SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Blaðsíða 36

SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Blaðsíða 36
36 9. maí 2010 Morgunblaðið/Golli Bjarni Guðjónsson KR-ingur skýtur að marki FH úr aukaspyrnu. Gera má ráð fyrir að félögin berjist á toppi úrvalsdeildarinnar í sumar. K arlalið KR hefur verið mjög afgerandi í vetur, segir Víðir, enda Vesturbæjarliðið með geysi- legan sterkan hóp leikmanna. Ástæða þess að KR-ingum sé nú spáð sigri sé ekki sú sama og stundum á árum áður; til þess að setja sérstaka pressu á þá – heldur sé raunveruleg innistæða fyrir spánni. „FH-ingar hafa verið í basli vegna meiðsla og eru með minni hóp, Breiðablik og Keflavík komast líklega næst því að ógna þessum liðum en ég held það sé mjög rökrétt að spá KR- ingum meistaratitlinum,“ segir Víðir Sigurðsson. Hann nefnir að KR-ingar séu varkárir í tali. „Logi [Ólafsson þjálfari] fæst varla til að segja að félagið stefni á meistaratit- ilinn. Þeir eru varkárir vesturfrá og passa sig mjög vel á því hvað þeir segja.“ Víðir telur að helsta vandamál Loga í sumar verði að halda öllum sáttum ef leikmenn liðsins sleppa allir við meiðsli. „Þá verður hann með fjóra, fimm eða jafnvel sex góða leikmenn á vara- mannabekknum; leikmenn sem yrðu í lykilhlutverkum hjá öðrum félögum. Það verður líka mikil áskorun hjá lið- inu að standa undir þessari pressu frá byrjun móts og sumarið verður því ekki síður bardagi við sjálfan sig en aðra.“ Margir efnilegir leikmenn Það er sígilt að nýliðum sé spáð erfiðleikum, eins og Víðir kemst að orði og því sé skiljanlegt að Selfyssingum og Haukum sé spáð falli. „Liðin komu bæði töluvert á óvart í fyrra en fóru svo upp á sannfærandi hátt og með mikilli stemningu. Leikmennirnir koma inn í deildina blautir á bak við eyrun og við eigum eftir að sjá hvort þeir ná að halda sömu stemningu því stökkið upp í úrvalsdeild er mjög stórt.“ En engan skyldi afskrifa, segir Víðir og bendir á Stjörnuliðið í fyrra. „Þá gerðu allir ráð fyrir því að Stjarnan færi beint niður aftur, með nánast sama lið og komst upp árið áður, en svo lék liðið frábærlega í fyrri umferðinni, kom öllum á óvart með leiftrandi sóknarleik, en fékk svo bara tvö stig seinni hluta sumars. Ef Haukar og Selfoss ná að byrja af krafti og ná sér í slatta af stigum í maí og júní gæti það farið langt með að duga til þess að halda sér uppi.“ Allir sem tengist nýliðunum hljóti þó að gera sér grein fyrir því að gífurlega erfitt sumar sé framundan. Spurður hverra hann muni helst sakna úr deildinni frá því í fyrra nefnir Víðir fyrst Davíð Þór Viðarsson, fyrirliða FH, sem farinn er til Öster í Svíþjóð. „Það verður erfitt fyrir FH að fylla í skarð hans, hann er áberandi leikmaður og sterkur karakter. Þá má nefna Símun Samúelsen sem átti geysigott tímabili með Keflvíkingum í fyrra en er far- inn heim til Færeyja. Svo held ég að það hefði verið gott fyrir Blikana að hafa Arnar Grétarsson eitt ár í viðbót en hann fékk mjög freistandi starf í Grikklandi og skiljanlegt að hann færi. En það verður sjónarsviptir að honum.“ Hann nefnir einnig Bjarna Ólaf Eiríksson, sem fór frá Val til Stabæk. „Þetta eru fjögur helstu nöfnin sem hafa farið en jafn margir góðir hafa komið í staðinn; og þannig vill til að þeir fóru allir í KR.“ Þar á Víðir við Viktor Bjarka Arnarsson, Guðjón Baldvinsson og Kjartan Henry Finnbogason – sem allir voru áður í KR – og Guðmund Reyni Gunnarsson, sem var reyndar með KR seinni hluta sumars í fyrra. Hann er á mála hjá GAIS í Svíþjóð en verður í láni hjá Vesturbæj- arliðinu aftur í sumar. Fjöldi efnilegra leikmanna verður á ferðinni í sumar. Víðir nefnir Jón Guðna Fjóluson Framara, sem stóð sig mjög vel í fyrra, Ingimundur Óskarsson í Fylki hafi átt mjög gott síðasta tímabil og spennandi verði að sjá hvort hann haldi áfram á sömu braut, „og ungu strákarnir í Breiðabliki, sem hafa staðið sig mjög vel á síðustu árum, gætu fest sig enn frekar í sessi. Alfreð Finnbogason sló í gegn í fyrra, Finnur Orri Margeirsson er ekki eins áber- andi en ég er mjög hrifinn af honum og þá er Elfar Freyr Helgason líka góður.“ Hann segir Keflvíkinga eiga mjög efnilega leikmenn, sem springi kannski ekki út fyrr en að ári, fólk ætti að fylgjast vel með Guðmundi Þórarinssyni í Selfossliðinu – litla bróður Ingó Veðurguðs, sem einnig er í liðinu – „og annar sem gæti sprungið út í sumar er Marco Valdimar Stefánsson hjá Grindavík sem slasaðist í fyrra. Það er strákur sem hefur burði til að verða topp-varnarmaður.