Morgunblaðið - 28.01.2010, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 28.01.2010, Blaðsíða 38
38 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2010 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ...OG ÞANNIG EYDDI ÉG DEGINUM MÉR FINNST ÓTRÚLEGT AÐ ÞÚ HAFIR HLUSTAÐ Á MIG! HVAÐ? ÁTTU VIÐ AÐ ÞETTA SÉ EKKI MARTRÖÐ ÉG FRÉTTI AÐ ÞÚ ÆTTIR ERFITT MEÐ LESTUR JÁ, ÉG GÆTI ÞURFT GLERAUGU ÉG EFAST UM ÞAÐ AUGNLÆKNIRINN MINN SAGÐI AÐ FÓLK SEM LES HÆGT EIGI SJALDNAST VIÐ AUGNVANDAMÁL AÐ STRÍÐA ÞETTA ER ÞAÐ FALLEGASTA SEM NOKKUR MAÐUR HEFUR SAGT VIÐ MIG PABBI ÞINN KOM SEINT HEIM AF KRÁNNI Í GÆR OG SVAF ÚR SÉR Á GÓLFINU ER HANN ÞESS VEGNA SVONA ÖNUGUR JÁ... HANN HEFUR FARIÐ VITLAUSU MEGIN FRAM AF GÓLFINU Í MORGUN VELKOMIN HVER ER ÞETTA, GULLI? NÝJA KÆRASTAN MÍN, HÚN MÓNA HÚN SEGIR AÐ SUMAR STELPUR SÉU HRIFNAR AF DYRAMOTTUM KOMDU SÆL! ÉG HEITI MOTTI! ÞESSI FERÐ VARÐ ANSI RÓMANTÍSK EFTIR ALLT SAMAN ÞETTA VAR KANNSKI NAUÐSYN VIÐ HÖFUM EKKI VERIÐ EIN SVO LENGI AÐ KANNSKI ÞURFTUM VIÐ AÐ SPRINGA TIL AÐ GETA SLAPPAÐ AF SAMAN ÞAU HLJÓTA AÐ HAFA UPPLIFAÐ ÞETTA ÁÐUR VIÐ ÆTLUM AÐ FÆRA YKKUR YFIR Í NÆSTU BYGGINGU ÞAÐ ER FRÁBÆRT. SÉRSTAKLEGA FYRST HÚN BYRJAÐI Á RIFRILDI VERST AÐ ALLT GISTI- HEIMILIÐ HEYRÐI OKKUR RÍFAST VULTURE MÆTTI EINS OG HANN LOFAÐI... EN HVAR ER KÓNGU- LÓARMAÐURINN? ÉG NÁÐI ANSI GÓÐUM MYNDUM HÉÐAN. ÉG ÆTLA AÐ REYNA AÐ BREYTA UM SJÓNARHORN KEMUR EKKI TIL GREINA! STATTU HÉR OG HALTU ÁFRAM! Frábærir tónleikar HINN 21. janúar sl. voru haldnir tónleikar til styrktar SÁÁ í Efstaleiti. Páll Óskar Hjálmtýsson, Monika Abendroth ásamt strengjasveit og Sigrún Hjálmtýsdóttir fluttu frábæra dagskrá, sann- kallaðir gleðigjafar og gáfu alla sína vinnu. Tónleikagestir fylltu salinn og vil ég þakka listamönnum, áheyr- endum og starfsfólki Vonar þetta eft- irminnilega kvöld en þeirra framlag lagði góðan styrk til hjálpar starfi SÁÁ sem eru sannkölluð mannrækt- arsamtök. Hugheilar þakkir, Jón Helgi Hálfdanarson Icesave – þjóðaratkvæða- greiðsla ÉG spyr eins og vafalaust margir aðrir meðlimir hinnar íslensku þjóð- ar. Hverju halda þessir háttvirtu al- þingismenn, sérlega forystumenn þing- og stjórnmálaflokka, að þjóðin sé að leita eftir með kröfu sinni um þjóðaratkvæðagreiðslu varðandi Ice- save-samninginn? Hún vill réttláta lausn á málinu – ekkert raus og enga frekari rellu. Hættið þessu sífellda rövli; sendið ei þessa svartnætt- isspekúlanta í sjónvarp og fréttablöð, ausandi yfir þjóðina slíkum heimsendafull- yrðingum að hið hálfa væri nóg. Þeir eru allir í góðu starfi, öðruvísi en fólkið sem þið eigið að vera að vinna fyrir, og því óþarft að veita þeim aukbitlinga. Þeir segja hvort eð er fátt af viti. Við (íslenska þjóðin) greiðum ekki atkvæði um hver eða hverjir helstu grægispúkarnir voru, sem komu þjóð- inni í þennan vanda. Ís- lenskir dómstólar sjá um það. Við greiðum at- kvæði til þess að láta í ljós vanþóknun með þessa algjöru samninsgleysu og afleiðingar hennar, sem stjórnendur vilja leiða yfir okkur. Okkur er sama um vinnuhópinn sem grætur slíkum krókódílstárum að hann getur ekki unnið vinnuna sína í tíma og ofan á allt saman ætlar að gefa þar með gullið tækifæri til frekari tafa. „Ekki þætti þetta góður grautur í minni sveit.“ Hættið að rövla – farið að vinna fyrir okkur; takið afstöðu; finnið úrræði okkur í hag; skapið at- vinnu fyrir þjóðina; hættið að riðlast á öryrkjum og öldruðum. Ef þið gerið það er jafnvel mögulegt að við kjós- um ykkur aftur og sæmum ykkur kannski Fálkaorðu fyrir góð störf. Einar Tjörvi Elíasson. Ást er… … þegar þögnin getur verið særandi. