SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Blaðsíða 55

SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Blaðsíða 55
9. maí 2010 55 B láa minnisbókin er ekki fyrir þá sem eru með lítið hjarta. Í henni segir frá ind- versku stúlkunni Batuk sem fæðist inn í fátæka fjölskyldu á landsbyggðinni á Indlandi. Hún er hluti af stórum barnahópi og verður fyrir valinu þegar faðir hennar þarf að greiða skuld sem hann safnaði upp með ólifnaði. Hún er aðeins lítil stúlka þegar faðir hennar fer með hana til Mumbai og selur í kynlífs- þrælkun. Sagan á sér stað þegar Batuk er orðin fimmtán ára og þekkir varla annað líf en vændislífið í fátækrahverfi Mumbai. Þar er hún lokuð inni í klefa í vænd- ishúsi ásamt öðrum börnum, m.a. Puneet sem er ungur strák- ur og vinsælasta afurðin í vænd- ishúsinu sem er stýrt af hinni þrýstnu Mamiki sem gerir vel við börnin ef þau afla vel. Batuk kemst yfir skrifblokk og skriffæri og fer að skrá sögu sína og silfureyga hlébarðans, en hún er læs og skrifandi eftir dvöl á berklahæli í barnæsku. Saga Batuk er hræðileg en þar sem þetta er orðið hennar hvers- dagslíf lýsir hún óhugnaðinum af fordómalausu sakleysi. Hún er saklaust barn sem hefur samt glatað sakleysi sínu á svo hræði- legan hátt að maður getur ekki annað en hatað fullorðið fólk fyrir grimmd sína gagnvart sér vanmáttugum þegar maður les sögu hennar. Það er von í skrif- um Batuk en hún er fyrir löngu búin að láta bugast, sætta sig við hlutskipti sitt þótt hún horfi til fortíðarinnar þegar hún var frjáls í sveitinni hjá fjölskyldu sinni og til framtíðar þar sem hana dreymir um að vera prinsessa í skrautlegri höll. Batuk gengur í gegnum nokk- ur stig vændis í sögunni; mey- dómur hennar er boðinn upp í karlahópi í byrjun, þá er hún send á hálfgert munaðarleys- ingjahæli þar sem hún er „skól- uð“ til af glæpalýð og svo fer hún í hreiðrið til Mamiki, undir lok sögunnar er hún seld til ríkra manna á lúxushóteli þar sem svo virðist sem prinsessudraumar hennar rætist en taumlaust of- beldi ofdekraðra ríkisbubba verður til þess að hún endar á sjúkrahúsi þar sem hún virðist loksins ætla að fá „frelsi“. Höfundur bókarinnar, James A. Levine, er læknir sem kynnt- ist hlutskipti indverskra götu- barna þegar hann var við störf í Mumbai. Ég velti fyrir mér við lesturinn af hverju Levine hefði skrifað þessa ógnvekjandi sögu, ógeðslegu sögu sem er samt svo uppfull af von og sakleysi. Hann er líklega að reyna að láta mann- skepnuna horfast í augu við sjálfa sig, kannski með von um að geta breytt einhverju í heim- inum, bætt hann, jafnvel komið í veg fyrir barnavændi. Ég veit ekki hvað Levine ætlar sér með sögunni en eitt er víst að hún er vel skrifuð og hreyfir óþyrmilega við lesandanum. Óhugnanleg saga sakleysingja Bókmenntir Bláa minnisbókin bbbmn Eftir James A. Levine Guðni Kolbeinsson þýddi. JPV-útgáfa 2010. Bláa minnisbókin Ingveldur Geirsdóttir Þetta er síðasta heila helgin áður en við leggjum í hann til Noregs. Á föstudagskvöldið höldum við fjöl- skyldan upp á 12 ára afmæli dóttur minnar. Við tökum vinkonur henn- ar með út að borða og gerum svo eitthvað skemmtilegt á eftir. Ég er annars með nokkur verkefni sem ég þarf að klára áður en til „Eurovisi- onlands“ verður haldið en vonandi næ ég smá afslöppun um helgina með fjölskyldunni. Á laugardag kemur út nýja platan hennar Heru Bjarkar og það verður heilmikið húllumhæ í Smáralindinni milli 14 og 16 í tengslum við það. Allur Eurovisionhópurinn