SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Side 22

SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Side 22
22 9. maí 2010 Þ að hefur gengið á ýmsu í starfi Björgólfs Jóhannssonar, for- stjóra Icelandair Group, und- anfarin misseri. Og steininn tók úr þegar fór að gjósa í Eyjafjallajökli, sem varð til þess að flugsamgöngur lömuðust í Evrópu. En var brugðist of hart við af flugmálayfirvöldum? „Ég veit það ekki,“ svarar Björgólfur. „Sumir hafa haldið því fram að menn hafi verið of varkárir. Það má kannski skrifa það á þekkingarleysi, ef menn túlkuðu niðurstöður mælinga of hart. En auðvitað er mjög auðvelt að halda því fram og það sleppur á meðan ekkert kemur fyrir. Ég held að oft sé betra að fara yfir málin með hægð. Í framtíðinni hljóta menn að gera kröfur um að bestu upplýsingar sem völ er á liggi fyrir hverju sinni. Undirbúningur virðist til dæmis ekki hafa verið nægur hjá hreyflaframleiðendum, þannig að þeir gætu tekið af skarið, hvað mætti og hvað ekki. Einnig þarf að rannsaka öskumagnið í gosi af þessu tagi. Það er með þetta, eins og annað, að menn læra af reynslunni. Kannski verður staðið öðruvísi að málum í framtíðinni. Ég hef ekki hugmynd um það. En öryggiskrafan er alltaf númer eitt.“ – Umræðan hefur verið mikil í Evrópu um ábyrgð stjórnvalda? „Fjárhagslegur skaði var gríðarlegur fyrir mörg flugfélög. Það kom fram ný- verið að talið væri að 1,7 milljarðar Banda- ríkjadala hefðu tapast þessa daga sem Evr- ópa var nánast lokuð. Það setur strik í reikninginn hjá mörgum félögum. Og ekki mátti nú flugheimurinn við því.“ – Eru ríki farin að veita flugfélögum fjárhagslega aðstoð? „Einhver hafa gert kröfu um það, en ég veit ekki hvernig það þróast.“ – Hvað fannst þér um yfirlýsingar for- setans? „Mér fannst þær ekki heppilegar, bara alls ekki,“ segir Björgólfur. „Sérstaklega í ljósi þess að sérfræðingar, sem hafa vænt- anlega meiri þekkingu á þessu sviði en hann, hafa ekki látið svona stór orð fjalla um hættuna á Kötlugosi. Þeir hafa heldur ekki stigið fram og tekið undir hans orð. Auðvitað veltir maður því fyrir sér hvort það sé hans hlutverk að vera með slíkar yfirlýsingar. Hann fullyrti að það yrði Kötlugos, það væri bara spurning hvenær, og það eitt dugar til að fæla fólk frá. Þetta var klárlega mjög óheppilegt fyrir ferða- þjónustuna. Útlit var fyrir að þetta yrði með betri ferðamannasumrum, en það er ljóst að það er undir högg að sækja í því og við verðum að berjast til að láta það ræt- ast. Ég geri líka athugasemdir við yfirlýs- ingar hans í kjölfarið, en þá virtist hann gefa í skyn að þeir sem gagnrýndu um- mæli hans, gerðu það út frá skammtíma- hagsmunum. Það stenst ekki skoðun að segja það við aðila í ferðaþjónustu, sem hafa unnið markvisst að aukningu ferða- manna í landinu og ávallt með langtíma- hagsmuni að leiðarljósi, til dæmis hvað varðar sjálfbærni og að starfa í fullri sátt við náttúruna. Þetta er því á allan hátt mjög óheppilegt og síst til þess fallið að hjálpa Íslandi til lengri tíma. Það hefur ekkert með það að gera að segja sannleik- ann eða ljúga, því ég get ekkert dæmt um sannleiksgildi orða forsetans þegar hann talar um að Katla gjósi næstu 5 eða 10 árin. Ég get alveg eins fullyrt að það gjósi ekkert næstu 30 árin. Ég get líka sagt að þetta gos sé meira en æfing, því að Kötlugosið verði lítið miðað við þetta.“ – Hvernig hafa bókanir þróast? „Bara ágætlega,“ svarar Björgólfur og bætir svo við ákveðinn í bragði: „Það er auðvitað ekkert hægt að velta þessu fyrir sér núna. Gosið er nýbúið og ljóst að það varð katastrófa þegar það byrjaði, alveg eins hjá okkur og öllum öðrum. Þetta er eitt af því sem á eftir að koma upp úr hatt- inum þegar um hægist á ný. Við vorum í mjög góðri stöðu heilt yfir í fyrirtækinu og sumarið leit vel út. En nú hefur skapast óvissa um hvernig sumarið þróast. Það er of snemmt að segja til um það. Ég bind vonir við þetta markaðsátak og hef trú á að það geti snúið þróuninni við. Það er al- veg ljóst að hægt hefur mjög á straumi ferðamanna til Íslands, en það hafa líka myndast tækifæri. Þannig að maður vill ekki blása svart á vegginn. Við eigum tækifæri til að vinna okkur upp úr þessu og vekja áhugann að nýju. Og þetta á ekki bara við um Icelandair, heldur alla sam- stæðuna, líka hótelstarfsemina, ferða- þjónustuna og vöruflutningana.