SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Blaðsíða 4

SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Blaðsíða 4
4 9. maí 2010 Samtökin Tehreek-e-Taliban í Pakistan lýstu þegar yfir ábyrgð á tilræðinu á Times Square og sögðu að ætlunin hefði verið að hefna fyrir árásir Bandaríkja- manna með ómönnuðum flugvélum á uppreisn- arleiðtoga í Pakistan. Bandarískir embættismenn gerðu lítið úr þessari yfirlýsingu, en Shah Mehmood Qureshi, utanríkisráðherra Pakistans, sagði að það væri „barnalegt“ að ætla að hið falda stríð í Waz- iristan yrði án afleiðinga í Bandaríkjunum. Faisal Shahzad hefur játað að hafa farið til Waz- iristan til að læra að búa til sprengjur. Gefið hefur verið til kynna að hann hafi nefnt Tehreek-e-Taliban. Leiðtogi samtakanna heitir Hakimullah Mehsud og sagt er að hann vilji auka blóðsúthellingar og sé bandamaður Al-Qaeda, hryðjuverkasamtaka Osamas bin Ladens. Samtökin hafa ýmist lýst á hendur sér eða verið kennt um skæðustu sprengjuárásirnar í herferð, sem staðið hefur yfir undanfarin þrjú ár í Pakistan. Mehsud kom fram í myndbandi með jórd- önskum gagnnjósnara Al-Qaeda sem myrti sjö út- sendara bandarísku leyniþjónustunnar CIA í Afgan- istan í desember í fyrra. Samtökin hafa hótað að gera árásir á stórborgir í Bandaríkjunum, m.a. til að hefna fyrir stofnanda þeirra, Baitullah Mehsud, sem féll í árás ómannaðrar flugvélar. Bandaríkjamenn hafa gert um 100 slíkar árásir og hafa þær vakið reiði múslíma í Pakistan og gagnrýni pakistanskra stjórnvalda. Bandarísk stjórn- völd hafa kallað Waziristan hættulegasta stað á jarð- ríki. Pakistönsk ungmenni á Vesturlöndum, sem að- hyllast róttækar útleggingar á íslam, hafa laðast þangað. Hættulegasti staður á jarðríki Lögregla í Peshawar handtók tvo grunaða hryðju- verkamenn í liðinni viku. Peshawar skammt frá hér- aðinu Waziristan, gróðrastíu hryðjuverkahreyfinga. Reuters H ver var veröld Faisals Shahzads? Hann virtist vera ósköp venjulegur maður, sem daglega hélt snyrtilega klæddur til vinnu sinnar, hluti af bandarískri millistétt. Á laugardag ók hann bif- reið fullri af sprengiefni inn á Times Square, fjölfarnasta staðinn í New York. Í Shahzad tog- uðust greinilega á tveir heimar, Bandaríkin og Pakistan, en ekkert hafði bent til þess að hann væri líklegur til að fremja hryðjuverk. Shahzad ólst upp í Pakistan, einn fjögurra systkina í virðulegri millistéttarfjölskyldu. Faðir hans var yfirmaður í pakistanska flughernum og er nú sestur í helgan stein. Nágranni fjöl- skyldunnar í þorpinu Mohib Banda sagði í sam- tali við fréttastofuna AFP að faðir Shahzad væri hófsamur maður, sem hefði latt syni sína til þess að safna skeggi að íslömskum hætti og sent börn sín til útlanda í leit að friðsælla lífi, en völ er á í Pakistan. Þoldi ekki að sjá kind slátrað „Ég man eftir því að Faisal kom eitt sinn í þorp- ið og við vorum að slátra kind og hann byrjaði að gráta og spurði hverslags grimmd þetta væri,“ sagði nágranninn. „Ég er hissa á að mað- ur, sem gat ekki umborið að sjá dýri slátrað, skyldi geta lagt á ráðin um sprengjutilræði.