SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Blaðsíða 32

SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Blaðsíða 32
32 9. maí 2010 un í faginu. Upp úr því var farið að nota öndunarvélar og síðan síblástur í vax- andi mæli við meðferð lungnasjúkdóma og lífslíkur fyrirbura bötnuðu mikið. Hér á landi varð notkun lyfsins lungnablöðruseytis almenn í kringum 1990 en lyfið hindrar að lungu barnsins falli saman. Um svipað leyti var farið að nota barkstera fyrir fæðingu í þeim til- gangi að flýta fyrir lungnaþroska fóst- ursins en lungun eru síðust líffæra að þroskast í móðurkviði. Á undanförnum árum hafa einnig orðið framfarir á öðr- um sviðum nýburagjörgæslu, svo sem með bættum tækjabúnaði og betri fæð- ingarhjálp. Orsakir fyrirburafæðinga Sektarkennd er algengur fylgifiskur for- eldra sem eignast barn sitt fyrir tímann. Tilfinningin getur verið yfirþyrmandi og sumir fara yfir það í huganum aftur og aftur hvað hafi valdið fæðingunni og hvort hefði verið hægt að koma í veg fyrir hana með breyttri hegðun. Orsakirnar eru yfirleitt af lífeðlislegum toga sem erfitt getur reynst að fyr- irbyggja. Algengar ástæður fyr- irburafæðinga eru sýkingar, með- göngueitrun, hár blóðþrýstingur, ótímabært belgjarrof, fjölburameðganga, vaxtarskerðing fósturs, leghálsbilun, fylgjulos, eða aðrir þættir sem snúa að fylgjunni, svo sem blæðing frá fylgju eða staðsetning hennar. Sýking móður sem framkallar skyndilega fæðingu á við í um 60% tilfella. Í stórum hluta tilvika er or- sök óþekkt. Þá ber fæðinguna oft brátt að og lítið svigrúm myndast til að und- irbúa foreldrana fyrir yfirvofandi fyr- irburafæðingu. Mun barnið mitt lifa? „Er hún að deyja?“ spurði ég skelfingu lostin og krafði lækninn um svör. Mér hafði verið tilkynnt að dóttir mín hefði tvisvar sinnum farið í öndunarhlé um nóttina. Öndunarstopp, hugsaði ég, þá hlýtur maður að deyja. Yfirvegaður læknirinn útskýrði fyrir mér að önd- unarhlé eða apnea væri þekkt fyrirbæri á meðal fyrirbura. Þetta stafaði einkum af vanþroska í öndunarstjórnstöðvum heil- ans og lýsti sér þannig að barn hætti að anda tímabundið og stundum hægðist á hjartslætti í kjölfarið. Á vökudeild eru flest börn tengd við sírita sem gefur frá sér aðvörunarhljóð þegar lífsmörk barns verða óstöðug. Píp- in frá tækjunum voru yfirþyrmandi en veittu mér jafnframt öryggi. Sama dag tilkynnti læknirinn mér að þeir ætluðu að óma höfuðið á dóttur minni til þess að útiloka að blætt hefði inn á heila við fæðingu. Þrír læknar og hjúkrunarkona birtust með framandi tækjabúnað. Læknirinn var þögull. Hjartsláttur minn þyngdist og ég fann tárin leka niður þreytulegt andlitið. Þetta voru erfiðustu mínútur lífs míns. „Engin blæðing, þetta lítur vel út,“ sagði hann að vel athuguðu máli og allir önduðu léttar. Góðar lífslíkur Eftir því sem læknavísindum fleygir fram hafa lífslíkur íslenskra fyrirbura batnað verulega og teljast nú mjög góð- ar. Á árunum 1999-2007 lifðu 92% barna, sem lögðust inn á vökudeild Barnaspítala Hringsins, sem voru á bilinu 1000-1500 grömm að fæðing- arþyngd. Þá lifðu 88,2 % þeirra barna sem vógu minna en 1000 grömm við fæðingu. Yngsta barn sem lifað hefur hérlendis sem um er vitað fæddist eftir 23 vikna og fimm daga meðgöngu og það léttasta vó rétt innan við 500 grömm. Nú er svo komið að meirihluti minnstu fyr- irburanna lifir, eftir allt að 23-24 vikna meðgöngulengd. Batahorfur og lífslíkur fyrirbura ráðast að mestu af meðgöngulengd, fæðing- arþyngd og þroska barns í móðurkviði. Fjölburameðgöngur eru áhættusamari og áhættan er meiri hjá eineggja tvíburum. Meðgöngulengd er sterkasti áhrifaþátt- Í ljósameðferð vegna nýbura- gulu. Ef meðhöndla þarf nýbura- gulu er oftast gripið til ljósa- meðferðar. Ísgerður Esja var í þrjá sólarhringa í ljósameðferð. Hjá pabba. Ísgerður Esja á góðu augnabliki með föður sínum, Nóa Steini Einarssyni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.