára
A Serious Man kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.12 ára
Desember kl. 6 - 8 - 10 B.i.10 ára
Capitalism: A Love Story kl. 8 B.i. 7 ára
The Box kl. 10:15 B.i.16 ára
2012 kl. 8 B.i.10 ára
Love Happens kl. 6 LEYFÐ
9 kl. 6 B.i.10 ára
HHHH
„Ein magnaðasta
mynd ársins”
S.V. - MBL
HHHH
Roger Ebert -
Chicago Sun-Times
HHHH
„Þrekvirki!”
- HS, Mbl
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
ATH. ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIÐ GILDIR EKKI Í BORGARBÍÓI, LÚXUS, 3-D MYNDIR OG ÍSLENSKAR MYNDIR Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Há