Morgunblaðið - 28.01.2010, Qupperneq 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2010
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
SVEITARSTJÓRN Álftaness samþykkti drög að
„tillögum bæjarstjórnar um fjárhagslegar að-
gerðir“ á tæplega átta klukkustunda löngum
fundi sínum á þriðjudagskvöldið. Skýrslan, sem
Pálmi Þór Másson afhenti eftirlitsnefnd um fjár-
mál sveitarfélaga í gær, gerir ráð fyrir verulegum
niðurskurði auk skattahækkana. Með því móti á
að auka ráðstöfunartekjur sveitarfélagsins um
228 milljónir kr. í ár og 291 milljón kr. árið 2011.
Þær aðgerðir duga þó ekki til að sveitarfélagið
geti skilað hallalausum rekstri eða staðið við allar
sínar skuldbindingar, enda hefur áður verið talið
að útgjöld sveitarfélagsins þyrftu að minnka um
900 milljónir á þessu ári, miðað við fyrri tekjur,
ætti það að standa undir skuldbindingunum.
Samkvæmt skýrslu KPMG þarf sveitarfélagið
annaðhvort að selja eignir eða fá aukin framlög úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Skuldir og skuld-
bindingar þessa 2.500 manna sveitarfélags nema
samtals 7,4 milljörðum kr. Þar af nema skuld-
bindingar sem stofnað var til við Búmenn, Ris og
Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. 4,1 milljarði kr.
og mælir endurskoðunarfyrirtækið með að Álfta-
nes leiti allra leiða til að losna undan þessum
skuldbindingum. Stærsta og erfiðasta skuldbind-
ingin er við síðastnefnda fyrirtækið, en tæplega
þriggja milljarða króna skuld er tilkomin vegna
leigu á íþróttahúsi og sundlaug.
Skuldbreytt í langtímalán
Í skýrslunni er einnig lögð til skuldbreyting
skulda í langtímalán og mælir KPMG með að
sveitarfélagið forðist að óska niðurfellingar
skulda með nauðasamningi.
„Það þurfa að koma til margþættar aðgerðir,
segir Pálmi Þór, „og við værum ekki að setja
fram aðgerðir sem við héldum að gengju ekki eft-
ir.“
Gerð er tillaga um að öllum skuldum Álftaness
við Arion, viðskiptabanka sveitarfélagsins, verði
skuldbreytt í 23 ára lán sem eingöngu verði með
vaxtagreiðslum næstu þrjú árin. Skammtímaláni
hjá Lánasjóði sveitarfélaga verði þá skuldbreytt
til langs tíma, auk þess sem óskað verði eftir nýju
láni hjá Lánasjóðnum til að greiða upp
skammtímaskuldir og fjármagna hallarekstur
ársins 2010.
Pálmi Þór telur bæjarstjórn geta verið hóflega
bjartsýna á að hugmyndunum verði vel tekið.
„Þessi mánuður sem við fengum til að setja fram
skýrsluna hefur verið afar vel nýttur. Við erum
búin að eiga fundi með lánardrottnum og viðsemj-
endum út af samningum og þær tillögur sem
þarna eru settar fram eru allar með þeirra vitund
og út frá fundum sem við höfum átt með þeim.“
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra
kvaðst í viðtali í Morgunblaðinu í gær fylgjast vel
með málum Álftaness, en engar ákvarðanir hefðu
verði teknar um aðkomu ríkisins.
Leikskólagjöld hækkuð og
tómstundastyrkir lagðir niður
Hagræðingar í rekstri er einnig þörf eigi að
létta skuldastöðu Álftaness, en 1,2 milljarða kr.
skammtímaskuldir sveitarfélagsins eru á gjald-
daga á þessu ári.
Meðal aðgerða sem lagt er til að gripið verði til
er niðurskurður í rekstri grunnskóla og leikskóla
auk þess sem leikskólagjöld verði hækkuð og
tómstundastyrkir til foreldra og foreldrastyrkir
aflagðir. Ekki verði heldur starfræktur vinnuskóli
á vegum sveitarfélagsins næsta sumar. Enn-
fremur verði stöður byggingafulltrúa, fræðslu-
stjóra, félagsmálastjóra og leikskólafulltrúa lagð-
ar niður. Þá verði viðhald gatna í lágmarki og
dregið úr viðhaldi fasteigna sveitarfélagsins.
