SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Síða 48

SunnudagsMogginn - 26.09.2010, Síða 48
48 26. september 2010 F yrir nokkrum árum fékk stúlkubarn nokkurt í Noregi það verkefni hjá kennara sínum að rita nokkur orð um Viktoríu drottningu í Englandi. Stúlkan hóf verk sitt með þessum orðum: Viktoría var lengsta drottning í Evr- ópu. Þetta þótti að vonum ekki góð vísa. Viktoría var að sögn einhver alstysta drottning veraldar – en um það snerist náttúrlega ekki lýsing stúlkunnar. Það sem hún hafði í huga var að benda á að Viktoría drottning hafði ríkt öðrum drottningum lengur. Það sem henti stúlkuna var að hún ruglaði saman tveimur orðflokkum, lýsingarorði og at- viksorði. Enginn núlifandi Íslendingur hefur komist hjá því einhvern tíma æv- innar svo vitað sé. Orðin, sem brengl- uðust í ritun stúlkunnar, voru lýsing- arorðið langur og atviksorðið lengi. Ólánsamur íþróttaritari villtist um daginn í rangölum málfræðinnar og gerði atviksorðið oft að lýsingarorði þegar hann greindi frá því að einhver snilling- urinn hefði komið oftastur fyrstur í mark. Lýsingarorðið oftur oftari oftastur verður víst seint viðurkennt sem falleg viðbót í móðurmálinu. Þegar ég fylgdi syni mínum til sunnu- dagaskólans í gamla daga sungum við hátt og snjallt og af sannfæringu Jesús er besti vinur barnanna og sem betur fer eiga blessuð börnin marga vini. En óvin- irnir láta sig heldur ekki vanta. Meðal þeirra ófyrirleitnustu er íslenska mál- fræðin þegar hún er illa kennd. Foringi óvinahersins þar er atviksorðið. Ekki síst eru atviksorðin illviðráðanleg þegar í ljós kemur að stundum er ekki annað að sjá en þau geti oft verið lýsing- arorð og hefur mörgu saklausu barninu brugðið illilega við þau ótíðindi. Margir munu enn minnast þess er ís- lenskukennarinn benti á að ýmist gæti t.d. orðið hátt verið lýsingarorð eða at- viksorð: Fjallið er hátt: hátt er lýsingarorð Kristinn Sigmundsson syngur hátt: hátt er atviksorð. Nú þýddi ekkert að benda á að orðið, sem lýsti söng Kristins, stigbreyttist: Kristinn söng hátt, Kristinn söng hærra, Kristinn söng hæst – og því hlyti þetta hátt að vera lýsingarorð. Kennarinn varðist fimlega og tilkynnti að fjöldi at- viksorða stigbreyttist á sama hátt og lýs- ingarorð. Það þarf sterk bein til að fallast ekki hendur við slíkar fréttir. Atviksorðin eru það sem kallað er op- inn orðflokkur, þ.e. hann getur sífellt bætt við sig nýjum orðum. Þetta eðli at- viksorðanna hafa margir, ekki síst ung- lingar, fært sér í nyt á skapandi hátt og fært okkur ný atviksorð eða dustað rykið af gömlum og úreltum. Þannig fengum við atviksorðið ýkt fyrir nokkrum árum og gátum þá t.d. sagt: Þessi kvikmynd er ýkt leiðinleg. Segja má því með sanni að ný atviksorð komi á færibandi. Sum komast í tísku um skeið eins og útvíðar gallabuxur, en verða síðan hallærisleg rétt eins og galla- buxurnar og falla í gleymsku og dá. Nokkur festast í sessi. Sumar nýsmíðarnar orka tvímælis eða eru hörmulega (ýkt) ljótar, ekki síst sú að bæta viðskeytinu -lega við ágæt nafnorð til að mynda atviksorðið. Um slíkt höfum við hundruð dæma, t.d.: Reynslulega stendur Jón vel að vígi. Fótboltalega er Fram í góðum málum. Markaskorunarlega stendur KR vel. Gardínulega séð er þessi stofa falleg. Þetta eru náttúrlega dæmi um ljóta notkun tungunnar. En viti menn! Stund- um geta menn fært sér í nyt það sem óhæft er talið – og komið á óvart. Dæmi þess er vísa eftir Benedikt Gröndal: Mér er sem ég sjái hann Kossút á sinni meri reka hross út. Sína gerir svipuna upp vega séraStefánsáMosfellilega. Sumir telja síðustu línuna lengsta at- viksorð á