SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Qupperneq 30
30 9. maí 2010
Sirkussýning 1998 í Húsdýragarðinum leiddi þær Lindu
Ásgeirsdóttur saman. Hér með Agnari Jóni Egilssyni.
Mamman Jóhanna Bergmann, Hrefna sjö ára, bróðir
hennar Jón Ástmundur tveggja ára og pabbinn Hall-
grímur Smári Jónsson, 1979.
H
refna Hallgrímsdóttir fæddist
1971 og ólst upp í Kópavog-
inum. Hún er dóttir þeirra Jó-
hönnu Bergmann og Hallgríms
Smára Jónssonar, en fimm árum yngri
bróðir hennar er Jón Ástmundur.
Hún gekk í Ísaksskóla og Snælandsskóla
en varð stúdent frá Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti árið 1992.
Hrefna stundaði nám í Listdansskóla
Þjóðleikhússins í 11 ár og tók þátt í ýmsum
leik- og danssýningum í Þjóðleikhúsinu frá
unga aldri. Þar fékk hún leikhúsbakteríuna
beint í æð sem leiddi til leiknáms í Flórída í
Bandaríkjunum. Hún útskrifaðist með BA-
gráðu í leiklist árið 1997 frá University of
West Florida og hefur leikið og starf-
að í Bandaríkjunum með hléum
síðan.
Fyrsta leikhlutverk hennar á Íslandi eftir
útskrift var í Hróa hetti í Húsdýragarðinum
þar sem hún kynntist Lindu Ásgeirsdóttur.
Leiðir þeirra lágu oft saman eftir það, s.s. í
Möguleikhúsinu, Leikhússportinu í Iðnó,
Syngjandi í rigningunni í Þjóðleikhúsinu og
víðar.
Árið 2004 fékk Hrefna Lindu í lið með sér
að skapa þær persónur Skoppu og Skrítlu
og síðan hafa þær farið úr einu verkefninu í
annað, sett upp leiksýningar, gert kvik-
mynd, hljómplötur, sjónvarpsþætti og
troðið upp um víðan völl í gervi þeirra
stallna.
Hrefna er gift Ingva Jökli Logasyni og eiga
þau þrjú börn, Bjart sem er átta ára, Dag
Mána sem er sex ára og Snæfríði Sól sem er
eins og hálfs árs. Sjálf segir hún að sitt
stærsta hlutverk í lífinu sé að vera mamma.
Á þjóðhátíðardaginn árið 1998 var Hrefna
fjallkonan í Kópavogi og las upp ljóð eftir
Þorstein Valdimarsson.
Hrefna gifti sig 2001 en áður héldu vinkonurnar gæsapartý eins og
venja er. F.v. Lena, Sólveig, Hrefna, Elín, Aino og Jarþrúður.
Hrefna dansaði ballett í mörg ár en hér er
hún í uppsetningu á námsárunum í Banda-
ríkjunum þar sem hún bæði lék og dansaði.
Snæfríður hittir Skrítlulega mömmu í fyrsta sinn.
Alltaf í búningum
Myndaalbúmið
Hrefna Hallgrímsdóttir hefur tekið á sig hin
ýmsu gervi í gegnum tíðina en er einna þekktust
fyrir hlutverk sitt sem hin glaðværa Skrítla.
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is
Fjölskyldan 2008: Dagur Máni, Snæfríður Sól, Hrefna, Bjartur og Ingvi Jökull.
Hrefna brá sér gjarnan í Línugervi.
Hér er hún á leið á grímuball með
Sólveigu vinkonu og Jóni bróður.
Með skólafélögum úti í Pensacola þar sem Hrefna átti síð-
ar eftir að taka upp efni í bíómynd um Skoppu og Skrítlu.
Skrítla og Skoppa: Hrefna og Linda Ásgeirsdóttir.
Tæplega tveggja ára í myndatöku hjá ömmu
á ljósmyndastofunni Asis, 1973.
Strumpur
að dimmi-
tera úr FB
1992.