Talið er að ávinningur af þessari rekstrarhag-
ræðingu nemi 103 milljónum kr. á þessu ári og
svarar það til 13,5% af öllum rekstrargjöldum
sveitarfélagsins á síðasta ári. Árið 2011 er síðan
gert ráð fyrir að hagræðingin nemi 167 milljónum
kr. Stærstur hluti viðbótartekna sveitarfélagsins
á árinu kemur þó til vegna aukins útsvars og
hækkunar fasteignaskatta, en áætlað er að aukn-
ar tekjur vegna þessa nemi 124 milljónum kr.
Selja þarf eignir eða auka
framlög úr Jöfnunarsjóði
Niðurskurðaraðgerðir duga ekki til að rétta við fjárhagshallann á Álftanesi
Sparnaðar- og hagræðingatillögur sveitastjórnar Álftaness
Skatttekjur:
10% álag á útsvar í samræmi
við samning við EFS
Hækkun fasteignaskatts í
0,4% af fasteignamati
Hagræðingatillögur:
Staða félagsmálastjóra
lögð niður
Heimagreiðslum hætt til
foreldra frá apríl 2010
Staða fræðslustjóra
lögð niður
Staða leikskólafulltrúa
lögð niður
Leikskólagjöld hækki
um 15%
Börnum fjölgað á leikskóla-
deildum frá hausti 2010
Niðurgreiðslum á hádegis-
mat í Álftanesskóla hætt á
næsta skólaári
Gjaldskrá Frístundar hækkuð
um 10% og hagrætt um eitt
stöðugildi
Opnunartíma bókasafns
breytt og bókakaup minnkuð
Staða íþrótta- og tómstunda-
fulltrúa lögð niður
Dregið úr viðhaldi leikvalla
Vinnuskólinn lagður niður
tímabundið
Opnunartíma íþróttahúss
og sundlaugar breytt og
gjaldskrá hækkuð
Margvíslegra leiða þarf að leita eigi að takast
að leysa fjárhagsvanda sveitarfélagsins
Álftaness. Hagræða þarf í rekstri, breyta
skuldum í langtímalán og losna við skuld-
bindingar vegna framkvæmda.
Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga hefur
fengið afhentar tillögur bæjarstjórnar Álfta-
ness um fjárhagslegar aðgerðir. „Við byrjum
að fjalla um hana á morgun,“ segir Ólafur
Nilsson, formaður eftirlitsnefndarinnar.
Skýrslan verði síðan til meðferðar hjá
nefndinni fram í næstu viku.
Hann vill ekki tjá sig um tillögurnar að
svo stöddu, en segir ljóst að fjárhagsstaða
sveitarfélagsins sé afar slæm. „Ég reikna
með að nefndin afhendi ráðherra sínar til-
lögur um framhaldsmeðferð málsins í lok
næstu viku.“
Tillögur liggi fyrir í næstu viku
JÓN Örn Arnarson býr með fjöl-
skyldu sinni á Álftanesi. Hann segir
íbúa uggandi yfir stöðu mála.
„Þetta er hrikalegt og hljóðið í íbú-
um er mjög þungt. Mér finnst
margir hafa meiri áhyggjur af
þessu en Icesave,“ segir hann.
Þau hjónin eiga þrjú börn og
koma hagræðingaraðgerðir bæjar-
stjórnar niður á fjölskyldunni. „Tvö
okkar barna hafa verið í tónlistar-
skólanum sem talað hefur verið um
að leggja niður og þau eru líka í
tómstundastarfi sem niðurgreitt
hefur verið af sveitarfélaginu.“
Hækkun fasteignagjalda og út-
svars hafi ekki síður áhrif. „Okkur
líður vel hérna, en þó að við vildum
flytja þá kæmu fasteignagjöldin í
veg fyrir það.“
Hljóðið í íbúum þungt
Morgunblaðið/Heiddi
Í DAG, fimmtudag, boðar forsæt-
isráðuneytið og stýrihópur 20/20
Sóknaráætlunar, til ráðstefnu und-
ir yfirskriftinni „Sóknaráætlun fyr-
ir Ísland: horft til framtíðar fyrir
atvinnulíf og samfélag.“
Á ráðstefunni munu samtök,
grasrótarhópar og hagsmunaaðilar
fjalla um sóknarfæri og áherslur
sem geta aukið lífsgæði og sam-
keppnishæfi Íslands á komandi ár-
um. Fundarstjóri verður Dagur B.
Eggertsson, formaður stýrihóps
um 20/20 sóknaráætlunina. Ráð-
stefnan verður haldin á Radisson
SAS Hótel Sögu kl. 13-17 og er hún
öllum opin.