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, vatns- leikfimi í Vesturbæjarl. kl. 10.50, prjóna- kaffi kl. 13, bókm.klúbbur kl. 13.15. Árskógar 4 | Handav./smíði/útsk. kl. 9, boccia kl. 9.30 leikfimi kl. 11, helgi- stund kl. 10.30, myndlist kl. 13.30. Dalbraut 18-20 | Hjúkrunarfr. kl. 10, bókabíll kl. 11.15, dansh. kl. 13.30, sam- verustund, sr. Bjarni Karlsson kl. 15.15. Dalbraut 27 | Handavinna kl. 8. Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11. Félag eldri borgara, Rvk. | Brids kl. 13. Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05/9.55, málm/silfursmíði kl. 9.30, bókband kl. 13, myndlistarh. kl. 16.30. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handav. kl. 9, ganga kl. 10, brids kl. 13, línudans kl. 16.30, jóga kl. 18. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vinnustofur Jónshúsi kl. 9, námsk. í málun hefst kl. 9., gönguh. kl. 11, vatns- leikf. kl. 12, karlaleikfimi og handavinna kl. 13, botsía kl. 14. Félagsstarf Gerðubergi | Helgistund kl. 10.30, sr. Svavar Stefánsson, vinnu- stofur op. frá hád., myndlist fellur nið- ur, líkamsr. í World Class kl. 13. Á morg- un kl. 10 prjónakaffi, stafganga kl. 10.30. Furugerði 1, félagsstarf | Trésmiðja kl. 9, handav. kl. 13. Hraunbær 105 | Handav. kl. 9, postu- lín, boccia kl. 11, félagsv. kl. 13.30. Hraunsel | Rabb kl. 9, qI-gong kl. 10, leikfimi kl. 11.20, gler kl. 13, píla/ félagsv. kl. 13.30, vatnsleikf. kl. 14.10. Hvassaleiti 56-58 | Botsía kl. 10, hannyrðir kl. 13, félagsvist kl. 13.30. Hæðargarður 31 | Hringborð kl. 8.50, Stefánsganga/listasmiðja kl. 9, Þegar amma var ung kl. 10.50. Sönghóp. Hjör- dísar Geirs kl. 13.30, línud. kl. 15. Sýn- ing Geirharðs Þorsteins. Skrán. á þorra- blót 5. feb., s. 411-2790. Íþróttafélagið Glóð | Hringdansar í Kópavogsskóla kl. 17. Kennarahúsið | Fundur í Kennarahús- inu fim. 28. jan. kl. 14 um lestur um jól- in. Korpúlfar Grafarvogi | Sundleikfimi í Grafarvogssundlaug á morgun kl. 9.30. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu- stund/spjall/léttar æfingar kl. 10, hand- verks- og bókastofa op. kl. 13, botsía kl. 13.30, þjóðlagastund kl. 15. Norðurbrún 1 | Handavinna/leirnámsk. kl. 9, botsía kl. 10, smíðast. opin. Vesturgata 7 | Fastir liðir. Þorrablót verður 5. febrúar með þorrahlaðborði og skemmtun. Veislustjóri verður Óskar Pétursson Álftagerðisbróðir og Sigurgeir við flyg- ilinn, Karlakórinn KKK syngur undir stjórn Gylfa Gunnarssonar, Jóhannes eftirherma, fjöldasöngur og Guðmundur Haukur syngur og leikur fyrir dansi, happdrætti. Uppl. í síma 535-2740. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bók- band, postulín, morgunstund kl. 9.30, botsía kl. 10, framh.saga kl. 12.30, handavinna kl. 13, brids frjálst, stóla- dans kl. 13.15. Burns-kvöldverðurinn vaktinokkra athygli meðal ljóða- unnenda og barst Vísnahorninu er- indi Burns: „Some hae meat and canna eat, And some would eat that want it; But we hae meat, and we can eat, Sae let the Lord be thankit.“ Stephan G. Stephansson þýðir það þannig: Einn hefur lyst, en á ei ket, og annar ket, en missti lyst – fyrst ég hef ket og étið get, ég játa að lán mig ei setti yst. Og í ljóðabók Káins: Einn hefur ket en ekkert étið getur, annar éta óspart má en ekkert ketið hefur sá. Ingólfur Ómar Ármannsson gerði þorravísu í fyrra, en þá var árferðið annað: Yggldur þorri ýfir brá öskrar norðanhríðin; nú er foldin földuð snjá fimbulköld er tíðin. Á vísnavef Skagfirðinga má finna fjölmargar þorravísur, þar á meðal eftir Eðvald Halldórsson (f. 1903, d. 1994): Þorri rymur, gustar gátt glugga finnur, málar rósum. Rastar heiminn heiðið blátt háfext brim af norðurljósum. Og svo má finna þar gamlan hús- gang: Eg langsemi á mér finn oft í myrkri svörtu. Þegar kemur Þorri minn þá skal hátta í björtu. Vísnahorn pebl@mbl.is Af þorra og lyst á keti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.