Morgunblaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2009 Skólakerfi á krossgötum FRÉTTASKÝRING Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Í FRUMVARPI til fjárlaga 2010 er gert ráð fyrir að framlög til framhaldsskóla lækki að meðaltali um 5,5% frá fjárlögum yfirstandandi árs eða um 848,3 milljónir króna. Gert er ráð fyrir 50% samdrætti í námsframboði í fjarkennslu og kvöldskólum, þjónusta við nemendur í 10. bekk grunnskóla verði felld niður og framlag til eignakaupa í framhaldsskólum helmingað. Þessar aðgerðir leiða til fækkunar um 820 ársnemenda í skólunum. Á móti koma ýmsar hækkanir og heildarframlögin lækka því alls um tæplega 400 milljónir króna, samkvæmt frumvarpinu, en lækkunin er mun meiri að sögn skólastjórnenda. Í lögum um framhaldsskóla nr. 92 2008 segir að þeir sem eiga rétt á að hefja nám í framhalds- skóla eiga jafnframt rétt á því að stunda nám í framhaldsskóla til 18 ára aldurs. Niðurskurð- urinn á því ekki að bitna á þessum ungmenn- um en hætt er við að eldra fólk, sem vill fara í skóla, eigi ekki trygga skólavist að óbreyttu. Sumarfjarnám blásið af Fjölbrautaskól- anum við Ár- múla er gert að skera nið- ur um tæp- lega 100 milljónir króna eða 12,4%. Gísli Ragnarsson skólameistari segir að í raun sé skerðingin, miðað við árið 2009, tæpar 170 milljónir eða um 18,4%. Samkvæmt fjár- lagafrumvarpinu verði ársnemendum skólans fækkað um 160 og kennslan skorin niður í fjar- námi sem því nemur. Sumarfjarnám verði sennilega lagt niður. Sl. sumar hafi um 1.200 nemendur verið í sumarfjarnámi sem jafngilti 95 ársnemendum. Yfir 2.000 nemendur hafa verið í fjarnámi í FÁ á haust- og vorönn og hvergi fleiri. Gísli bendir á að þar hafi mörgum og mismunandi hópum verið þjónað, meðal annars atvinnulausu fólki, og því sé slæmt að þurfa að skera þar niður. „Þetta er ódýrt námsúrræði sem kostar mun minna heldur en dagskól- inn,“ segir hann. Gísli segir að kennslustundum fækki mikið og þar af leiðandi verði erfitt að fylla kennslu- skyldu kennara. Dregið verði úr yfirvinnu og þannig reynt að komast hjá uppsögnum. „Við reynum að verja störfin og höfum ekki sagt upp neinum um áramótin,“ segir hann. „Við munum reyna að deila kennslunni niður á næsta skólaári þannig að allir fái stöðu. Ekki er þó hægt að útiloka að einhverjir verði að sætta sig við skert stöðuhlutfall, en gert er ráð fyrir í rekstraráætlun að launakostnaður lækki um tæplega 124 milljónir eða um 14,8%.“ Auk fyrrnefnds er reynt að hagræða á öllum sviðum, að sögn Gísla. Hann segir að niðurskurðarhnífnum sé alls staðar beitt og í sumum tilfellum sé verið að fresta vandanum eins og til dæmis í sambandi við sum tækjakaup. Tekist hafi að fá lækkun á leigu- samningum og rekstrarafgangur fyrri ára komi sér vel til að mæta erfiðri fjárhagsstöðu á þessu ári og því næsta. 350 færri nemendur Kvöldskóli Fjölbrauta- skólans í Breiðholti er fjölmennasti kvöldskóli landsins með um 700 nemendur. Framlag til kvöld- skólans minnkar um 53,7 milljónir og það þýðir 50% fækkun nemenda frá áramót- um, að sögn Guðrúnar Hrefnu Guð- mundsdóttur skólameistara. Ekkert fjarnám er í FB en ríflega 1.400 nemendur eru í dagskólanum og segir Guð- rún Hrefna að minna framlag valdi skólanum miklum vandræðum. Almennum aðhalds- aðgerðum sé beitt, kennslumagn verði mark- visst minnkað og reynt að spara á öllum svið- um. Eignakaup verði skert og það gangi í einhvern tíma en svo komi að því að endurnýja þurfi tölvubúnað og fleira. Í þriðja lagi minnki framlag til skólans um 5,6 milljónir vegna þjón- ustu við nemendur í 10. bekk og hún verði aflögð. Samfara minna kennslumagni minnkar yfirvinna en Guðrún Hrefna gerir ekki ráð fyrir að þurfa að segja upp kennurum, að minnsta kosti ekki um áramót. Hún bendir á að samkvæmt lögum eigi hver nemandi rétt á ákveðnum ein- ingafjölda og því sé erf- itt að höggva í náms- framboðið. Þá hafi skólinn tekið með sér 112 milljóna kr. halla