Morgunblaðið - 16.12.2009, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 16.12.2009, Qupperneq 26
26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2009 ✝ Árni Jóhannssonfæddist í Teigi í Fljótshlíð 2. apríl 1932. Hann lést á Sjúkrahúsi Suður- lands að morgni sunnudagsins 6. des- ember sl. Árni var sonur hjónanna Jó- hanns Jenssonar bónda í Teigi í Fljóts- hlíð, f. 1895, d. 1978, og Margrétar Al- bertsdóttur, f. 1900, d. 1989. Systkini Árna eru Guðni, f. 1926, búsettur á Hvolsvelli, Al- bert, f. 1926, d. 1998, bjó á Skóg- um undir Eyjafjöllum, Ágúst, f. 1927, búsettur á Selfossi, Sigrún, f. 1930, búsett á Hvolsvelli, og Jens, f. 1942, búsettur í Teigi. Eiginkona Árna er Jónína Björg Guðmundsdóttir, f. á Dvergasteini við Seyðisfjörð 31. janúar 1937, anum á Hvanneyri vorið 1955 og keypti jörðina Teig II í Fljótshlíð árið 1957. Fyrstu árin vann Árni ýmis störf samhliða búrekstrinum, m.a. hjá Kaupfélagi Rangæinga á Hvolsvelli og við akstur skóla- barna. Árni sat í stjórn hest- mannafélagsins Geysis í all nokk- ur ár og var fulltrúi félagsins á Landsþingum Landssambands hestamanna um árabil. Árni var gerður að heiðursfélaga í Geysi árið 2007 og árið 2008 var hann sæmdur gullmerki Lands- sambands hestamannafélaga fyrir störf sín í þágu hestamanna. Árni gegndi hinum ýmsu trún- aðarstörfum fyrir bændur í sinni sveit og var m.a. formaður Bún- aðarfélags Fljótshlíðar og formað- ur sóknarnefndar Hlíðarenda- kirkju um tíma. Árni var fjallkóngur á afrétti Fljótshlíðinga í 19 ár samfellt. Útför Árna fer fram frá Breiða- bólstaðarkirkju í Fljótshlíð í dag, miðvikudaginn 16. desember 2009, og hefst athöfnin kl. 14. Meira: mbl.is/minningar dóttir hjónanna Guð- mundar Sigfússonar, f. 1913, d. 1996, og Þorbjargar Páls- dóttur, f. 1915, d. 2002. Árni og Jónína gengu í hjónaband árið 1958. Börn þeirra eru: 1) Hrafn- hildur, f. 30. sept- ember 1958, búsett í Reykjavík, gift Páli P. Theódórs og eru synir þeirra Árni Björn, f. 1982, unn- usta Sylvía Sig- urbjörnsdóttir, Fannar, f. 1986, og Hlynur, f. 1993. 2) Guðbjörn, f. 1. mars 1960, búsettur í Reykjavík, kvæntur Hlín Hólm, börn þeirra eru Anna Þrúður, f. 1988, (móðir hennar er Ragnhildur Anna Gunn- arsdóttir), Helga, f. 1992 og Hugi, f. 1995. Árni lauk prófi frá Bændaskól- Það er alltaf erfitt að kveðja, sér- staklega þegar maður veit að það er í hinsta sinn. Pabbi kvaddi að morgni sunnudags 6. desember sl. Þessi stolti og metnaðargjarni bóndi er all- ur. Hann hafði kennt sér meins í baki snemma í vor, en það var ekki fyrr en í byrjun september, sem hann fékk sjúkdómsgreininguna. Krabba- mein. Hann átti erfiðan tíma eftir það. Fór í aðgerð 18. nóvember, en náði ekki þeim bata sem vonast var eftir. Pabbi var bóndi af lífi og sál, allt fram á haust, missti varla úr dag, og gaf sér ekki tíma til að setjast í helg- an stein. Hann þurfti að halda við girðingum, rækta tún, hirða hey, byggja hús og huga að skepnunum. Þegar maður lítur til baka og rifjar upp feril hans sér maður hvað hann hefur í raun komist yfir mikið ævi- starf. Hann átti vini og kunningja um allt land, tók þátt í félagsstörfum og sat í stjórnum, m.a. sinnti hann ábyrgðarstörfum fyrir sína sveit og stétt. Hann var heiðursfélagi í hesta- mannafélaginu Geysi, og sæmdur gullmerki LH. Hann var fjallkóngur í 19 ár og voru það miklar gleði- stundir á haustin þegar lagt var af stað í leitir. Honum var mikið í mun að kindurnar hans fengju besta svæðið á afrétti Fljótshlíðinga inn við Grænafjall. Hann var glöggur og næmur á skepnur, átti verðlaunafé og fékk mikið útúr hverjum dilk. Hans aðaláhugamál var samt hestamennska. Hann átti frábæra