Ráðstefna um
sóknaráætlun
DAGANA 29. jan.-1. feb. stendur
Fuglavernd fyrir garðfuglaskoðun
þar sem landsmenn eru hvattir til
þess að skoða og skrá fjölda og teg-
undir fugla í görðum. Átt er við þá
fugla sem eru í görðunum en ekki
þá sem fljúga yfir. Markmiðið er að
afla upplýsinga um hvaða tegundir
eru til staðar en einnig að vekja at-
hygli á fuglum og töfrum þeirra.
Af þessu tilefni býður Fugla-
vernd í fuglaskoðun á laugardag
nk. kl. 14 þar sem hist verður á bíla-
stæðinu við Fossvogskirkjugarð.
Allir eru velkomnir.
Garðaskoðun Auðnutittlingur hefur
komið sér makindalega fyrir í tré.
Garðfuglaskoðun
AÐSÓKN í
Hlíðarfjall á
Akureyri hef-
ur verið mjög
góð það sem
af er vetri. Nú
hafa 23.500
gestir komið á
skíðasvæðið
en voru
13.500 á sama tíma í fyrra og
helmingi fleiri vetrarkort hafa
verið seld. Þrátt fyrir að kröftug-
ar lægðir með um 10 stiga hita
hafi gengið yfir Norðurland er
skíðafærið í Hlíðarfjalli með
betra móti og nægur snjór í öll-
um brekkum.
Guðmundur Karl Jónsson, for-
stöðumaður skíðasvæðisins, segir
að þetta sé ekki síst að þakka
þéttu undirlagi af snjó sem fram-
leiddur var fyrr í vetur þegar
hörkugaddur var dag eftir dag.
Snjóframleiðslan í Hlíðarfjalli
hefur því enn og aftur sannað
gildi sitt. Hitastig á Akureyri var
við frostmark í gær en síðan tek-
ur við kuldakafli svo langt sem
augað eygir, segir í tilkynningu.
Nægur snjór í fjall-
inu og mikil aðsókn
Í DAG, fimmtudag, stendur Félag
íslenskra hjúkrunarfræðinga fyrir
málþingi um öryggi sjúklinga, á
Grand Hóteli kl. 13.15-16. Mál-
þingið er öllum opið.
Framsöguerindi flytja Anna
Birna Jensdóttir, hjúkrunar- og
framkvæmdastjóri Sóltúns, Bylgja
Kærnested, formaður hjúkr-
unarráðs Landspítalans, Steinunn
Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri,
Halla Eiríksdóttir hjúkrunarstjóri
og Anna Björg Aradóttir yfirhjúkr-
unarfræðingur.
Öryggi sjúklinga
STUTT
„ÞVÍ miður er þetta allt
mjög neikvætt eins og
þetta er annars dásam-
legur staður að búa á,“
segir Erna Sif Auð-
unsdóttir sem búsett hef-
ur verið á Álftanesi frá
því í æsku.
„Ég er sjálf með ung
börn og maður getur
ekki annað en haft
áhyggjur af framtíð-
inni.“
Hækkanir á leik-
skólagjöldum og stækk-
un deilda mun enda hafa
áhrif á fjárhag fjölskyld-
unnar, ekki síður en hækkun út-
svars og fasteignaskatts. Hún
bendir á að fjárhagsaðstæður
sveitafélagsins geti t.a.m. haft áhrif
á söluhæfi húsnæðis. „Nú erum við
í fjögurra herbergja íbúð og þetta
mun ekki auðvelda okkur að flytja
og stækka við okkur, því það er
enginn spenntur fyrir að flytja í
samfélag þar sem staðan er svona.“
Sjálf telur hún sameiningu ekki
slæman kost. „Auðvitað er leiðin-
legt til þess að hugsa því ég er
fædd og uppalin hér á Álftanesi. En
ef sú lausn gagnast sveitarfélaginu
þá ber að skoða hana betur.“
Hefur áhyggjur
af framtíðinni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í stefnuskrá Álftaneslistans fyrir síðustu
sveitastjórnarkosningar er bygging sundlaug-
ar og 40 öryggisíbúða fyrir aldraða meðal
þeirra málefna sem voru á dagskrá.
Þar kemur einnig fram að Álftaneslistinn
ætli að „vinna að endurskipulagningu fjár-
mála sveitarsjóðs af ábyrgð og festu“ og hag-
ræðingu í rekstri sveitarfélagins.
Lofuðu ábyrgum rekstri