Íslandi – eða heiminum. Orðflokkadrættir ’ Lýsingarorðið oftur oftari oftastur verður víst seint viðurkennt sem falleg viðbót í móð- urmálinu. Lengsta drottning í Evrópu? Tungutak Þórður Helgason thhelga@hi.is Hvort söng Kristinn hátt, hærra eða hæst? H ann er auðþekkjanlegur innan um höggmyndirnar í Listasafni Sigurjóns Ólafs- sonar. Hárið úfið, augun skörp. Erlingur Jónsson er kominn heim frá Noregi með yfirlitssýningu á verkum sínum í farteskinu. Og stað- setningin er engin tilviljun, Sigurjón heitinn var lærimeistari og velunnari Erlings á árum áður. Um hann þarf Er- lingur aðeins að hafa eitt orð: „Ynd- islegur“. Yfirskrift sýningarinnar er til- vitnun í meistarann: „Erlingur minn, hvað ertu nú að gera?“ og þykir Birg- ittu Spur, forstöðukonu safnsins, hún hæfa tilefninu. „Með hversdagslegri setningu er lýst einstöku sambandi milli þessara tveggja listamanna, trausti, vináttu og skilningi, og því sem ekki er hægt að segja með orðum en stundum í höggmyndum,“ segir Birgitta í aðfaraorðum í sýningarskrá. Erlingur lítur svo á að hann standi í ævinlegri þakkarskuld við meistara sinn og í seinni tíð hefur hann unnið gott starf við að tryggja að mörg verka Sigurjóns öðlist framhaldslíf í göfugu og veðurþolnu efni. Erlingur áréttar að hann hafi lítið þurft fyrir sýningunni að hafa, Birgitta hafi sett hana upp. „Hefði ég gert það væri hún mun ruglingslegri,“ segir hann kíminn. Fimmfaldur Fönix Við nemum fyrst staðar við mikið verk í neðri sal safnsins, Fuglinn Fönix. „Það þekkja allir söguna um fuglinn Fönix sem reis úr rústunum. Hérna legg ég út af henni,“ útskýrir Erlingur. „Fuglarnir eru fimm eins og heimsálf- urnar og sansarnir. Þetta gætu líka verið manngerðar orrustuþotur sem óskandi væri að flygju fram á við inn í betri heim. Vonandi verður líka fljót- lega hægt að spegla efnahagsbatann í verkinu.“ Á efri hæð safnsins kennir margra grasa. Þar er guðinn Njörður sem þarf ekki að bíða eftir byr eins og kóng- arnir, heldur blæs sjálfur í sín segl. Það er heppilegt. Þar er líka brjóstmynd af Vigdísi Finnbogadóttur. „Stórmerkileg kona,“ segir Erlingur. Svo er það lágmynd af sjálfu nób- elsskáldinu sem er í miklum metum hjá listamanninum. „Ég kynntist stíl- snilld Halldórs fyrst tíu ára gamall, las þá formála hans að myndabók eftir Kjarval. Þar er hermt af draumi vetrarrjúpunnar um þetta huglæga og hlutlæga. Það er svo merkilegt að ég skildi hvað hann var að fara og fannst sjálfum að meira væri að marka hið huglæga og hefur fundist það allar göt- ur síðan. Börn skynja þessa hluti oft vel og eru jafnvel móttækilegri en hinir fullorðnu.“ Eins og að eignast stóran bróður Upp frá þessu las Erlingur allt sem Halldór Laxness hafði skrifað. „Það var eins og ég hefði eignast stóran bróð- ur,“ segir Erlingur sem kynntist nób- elsskáldinu persónulega síðar og sótti það reglulega heim á Gljúfrastein. Það eru ekki bara fjölbreytt efnistök sem vekja athygli á sýningunni, heldur ekki síður fjölbreytt efni. „Mér er alveg sama í hvaða efni ég vinn. Það eru ekki síst áhrif frá Sigurjóni. Hann var af- Að spyrja efnið Yfirlitssýning á verkum Erlings Jónssonar myndhöggvara verður í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar, lærimeistara Erlings, til 28. nóv- ember. „Mér er alveg sama í hvaða efni ég vinn,“ segir hann. „Það eru ekki síst áhrif frá Sigurjóni. Hann var afskaplega forvitinn í sambandi við allt efni. „Erlingur minn, þú verður bara að spyrja efnið,“ var hann vanur að segja við mig.“ Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Lesbók

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.