Morgunblaðið - 28.01.2010, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.01.2010, Blaðsíða 14
14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2010 FRÉTTASKÝRING Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is SVEITARSTJÓRN Álftaness samþykkti drög að „tillögum bæjarstjórnar um fjárhagslegar að- gerðir“ á tæplega átta klukkustunda löngum fundi sínum á þriðjudagskvöldið. Skýrslan, sem Pálmi Þór Másson afhenti eftirlitsnefnd um fjár- mál sveitarfélaga í gær, gerir ráð fyrir verulegum niðurskurði auk skattahækkana. Með því móti á að auka ráðstöfunartekjur sveitarfélagsins um 228 milljónir kr. í ár og 291 milljón kr. árið 2011. Þær aðgerðir duga þó ekki til að sveitarfélagið geti skilað hallalausum rekstri eða staðið við allar sínar skuldbindingar, enda hefur áður verið talið að útgjöld sveitarfélagsins þyrftu að minnka um 900 milljónir á þessu ári, miðað við fyrri tekjur, ætti það að standa undir skuldbindingunum. Samkvæmt skýrslu KPMG þarf sveitarfélagið annaðhvort að selja eignir eða fá aukin framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Skuldir og skuld- bindingar þessa 2.500 manna sveitarfélags nema samtals 7,4 milljörðum kr. Þar af nema skuld- bindingar sem stofnað var til við Búmenn, Ris og Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. 4,1 milljarði kr. og mælir endurskoðunarfyrirtækið með að Álfta- nes leiti allra leiða til að losna undan þessum skuldbindingum. Stærsta og erfiðasta skuldbind- ingin er við síðastnefnda fyrirtækið, en tæplega þriggja milljarða króna skuld er tilkomin vegna leigu á íþróttahúsi og sundlaug. Skuldbreytt í langtímalán Í skýrslunni er einnig lögð til skuldbreyting skulda í langtímalán og mælir KPMG með að sveitarfélagið forðist að óska niðurfellingar skulda með nauðasamningi. „Það þurfa að koma til margþættar aðgerðir, segir Pálmi Þór, „og við værum ekki að setja fram aðgerðir sem við héldum að gengju ekki eft- ir.“ Gerð er tillaga um að öllum skuldum Álftaness við Arion, viðskiptabanka sveitarfélagsins, verði skuldbreytt í 23 ára lán sem eingöngu verði með vaxtagreiðslum næstu þrjú árin. Skammtímaláni hjá Lánasjóði sveitarfélaga verði þá skuldbreytt til langs tíma, auk þess sem óskað verði eftir nýju láni hjá Lánasjóðnum til að greiða upp skammtímaskuldir og fjármagna hallarekstur ársins 2010. Pálmi Þór telur bæjarstjórn geta verið hóflega bjartsýna á að hugmyndunum verði vel tekið. „Þessi mánuður sem við fengum til að setja fram skýrsluna hefur verið afar vel nýttur. Við erum búin að eiga fundi með lánardrottnum og viðsemj- endum út af samningum og þær tillögur sem þarna eru settar fram eru allar með þeirra vitund og út frá fundum sem við höfum átt með þeim.“ Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra kvaðst í viðtali í Morgunblaðinu í gær fylgjast vel með málum Álftaness, en engar ákvarðanir hefðu verði teknar um aðkomu ríkisins. Leikskólagjöld hækkuð og tómstundastyrkir lagðir niður Hagræðingar í rekstri er einnig þörf eigi að létta skuldastöðu Álftaness, en 1,2 milljarða kr. skammtímaskuldir sveitarfélagsins eru á gjald- daga á þessu ári. Meðal aðgerða sem lagt er til að gripið verði til er niðurskurður í rekstri grunnskóla og leikskóla auk þess sem leikskólagjöld verði hækkuð og tómstundastyrkir til foreldra og foreldrastyrkir aflagðir. Ekki verði heldur starfræktur vinnuskóli á vegum sveitarfélagsins næsta sumar. Enn- fremur