hesta, ræktaði þá og spáði mikið í ættir hrossa. Margir þekktu hans fallegu svörtu hesta, þá Hrannar, Kóng, Teit, Svart og Kolskegg. Pabbi var metnaðargjarn, og vildi vera fyrstur og fremstur. Þannig var það í okkar árlegu hestaferðum, þar sem hann fór á undan og gleymdi stundum að fylgjast með, það var eins og hann væri einn í heiminum, svo mjög naut hann þess að vera á hestbaki. Hann var í hásæti. Það verða Árni Björn og Hlynur dóttur- synir hans, sem halda merki hans áfram á lofti. Halda áfram ræktun á hans hrossum. Pabbi hafði mikið viðskiptavit, var í stöðugum viðskiptum með vélar og búnað til búsins, var græjukall, átti stóra traktora og góða bíla, passaði að halda þeim vel við. Það er ekki hægt að sleppa því að minnast á ætt- fræði, pabbi hafði mjög gaman af því að ræða ættfræði, hvort sem það var manna eða hesta. Hann hafði mikinn áhuga á veðri, mátti alls ekki missa af veðurspánni, sussaði á okkur ef við höfðum of hátt. Hann skrifaði dagbók í 50 ár, þar sem hann lýsti m.a. veðrinu í Teigi. Ekki má gleyma því að pabbi var pjattaður, vildi vera vel til fara, sagði að þá tæki fólk ekki eins eftir því hvað maður væri orðinn gamall. Að síðustu er gaman að minnast á það, að gröf pabba verður sú fyrsta í nýj- um kirkjugarði að Breiðabólstað. Þar er hann í hásæti með útsýni yfir Eyjafjallajökul og Dímon. Mig lang- ar að enda þetta með vísu sem Albert heitinn í Skógum, bróðir hans, gaf honum eftir einn reiðtúrinn, sem þeir fóru í saman: Þú færð bróðir þakkirnar þinn ei hróður dvínar þessir góðu gæðingar greiddu götu mína. Hafðu þökk fyrir allt, elsku pabbi, nú fæ ég hásætið þitt, hestinn þinn Kóng. Þín dóttir, Hrafnhildur. Ég settist niður við skrifborðið hans pabba austur í Teigi laugar- dagskvöldið 5. des. sl. Á borðinu lá dagbókin hans, síðustu skrif dagsett sunnudaginn 15. nóvember. Með sinni fallegu rithönd lýsti hann veðr- inu þann dag eins og hann hafði gert óslitið í hartnær hálfa öld. Hann skrifaði að hann væri á leið í aðgerð á Landspítalann í Reykjavík. Fyrr þetta laugardagskvöld sat ég hjá honum á Sjúkrahúsinu á Selfossi en þangað austur var hann kominn eftir aðgerðina í Reykjavík á leið sinni í Hlíðina fögru. Við röbbuðum saman um stund, mér fannst hann vera heldur að hressast og ég sá fyrir mér að hann næði sér það vel á strik að hann kæmist heim og fengi meiri tíma austur í Teigi. En skjótt skipast veður í lofti og nokkrum klukkustundum síðar sat ég aftur hjá pabba. Við héldumst í hendur, í fyrstu var handtakið kröft- ugt, en smám saman linaðist það og stuttu síðar fékk hann hinn eilífa frið. Pabbi var kjarkmaður og ótt- aðist ekki dauðann. Þegar í ljós kom að krabbameinið sem hann greindist með sl. haust væri á alvarlegu stigi óskaði hann þess heitast að fá að deyja sem fyrst. Hann gat ekki hugs- að sér að liggja langtímum saman á spítala. Hann fékk ósk sína upp- fyllta, sjúkrahúslega pabba á hans hartnær 78 ára ævi spannaði innan við þrjá vikur. Ég og pabbi heyrðumst nánast daglega allt frá því ég kom heim frá námi fyrir tæpum tuttugu árum. Við tókum sameiginlega ákvarðanir um hina ýmsu þætti búrekstursins, um vélakaup og margt fleira. Mörg voru handtökin sem við unnum saman í Teigi, allt frá því ég sem lítill snáði fylgdi honum sem skugginn við bú- skapinn og þar til fyrir stuttu að við rákum niður nokkra girðingarstaura á Teigsaurum. Það verður sérstök tilfinning að koma heim að Teigi hér eftir og hitta pabba ekki fyrir. Það verður skrítið að gera hlutina án samráðs við hann og ég á eftir að sakna hans mikið. Blessuð sé minn- ing Árna bónda og hestamanns í Teigi og bið ég þess að himneskir gæðingar fari á fyrirferðartölti