“ Breiddin aukist gríðarlega Knattspyrnukonur hafa færst upp á annan og hærri stall hérlendis á síðustu árum. Víðir segir 1:0 sigur á Frökkum árið 2007 mikilvægan í því samhengi. „Hlutirnir hafa þróast mjög hratt. Á þremur árum eru leikmenn kvenna- landsliðsins orðnir einhverjar bestu fyrirmyndir íslensks íþróttafólks; við sigurinn á Frökkum uppgötvaði þjóðin landsliðið og kvennafótboltann og aðsókn að leikjum hef- ur aukist mikið. Einna mestur vaxtarbroddur er í stúlkna- fótbolta og leikmenn eru ekki bara fyrirmyndir hjá stelp- um heldur krökkum almennt; það hefði verið óhugsandi fyrir nokkrum árum að Margrét Lára Viðarsdóttir – eða einhver önnur knattspyrnukona – þætti flottasta fyr- irmynd ungra fótboltastráka,“ segir Víðir Sigurðsson. „Þetta hefur breyst geysilega hratt og það hefur verið gaman að fylgjast með þróuninni. Konurnar eru komnar í fremstu röð og eru í raun vinsælli á meðal þjóðarinnar en karlarnir eins og staðan er núna.“ Af einstaklingum sem stærstan þátt hafa átt í aukinni velgengni kvenna á þessum vettvangi nefnir hann fyrst Ásthildi Helgadóttur. „Hún sýndi á síðustu árum ferilsins, þegar hún lék í Svíþjóð, að hún var einn fremsti leikmaður heims. Hún sýndi Íslendingum hve langt er hægt að ná. Hún var einn markahæsti leikmaður sænsku úrvalsdeild- arinnar og var valin einn af bestu leikmönnunum þar; var t.d. tekin fram yfir [brasilíska leikmanninn] Mörtu sem síðar var kjörin best í heimi.“ Víðir nefnir líka Margréti Láru „sem við bíðum eftir að slái í gegn erlendis. Hún hefur glímt við erfið meiðsli síð- ustu tvö ár en ég er sannfærður um að ef hún hefði verið laus við þau hefði hún brillerað í Svíþjóð síðustu tvö ár. Meiðslin hafa hindrað þroska hennar sem leikmanns og framfarir. Svo er Hólmfríður Magnúsdóttir að gera það mjög gott í bandarísku atvinnumannadeildinni.“ Síðast, en ekki síst, nefnir hann Katrínu Jónsdóttur, fyrirliða Vals og landsliðsins. „Hún er frábær leiðtogi sem átti glæsilegan feril í Noregi á sínum tíma; varð Nor- egsmeistari áður en farið var að fylgjast eins vel með og nú er gert. Þá var norska deildin ein sú besta í Evrópu og hún einn besti leikmaðurinn.“ Víðir hallast að því að mjög erfitt verði að koma í veg fyrir að Valskonur verði Íslandsmeistarar enn eitt árið í kvennaflokki. „Þær eru með mjög öflugt lið. Valsmenn þurfa að misstíga sig til að aðrir eigi raunhæfa möguleika en samt er ánægjulegt að breiddin hefur aukist mikið. Breiðablik, Fylkir, Þór/KA og Stjarnan eru allt lið sem veita Val verðuga keppni í hverjum einasta leik. Þá er spurning hvort KR-ingar nái að stíga skref fram á við á ný í sumar og blanda sér í hóp þessara liða. Í fyrra voru fjögur lið sem áttu möguleika á meistaratitlinum þegar komið var á lokasprettinn sem var skemmtilegt og sýndi hve breiddin hefur aukist.“ Flautað til leiks Ekki kemur á óvart að KR og Val sé spáð Íslandsmeistaratitli í knattspyrnu að mati Víðis Sig- urðssonar. Hann fylgist jafnan grannt með og er nú byrjaður á 30. bindi bókaraðarinnar um íslenska knattspyrnu. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Katrín Jónsdóttir fyrirliði Vals með Íslandsbikarinn í fyrrahaust. Morgunblaðið/Kristinn ’ Það hefði verið óhugsandi fyrir nokkrum árum að knatt- spyrnukona þætti flottasta fyrirmynd ungra fótboltastráka Víðir Sigurðsson „Þegar ég horfi til baka um þau 30 ár sem liðin eru síðan ég byrjaði að skrifa um knattspyrnu held ég að Skagaliðið 1993 sé það sterkasta sem komið hefur fram,“ segir Víðir Sigurðsson. Guðjón Þórðarson var þjálfari Skagamanna á þessum tíma og í liðinu kempurnar Ólafur Þórð- arson, Haraldur Ingólfsson, Mihajlo Bibercic, Lúkas Kostic, Þórður Guðjónsson, Alexander Högnason, Kristján Finnbogason, Ólafur Adolfsson, Sig- ursteinn Gíslason, Sturlaugur Haraldsson og Theo- dór Hervarsson – að ógleymdum Sigurði Jónssyni, sem kjörinn var leikmaður ársins. „Þetta var firngott lið sem sýndi sig vel þegar það sigraði Feyenoord í Evrópukeppninni hér heima. Maður sá hreinlega ekki fyrir sér að annað lið yrði Íslandsmeistari á öldinni en 1996 fór liðið að dala eftir að það varð Íslandsmeistari fimm ár í röð.“ Hann nefnir einnig Framliðið frábæra undir stjórn Ásgeirs Elíassonar á síðari hluta níunda áratugars- ins þar sem Pétur Ormslev var í aðahlutverki, lið KR um aldamótin og FH-inga síðustu ár.„Valsmenn og Vestmannaeyingar hafa líka átt sína spretti, en ég er á því að Skagaliðið standi upp úr.“ Lið ÍA 1993 öflugast
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.