Morgunblaðið - 28.01.2010, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 28.01.2010, Blaðsíða 40
40 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2010  Í kvöld kemur fram í fyrsta sinn tvíeykið Hreimur og Heiða; en um er að ræða söngspíru Lands og sona og Idol og útvarpsstjörnuna Heiðu. Munu þau leika saman á Pósthúsinu – vínbar og bistró. Stefnt að léttri og lifandi stemningu og spurning hvort þetta samstarf skili sér í plötu á árinu? Nýr ofurdúett lítur dagsins ljós Fólk Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is ÞRJÁR þriggja manna hljómsveitir hafa nú tek- ið sig til og eru á leið í sex félagsmiðstöðvar á höfuðborgarsvæðinu þar sem þær munu halda ókeypis tónleika. Sveitirnar gáfu allar út plötur á vegum Kimi Records í haust við prýðisviðtökur en þær eru Me, The slumbering Napoleon, Morð- ingjarnir og Kimono. Í gær var kíkt í Frosta- skjól, í kvöld er það Hitt húsið og á morgun Mið- berg í Breiðholti. Á mánudeginum er það svo Tónabær, á þriðjudaginn Engyn í Grafarvogi og á miðvikudaginn Tían í Árbæ. Sudden Weather Change spilaði einnig með í Frostaskjóli og leikur líka í Miðbergi og Tóna- bæ, en hún er nýkomin úr stuttu en vel heppnuðu tónleikaferðalagi til Englands. Að sögn Péturs Eggertssonar hjá Kima kom hugmyndin frá hljómsveitunum sjálfum. „Þeim fannst vanta þessa tónleikamenningu í félagsmiðstöðvarnar en slíkt var mjög algengt í gamla daga. Krakkar á félagsmiðstöðvaaldr- inum komast ekki inn á staði og því er þetta gott tækifæri fyrir þau að upplifa þessa neðanjarðar- rokksstemningu. Að sjá heita rokksveit á fullu spani þegar þú ert fjórtán ára er nokkuð sem sit- ur eftir vel og lengi í næmum unglingshuganum. Ef vel gengur verður framhald á, og þá fáum við mögulega aðrar hljómsveitir inn í þetta. Förum jafnvel út á land og heimsækjum félagsmiðstöðv- arnar þar.“ Þrjár rokksveitir taka félagsmiðstöðvarúnt Morgunblaðið/Árni Torfason Brattir Morðingjarnir, bestu vinir unglinganna.  Nemendaleikhús LHÍ sýnir nú leikritið Bráðum hata ég þig í Smiðjunni við Sölvhólsgötu. Und- irtektir hafa verið glimrandi góðar, svo góðar reyndar að ákveðið hefur verið að bæta við fjórum aukasýn- ingum. Fara þær fram 10., 11., 12. og 13. febrúar. Þessi árgangur er því greinilega ekkert slor og gaf leikshúsrýnir Morgunblaðsins sýn- ingunni einkar jákvæðan dóm eins og lesa má í blaði gærdagsins. Nemendaleikhúsið slær í gegn  Hinir norðlensku Hvanndals- bræður eru orðnir hundleiðir á því að vera kallaðir Hvannadalsbræður og leiðrétta þann misskilning á Fés- bókinni á þennan hátt: „Hvað eru útvarpsmenn ennþá að kalla okkur Hvannadalsbræður HVANNDALSBRÆÐUR HVANN- DALSBRÆÐUR HVANNDALS- BRÆÐUR HVANNDALS- BRÆÐUR … Ef einhver biður ykkur um pulsu, prufið að bjóða honum eða henni pulsner með … hehe“. Þar höfum við það. Takk fyrir þetta Hvanna …æ sorrí, ég meina Hvannadalsbræður. Hvanndalsbræður alveg brjálaðir Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is LJÓSMYNDARINN og kvikmyndagerðarmaðurinn Börkur Sigþórsson sýnir þessa dagana í galleríi einu í Los Angeles, Blythe Projects. Börkur sýnir þar ljósmyndir