SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Síða 45
26. september 2010 45
Lífsstíll
Þ
að er skemmtileg tómstundaiðja að fylgjast
með fólki, horfa á fólk, tala við fólk og hlusta
á fólk. Þetta hljómar sannarlega dálítið und-
arlega á prenti en lítið í eigin barm. Hverjum
finnst ekki gaman að sitja t.d. á kaffihúsi og fylgjast
með iðandi mannlífinu fyrir utan? Það bæði dreifir
huganum og gefur mann innsýn í
hvern þann stað sem dvalið er á fyrir
sig. Stundum getur maður alveg lifað
sig inn í það sem er að gerast og er
farinn að móta aðstæður og samtöl í
huganum. Jafnvel farinn að hreyfa
varirnar með þannig að aðrir gestir
kaffihúsins eru farnir að horfa
skringilega á mann …
En það er bara svo gaman að fylgj-
ast með fólki og sjá það eiga í sam-
skiptum hvað við annað, heilsast,
kveðjast, fagna, rífast og þar fram eftir götunum. Það
getur líka verið áhugavert (og örugglega frábær hug-
myndabanki fyrir rithöfunda) að fylgjast með fólki á
flugvöllum.
Þar eru ástvinir jafnan að heilsast eða kveðja og
verður oft mikill handagangur í öskjunni við slíkt.
Ýmist skellihlegið eða grátið nema hvort tveggja sé á
víxl. Sum samskipti eru óvænt á meðan önnur eru
næstum eins og fyrirfram æft atriði á milli tveggja eða
fleiri einstaklinga sem þekkst hafa í lengri tíma. Það er
bæði gaman og gott að þekkja fólk sem maður heldur
enn góðu sambandi við þó allir hafi breyst og þroskast
í sína átt.
Við ræddum þetta einmitt í notalegu hádegisverðar-
boði nýlega menntaskólavinkonurnar. Allar höfum við
breyst og þroskast í gegnum árin,
farið ólíkar leiðir í lífinu en eigum
það sameiginlegt að leita mikið hver
til annarar og halda reglulegum
samskiptum sem bæði næra okkur
og efla.
Einhvern veginn höfum við allar
farið á bólakaf í lauginni en samt
komið á margan hátt upp á sama
stað við bakkann. Við tölum mikið
og oft hver yfir aðra, höldum jafnvel
uppi nokkrum samræðuþráðum í
einu en þó tekst okkur alltaf að tengja þræðina saman
og veltast um af hlátri eða gapa af undrun, reiði eða
einstaka sinni hneykslun, enda erum við allar sið-
prúðar og dannaðar ungar konur. Þannig líða ljúfar
stundir yfir góðum mat og drykk og yngsti meðlim-
urinn hjalar eða grætur undir á meðan. Nú fer nefni-
lega að koma að okkur að búa til næstu kynslóð sem
mun vefja sig saman með ótal mismunandi þráðum,
glitrandi og glansandi, litríkum og fallegum.
Litríkir
þræðir
Fólk er forvitið um annað fólk
og þannig hefur það löngum
verið. Mannleg samskipti eru
ákveðin list, oftast skemmtileg
og gefandi en stundum líka
óvænt og flókin.
María Ólafsdóttirmaria@mbl.is
’
Stundum getur
maður alveg lif-
að sig inn í það
sem er að gerast og er
farinn að móta að-
stæður og samtöl í
huganum. Sumum finnst óþægilegt að brydda upp á styttrisamræðum, t.d. þegar beðið er eftir strætó eða
þegar fólk er einhvers staðar þar sem það þekkir
fáa. En ósköp lítið þarf til að gera mikið, veðrið er
alltaf gott umræðuefni eða bara eitthvað sniðugt
sem var í sjónvarpinu í gær. Prófaðu þetta nokkrum
sinnum og þá ættir þú að vera kominn í góða æf-
ingu við að spjalla um daginn og veginn. Sé hins
vegar verið að tala í fyrsta skipti við einstakling
sem þú hrífst af þá bregst sjaldnast að bregða fyrir
sig fyndnari fætinum ef svo má segja.
Um daginn og veginn
Skólastúlkur á skemmtilegu spjalli.
Í dag eiga flestir tölv-
ur og margir nota
mikið samskiptaforrit
á borð við msn og
Facebook. Sveitasím-
inn heyrir fortíðinni til
og í staðinn fyrir að
senda skeyti eða
handskrifað bréf
sendum við sms með
nýjustu fréttum og
setjum skilaboð á
vegginn okkar á Face-
book. Þó er gott að
gleyma ekki al-
gjörlega gömlu, góðu
samskiptaháttunum
eins og að hringja í heimasímann eða bara kíkja í
stutta heimsókn. Það er nefnilega alls ekki eins að
eiga samskipti í gegnum tölvu eða síma og augliti
til auglitis. Gleymum okkur ekki algjörlega í
tækninni og reynum líka að sjá framan í hvort ann-
að öðru hvoru til að efla tengslin, rabba saman og
fá nýjustu fréttir. Það þarf ekki að tjalda öllu til og
halda veislu heldur er alveg nóg að fara t.d. saman
út að ganga, elda og borða eitthvað einfalt saman
eða jafnvel sitja í rólegheitunum í heita pottinum.
Góðar samskiptaleiðir
Margir eru næstum alltaf í far-
símanum.
Stundum er sagt að eitt bros geti
dimmu í dagsljós breytt og það er
sannarlega rétt. Fallegt bros til þeirra
sem við mætum lífgar upp á daginn
og gefur frá sér vinsamlegri skilaboð
en ef maður grettir sig og setur í
brýrnar.
Til eru ýmiss konar skemmtilegar
staðreyndir um bros og hér fylgja með
nokkrar slíkar.
Brostu framan í heiminn
Bros er þekkt um víða veröld sem
tákn fyrir hamingju og þekkist sem
slíkt í nærri öllum samfélögum heims.
Til eru yfir 18 tegundir af brosum sem
notuð eru við mismunandi samfélags-
legar aðstæður. Brosið getur bæði
verið notað til að heilsa en líka til að
tjá skilning viðkomandi á einhverju
málefni. Fleiri vöðva þarf til að búa til
grettu en bros en þó þarf allt frá 5 til
53 vöðva í að kalla fram bros. Brosið
losar líka um endorfín í líkamanum og
lætur manni líða betur, jafnvel þó að
brosið sé ekki ekta. Maðurinn er
fæddur með þann eiginleika að geta
brosað og brosið er því ekki eitthvað
sem við hermum eftir. Þetta sýnir sig
meðal annars í því að jafnvel blind
ungbörn brosa. Einnig hefur það sýnt
sig að ungbörn halda frekar upp á
brosmilt fólk. Svo er hægt að lesa ým-
islegt út úr brosinu en fólk getur oft
greint á milli þess hvort um alvöru
eða tilbúið bros er að ræða með því
að líta í augu viðkomandi.
Brostu framan
í heiminn
Litlum krílum líkar betur að láta brosa framan í sig.