verði stöður byggingafulltrúa, fræðslu- stjóra, félagsmálastjóra og leikskólafulltrúa lagð- ar niður. Þá verði viðhald gatna í lágmarki og dregið úr viðhaldi fasteigna sveitarfélagsins. Talið er að ávinningur af þessari rekstrarhag- ræðingu nemi 103 milljónum kr. á þessu ári og svarar það til 13,5% af öllum rekstrargjöldum sveitarfélagsins á síðasta ári. Árið 2011 er síðan gert ráð fyrir að hagræðingin nemi 167 milljónum kr. Stærstur hluti viðbótartekna sveitarfélagsins á árinu kemur þó til vegna aukins útsvars og hækkunar fasteignaskatta, en áætlað er að aukn- ar tekjur vegna þessa nemi 124 milljónum kr. Selja þarf eignir eða auka framlög úr Jöfnunarsjóði Niðurskurðaraðgerðir duga ekki til að rétta við fjárhagshallann á Álftanesi Sparnaðar- og hagræðingatillögur sveitastjórnar Álftaness Skatttekjur: 10% álag á útsvar í samræmi við samning við EFS Hækkun fasteignaskatts í 0,4% af fasteignamati Hagræðingatillögur: Staða félagsmálastjóra lögð niður Heimagreiðslum hætt til foreldra frá apríl 2010 Staða fræðslustjóra lögð niður Staða leikskólafulltrúa lögð niður Leikskólagjöld hækki um 15% Börnum fjölgað á leikskóla- deildum frá hausti 2010 Niðurgreiðslum á hádegis- mat í Álftanesskóla hætt á næsta skólaári Gjaldskrá Frístundar hækkuð um 10% og hagrætt um eitt stöðugildi Opnunartíma bókasafns breytt og bókakaup minnkuð Staða íþrótta- og tómstunda- fulltrúa lögð niður Dregið úr viðhaldi leikvalla Vinnuskólinn lagður niður tímabundið Opnunartíma íþróttahúss og sundlaugar breytt og gjaldskrá hækkuð Margvíslegra leiða þarf að leita eigi að takast að leysa fjárhagsvanda sveitarfélagsins Álftaness. Hagræða þarf í rekstri, breyta skuldum í langtímalán og losna við skuld- bindingar vegna framkvæmda. Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga hefur fengið afhentar tillögur bæjarstjórnar Álfta- ness um fjárhagslegar aðgerðir. „Við byrjum að fjalla um hana á morgun,“ segir Ólafur Nilsson, formaður eftirlitsnefndarinnar. Skýrslan verði síðan til meðferðar hjá nefndinni fram í næstu viku. Hann vill ekki tjá sig um tillögurnar að svo stöddu, en segir ljóst að fjárhagsstaða sveitarfélagsins sé afar slæm. „Ég reikna með að nefndin afhendi ráðherra sínar til- lögur um framhaldsmeðferð málsins í lok næstu viku.“ Tillögur liggi fyrir í næstu viku JÓN Örn Arnarson býr með fjöl- skyldu sinni á Álftanesi. Hann segir íbúa uggandi yfir stöðu mála. „Þetta er hrikalegt og hljóðið í íbú- um er mjög þungt. Mér finnst margir hafa meiri áhyggjur af þessu en Icesave,“ segir hann. Þau hjónin eiga þrjú börn og koma hagræðingaraðgerðir bæjar- stjórnar niður á fjölskyldunni. „Tvö okkar barna hafa verið í tónlistar- skólanum sem talað hefur verið um að leggja niður og þau eru líka í tómstundastarfi sem niðurgreitt hefur verið af sveitarfélaginu.“ Hækkun fasteignagjalda og út- svars hafi ekki síður áhrif. „Okkur líður vel hérna, en þó að við vildum flytja þá kæmu fasteignagjöldin í veg fyrir það.“ Hljóðið í íbúum þungt Morgunblaðið/Heiddi Í DAG, fimmtudag, boðar forsæt- isráðuneytið og stýrihópur 20/20 Sóknaráætlunar, til ráðstefnu und- ir yfirskriftinni „Sóknaráætlun fyr- ir Ísland: horft til framtíðar fyrir atvinnulíf og samfélag.“ Á ráðstefunni munu samtök, grasrótarhópar og hagsmunaaðilar fjalla um sóknarfæri og áherslur sem geta aukið lífsgæði og sam- keppnishæfi Íslands á komandi ár- um. Fundarstjóri verður Dagur B. Eggertsson, formaður stýrihóps um 20/20 sóknaráætlunina. Ráð- stefnan verður haldin á Radisson SAS Hótel Sögu kl. 13-17 og er hún öllum opin. Ráðstefna um sóknaráætlun DAGANA 29. jan.