inn á yf- irstandandi skólaár og það auki enn á vandann. Fjarnám og kvöldskóli í hættu  Gert ráð fyrir 50% samdrætti í námsframboði í fjarkennslu framhaldsskóla og kvöldskólum auk annarrar skerðingar  Hætt er við að eldra fólk en 18 ára sem vill fara í skóla eigi ekki trygga skólavist í framhaldsskóla að óbreyttu Framhaldsskólar - rekstrargrunnur Fjárlög Frumvarp Breyting 2009 2010 frá fjárl. m.kr. m.kr. % Menntaskólinn í Reykjavík 500,8 476,6 -4,8 Menntaskólinn á Akureyri 495,7 502,0 1,3 Menntaskólinn að Laugarvatni 157,1 158,7 1,0 Menntaskólinn við Hamrahlíð 720,2 710,4 -1,4 Menntaskólinn við Sund 419,7 423,5 0,9 Menntaskólinn á Ísafirði 263,6 284,8 8,0 Menntaskólinn á Egilsstöðum 256,3 270,2 5,4 Menntaskólinn í Kópavogi 752,8 688,0 -8,6 Kvennaskólinn í Reykjavík 319,9 303,5 -5,1 Fasteignir framhaldsskóla 87,8 61,2 -30,3 Framhaldsskólar, stofnkostnaður 699,0 627,0 -10,3 Framhaldsskólar, almennt 1.722,9 1.507,9 -12,5 Fjölbrautaskólinn í Breiðholti 903,5 857,6 -5,1 Fjölbrautaskólinn Ármúla 797,0 698,4 -12,4 Flensborgarskóli 479,9 503,3 4,9 Fjölbrautaskóli Suðurnesja 658,7 643,3 -2,3 Fjölbrautaskóli Vesturlands 451,1 475,3 5,4 Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum 173,6 174,7 0,6 Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra 311,2 315,6 1,4 Fjölbrautaskóli Suðurlands 642,4 686,6 6,9 Verkmenntaskóli Austurlands 205,3 221,5 7,9 Verkmenntaskólinn á Akureyri 1.011,6 1.019,0 0,7 Fjölbrautaskólinn í Garðabæ 455,8 461,4 1,2 Framhaldsskólinn í A-Skaftafellssýslu 121,8 110,7 -9,1 Framhaldsskólinn á Húsavík 134,0 132,7 -1,0 Framhaldsskólinn á Laugum 154,5 179,4 16,1 Borgarholtsskóli 850,9 810,9 - 4,7 Fjölbrautaskóli Snæfellinga 192,2 196,8 2,4 Menntaskóli Borgarfjarðar 97,3 121,0 24,4 Menntaskólinn Hraðbraut 168,2 158,0 -6,1 Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ 51,3 36,6 -28,7 Framhaldsskóli við utanverðan Eyjafjörð 23,6 22,3 -5,5 Fullorðinsfræðsla fatlaðra 248,1 240,7 -3,0 Símenntun og fjarkennsla 1.151,6 1.255,3 9,0 Tækniskólinn 1.721,3 1.668,5 -3,1 Iðnskólinn í Hafnarfirði 603,9 605,9 0,3 Hússtjórnarskólinn í Reykjavík 28,1 28,9 2,8 Hússtjórnarskólinn Hallormsstað 27,1 27,0 -0,4 Fjöltækniskóli Íslands 0,0 0,0 0,0 Iðnskólinn í Reykjavík 0,0 0,0 0,0 Verslunarskóli Íslands 953,1 903,8 -5,2 Samtals 19.012,9 18.569,0 -2,3 Aukning Minnkun 700 nemendum færra verður í kvöldskóla FB og fjarnámi VMA. 848,3 milljóna króna lækkun verður á framlögum til framhaldsskóla. 1.200 nemendur voru í sumarfjarnámi FÁ sl. sumar en það verður líklega lagt niður. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu á framlag til Menntaskólans við Hamrahlíð að minnka um 10 millj- ónir króna, en Lárus H. Bjarnason, rektor MH, segir að vegna uppbóta vegna ófyrirséðra hækkana sem komu eftir á á líðandi ári en séu í frumvarpinu 2010 sé lækkunin í raun um 40 milljónir. Ógnun við reksturinn Niðurskurðurinn er ógnun við rekstur öldungadeildarinnar, að sögn Lárusar, en um 240 nemendur eru í deildinni. „Að óbreyttu hefði þetta þýtt niðurlagningu öldunga- deildarinnar,“ segir hann, en vegna kipps í innritun og fjölgunar nem- enda í hverjum námshópi sl. haust var ákveðið að bíða og sjá til um framhaldið eftir næstu önn. Lárus segir að niðurskurðinum verði mætt með því að endurnýja lítið sem ekkert húsgögn og tækja- búnað á næsta ári og lækka launa- kostnað um 3-3,5%. Lækkuninni verði náð með því að fjölga nem- endum í hópum að meðaltali, þ.e.a.s. fækka fámennari hópum, og með því að leggja niður einhver verkefni. Nánast engar nýráðningar Rekstrarafgangur á þessu ári mildi auk þess höggið á næsta ári en vonandi þurfi ekki að koma til uppsagna. Hins vegar verði nánast engar nýráðningar og sl. haust hafi hann til dæmis ekki kynnt neinn nýjan kennara til sögunnar. Það hafi ekki gerst síðan hann tók við starfi rektors 1998. Öldungadeild MH í uppnámi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.