“ Shahzad fór í háskóla pakistanska flughersins og hélt síðan til náms í Bandaríkjunum árið 1998. Hann útskrifaðist með gráðu í tölv- unarfræði frá háskólanum í Bridgeport í Con- necticut árið 2000 og með MBA-gráðu árið 2005 og fékk vinnu sem fjármálaráðgjafi hjá fyrirtækinu Affinion Group. Shahzad stofnaði til fjölskyldu í Bandaríkj- unum. Hann kvæntist Huma Mian, sem er af pakistönskum uppruna og er frá Colorado, og þau eiga tvö börn, dóttur og son. Árið 2004 keyptu þau sér tveggja hæða hús í Shelton, litlum bæ í Connecticut. Mian er með há- skólagráðu í viðskiptum. Engan trúarlegan bakgrunn Brúðkaup þeirra fór fram í Peshawar. Ibrar-ul Haq, frændi hans, hitti hann þar: „Í grunninn er hann frjálslyndur maður og sá hann aldrei biðja eða einu sinni fara í mosku. Satt að segja hefur hann engan trúarlegan bakgrunn.“ Á samfélagssíðu á Netinu skrifar Mian að hann Shahzad sé sér allt. Hjónin eru múslímar, en áhugamálin eru dæmigerð fyrir unga konu í Bandaríkjunum: „Tíska, skór, töskur, að versla,“ segir hún um ástríður sínar. „Og auð- vitað Faisal.“ 17. apríl 2009 fékk Shahzad bandarískan rík- isborgararétt í dómsal í Bridgeport í Connecti- cut. Fljótt á litið var hann dæmigerður innflytj- andi í hinum bandaríska suðupotti menningarstrauma. Hins vegar var byrjað að síga á ógæfuhliðina hjá hinni ungu fjölskyldu og vandinn var sá sami og herjaði á margar fjöl- skyldur í Bandaríkjunum á þessum tíma. Greint hefur verið frá því í dagblaðinu The New York Times að Shahzad reyndi að selja húsið í Connecticut árið 2006 þegar húsnæð- isverð var í hámarki, en fann engan kaupanda. Árið 2008 var húsið orðið að sligandi byrði. Shahzad keypti það upprunalega á 273 þúsund dollara og tók 218 þúsund dollara að láni. Jafnt og þétt fjaraði undan fjölskyldunni. Shahzad sagði upp í vinnunni árið 2009 og hús- ið var tekið til gjaldþrotameðferðar. Í apríl hvíldi tæplega 213 þúsund dollara skuld á hús- inu. Seint á liðnu ári hélt fjölskyldan til Pakist- ans. Eftir stóð húsið, óselt og að sögn fast- eignasala, sem The New York Times ræddi við, í algerri óreiðu, matarleifar, föt og leikföng út um allt. Fjölskylda Shahzads á veglegt hús í Peshaw- ar, en hann mun hafa haldið til héraðsins Waz- iristan þar sem hryðjuverkasamtök og öfgahóp- ar ráða ríkjum. Samkvæmt kærunni á hendur Shahzad hefur hann játað að þangað hafi hann farið til að fá þjálfun í að búa til sprengjur. Þegar Shahzad sneri aftur til Bandaríkjanna 3. febrúar, fimm mánuðum eftir brottförina, var hann einn síns liðs. Ráðgátan er hvers vegna þessi friðsami fjölskyldufaðir ákvað að reyna fyrir sér sem fjöldamorðingi. Fyrrverandi ná- granni Shahzads lýsti honum sem „venjulegum náunga“, sem enginn hefði gefið frekari gaum. Það er tekið eftir honum núna. Innflytjand- inn sem snerist Hvers vegna kemur „venju- legur náungi“ fyrir sprengju á Times Square? Faisal Shahzad og fjölskylda hans virtist vera að upplifa ameríska drauminn þegar húsnæðisbólan sprakk og hús- næðislánið fór að sliga fjölskylduna. Varð undirmálslánið til að Shahzad breyttist í hryðjuverkamann? ReutersVikuspegill Karl Blöndal kbl@mbl.is „Pakistanar eru hræddir. Þegar þeir sjá í sjónvarpinu, „Pakistanskur hryðju- verkamaður á Times Square“, vilja þeir bara hylja andlit sitt.“ Zahid Hussain, starfsmaður á pakist- önskum veitingastað í úthverfi Washington eftir að Faisal Shah- zad var handtekinn. Vilja hylja andlit sitt einfalt og gott! Grillaður kj úklingur og 2 l Pepsi eð a Pepsi Ma x998kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.