kemur fram og þá þarf ég að sjá um að hljóðið sé í lagi. Ætli ég og frúin hendum okkur svo ekki fyrir framan sjónvarpið á laugardagskvöldið og horfum á einhverja bíó- mynd. Á sunnudaginn ætlum við sem förum út til Noregs á Eurovision að hittast með börnum okkar og maka og grilla og hafa það gott sam- an. Á sunnudagskvöld fer ég svo í fótbolta. Við erum góður hópur og höfum hist á þessum sama tíma í 10 ár og spilað. Horfi svo á 60 mínútur og Silfur Egils áður en ég fer að sofa. Helgin mín Örlygur Smári tónlistarmaður Heilmikið húllumhæ - Eurovisonannir, grillveisla og fótbolti Hefð er fyrir því í Kanada að fluttur er fyrirlestur, kenndur við Vincent Massey, forðum landstjóra Kanada, og þykir upphefð að vera valinn til þess arna. Alla jafna eru fyrirlesarar kanadískir fræði- eða lista- menn, þó stöku stjörnur ann- arrra þjóða hafi fengið að fljóta með frá því fyrirlestrunum var komið á fyrir tæpum fimm ára- tugum. Kanadíska rithöfundinum Douglas Coupland var falið að flytja fyrirlestur þessa árs, en í stað þess að leggja fram hefð- bundinn fyrirlestur skilaði hann skáldsögu. Skáldsagan, sem segir frá nítján ára stúlku sem alist hefur upp á netinu, er um 50.000 orð. Það tekur eðlilega tíma að lesa slíkt upphátt og fyrir vikið verður fyrirlesturinn fluttur í fimm hlutum og hver hluti um klukkutími að lengd. Coupland er annars þekktastur fyrir bækurnar Generation X: Tales for an Accelerated Culture, Girlfriend in a Coma, Hey Nost- radamus! og jPod. Fyrirlestur eða skáldsaga? Kanadíski rithöfundurinn Douglas Coupland flytur 5 daga fyrirlestur. LISTASAFN ÍSLANDS ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Þjóð verður til Menning og samfélag í 1200 ár. Endurfundir Fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna! Opið alla daga 10-17. Aðgangur ókeypis fyrir börn. www.thjodminjasafn.is - s. 530 2200 Söfnin í landinu 13. mars - 9. maí 2010 Í barnastærðum Sunnudag 9. maí kl. 15 - Samtal við nemendur LHÍ og síðasti sýningardagur Opið 12-17, fimmtudaga 12-21, lokað þriðjudaga www.hafnarborg.is sími 585 5790 Aðgangur ókeypis Næstu sýningar: ÓNEFND KVIKMYNDASKOT, Cindy Sherman 15.5. - 5.9. 2010 Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík, 2010 ÁFANGAR, verk úr safneign 15.5. 2010 - 31.12. 2012 EDVARD MUNCH 15.5. - 5.9. 2010 SAFNBÚÐ FERMINGAR- OG ÚTSKRIFTARTILBOÐ á listaverkabókum. Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600 OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga Allir velkomnir! ÓKEYPIS AÐGANGUR www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. ÍSLAND::KVIKMYNDIR 1904-2009. Þróun kvikmyndagerðar á Íslandi. Um 100 íslenskar kvikmyndir, sem hægt er að skoða í fullri lengd. „Íslendingar“. Ljósmyndasýning Sigurgeirs Sigurjónssonar og Unnar Jökulsdóttur. Þjóðarsálin fönguð í myndum og texta. Þjóðin og náttúran. Íslensk dýralífsmynd fyrir börn og fullorðna. Myndgerð: Páll Steingrímsson. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00 -17.00. www.thjodmenning.is Byggðasafn Reykjanesbæjar: Völlurinn Bátasafn Gríms Karlssonar: 100 bátalíkön Bíósalur: Verk úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar Opið virka daga 11.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn VÍKINGAHEIMAR Skipið Íslendingur og sögusýning - Söguleg skemmtun VÍKINGABRAUT 1 - REYKJANESBÆ Opið alla daga frá 11:00 til 18:00 Sími 422 2000 www.vikingaheimar.com info@vikingaheimar.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.