Morgunblaðið - 28.01.2010, Blaðsíða 39
Menning 39FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2010
Á TÓNLEIKUM Sinfóníuhljóm-
sveitar tónlistarskólanna í Lang-
holtskirkju kl. 16 nk. laugardag
verður meðal annars boðið upp á
geimskot, nýtt íslenskt tónverk og
einleik grunnskólanema í tromp-
etkonsert eftir Joseph Haydn.
Íslenska tónverkið er Ævintýri
eitt ég veit, eftir Snorra Sigfús
Birgisson, geimskotið er verkið Lift
off eftir Russell Peck, en í því er
líkt eftir hljóðheimi geimskips, og
einleikarinn ungi er Baldvin Odds-
son, aðeins fimmtán ára. Einnig
verður flutt Sinfónía nr. 5 eftir
Mendelssohn. Hljómsveitarstjór-
arnir eru Daníel Bjarnason og Pét-
ur Grétarsson sem skipta með sér
verkum. arnim@mbl.is
Geimskot,
ævintýri og
einleikur
Fimmtán ára einleik-
ari í trompetkonsert
Einleikari Baldvin Oddsson ásamt
stjórnandanum Daníel Bjarnasyni.
SAGT var frá fyrirhuguðum
tónleikum þeirra Auðar Haf-
steinsdóttur fiðluleikara og
Önnu Guðnýjar Guðmunds-
dóttur píanóleikara á Myrkum
músíkdögum í Morgunblaðinu í
gær, en sá hængur var á að
rangt var farið með tónleika-
dag. Rétt er í þeim efnum að
tónleikar þeirra Auðar og
Önnu Guðnýjar verða á Kjar-
valsstöðum í hádeginu á morg-
un, föstudag, og hefjast kl. 12.10.
Á dagskrá tónleikanna eru verk fyrir fiðlu og
píanó eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Jón Nordal og
Karl O. Runólfsson.
Tónlist
Fiðla og píanó á
Kjarvalsstöðum
Auður og Anna
Guðný
RANNSÓKNAMIÐSTÖÐ um
ímyndir Íslands og Norðursins
í ReykjavíkurAkademíunni,
ÍNOR, og Reykjavíkur-
Akademían hrinda af stað fyr-
irlestraröð á föstudaginn þar
sem fjallað verður um sjálfs-
mynd Íslendinga og ýmsum
spurningum velt upp.
Guðmundur Oddur Magn-
ússon, prófessor í grafískri
hönnun við Listaháskóla Ís-
lands, ríður á vaðið með fyrirlestur um táknmynd-
ir þjóðarinnar – þá og nú, en fyrirlestur hans
verður í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut
121, frá 12 til 13.30 næstkomandi föstudag.
Þjóðfræði
Táknmyndir þjóð-
arinnar – þá og nú
Guðmundur Oddur
Magnússon
FORLAGIÐ hefur gefið út að
nýju bókina Ertu viss? en í
henni fjallar sálfræðiprófess-
orinn Thomas Gilovich um
skynsemi og skynsemisbresti í
daglegu lífi, bregður ljósi á
ranghugmyndir af ýmsu tagi
og skoðar vafasamar hug-
myndir fólks um smá-
skammta-, náttúru- og hug-
lækningar og dulsálfræðileg
fyrirbæri. Einnig bendir hann
á hvernig fólk geti bætt mat sitt á upplýsingum.
Ertu viss? kom fyrst út 1995 í þýðingu Sigurðar
J. Grétarssonar sálfræðiprófessors, en hefur verið
ófáanleg í áraraðir.