“ – Tækifærin fylgja þá öllu umtalinu? „Þetta var alveg einstakt. Við fáum ekki oft svona mikla umfjöllun um Ísland.“ – Geturðu slegið á skaðann sem þið haf- ið orðið fyrir vegna eldgossins? „Við höfum ekki getað slegið á hann af neinu viti. Við gáfum út að samstæðan hefði tapað 100 milljónum á dag – það er eftir að gera það upp. En eitt er skaðinn til skamms tíma og annað hvernig við spilum úr þessari stöðu til langs tíma. Á því veltur heilmikið, bæði staða okkar félags og einnig þjóðarbúsins. Sem betur fer ætlar ríkisstjórnin að taka þátt í þeirri vinnu og koma af fullum krafti inn í markaðs- setningu á Íslandi. Stjórnvöld munu leggja 350 milljónir inn í átakið og fyrirtæki í greininni, í ferðaþjónustu, koma með annað eins og á móti. Þannig að ráðist verður í landkynningarátak upp á 700 milljónir, sem eru engir smáaurar. Þegar svona gengur, þá hef ég fulla trú á að við náum að gera þetta að fínu ferðasumri.“ – Það hlýtur að hafa mætt mikið á starfsfólki síðustu daga og vikur? „Það er alveg með ólíkindum hvernig tókst að spila úr stöðunni hjá félaginu. Í fyrsta lagi að ná að fljúga svona mikið. Ameríka var opin og alltaf var flogið inn á staði sem opnuðust í Evrópu. Svo var stóra málið þegar Keflavíkurflugvöllur lokaðist, en þá fluttum við leiðarkerfið til Glasgow, þar sem við tókum Ameríkuvélarnar inn, og komum fólki þaðan til Evrópu. Svo höfðum við viðkomu á Akureyri. Það var enginn hægðarleikur að gera þetta og það myndaðist vertíðarstemning. Þetta er lítið félag og við höfum sagt að styrkurinn sé sveigjanleikinn. Það sannaðist þarna. Það að starfsfólkinu skyldi takast að halda leiðarkerfinu opnu sýnir að þetta það er allt í úrvalsdeild, framlínan, flugmenn- irnir, hlaðmennirnir, hvar sem fólk er í fyrirtækinu.“ – Hvernig viðbrögð fenguð þið að utan? „Það voru jákvæð viðbrögð. Mynd- skeiðið á Youtube er auðvitað frægt þegar gæinn kom inn í fréttina og sagði: „I hate Iceland!“ Auðvitað hugsa okkur einhverjir þegjandi þörfina. En ég held að Icelandair hafi almennt tekist að vinna sig í álit hjá viðskiptavinum og ég held að það hafi já- kvæð áhrif á orðsporið í framhaldinu. Það byggist náttúrlega á því, að fólk vann við gríðarlega erfiðar aðstæður, náði að leysa það mjög vel og það verður ekki gert nema með afburðafólki.“ – Endurskipulagningin á félaginu felst öðrum þræði í breytingu á skuldastöðu. Í hverju felst hún? „Við höfum sagt að félagið var of skuld- sett alveg frá fyrsta degi, þegar það kom á markað, en þá seldi FL Group þennan rekstur frá sér og inn í nýtt félag, sem þá var stofnað. Skuldsetningin var strax alltof mikil og uppbygging efnahagsreiknings- ins röng, alltof hár hluti skulda til skamms tíma. Verkefnið var að leysa úr því, en því miður tókst ekki að ljúka því ferli í tæka tíð. Það fór að hökta í bankakerfinu seinni hluta árs 2007 og lokað var fyrir fjár- mögnun árið 2008. Við höfum unnið að ýmsum lausnum allt frá falli bankanna, þannig að félagið geti staðið við sínar skuldbindingar. Að- gerðirnar eru tvíþættar, annars vegar að við tökum út eignir í félaginu og flytjum í Öryggis- krafan alltaf númer eitt Það er í mörg horn að líta hjá Björgólfi Jóhanns- syni, forstjóra Icelandair Group. Óvissan er mikil út af eldgosinu, sem setti flugsamgöngur úr skorðum um allan heim. En einnig vegna end- urskipulagningar á rekstri félagsins, breytingar á skuldastöðu og aukningar á hlutafé. Óhætt er að segja að félagið standi á tímamótum. Pétur Blöndal pebl@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.