SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Blaðsíða 49

SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Blaðsíða 49
9. maí 2010 49 Undanfarin misseri hafa Google og bóka- útgefendur eldað saman grátt silfur vegna átaks Google í að koma öllum heimsins bókum á stafrænt snið. Fyrir stuttu náðist loks sátt í þeirri deilu, sem reyndar á eftir að staðfesta, en varla var blekið þornað þegar fréttist að Google ætlaði að byrja bóksölu á netinu. Amazon hefur forystu í sölu á bókum á stafrænu sniði, en Apple hefur sótt hart að því á undanförnum mánuðum og Bar- nes & Noble sömuleiðis. Öll eru fyr- irtækin hvert með sína gerð af lestrartæki eða rafrænan lesara, Amazon með Kindle, Barnes & Noble með Nook og Apple með iPad. Google hyggst aftur á móti bjóða upp á bækur sem hægt verður að lesa í hvaða tóli og tölvu sem er og ætl- ar ekki heldur að setja upp eina bókabúð á netinu, heldur bjóða útgefendum að selja á eigin vefsetrum og hvaða bókabúð sem er að setja upp stafræna sjoppu. Google kallar þjónustuna Google Edi- tions og byggir hana á bókaleitinni sem fyrirtækið hefur byggt upp á undan- förnum árum, en í henni er unnt að leita í texta bóka sem fyrirtækið hefur skannað inn en ekki bara í heiti eða lýsingu. Þegar einstaklingur síðan finnur bók sem hann vill kaupa sér Google um að afgreiða bók- ina úr gagnagrunni sínum, en útgefand- inn og Google skipta með sér afrakstr- inum, útgefendur fá 63% af söluverði (og greiða höfundi sinn hluta), Google 37%. Ekki er ljóst hvor Google hyggst skipta sér af verðlagningu bókanna líkt og Ama- zon hefur gert, en Amazon hefur þvingað útgefendur til að selja bækurnar á lægra verði en prentútgáfur þeirra. Bækurnar verður hægt að lesa í vafra yfir netið, en ekki er ljóst hvort búnar verða til sérstakar útgáfur fyrir Kindle, Nook eða iPad og ekki heldur hvort og þá hvaða höfundarréttarvörn verður notuð. Samkvæmt upplýsingum frá Google verða 500.000 titlar til sölu í fyrstu úgáfu Google Editions, en bækur sem eru utan höfundarréttar verða stór hluti af því, þ.e. bækur þar sem höfundarréttur á ekki við. Bókabúðin Google Sameiningartákn Hversu mikilvægt er það fyrir ykkur að spila utan heimalands ykkar? „Fyrir okkur er tónlistin alþjóðleg,“ seg- ir Amadou og trúir því auðheyranlega – og einlæglega – að tónlistin virði engin landa- mæri. „Við getum spilað okkar malísku tónlist alls staðar, því að ef fólk elskar heiminn þá finnur það sig í tónlist okkar. Ef fólsk elskar Evrópu þá finnur það sig í okkar tónlist. Þeir sem elska popptónlist finna sig í tónlist okkar. Og svo framvegi s…“ Nú eruð þið þekkt á heimsvísu, áttuð þið von á þessari miklu velgengni? „Nei. Alls ekki. Þegar við vorum að spila í Malí þótti okkur frábært að við vorum orðin þekkt í Vestur-Afríku. Svo urðum við þekkt í Frakklandi og það var fínt. En að við yrðum þekkt á heimsvísu gátum við ekki gert okkur í hugarlund.“ Manu Chao á ekki lítinn þátt í því að koma ykkur á framfæri. Hvernig var að vinna með honum? „Samstarf okkar við Manu Chao var mjög gott og hann opnaði á vissan hátt fjöl- margt fyrir okkur. Það var mjög einfalt að vinna með honum, hann var lítið fyrir að flækja hlutina og gekk beint til verks. Hann hjálpaði okkur mikið og við erum mjög hrifin af tónlist hans, hann er óhræddur við að blanda saman ólíkum þáttum í tónlist sinni, en við leggjum okkur eftir svipuðum hlutum. Okkur finnst gott að vinna með fólki sem horfir í sömu átt en fyrst og fremst þurfa kannski þessir tónlistarmenn að vera hrifnir af okkar tónlist svo við get- um unnið saman. Yfirleitt þegar um gagn- kvæma hrifningu á tónlist er að ræða þýðir það að við náum saman í henni; þar er tón- listin er sameiningartákn.“ Hugrekki Getur þú sagt mér eitthvað um hvernig tónlistarsenan í Malí er í dag? „Hún er auðvitað mjög fjölbreytt. Það er mikið af þjóðlagatónlist, í upphafi sungum við t.d. aðeins á bambara en við fórum að bæta fleiru við er fram liðu stundir, bættum við tónlist á malinke og fleiri málum en tungumálin heima í Malí eru fjölmörg og menningin sem þeim fylgir fjölbreytt. Í dag eru margir í Malí að vinna með ólíka strauma í malískri tónlist og blanda þeim saman. Það er margt hæfileikaríkt ungt fólk sem er að koma fram, margir staðir þar sem hægt er að koma fram. Hins vegar er geisladiska- og kassettumarkaðurinn næstum enginn. En þó þetta sé erfitt finn ég fyrir miklu hugrekki hjá ungu fólki; fólk langar til að spila og það fer oft æði langt til að sjá þá drauma sína rætast.“ -En þið hljótið að vera mikil fyrirmynd í malísku tónlistarsenunni. Fólk heima lítur upp til ykkar eða hvað? „Já, okkur hefur tekist að láta malíska tónlist heyrast utan landamæranna en þar fyrir utan þá er ég formaður félags mal- ískra tónlistarmanna og svo er ég líka for- maður félags malískra listamanna. Þannig að ég fylgist mjög vel með þróun lista og tónlistar í heimalandi mínu.“ Svona að lokum, hvernig líst ykkur á að ferðast norður í kuldann? „Mariam er ekkert sérlega vel við kuld- ann en mér líður vel í honum. Við höfum farið nokkrum sinnum til Noregs, Sví- þjóðar og til Írlands. En þetta er auðvitað í fyrsta sinn sem við komum til Íslands og við hlökkum til.“ Blaðakonan fullvissar Amadou um að hér sé komið vor, þó auðvitað sé formlega komið íslenskt sumar. „Það verður léttir fyrir Mariam,“ segir hann þá og hlær við. „Ég er sannfærður um að Íslendingar eigi eftir að finna sig í tónlist okkar og efast ekki um að kvöld- stundinni verði breytt í fallega, innilega hátíð.“ ’ Þegar við vorum að spila í Malí þótti okk- ur frábært að við vorum orðin þekkt í Vest- ur-Afríku. Svo urðum við þekkt í Frakklandi og það var fínt. En að við yrðum þekkt á heimsvísu gátum við ekki gert okkur í hug- arlund Malíska söngparið Amadou Bagayoko og Mariam Doumbia lofa fallegri og innilegri kvöldstund á miðvikudag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.