Morgunblaðið - 28.01.2010, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 28.01.2010, Blaðsíða 45
28. jan. Borgarholtsskóli 29. jan. Verzlunarskólinn 3. feb. Fjölbraut Garðabæ 4. feb. Iðnskólinn Hafnarfirði 5. feb. Menntaskólinn Hamrahlíð 8. feb. Fjölbrautaskólinn Ármúla 9. feb. Tækniskólinn 10. feb. Listaháskólinn 11. feb. Háskólinn í Reykjavík 15. feb. Fjölbraut Sauðárkróki 16. feb. Verkmenntaskólinn Akureyri 17. feb. Menntaskólinn Akureyri 18. feb. Menntaskólinn Egilsstöðum 19. feb. Verkmenntaskólinn Neskaupstað 22. feb. Bifröst 23. feb. Hvanneyri 24. feb. Fjölbraut Akranesi 25. feb. Fjölbraut Suðurnesja 26. feb. Fjölbraut Suðurlands 2. mars Menntaskólinn Ísafirði 3. mars Menntaskólinn Hornafirði 4. mars Menntaskólinn Laugarvatni 8. mars Menntaskólinn Hraðbraut 9. mars Menntaskólinn í Reykjavík Dagskráin framundan MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2010 Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is BUBBI Morthens fagnar þrjátíu ára útgáfu- afmæli í ár en það var árið 1980 sem fyrsta sólóplata hans, Ísbjarnarblús, kom út. Í til- efni þessara merku tímamóta hefur Bubbi ákveðið að fara aftur í ræturnar og heim- sækja mennta-, framhalds- og háskóla um allt land. Þar mun hann koma fram í hádeginu með kassagítarinn og spila nokkur lög af ferli sínum. Hádegistónleikaröðin hefur hlotið nafnið Rætur og vísar beint í tilgang ferð- arinnar, þ.e.a.s. að fara aftur í ræturnar. Hvað skiptir máli? „Það fara næstu þrír mánuðir í þetta,“ seg- ir Bubbi vígreifur. „Fimm dagar í viku. Svona ákvað ég að fagna útgáfuafmælinu, m.a., en fleiri viðburðir því tengdir eru svo í farvatn- inu. Ég vildi frekar gera þetta en fara í Laugar-dalshöllina sem hefði kannski legið beint við. Eins og nafnið á röðinni gefur til kynna er ég að fara í ræturnar, svona byrjaði þetta allt saman. Ég ákvað að rifja það upp um hvað þetta snýst nú allt saman, leika lög sem segja eitthvað, hafa boðskap. En ég hef reyndar ekki langan tíma að spila úr, ég treð upp í hádegishléinu.“ Bubbi þræddi skólana á líkan hátt á sokka- bandsárunum, nokkuð sem hann segir hafa skipt gríðarlegu máli. „Þarna eru tengslin við kvikuna og gras- rótina. Í dag er eflaust slatti af krökkum sem hefur ekki séð mig á tónleikum og veit ekki hversu góður ég er. Ég og gítarinn erum eins og herdeild.“ Blaðamaður kímir í gegnum símann en Bubba er fúlasta alvara. Heildarmyndin „Án gríns. Þetta er enginn gorgeir, ég lít á þetta sem staðreynd. Ég er einfaldlega góður í því sem ég geri. Lögin sem ég er svo að spila byggjast á gömlum grunni blús- og þjóðlaga; ég tek t.d. lag eftir Robert Johnson og svo eitthvað af kunnum lögum eftir mig líka.“ Bubbi segist hafa verið spurður að því hvernig hann tími þessu, að halda ókeypis tónleika, og hvort það sé ekki óheyrilegur kostnaður við þetta. Hann segir að þeir sem þannig tali sjái ekki heildarmyndina. „Þetta snýst ekki alltaf um aðgangseyrinn, þetta snýst um stærri hluti. Ferill minn byggist á því að fólk hefur í gegnum tíðina komið og hlustað á mig. Í upphafi lék ég í öllum plássum landsins fyrir lítinn sem engan pening en með því var ég um leið að byggja upp fyrir framtíðina.