SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Blaðsíða 15

SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Blaðsíða 15
9. maí 2010 15 m bl 11 10 02 6 www.fi.is • fi@fi.is • Sími 568 2533 Gönguferðir fyrir barnafólk með barnavagna og kerrur, alla daga vikunnar 10. – 14. maí. Léttar, skemmtilegar gönguferðir, góð hreyfing og góður félagsskapur. Allar gönguferðir hefjast klukkan 12.30 Fyrsta gönguferðin er frá Perlunni og er gengið um Öskjuhlíð. Dagskrá barnavagnavikunnar má sjá á heimasíðu FÍ www.fi.is Fararstjórar: Auður Kjartansdóttir og Páll Guðmundsson Þátttaka er ókeypis, allir velkomnir. Ferðafélag Íslands skráðu þig inn – drífðu þig út Barnavagnavika FÍ 10.–14. maí fólks í dag og segja okkur eitthvað um samtímann eins og þær gerðu á sínum tíma þegar þær voru skrifaðar. Þess vegna eru þær klassískar, þess vegna þarf að halda áfram að setja verkin upp. Því ber ég mikla virðingu fyrir hinu upprunalega verki þó mitt verkefni sé að gera það aðgengi- legt nútímaáhorfendum. Það þarf reyndar ekkert endilega að staðfæra þær eða færa til okkar með þess háttar hætti. Við þurfum ekki endilega að sjá Shakespeare í nútímabún- ingi með nútímalegri tónlist til að við upplifum raunveru- legan kjarna í verkunum í dag. Ég er ekki að setja klass- íkina í grímubúning sem samtíminn skilur betur, heldur setja hana upp á okkar forsendum og túlka hana þannig.“ – Nú hefur þú unnið mikið utan heimalands þíns og raunar um allan heim. Er mikill munur á að vinna sem leikstjóri í mismunandi löndum? „Það má líta á það frá tveim sjónarhornum. Bæði er mikill munur og svo lítill sem enginn munur. Fólk er að mörgu leyti alls staðar eins og það á við um góða og vonda leikara líka, skiptir ekki máli hvaðan fólk kemur. Á hinn bóginn er eitthvað djúpt sameiginlegt með okkur öllum sem gerir okkur lík hvert öðru og þá breytir engu hvaðan við erum. Þess vegna er eins að vinna með hæfileikaríku fólki, sama frá hvaða landi það kemur. Ég hef mikið unnið með klassísk verk sem taka á sammannlegum aðstæðum og tilfinningum sem liggja djúpt í manneskjunni. Þá breyt- ir engu hvort við komum upprunalega frá ólíkum menn- ingarheimum.“ – Hvernig líst þér á að vinna með íslenskum leikurum? „Í tveimur heimsóknum mínum hef ég séð sex leiksýn- ingar hér í leikhúsinu og kynnst leikhópnum. Mér finnst leikararnir hér vera gríðarlega sterkir og búa yfir magnaðri orku. Því er ég afar spenntur að fara að vinna með þeim. Ég er mjög hrifinn af Borgarleikhúsinu sem mér finnst eiga margt sameiginlegt með fremstu leikhúsum Evrópu í dag. Þá á ég bæði við verkefnavalið og þann metnað sem liggur á bakvið leikhúsið.“ – Hvernig myndirðu lýsa sjálfum þér sem leikstjóra? „Ég er opinn og beinskeyttur leikstjóri og mér finnst mjög gaman að hitta nýtt fólk, kynnast nýjum löndum og því fólki sem þar býr. Það er líka mjög gefandi að hitta nýtt fólk á listrænum grundvelli og sjá hvað það hefur í för með sér. Ég kem ekki með fyrirfram ákveðnar hugmyndir til Ís- lands sem leikstjóri, heldur kem ég með opnum huga. Þetta er einmitt það sem er mest spennandi við leikhús. Þar mætir fólk á ákveðnum forsendum og allir leggja sitt af mörkum. Það gerir leikhúsið sjálft að svo skemmtilegu og spennandi fyrirbæri. Ég kem hingað með minn bakgrunn og mæti listamönnum hér og úr verður sameiginleg sýn og sýning. Landið ykkar hefur heillað mig og ég skynja að þið eruð að upplifa sérstaka og á margan hátt erfiða tíma. Hér er mikil óbeisluð orka og á þeim grundvelli ákváðum við Magnús að Ofviðrið væri hentugt verkefni fyrir okkur til að takast á við saman.“ – Er ein sýning eða eitt ákveðið verk sem stendur upp úr hjá þér eftir tuttugu ára leikstjóraferil? „Manni þykir vænt um allar sýningarnar. En ef ég á að nefna eina þá hlýt ég að segja að fyrsta sýningin mín sem ég leikstýrði árið 1990 standi líklegast næst hjartanu af öllum þeim sem ég hef komið að.“ Úr uppfærslu Oskaras Kor- šunovas á Rómeó og Júlíu. ’ Ég er opinn og beinskeyttur leikstjóri og mér finnst mjög gaman að hitta nýtt fólk, kynnast nýjum löndum og því fólki sem þar býr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.