SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Blaðsíða 37
9. maí 2010 37
F
jórtánda og síðasta umferð stórmótsins í Linares
á Spáni, sem sumir hafa kallað Wimbledon
skákarinnar, fór fram 10. mars 2005.
Garrí Kasparov, 41 árs gamall, var með vinn-
ings forskot á andstæðing sinn, Búlgarann Venselin Topa-
lov. Eftir 30 leiki varð Kasparov að játa sig sigraðan. Hann
gaf þá ástæðu fyrir ósigrinum að hann hefði ekki átt neina
orku eftir. Ósigurinn breytti því ekki að Kasparov varð
efstur á mótinu í níunda skipti, en síðar þennan sama dag
steig hann í pontu og tilkynnti að hann væri hættur tafl-
mennsku sem atvinnumaður og hygðist í framtíðinni
snúa sér að stjórnmálum. Indverjinn Wisvantahan An-
and, prúður maður til orðs og æðis, lét sér fátt um finnast
og sagði við sinn gamla keppinaut: „Þú ætlar sem sagt að
skipta út skákferlinum fyrir rússneska byssukúlu.“
Þetta fannst Garrí kaldranaleg kveðja.
Arftakinn Topalov
Um leið og hann yfirgaf sviðið var eins og hann kynnti til
sögunnar arftaka sinn, Búlgarann Venselin Topalov. Um
haustið 2005 kallaði alþjóðaskáksambandið FIDE saman
átta sterkustu stórmeistara heims sem tefla skyldu tvö-
falda umferð. Þegar mótið var hálfnað hafði Topalov hlot-
ið 6 ½ vinning og sigurinn var nánast í höfn, í mótslok
munaði 1 ½ vinningi á honum og næsta manni. Hann varð
þá réttmætur heimsmeistari í skák en féllst á að tefla sam-
einingareinvígi við Vladimir Kramnik, sem enn hékk á
heimsmeistaratitli PCA-samtakanna eftir sigur yfir Kasp-
arov í London 2000 og jafntefli í einvígi við Peter Leko
2004.
Hneykslismál þessa einvígis, sem fram fór í Elista í
Kalmykíu, heimalandi Kirsans, forseta FIDE, snerust um
gagnkvæmar ásakanir keppenda um tölvusvindl og tíðar
salernisferðir Kramniks. Hlaut þessi skrýtna skákveisla
síðar nafnið „Toiletgate“. Að lokum bar Kramnik sigur úr
býtum í bráðabana.
Ótvíræður heimsmeistari
Þar lauk tímabili sem hófst 1993 þegar skákheimurinn sat
skyndilega uppi með tvo heimsmeistara; FIDE var aftur
komið með full yfirráð yfir heimsmeistarakeppninni. Aft-
ur var blásið til heimsmeistarakeppni sem fram fór í
Mexíkóborg haustið 2007, fyrirkomulag með sama sniði
og tveim árum fyrr.
Þar reis Wisvantahn Anand aftur upp, en hann hafði
áður unnið heimsmeistaraeinvígi við Shirov árið 2000, og
sigraði með glæsibrag en Kramnik, sem var meðal kepp-
enda og var heitið heimsmeistaraeinvígi ef hann ynni
ekki mótið, varð í 2.-3. sæti.
Af því leiddi að haustið 2008 settust Anand og Kramnik
niður í Bonn í Þýskalandi en Kramnik tapaði án þess að fá
rönd við reist, 4 ½ : 6 ½.
Anand var þar með ótvíræður heimsmeistari og vinsæll
sem slíkur. Indverjinn er þjóðhetja í heimalandi sínu og
teflir í Búlgaríu íklæddur skyrtu með áletrun NIIT, ind-
verskra samtaka sem hafa tekið að sér auka veg skák-
arinnar í skólum landsins.
Línur skýrast
Hafi sameiningarferlið einhvern tímann þótt flókið fóru
línur að skýrast í lok apríl sl. þegar Venselin Topalov var
aftur dreginn á flot, nú sem áskorandi heimsmeistarans.
Hið magnaða regluverk sem FIDE samdi um keppnina
gerir Topalov einmitt kleift að tefla um heimsmeistaratit-
ilinn fjórum árum eftir að hann tapaði í Kalmykíu.
Á þeirri vegferð þurfti hann að vísu að vinna einvígi
gegn Gata Kamsky, sem öllum að óvörum hafði komist
lifandi frá mikilli eyðimerkurgöngu, þ.e. heimsbikarmóti
FIDE í Khanty Manyisk í Síberíu.
Saga heimsmeistarakeppninnar sl. fimm ár hefur
vissulega verið viðburðarík, en illu heilli var hið sann-
gjarna keppnisfyrirkomulag aflagt sem byggði á svæða-
mótum er náðu til allra aðildarþjóða FIDE, millisvæða-
mótum, áskorendaeinvígjum og loks heimsmeistara-
einvígi.
Silvio Danailov dularfullur
Heimsmeistaraeinvígi það sem nú stendur yfir í Sofíu,
höfuðborg Búlgaríu, er tilkomið m.a. vegna afskipta
Georgi Parvanovs, forseta Búlgaríu, sem beitti sér fyrir
því að veitt yrði ríkisábyrgð fyrir verðlaunaféð sem nem-
ur tveim milljónum Bandaríkjadala. Teflt er í sam-
komuhöll búlgarska hersins.
