Morgunblaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 18
18 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2009 Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Við erum afskaplega þakklátfyrir hversu landsmennhafa tekið jólaóróanumokkar vel, og líka kær- leikskúlunni. Það skiptir miklu máli fyrir starf í þágu fatlaðra barna,“ segir Berglind Sigurgeirsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra. „Við höfum fengið færustu lista- menn landsins til að leggja okkur lið í þessum efnum og þeir hafa æv- inlega tekið vel í beiðni okkar og gefa alla sína vinnu. Þetta árið sá Hrafn- kell Birgisson um að hanna Ketkróksóróann en Gerður Kristný orti ljóð um karlinn, sem fylgir með honum bæði á íslensku og ensku. Þetta er sérlega skemmtilegt ljóð með erótísku ívafi.“ Öll jólasveinafjölskyldan Berglind segir að í fyrra hafi Grýla orðið að óróa hjá þeim, þar áður var það Hurðaskellir en sá fyrsti var Kertasníkir. „Við stefnum að því að einn úr jólasveinafjölskyldunni verði til á hverju ári í hönd- um nýrra listamanna þar til allur hópurinn hefur orðið að jólaóróa. Þannig hafa þeir söfnunargildi um leið og fólk leggur góðu málefni lið,“ segir Berglind en allur ágóði af sölu jólaóróanna rennur til uppbyggingar og þróunarstarfs Æfingastöðv- arinnar þar sem fram fer umfangs- mesta sjúkra- og iðjuþjálfun barna á landinu, en hún er fyrir börn með sérþarfir. „Á Æfingastöðinni starfa á þriðja tug sjúkra- og iðjuþjálfa sem veita árlega um 850 börnum þjón- ustu og mörg barnanna koma í þjálf- un nokkrum sinnum í viku.“ Fingraför mannanna Ketkrókur fær heiðurinn af því þetta árið að prýða hið rómaða Osló- arjólatré Reykvíkinga en frá því óró- ar Styrktarfélagsins hafa verið búnir til hafa þeir verið eina skrautið, utan jólaljósanna, sem prýða það. Berg- lind segir það því ævinlega stóra stund fyrir félagið þegar kveikt er á trénu. En hún er ekki síður ánægð með Kærleikskúlurnar sem íslenskir listamenn hafa hannað fyrir félagið undanfarin ár. „Í ár er það Hreinn Friðfinnsson sem hefur tekið að sér að hanna kúluna sem heitir Snerting og er með marglitum fingraförum. Þetta er sjöunda kúlan frá okkur en Erró reið á vaðið með fyrstu kúluna árið 2003 og síðan hafa meðal annars heimsfrægir listamenn eins og Ólaf- ur Elíasson hannað kúluna.“ Sumarbúðirnar mikilvægar Berglind leggur áherslu á að þeir sem kaupi jólakúlurnar eða óróana séu með því að gefa fötluðum börn- um á Íslandi gjöf. „Allur ágóði af sölu jólakúlunnar rennur til rekstrar sumarbúða í Reykjadal fyrir fötluð börn og þar dvelja þau líka um helgar yfir vet- urinn. Þeir sem njóta góðs af sum- arbúðunum eru krakkar frá sex ára aldri og alveg upp í rúmlega tvítuga einstaklinga. Þarna er alltaf mikið fjör og allir njóta dvalarinnar og er hún þessum krökkum og fjöl- skyldum þeirra afar mikilvæg.“ Fyrsta færeyska kærleikskúlan Berglind segir að Styrktarfélagið sé á vissan hátt komið í útrás, því Færeyingar hafa fengið góðfúslegt leyfi til þess að framleiða kærleiks- kúlu í Færeyjum og rennur ágóðinn af sölu hennar til Dugni, sem er verndaður vinnustaður þar í landi. „Tróndur Patursson, einn þekktasti listamaður Færeyinga, skreytti fær- eysku kúluna, sem er undurfalleg. Á henni synda hvalir og innan í henni er vatn. Sala kúlunnar hefur gengið framar vonum og er hún nánast upp- seld í Færeyjum. Hugmyndin er að stofna sameiginlegan sjóð þar sem ákveðin prósenta af sölu kærleiks- kúlnanna í Færeyjum og íslensku kúlunnar hér heima renni í sjóð til að styrkja fötluð börn í þróunarlönd- unum. Fötluð börn í þeim löndum eiga mjög erfitt en oft þarf lítið til þess að þau spjari sig. Hjálpartæki, til dæmis bara gleraugu, geta breytt lífi barna þar til muna.“ Vert er að benda á að Kærleiks- kúlan er gerð í takmörkuðu upplagi og sölutímabil hennar sem og jóla- óróans rennur út næstkomandi laug- ardag. Fæst í gjafavöruverslunum víða um land. Sjá nánar á: www.slf.is. Ketkrókur gerir góð Íslensk hönnun og rit- snilld mætast í honum Ketkróki sem er fjórði jólasveinninn sem verður að sérstökum jólaóróa til styrktar fötluðum börn- um og ungmennum. Gaman Sumarbúðirnar í Reykjadal njóta góðs af sölu Kærleikskúlunnar, þar sem allur ágóði rennur til starfsins þar. Þar er mikið fjör eins og sjá má. Falleg Tróndur Patursson hannaði fyrstu færeysku kærleikskúluna þar sem hvalir synda um í vatni. Tróndur segir sjálfur um kúluna: „Kúlan rúmar óendanlegan kraft sem finna má í heimsins höfum og tengir okkur manneskjurnar saman og við alheiminn. Hvalirnir eru vinalegar og spakar skepnur sem spinna alltumvefjandi þráð kærleika og þolinmæði, þráð svo sterkan sem hafið en líka brot- hættan sem gler.“ Styrkjandi jólaskraut Berglind með nýjasta jólaóróann og Kærleikskúluna Snertingu, en að baki henni eru eldri óróarnir. Morgunblaðið/Golli Stór- fréttir í tölvu- pósti 0000 Jólagjöf veiðimannsins www.veidikortid.is 32 vatnasvæði á aðeins kr. 6.000 Fæst hjá N1, veiðivöruverslunum, www.veidikortid.is og víðar GEORG JENSEN DAMASK Àrmùla 10 108 REYKJAVIK Sími 5 68 99 50 www.duxiana.is www.damask.dk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.