SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Blaðsíða 34

SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Blaðsíða 34
34 9. maí 2010 Stafrænn myndarammi, 3G, sem hægt er að setja upp í heimahúsi, til dæmis hjá ömmu og afa. Þá er hægt að senda myndir úr fríinu beint í rammann, því hann tekur við mynd- skilaboðum. Viðtakandinn þarf að samþykkja sendinguna, en hann sér á skjánum ef ný mynd hefur borist. Og svo rúlla þær myndir á skjánum sem samþykktar hafa verið. E nn er samfélagið að umbyltast vegna tækniframfara. Nú eru það farsímarnir sem opna nýjar samskiptaleiðir, þar sem gáttir Netsins eru að opnast og þar með óþrjót- andi möguleikar. Útibú á Facebook Það segir sína sögu að símafyrirtækið Nova heldur úti heimasíðu á Fésbókinni, sem ekki er aðeins hugsuð til markaðs- setningar, heldur einnig sem þjónustuú- tibú. Viðskiptavinir rata um gáttina úr tölvum og farsímum. „Þangað berast fyrirspurnir frá núver- andi viðskiptavinum og mögulega nýj- um,“ segir Liv. „Þetta hefur ekki áður verið hægt á Netinu. Nova var eitt af fyrstu fyrirtækjunum á Íslandi til að nýta Facebook með þessum hætti. Eitt af því sem við bjóðum upp á, er að fólk getur sett SMS-box á heimasíðuna sína, þar sem stendur: „Sendu mér SMS“. Ef fólk gefur upp símanúmerið sitt, þá geta allir hjá Nova nýtt sér þá þjónustu og sent ókeypis símaskilaboð. Kosturinn við að bjóða þessa þjónustu á Facebook er rekjanleikinn, þar eru allir skráðir inn og því fylgir alltaf nafn með skilaboðunum. Þess vegna eru líka flest allar vefsíður komnar með tengingu við Facebook þar sem hægt er að deila myndböndum og öðru efni. Facebook er sú vefsíða sem fær langflestar heimsóknir úr farsímum okkar viðskiptavina. Þar sem fólk er ekki við tölvu allan daginn, þá getur það notað farsímann til að uppfæra síðuna og fylgj- ast með vinum sínum.“ Breytt samskiptamynstur fyrir tilstuðlan Facebook og fleiri sam- skiptasíðna hefur ýmsar breytingar í för með sér. Tíðindi á Facebook fara sem eldur í sinu um samfélagið. „Ef t.d. auglýst er partí fyrir ball og einn setur það í statusinn, þá geta skila- boðin á örskotsstundu borist til þús- unda,“ segir Liv. „Tengslanet ungs fólks hefur snertingu við ótrúlega marga. Ég heyrði sögu af því, að ung- lingur hefði farið með foreldrum sín- um í Kringluna og upplýst þá um að sjö skólasystkin sín væru þar á sama tíma að kaupa fermingarfötin – hann hafði séð það á Facebook. Þau fylgjast stanslaust með vinum sínum. Bylting með Netinu „Fólk myndi aldrei uppfæra Facebook- síðuna sína ef það kostaði formúu að fara inn á Netið í farsímanum,“ segir Liv. „Það var dýrt í gsm-kerfum, en þriðja kynslóð farsíma, 3G, er netkerfi og þess vegna er það orðið ódýrara og hraðinn meiri.“ Engu að síður hefur farsímareikn- ingurinn ekki lækkað að meðaltali, sumum til nokkurs hugarangurs, en Liv bendir á að þjónustan sé alltaf að aukast. „Fyrst var bara hringt úr sím- unum, svo var hægt að senda SMS símaskilaboð og núna er Netið komið í farsímann, þar sem gagnamagnið og hraðinn er alltaf að aukast. Um leið verður þörfin sífellt meiri, næst fáum við 4G og þannig eykst gagnamagnið stöðugt fyrir sama pening.“ Hvernig farsímar breyta heiminum Enn er tæknin að breyta samfélaginu. Nú er það vegna nýrra möguleika tækis, sem er nánast eins og utanáliggjandi líffæri á nútímamanninum, nefnilega farsímans. Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova, og Harald Pétursson, sölustjóri, ræða heimana í farsímanum. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Morgunblaðið/Golli Mikil samkeppni er hafin um kortaþjónustu í farsímum, enda geta símnotendur nýtt sér hana til að velja veitingastaði, leita að söfnum eða rata að öðru leyti um framandi slóðir. Með tilkomu Skype í farsíma geta símnot- endur dregið veru- lega úr kostnaði við símtöl. Öryggisaugað sem byggist á myndsímtölum. Þá er hægt að hringja í augað og skoða á skjánum það sem augað beinist að. „Í raun er þetta vefmyndavél,“ segir Harald. „En myndum er þó ekki hlaðið niður í gegnum vefinn. Fólk setur þessi tæki upp í sumar- bústaðnum hjá sér, sem lítið öryggiskerfi, og einnig í hesthúsin. Flestar myndavélarnar hafa þó verið seldar til hundaeigenda, sem vilja fylgjast með því hvernig þeir hafa það á daginn.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.