Topalov vann áttundu skák einvígsins sl. þriðjudag og
jafnaði þar með metin og enn var allt í járnum eftir jafn-
tefli á fimmtudag. Hann komst yfir með sigri í fyrstu ein-
vígisskákinni en Anand svaraði með því að vinna tvær
skákir og virtist hafa alla þræði í hendi sér þegar einvígið
var hálfnað. En Topalov er oft seinn í gang og þeim mun
sterkari á lokasprettinum. Það er kannski þess vegna sem
möguleikar hans á sigri eru taldir meiri auk þess sem
heimavöllurinn getur skipt máli.
Á móti kemur auðvitað hin víðtæka reynsla Anand og
fáum dylst að hann hefur til að bera meiri hæfileika til
skákarinnar en Topalov sem hefur náð svo langt, þökk sé
strangri þjálfun og hálfgerðum meinlætalifnaði, ef marka
má bók sem aðstoðarmenn Kramniks, þeir Bareev og
Levitov, tóku saman eftir einvígið fræga í Elista. Höf-
undar þeirrar bókar velta vöngum yfir því hvaða skýr-
ingar séu á því að Topalov hafi skyndilega skotist fram
fyrir helstu keppinauta sína og margoft trónað efstur á
elo-stigalista FIDE.
Helsta niðurstaða þeirra er sú að hinn áður vingjarnlegi
og hvers manns hugljúfi, Venselin Topalov, sé umsetinn
náungum af lakara taginu sem hafi mörg óhrein meðul í
pokahorninu og hiki ekki við að beita þeim. Er þar sér-
staklega nefndur til sögunnar umbinn og þjálfarinn Silvio
Danailov, maðurinn sem hleypti öllu í bál og brand í Elista
um árið. Hefur Danailov margoft mátt sitja undir grun-
semdum um ólöglegt athæfi. Í þýska dagsblaðinu Süd-
deutsche Zeitung birtist snemma árs 2007 lýsing á hátt-
erni hans á meðan Topalov sat að tafli í Wijk aan Zee í
Hollandi:
„… Danailov yfirgefur skáksalinn með reglulegu milli-
bili, hringir úr gsm-símanum, talar í nokkrar sekúndur,
kemur aftur í skáksalinn, tekur sér sæti á afsviknum stað
þar sem hann getur séð Topalov og upphefur einhverjar
handahreyfingar …“
Skæruhernaður, hótanir og njósnir
Í samanburði við ýmsa aðra heimsmeistara sögunnar er
Anand hvítþveginn engill. Ekki finnst eitt einasta dæmi
þess að hann hafi reynt að slá andstæðing sinn út af laginu
með öðru en góðum leikjum á skákborðinu en hann er
vissulega hugaður að tefla þetta einvígi í byggingu sem er
í eigu búlgarska hersins. Því heimsmeistaraeinvígi eru
enginn barnaleikur. Þau einkennast af mikilli tortryggni,
pukri, sálfræðilegum skæruhernaði, hótunum, njósnum
og jafnvel mútum.
Á topp 10-listanum yfir kostulegustu uppákomur
þessara merkilegu viðburða situr sá atburður þegar ljós-
hjálmur var tekinn niður og stólar hlutaðir sundur undir
lok einvígis Fischers og Spasskís í ágúst 1972. Þar á eftir
kemur sennilega hinn magnaði gambítur Viktors Korts-
nojs að skarta speglagleraugum þegar hann tefldi við Kar-
pov í Baguio city 1978. Dulsálfræðingurinn Zoukhar var af
sovéskum íþróttamálayfirvöldum sendur til Filippseyja
og hafði það hlutverk að stara á Kortsnoj tímunum sam-
an.
Fyrsti sovéski heimsmeistarinn Mikhail Botvinnik
krafðist þess að biðleikjum yrði stungið í tvö umslög,
samkvæmt líkindafræðinni væri eitt umslag líklegra til að
„fara á flakk“ en tvö. Hann lagði einnig dýpri merkingu í
það en aðrir menn hvenær ráðlegt var að mæta á skákstað
með kaffibrúsa. Kasparov bar á sér sérstakan verndargrip
þegar hann tefldi einvígin við Karpov á níunda áratugn-
um; hann áleit sem svo að í kringum andstæðinginn væri
allt of mikið af „orkusugum“ og sjálfur væri Karpov ótta-
legur blóðmaur.
Sá er munur á einvíginu í Sofíu og þeim sem fram fóru á
seinni helmingi síðustu aldar að nú eru aðeins tefldar 12
skákir, lengsta einvígi skáksögunnar var einvígi Karpovs
og Kasparovs 1984 -85 en því lauk án niðurstöðu eftir 48
skákir og meira en fimm mánaða taflmennsku. Verði jafnt
eftir tólftu skákina á mánudag munu Anand og Topalov
útkljá málin með fjórum atskákum. Þar er Anand al-
mennt talinn standa betur að vígi.
Reuters
Anand og
Topalov
takast á
Það líður að úrslitastund í ein-
vígi Anands og Topalovs um
heimsmeistaratitilinn. Hér er
fjallað um keppendurna og
tæpt á litríkri sögu heims-
meistaraeinvígja í skák.
Helgi Ólafsson
„Toiletgate“ var einvígi Kramniks og Topalovs kallað.
Anand hafði betur gegn Shirov í einvíginu í Teheran árið 2000.
Karpov fylgist með
skákunum.
’
Því heims-
meistaraein-
vígi eru eng-
inn barnaleikur.
Þau einkennast af
mikilli tortryggni,
pukri, sálfræðileg-
um skæruhernaði,
hótunum, njósnum
og jafnvel mútum.“