Bókmenntir
Rangar og vafa-
samar hugmyndir
Ertu viss? kemur
út að nýju
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
RAFÓPERAN Farfuglinn eftir
Hilmar Þórðarson verður frumsýnd
á Myrkum músíkdögum í Salnum,
Tónlistarhúsi Kópavogs, næstkom-
andi laugardag. Óperan, sem ætluð
er ungu fólki, fjallar um dauðann, en
handritið er unnið upp úr Móður-
inni, sögu H.C. Andersen, og Far-
fuglum, ljóðabók Rabindranath Ta-
gore. Messíana Tómasdóttir, sem
samdi handritið, segir að vinna að
verkinu hafi hafist fyrir um tveimur
árum, en þá óskaði hún eftir því við
Hilmar að hann semdi óperu fyrir
Strengjaleikhúsið, en handritið hafi
síðan orðið til þegar hún dvaldi í
París í tvo mánuði. „Handritið hjá
mér varð miklu lengra en endanleg
gerð, enda notar Hilmar nokkuð af
endurtekningum svo ég tók út allt
sem sem ekki var beinlínis að segja
söguna. Vissulega var margt af því
fallegt og gaman að hafa en eftir
varð hreinni og betri saga.“
Eins og getið er í upphafi er óper-
an samin með unglinga í huga, en í
raun ætluð öllum frá áttunda bekk
og upp úr, enda er viðfangsefnið
býsna veigamikið svo ekki sé meira
sagt: Dauði og söknuður. „Dauðinn
er ríkur þáttur í lífi unglingsins en
hann er svo einn með þessa glímu
sína við þessar erfiðu tilfinningar;
barnið fær huggun hjá foreldrunum,
en unglingurinn geymir og bælir til-
finningarnar innra með sér,“ segir
Messíana og bætir við að hún hafi
gengið með þessa hugmynd í tutt-
ugu ár.
„Móðirin eftir H.C. Andersen
fjallar reyndar um móður sem miss-
ir ungt barn sitt en Farfuglinn hjá
okkur er unglingsstúlka sem gerir
unglingum auðveldara að setja sig í
sömu spor. Í gegnum ljóð Tagores
náum við síðan einhverskonar sátt
við dauðann. Víst verður maður
aldrei algerlega sáttur en við náum
því samt; þeir eru sem eru farnir
skilja eitthvað eftir sig, skilja eftir
sig minningar sem við njótum. Við
sýnum þetta mjög skýrt í lokaatrið-
inu því þó að hún sé ósátt og falli aft-
ur og aftur í sama sorgarfarið finnur
hún síðan að hún er ekki búin að
missa allt, hún á minninguna eftir.“
Nýstárleg rafópera frumsýnd á Myrkum músíkdögum
Dauði og söknuð-
ur farfuglsins
Farfuglinn Atriði úr rafóperunni Farfuglinn eftir Hilmar Þórðarson og
Messíönu Tómasdóttur. Óperan er ætluð ungu fólki og fjallar um dauðann.
Í HNOTSKURN
»Farfuglinn verður frumsýndí Salnum kl. 17 nk. laug-
ardag á Myrkum músíkdögum.
»Skólasýningar í framhaldinu1., 2., 3. og 4. febrúar á veg-
um Tónlistar fyrir alla í Kópa-
vogi og opin kvöldsýning 8.
»23., 24. og 25. febrúar verðasvo sýningar í Gerðubergi á
vegum Tónlistar fyrir alla.
Á STOKKALÆK á Rangárvöllum
reka hjónin Inga Ásta og Pétur Haf-
stein tónlistarsetur, Selið, en til-
gangur þess er fyrst og fremst að
styrkja unga íslenska nema í klass-
ískri tónlist til að efla færni sína og
menntun og gefa þeim kost á að iðka
tónlist sína í fögru umhverfi.
Um næstu helgi verður haldin þar
sannkölluð sönghelgi með tónleikum
á föstudag og sunnudag.