“ „Ég og gítarinn erum eins og herdeild“  Bubbi Morthens heimsækir tugi skóla á næstu vikum  Fríir hádegistónleikar þar sem Bubbi fer aftur í ræturnar  Með þessu fagnar hann 30 ára útgáfuafmæli en fleiri viðburðir eru væntanlegir Fullt Bubbi spilaði í FB í gær og eins og sjá má var salurinn sneisafullur. Á kunnuglegum slóðum Bubbi Morthens atast kerknislega í ungum FB-ingi. Morgunblaðið/RAX Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is „ÞETTA eru fyrstu plöturnar sem ég gaf út hérlendis, ’91 og ’92,“ segir Kristján Krist- jánsson, KK, aðspurður um tildrög tón- leikanna. „Þær skoruðu hátt í valinu um hundrað bestu plötur Íslandssögunnar og þess vegna var ákveðið að kýla á þetta. Við leikum þær í heild sinni, og gerum hlé á milli.“ Allir upprunalegir meðleikarar KK verða með, utan Sigtryggur Baldursson sem er á ferð Emilíönu Torrini. „Við ætluðum að sjálfsögðu að taka þær í réttri röð en verðum að snúa henni við þar sem Matti Hemstock er fastur með Sinfón- íuhljómsveitinni að spila Jón Leifs,“ segir KK og kímir. „Hann á víst að slá fimmtán takta rétt undir lokin, þannig að hann kem- ur ekki í hús fyrr en hálftíu. Tónleikarnir byrja níu.“ KK á ekki von á því að hann taki fleiri plötur sínar sömu tökum og það liggi líka fleiri ástæður að baki tónleikunum en hann nefndi í upphafi. „Plöturnar höfðu verið ófáanlegar um hríð og JPV endurútgaf þær í fyrra í fal- legum „digipack“-umslögum. Ég lofaði svo tónleikum í staðinn!“ Heppinn maður á beinni leið Morgunblaðið/ Jim Smart Höfundurinn Lucky One og Bein leið mörk- uðu fyrstu skref KK inn í íslenskt tónlistarlíf. KK spilar plöturnar Lucky One og Bein leið í heild sinni á Rósenberg í kvöld og á morgun „BJARNFREÐARSON KOM MÉR EKKI LÍTIÐ Á ÓVART. MÉR FANNST HÚN GEGGJUÐ!“ KVIKMYNDIR.IS-T.V. GEORG, ÓLAFUR RAGNAR OG DANÍEL ERU KOMNIR Í BÍÓ! BJARNFREÐARSON HHHH MEINFYNDIN... – FRÉTTABLAÐIÐ/ BERGSTEINN SIGURÐSSON HHHH ÞAÐ VAR LAGIÐ! – DV/DÓRI DNA BYGGT Á HINNI GRÍÐARLEGU VIN- SÆLU BÓKASERÍU STEPHENIE MEYER YFIR 60.000 GESTIR FRÁBÆR MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Stórkostleg teiknimynd þar sem Laddi fer á kostum í hlutverki ljósflugunnar Ray Frá höfundum Aladdin og Litlu hafmeyjunnar kemur nýjasta meista- raverk Disney SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG SELFOSSI Frá höfundi SHREK FRÁBÆR TEIKNIMYND ÞAR SEM SVEPPI FER Á KOSTUM Í HLUTVERKI LEMMA Sýnd með íslensku tali - SVEPPI - BJÖRGVIN FRANS - GÓI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI Í BEINNI ÚTSENDINGU FRÁ NATIONAL THEATRE Í LONDON 30. JANÚAR KL. 14.00 Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI MIÐASALA Á MIDI.IS OG Í MIÐASÖLU SAMBÍÓANNA Nation byggt á sögu eftir Terry Pratchett aðlagað af Mark Ravenhill LEIKRIT Í BEINNI ÚTSENDINGU Á STÓRA TJALDIÐ! 30. janúar 2010 Frá sviði á stóra tjaldið í Sambíóunum Kringlunni beint frá National Theatre, London www.ntlive.com / KEFLAVÍK SHERLOCK HOLMES kl. 8 -10:40 12 BJARNFREÐARSON kl. 8 L SORORITY ROW kl. 10:20 16 SHERLOCK HOLMES kl. 8 - 10:30 12 UP IN THE AIR kl. 8 - 10 L SHERLOCK HOLMES kl. 8 - 10:40 12 MY LIFE IN RUINS kl. 8 L BAD LIEUTENANT: PORT OF CALL kl. 10 16 / SELFOSSI/ AKUREYRI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.