Morgunblaðið - 28.01.2010, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 2 8. J A N Ú A R 2 0 1 0
STOFNAÐ 1913
22. tölublað
98. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«KARLATÍSKAN SÝND Í PARÍS
DÖKKIR EN STUNDUM
MJÖG LITAGLAÐIR
« EINAR KÁRI Á KÖFUNARNÁMSKEIÐI
Í herbergi með Hol-
lendingi og Breta
6
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
ÓSKAR Sigurðsson, skiptastjóri Fons hf., kynnti
helstu kröfuhöfum þau riftunarmál sem hann hefur
nú stefnt fyrrverandi eigendum Fons og tengdum
aðilum vegna. Samtals nema kröfur skiptastjóra
tæpum níu milljörðum króna og stefnurnar eru á
annan tug.
Pálmi Haraldsson, fyrrum meirihlutaeigandi
Fons, sagði í gærkvöldi að hann teldi stefnur skipta-
ráðanda á hendur sér og Feng ehf. sorglegar. „Frá
mínum bæjardyrum séð er það algjörlega augljóst
mál að þrotabúið mun aldrei vinna þessi mál á hend-
ur mér,“ sagði Pálmi. „Menn skulu ekki gleyma því
að í þrotabúi Fons voru á fimmta milljarð króna og
því eftir miklu að slægjast fyrir bústjóra að borða
kjötið sem er á beinunum,“ sagði Pálmi einnig.
Stærstu einstöku kröfurnar eru, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins, riftunarkröfur upp á
um 7,8 milljarða króna. Krafist er riftunar á arð-
greiðslu upp á 4,2 milljarða króna vegna ársins
2006, sem innt var af hendi 14. september 2007, og
endurgreiðslu á arðinum. Krafist er riftunar á sölu
Fons á breska flugfélaginu Astraeus, sem flýgur
fyrir Iceland Express, til Fengs ehf. upp á 50 þús-
und bresk pund og að Fengur endurgreiði raunvirði
félagsins, sem skiptastjóri lét verðmeta. Endur-
greiðslukrafan hljóðar upp á 3,5 milljarða króna.
Jón Ásgeir Jóhannesson er krafinn um endur-
greiðslu á einum milljarði króna, sem Fons greiddi
honum inn á einkareikning hans sumarið 2008.
Þá er gerð krafa á Pálma Haraldsson um að hann
endurgreiði 47,4 milljónir króna, sem greiddar voru
til félagsins Chalk Investment, sem skráð er á Tor-
tola. Þær greiðslur munu hafa verið vegna leigu á
einu eign Chalk Investment, íbúð í London, sem
Pálmi hefur haft afnot af og búið í undanfarin ár.
Stór krafa á Jón Ásgeir
Skiptastjóri Fons hefur stefnt sex manns og krefst að níu milljarðar króna verði endurgreiddir
Jón Ásgeir krafinn um endurgreiðslu á einum milljarði sem Fons greiddi inn á einkareikning hans
Jón Ásgeir Jóhannesson
» Stærstu kröfurnar á Pálma
» Lét greiða fyrir sig húsaleigu
» Málin verða þingfest í febrúar
Pálmi Haraldsson
Skiptastjóri Fons stefnir | Viðskipti
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
ÍSBJÖRN var felldur í Þistilfirði í
gær eftir að leyfi hafði fengist hjá
umhverfisráðuneytinu, að sögn lög-
reglunnar á Þórshöfn. Dýrið sást
fyrst við býlið Sævarland.
„Hann var frekar lítill og mér
fannst hann óttalega ræfilslegur,“
segir Svanhvít Geirsdóttir á Sævar-
landi. „Ég heyrði engin hljóð í hon-
um við fjárhúsið, en hann var ekki
nema um 10 metra frá mér og ég
flúði inn í íbúðarhúsið, ég ætlaði alls
ekki að verða á vegi hans. Maður
veit aldrei hvernig þessi dýr bregð-
ast við og þau eru fljót að hlaupa.
Hann fór í kollhnís hérna í göml-
um rabarbaragarði við fjárhúsið,
hefur víst rekist á girðingu. Hann
hnaut bara, þetta var ekki leikur í
honum, ég horfði á hann út um
gluggann.“
– Veltirðu fyrir þér hvort dýrið
væri mjög soltið og gæti reynt að
komast inn í húsið?
„Já, ég passaði að hann myndi ekki
geta náð mér. Ég fór upp á háaloft
þegar ég var búin að hringja, ég hélt
að hann ætlaði að dyrunum, þangað
upp hefði hann ekki komist.“ | 4
„En hann var ekki nema um 10
metra frá mér og ég flúði inn“
Svanhvít Geirsdóttir beið uppi á háalofti
ef ísbjörninn skyldi reyna að komast inn
Ljósmynd/Gréta Bergrún Jóhannesdóttir
Endalokin Björninn var skotinn skömmu fyrir fjögur við eyðibýlið Ósland sem er nokkra kílómetra austan við Sævarland í Þistilfirði.
Fiskifræðingar og fulltrúar út-
gerðar ræddu ástand loðnustofns-
ins á fundi í gær. Friðrik J. Arn-
grímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ,
sagði að fundinum loknum að hann
væri bjartsýnni en áður á að loðnu-
kvóti yrði gefinn út næstu daga.
Fiskifræðingar telja að hrygn-
ingarstofn þurfi að mælast yfir 400
þúsund tonn til að veiðar verði
leyfðar. Í byrjun mánaðarins mæld-
ust 355 þúsund tonn. aij@mbl.is
Útgerðarmenn bjartsýnni
á loðnukvóta
Ríkisendurskoðun verður falið að
fara yfir fjármál Álftaness og
hvernig staðið hefur verið að
rekstri sveitarfélagsins síðustu ár-
in.
Kristján L. Möller, samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra, segir að
eftirlitsnefnd með fjármálum sveit-
arfélaga sé nú að fara yfir sparnað-
artillögur sveitarfélagsins. Ljóst sé
að staða þess sé alvarleg. »14
Ríkisendurskoðun mun
skoða fjármál Álftaness
Fons fékk 10,2 milljarða kúlulán
í desember 2007 til að kaupa
mikið magn af hlutabréfum í FL
Group. Glitnir hafði fengið bréf-
in í fangið í kjölfar gjaldþrots
fjárfestingafélagsins Gnúps.
Pálmi Haraldsson segir í sam-
tali við Morgunblaðið að staða
Fons hafi, á þeim tímapunkti
sem lánið var veitt, verið afar
sterk. Glitnir hafi leitað logandi
ljósi að kaupanda og niður-
staðan hafi orðið sú að Fons
keypti bréfin, en Glitnir fjár-
magnaði kaupin að fullu.
10,2 milljarða kúla
Netútgáfur
ensku blaðanna
Daily Mail og
The Guardian
sögðu í gær-
kvöldi að svo
virtist sem Tott-
enham Hotspur
hefði borið sigur
úr býtum í
slagnum við
West Ham um
Eið Smára Guðjohnsen. Daily Mail
segir að reiknað sé með því að
Eiður gangist undir læknisskoðun
hjá Tottenham í dag og félagið fái
hann lánaðan frá Mónakó út þetta
keppnistímabil. Franska félagið
hafi samþykkt að greiða stóran
hluta launa Eiðs sem er sagður fá
2,5 milljónir punda í árslaun.
»Íþróttir
Eiður Smári í læknisskoðun
hjá Tottenham
Eiður Smári
Guðjohnsen