Á föstudaginn kl. 20 heldur Óp-
hópurinn óperettukvöld með ein-
söng og samsöngsatriðum úr þekkt-
um óperum á efnisskránni, en Óp-
hópinn skipa þau Bylgja Dís Gunn-
arsdóttir sópran, Erla Björg Kára-
dóttir sópran, Hörn Hrafnsdóttir
messósópran, Jóhanna Héðinsdóttir
messósópran, Jón Svavar Jósefsson
barítón, Rósalind Gísladóttir messó-
sópran og Rúnar Þór Guðmundsson
tenór. Antonía Hevesi leikur með
hópnum á píanó.
Á sunnudaginn kl. 20 halda þau
Bjarni Thor Kristinsson bassa-
söngvari og Ástríður Alda Sigurð-
ardóttir píanóleikari síðan tónleika í
Selinu sem þau nefna Á niðurleið, en
á dagskránni verða aríur, ljóð og
sönglög sem mörg leita alldjúpt á
raddsviðið.
Miðapantanir á báða tónleikana
eru í síma 487 5512 eða 864 5870, en
Selið er í um 100 km fjarlægð frá
Reykjavík. arnim@mbl.is
Menningarsetur á Rangárvöllum
Sannkölluð sönghelgi
í Selinu á Stokkalæk
Óp-hópurinn Býður upp á einsöng og samsöngsatriði úr þekktum óperum
á óperettukvöldi í tónlistarsetrinu á Stokkalæk á föstudag.
EFTIR því sem
rafbók Amazon,
Kindle, verður
vinsælli vestan
hafs eykst þrýst-
ingur á útgef-
endur að gefa
bækur út á raf-
rænu sniði. Þetta
kom glöggt í ljós
þegar bókin Game Change kom út,
en hún fjallar um forsetakosning-
arnar í Bandaríkjunum 2008.
Game Change kom út á pappír 11.
janúar og vakti þegar mikið umtal
og athygli, enda skaust hún á topp-
inn á sölulista New York Times og
líka á toppinn hjá Amazon. Bókin
hefur og fengið ágætis dóma og því
vekur furðu þegar hún er skoðuð á
Amazon að 185 manns hafa þar að-
eins gefið henni eina stjörnu.
Þegar rýnt er í þær neikvæðu um-
sagnir kemur í ljós að fæstir þeirra
sem gefa henni svo lélega einkunn
hafa lesið bókina, heldur er Kindle-
eigendur að láta í ljós gremju sína
með það að bókin sé ekki til í raf-
rænni útgáfu og ekki væntanleg fyrr
en 23. febrúar næstkomandi.
Fram til þessa hefur útgefandinn,
HarperCollins, haft að sið að seinka
rafrænni útgáfu bóka til að draga
ekki um of úr sölu á pappírsútgáfum
bókanna. Fleiri útgefendur hafa
gert slíkt hið sama og ganga jafnvel
svo langt að seinka rafrænni útgáfu
um fjóra mánuði eða meira. Eftir því
sem fleiri kaupa rafbækur eykst þó
þrýstingur á útgefendur að gefa
bækurnar úr rafrænt jafnharðan, og
sumir hafa gert því skóna að vatna-
skil verði í þeim málum á þessu ári.
arnim@mbl.is
Kindle-eigendur
sakna bóka
Þrýst á útgefendur að gefa bækur út
rafrænt og á pappír samtímis
Í DAG
Kl. 12.10 Píanóverk eftir Klaus
Ager í Norræna húsinu. Flytj-
endur eru píanóleikararnir Per
Rundberg og Selma Guðmunds-
dóttir, en Klaus Ager aðstoðar í
einu verkanna.
Kl. 19.30 Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands flytur Sögusinfóníu Jóns
Leifs í Háskólabíói og ný verk
eftir Hjálmar H. Ragnarsson,
Hróðmar Inga Sigurbjörnsson
og Hlyn Aðils Vilmarsson.
Stjórnandi er Frank Ollu.
Myrkir músíkdagar
Ég lagði fiðluna á
hilluna þegar ég var
þrettán ára og fékk raf-
magnsgítar. 44
»