-1. feb. stendur Fuglavernd fyrir garðfuglaskoðun þar sem landsmenn eru hvattir til þess að skoða og skrá fjölda og teg- undir fugla í görðum. Átt er við þá fugla sem eru í görðunum en ekki þá sem fljúga yfir. Markmiðið er að afla upplýsinga um hvaða tegundir eru til staðar en einnig að vekja at- hygli á fuglum og töfrum þeirra. Af þessu tilefni býður Fugla- vernd í fuglaskoðun á laugardag nk. kl. 14 þar sem hist verður á bíla- stæðinu við Fossvogskirkjugarð. Allir eru velkomnir. Garðaskoðun Auðnutittlingur hefur komið sér makindalega fyrir í tré. Garðfuglaskoðun AÐSÓKN í Hlíðarfjall á Akureyri hef- ur verið mjög góð það sem af er vetri. Nú hafa 23.500 gestir komið á skíðasvæðið en voru 13.500 á sama tíma í fyrra og helmingi fleiri vetrarkort hafa verið seld. Þrátt fyrir að kröftug- ar lægðir með um 10 stiga hita hafi gengið yfir Norðurland er skíðafærið í Hlíðarfjalli með betra móti og nægur snjór í öll- um brekkum. Guðmundur Karl Jónsson, for- stöðumaður skíðasvæðisins, segir að þetta sé ekki síst að þakka þéttu undirlagi af snjó sem fram- leiddur var fyrr í vetur þegar hörkugaddur var dag eftir dag. Snjóframleiðslan í Hlíðarfjalli hefur því enn og aftur sannað gildi sitt. Hitastig á Akureyri var við frostmark í gær en síðan tek- ur við kuldakafli svo langt sem augað eygir, segir í tilkynningu. Nægur snjór í fjall- inu og mikil aðsókn Í DAG, fimmtudag, stendur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga fyrir málþingi um öryggi sjúklinga, á Grand Hóteli kl. 13.15-16. Mál- þingið er öllum opið. Framsöguerindi flytja Anna Birna Jensdóttir, hjúkrunar- og framkvæmdastjóri Sóltúns, Bylgja Kærnested, formaður hjúkr- unarráðs Landspítalans, Steinunn Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri, Halla Eiríksdóttir hjúkrunarstjóri og Anna Björg Aradóttir yfirhjúkr- unarfræðingur. Öryggi sjúklinga STUTT „ÞVÍ miður er þetta allt mjög neikvætt eins og þetta er annars dásam- legur staður að búa á,“ segir Erna Sif Auð- unsdóttir sem búsett hef- ur verið á Álftanesi frá því í æsku. „Ég er sjálf með ung börn og maður getur ekki annað en haft áhyggjur af framtíð- inni.“ Hækkanir á leik- skólagjöldum og stækk- un deilda mun enda hafa áhrif á fjárhag fjölskyld- unnar, ekki síður en hækkun út- svars og fasteignaskatts. Hún bendir á að fjárhagsaðstæður sveitafélagsins geti t.a.m. haft áhrif á söluhæfi húsnæðis. „Nú erum við í fjögurra herbergja íbúð og þetta mun ekki auðvelda okkur að flytja og stækka við okkur, því það er enginn spenntur fyrir að flytja í samfélag þar sem staðan er svona.“ Sjálf telur hún sameiningu ekki slæman kost. „Auðvitað er leiðin- legt til þess að hugsa því ég er fædd og uppalin hér á Álftanesi. En ef sú lausn gagnast sveitarfélaginu þá ber að skoða hana betur.“ Hefur áhyggjur af framtíðinni Morgunblaðið/Árni Sæberg Í stefnuskrá Álftaneslistans fyrir síðustu sveitastjórnarkosningar er bygging sundlaug- ar og 40 öryggisíbúða fyrir aldraða meðal þeirra málefna sem voru á dagskrá. Þar kemur einnig fram að Álftaneslistinn ætli að „vinna að endurskipulagningu fjár- mála sveitarsjóðs af ábyrgð og festu“ og hag- ræðingu í rekstri sveitarfélagins. Lofuðu ábyrgum rekstri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.