með elskulegan föður minn í faðm frels- arans. Guðbjörn Árnason (Bjössi.) Kveðjustundin er komin, í dag þarf ég að kveðja tengdaföður minn og vin, Árna Jóhannsson bónda í Teigi. Minningarnar eru margar og flestar tengjast þær sveitinni sem hann unni alla tíð. Ég ætla ekki að telja upp öll hans afrek, en verð að minnast á þann ótrúlega dugnað og elju sem þurfti til að rækta allt þetta land, koma upp bústofni sem skilaði alltaf hámarks afurðum, girða landið og halda öllu þessu við. Árni vildi ávallt vera vel tækjum búinn og átti yfirleitt nýjustu græjur til allra verka, hvort sem það var ný dráttarvél, fjórhjól eða bara kíkir til að geta fylgst með fénu eða hestun- um út um gluggann. Þegar Árni varð fjallkóngur Fljótshlíðar, fór ég mína fyrstu ferð á fjall. Þessar ferðir voru mjög eftir- minnilegar, þarna kynntist ég mörg- um hans sveitungum og vinum og sá að inn á fjalli, eins og talað er um, var hann sannkallaður kóngur, stoltur fjárbóndi að reka vænu dilkana sína af grænum grösum Grænafjalls til Árni Jóhannsson Minningar á mbl.is Árni Jóhannsson Höfundur: Hörður Gunnarsson, Heylæk Jóhanna Ólafsdóttir Höfundur: Guðrún Karlsdóttir frá Stóru-Borg Pétur H. Ólafsson Höfundur: Íris Dögg Marteinsdóttir Lokað Fjarðarkaup er lokað í dag, miðvikudaginn 16. desember frá kl. 12.00 - 16.00 vegna útfarar INGIBJARGAR GÍSLADÓTTUR. Fjarðarkaup. ✝ Okkar yndislegi og ástkæri, KARL SMÁRI GUÐMUNDSSON, verður jarðsunginn í Grafarvogskirkju fimmtu- daginn 17. desember kl. 15.00. Berglind Ármannsdóttir, Guðmundur Þór Karlsson, Auður Eir Guðnadóttir, Guðni Þór Guðnason, Birgitta Líf Magnúsdóttir, Guðmundur Heiðmar Karlsson, Guðrún Halldórsdóttir, systkini og fjölskyldur. ✝ Frændi minn, GRÍMUR MAGNÚSSON frá Flögu, andaðist á dvalarheimilinu Sólvöllum, Eyrarbakka, laugardaginn 12. desember. Fyrir hönd systkina hins látna og annarra ættingja, Sigurbergur Brynjólfsson. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samhug og virðingu við andlát og útför elsku eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS ÞORGRÍMSSONAR, Mararbraut 5, Húsavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga fyrir frábæra umönnun og kærleik. Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Sólveig Þrándardóttir, Ása Kristín Jónsdóttir, Sighvatur Einar Sighvatsson, Þórný Jónsdóttir, Þorgrímur Friðrik Jónsson, Rósa Borg Halldórsdóttir, Ásdís Brynja Jónsdóttir, Arnar Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GÍSLI SVEINSSON, Aflagranda 40, Reykjavík, lést á Landspítalanum sunnudaginn 13. desember. Útför auglýst síðar. Auður Guðmundsdóttir, María Anna Gísladóttir, Guðríður Jóhanna Gísladóttir, Sveinn Gíslason, tengdabörn, barnabörn og barnabörn. ✝ Elskulegur faðir minn, afi og langafi, GUÐBRANDUR LOFTSSON, fyrrum skipstjóri og bóndi, frá Hveravík, Aðalbraut 4, Drangsnesi, lést á Heilbrigðisstofnun Hólmavíkur föstudaginn 11. desember. Útförin fer fram frá Drangsneskapellu laugardaginn 19. desember kl. 14.00. Linda Guðrún Lilja Guðbrandsdóttir, Berglind Björk Bjarkadóttir, Jón Ingibjörn Arnarson, Guðbrandur Máni Filippusson, Kolbrún Lilja Jónsdóttir. ✝ Ástkær maður minn, faðir okkar, sonur, bróðir og frændi, KRISTMUNDUR HARÐARSON rafverktaki, Hrannarstíg 14, Grundarfirði, lést á heimili sínu laugardaginn 12. desember. Útförin fer fram frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 19. desember kl. 14.00. Kolbrún Haraldsdóttir, Berglind Ósk Kristmundsdóttir, Birna Kristmundsdóttir, Rúnar Sveinsson, Brynjar Kristmundsson, Hörður Pálsson, Guðlaug Guðmundsdóttir, systkini, frændsystkini og vinir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.