Morgunblaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 34
34 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2009
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ELTI FRÚ FJÓLA ÞIG AFTUR
MEÐ LAUFABLÁSARANUM?
HÚN
ER BÚIN
AÐ VERA
ÉG
KANN AÐ
SYNDA!
ÉG LÆRÐI AÐ SYNDA!
MÉR TÓKST AÐ SYNDA
TVO METRA!
GLEÐUR MIG AÐ HEYRA...
TIL HAMINGJU...
EF ÉG ER Í SKIPI SEM FERST
TVEIMUR METRUM FRÁ
STRÖNDINNI ÞÁ ÞARF ÉG
EKKI AÐ HAFA ÁHYGGJUR
HÉRNA ER
PÍTSAN ÞÍN! BÆTTUÐ ÞIÐ VIÐ
ÖLLUM ÁLEGGJUNUM
SEM ÉG BAÐ UM?
JÁ, ÖLLU NEMA
SÚKKULAÐIÍSNUM
OG NAMMINU
ANSANS!
ÞAÐ SAGÐI
MÉR ENGINN
AÐ ÞAÐ VÆRI
ÓLÖGLEGT AÐ
FYLGJAST MEÐ
FÓLKI Á MEÐAN
ÞAÐ SEFUR...
ÉG SETTI OKKUR
INN Á SÍÐUNA SVO
VIÐ GETUM KYNNST
ÖÐRUM PÖRUM
„HJÓN ÚR ÚTHVERFINU
MEÐ TVÖ BÖRN. FINNST
GAMAN AÐ HORFA Á
KVIKMYNDIR, FARA ÚT
AÐ BORÐA OG SLAPPA AF“
HÉR STENDUR
AÐ ÞAÐ PASSI
200.000 PÖR
VIÐ OKKUR
ÉG HELD AÐ
ÞÚ ÞURFIR AÐ
VERA AÐEINS
NÁKVÆMARI
BÝSTU VIÐ ÞVÍ
AÐ ÉG BORGI ÞÉR
FYRIR ÞETTA?
ÉG HÉLT
AÐ ÞÚ VILDIR
MYNDIR AF
KÓNGULÓAR-
MANNINUM
JÚ... AÐ GÓMA VULTURE.
MIG VANTAR EKKI MYNDIR AF
HONUM AÐ SVEIFLA SÉR
ÞÚ FÆRÐ
ÞRJÚÞÚSUNDKALL ER ÞAÐ?
FYRIR
ALLAN
BUNKANN!
HELDUR ÞÚ
AÐ ÉG SÉ
BÚINN TIL ÚR
PENINGUM?
Frábært framtak
MIG langar að koma á
framfæri jákvæðri
frétt. Vélsmiðjan Héð-
inn býður öllum starfs-
mönnum sínum í þenn-
an líka fína jólamat
fyrir hver jól. Ég sá um
mötuneytið fyrir fyrir-
tækið en hætti þar fyr-
ir 10 árum, enda orðin
78 ára. Engu að síður
er mér alltaf boðið
ásamt öðrum fyrrver-
andi starfsmönnum,
heldri mönnum eins og
við erum kölluð. Mér
finnst þetta alveg frábært framtak
hjá Héðni og þakka kærlega fyrir
mig.
Guðmunda Jónsdóttir.
Þakkir
ÉG vil þakka eftirtöldum læknum
fyrir að bjarga mér í mínum veik-
indum: Þórði Eiríkssyni augnlækni
fyrir að gera aðgerð á augum mínum
þegar ég var að verða blindur, Frið-
riki Guðbrandssyni háls-, nef- og
eyrnalækni fyrir að gera aðgerð á
hljóðhimnunni, Guðmundi lýtalækni
fyrir að gera aðgerð á andliti, en ég
var með afmyndað andlit eftir lík-
amsárás, og Jóhannesi
Bergsveinssyni geð-
lækni fyrir að hjálpa
mér þegar ég bjó við
andlegar þrengingar.
Starfsfólki slysadeildar
og bráðamóttöku
Landsspítalans þakka
ég hlýjar móttökur.
Við Íslendingar er-
um heppnir að eiga
góða lækna, ég hef ver-
ið á sjúkrahúsum er-
lendis og læknis-
þónustan er mun betri
hér. Heilbrigðiskerfið
er til fyrirmyndar mið-
að við hvað litlir pen-
ingar renna til þess.
Jónas Gunnarsson.
Tapað/fundið
JÓLAKORT með mynd fannst á
horni Barónsstígs og Grettisgötu.
Kortið er stílað á Daða, Sillu, Lilju
og junior Kristófer, en ekkert heim-
ilisfang er meðfylgjandi. Ef einhver
kannast við þessa lýsingu er hann
beðinn um að hringja í síma 561-
4268 eða 847-4759.
Ást er…
… „villtar“ helgar.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30, opin
vinnustofa kl. 9-16.30, postulínsmálning kl.
9 og 13, Grandabíó, útskurður og jóla-
ljósaferð kl. 13.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handavinna/
smíði/útskurður kl. 9-16.30, heilsugæsla kl.
10, söngstund kl. 11.
Bólstaðarhlíð 43 | Spilað. Fimmtud. 17.
des. kl. 13.15 les Jón Ólafsson úr bók sinni
„Söknuður“. Jólatrésskemmtun 21. des.,
skráning í s. 535-2760.
Bústaðakirkja | Jólasamvera kl. 13.30.
Dalbraut 18-20 | Opin vinnustofa kl. 9-16,
leikfimi kl. 10, verslunarferð kl. 14.40.
Dalbraut 27 | Opin handavinnustofa kl. 8-
16, vefnaður kl. 9-16, leikfimi kl. 11.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Kynningarfundur um Kanada kl. 20
í Félagsheimilinu Gullsmára. Atli Ásmunds-
son, ræðismaður Íslands í Winnipeg og Al-
mar Grímsson, formaður Þjóðræknisfélags
Íslands, mæta, Jónas Þór kynnir Kan-
adaferð. Sýnd verður kvikmynd frá ferð
Kópavogsbúa til Kanada. Aðgangur ókeypis.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-
Hrólfar ganga kl. 10. Skrifstofa félagsins
verður lokuð eftir hádegi í dag vegna útfarar
Péturs H. Ólafssonar. Söngfélag FEB, æfing
kl. 18.
Félagsheimilið Gjábakki | Morgunverðar-
hlaðborð kl. 10, gestir koma á heimsókn.
Leiðbeinandi í handavinnu við til kl. 17, fé-
lagsvist kl. 13, viðtalstími FEBK kl. 15-16 og
bobb kl. 16.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Myndlist
kl. 9, ganga kl. 10, leikfimi kl. 12.45, postu-
línsmálun og kvennabrids kl. 13.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 8 og 10, kvennaleikfimi kl.
9, 9.45 og 10.30, bútasaumur og brids kl.
13.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
opnar kl. 9-16.30, tréútskurður og handa-
vinna, vatnsleikfimi kl. 9.50 í Breiðholts-
laug, leikfimi kl. 10.30, spilasalur opinn.
Gerðubergskór fer í heimsókn á Hrafnistu
kl. 13.30. Uppl. á staðnum og í síma 575-
7720.
Hraunbær 105 | Félagsvist fellur niður á
morgun. Farið á Jólamarkaðinn Elliðavatni.
Skráning á skrifstofu, s. 411-2730.
Hraunbær 105 | Farið á jólamarkaðinn við
Elliðavatn á morgun 17. des. kl. 13.30.
Gamla húsið hans Einars Ben. skoðað und-
ir leiðsögn Kristjáns Bjarnasonar. Veitingar
og rúta 800 kr. Skráning á skrifstofu eða í
síma 411-2730.
Hraunsel | Rabb kl. 9, pútt kl. 10 og bók-
mennta/sögu-klúbbur kl. 10, línudans kl.
11, handavinna, glerbræðsla og tréút-
skurður kl. 13, bingó kl. 13.30, Gaflarakór-
inn kl. 16.15, billjard kl. 9-16.30.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30, 9.30 og
10.30. Vinnustofa opin frá kl. 9. Sam-
verustund kl. 10.30, jólasaga, veitingar.
Böðun fyrir hádegi, hársnyrting. Sr. Jakob
Hjálmarsson með erindi um Melkorku og
sýnir mynddisk kl. 13.30, kaffisala.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og
venjulega, jólaball Hæðargarðs og Jörfa
föstudag kl. 14. Uppl. í síma 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Kópavogs-
skóla kl. 15.30. Uppl. í síma 564-1490 og á
www.glod.is
Korpúlfar Grafarvogi | Pútt á morgun, kl.
10 á Korpúlfsstöðum.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr-
unarfræðingur kl. 10.30. Veitingar.
Norðurbrún 1 | Útskurður kl. 9-12 og fé-
lagsvist kl. 14-16. Síðasta vist á þessu ári,
næst spilað 6. janúar.
Vesturgata 7 | Sund kl. 10, myndmennt/
postulín kl. 9.15, matur, Bónus kl. 12.10,
tréskurður kl. 13, veitingar.
Ingi Steinar Gunnlaugsson orti á
skammdegisrölti:
Mjúkum skrefum
í morgunhúmi
fer maður um strönd
Á Caymaneyjum
eru krónur að nema
kostalönd
Í Atlantshafi
er Ísland að snúast
upp á rönd
Pétur Stefánsson orti sléttubönd:
Snjallir þegnar hafa hér
hamrað steðjann ljóða.
Allir saman viljum vér
virðing öðlast góða.
Davíð Hjálmar Haraldsson
bregður á leik í limru:
Allt til að fjúka var fokið,
svo fádæma mikið var rokið
að Helga í Mó
hóstaði og dó
því að stormurinn stíflaði kokið.
Ísleifur Gíslason orti á sínum
tíma um rokið á Fróni:
Voga skefur vindakast
virðar trefil brúka.
Það er án efa þéttingshvasst
þegar refir fjúka.
Loks Friðrik Steingrímsson:
Hún Guðfinna litla frá Lundi
var lausgyrt, og það vissi Mundi.
Hann þorð’ekki neitt,
en þráði það eitt,
að serð’an’á safnaðarfundi.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af Caymaneyjum og roki