annars vegar og hluta stuttmyndar sem er í vinnslu hins vegar. Hann mun brátt klára tökur á stuttmyndinni hér á landi en hún ber titil- inn Come to Harm og er handritið að henni skrifað af hand- ritshöfundinum Stuart Beattie sem hefur gert það býsna gott í Hollywood. Sýningin í LA ber titilinn Work in Progress. Blaðamaður sló á þráðinn til Barkar sem staddur var í LA og spurði hann fyrst út í ljósmyndirnar á sýningunni. Stórgerður stúlkulíkami „Ég er að sýna myndir úr verkefni sem kallast Conditions. Myndirnar á sýningunni eru fyrsti hluti þess og sam- anstendur af níu nektarmyndum af mjög stórgerðum stúlku- líkama. Þemun í verkefninu ganga m.a. út á neyslu, kynhneigð og fíkn og hvernig þau birtast í sinni ýktustu mynd. Ég gekk út frá því að mynda fyrsta hlutann, þann sem er til sýnis núna, í formi líkamlegra landslagsmynda og þannig velta upp spurn- ingum um hvernig aðstæður fólks, félagslegar jafnt sem and- legar, brjótast fram í líkamsgerð þeirra. Samanber titilinn á verkefninu, Conditions,“ segir Börkur. – Ertu á mála hjá þessu galleríi? „Nei, ég er ekki formlega á mála hjá Blythe Projects. Hill- ary Metz, sem rekur galleríið, situr í nefnd hjá MOCA, Mu- seum Of Contemporary Art í Los Angeles, og þeim þótti áhugavert að vekja athygli á því hvernig ljósmyndun og leik- stjórn fer saman. Þannig að við ákváðum að setja upp sýningu á tveimur verkefnum sem ég er að vinna að samtímis, annars vegar ljósmyndaverkefninu Conditions, og hins vegar leik- stjórnarverkefninu Come To Harm. Og þar sem verkefnin eru enn í vinnslu, þá fékk sýningin nafnið Work In Progress. Myndirnar á sýningunni eru til sölu og rennur söluhagn- aður af þeim beint til framleiðslunnar á myndinni. MOCA er stærsti samstarfsaðili okkar og er sýningin hluti af sérstöku prógrammi á þeirra vegum sem kallast MOCA Contempor- aries,“ segir Börkur. Sama sagan sögð sex sinnum á sex mismunandi vegu Um fjórðungur stuttmyndarinnar Come to Harm var tek- inn upp í október en klippan sem er til sýnis í galleríinu er gróf fimm mínútna samsetning á því efni. En um hvað er myndin? „Come To Harm fjallar um mann sem er illa haldinn eftir röð persónulegra áfalla. Þegar hann fer að gruna að einhver hafi brotist inn á heimili hans, þá grípur hann til ráða sem hafa örlagaríkar afleiðingar. Björn Thors leikur aðalhlutverk myndarinnar, sem verður 15 mínútur að lengd og öll tekin upp í Reykjavík. Myndin er framleidd af íslenska framleiðslufyr- irtækinu Republik og styrkt af Kvikmyndamiðstöð Íslands. Hún er hluti af stærra, alþjóðlegu verkefni sem kallast POV, Point Of View. Ástralskt framleiðslufyrirtæki, Magic Films, bað Stuart Beattie um að skrifa einfalt og hnitmiðað stutt- myndahandrit sem var síðan sent til sex leikstjóra um víða veröld. Leikstjórarnir tóku handritið og unnu það áfram, stað- færðu að sínu samfélagi og eru nú að taka upp hver í sínu landi. Magic Films kemur síðan til með að taka myndirnar sex og pakka þeim saman í eina kvikmynd í fullri lengd, þannig að eftir stendur mynd sem segir sömu söguna á sex mismunandi vegu í sex mismunandi löndum, af sex mismunandi leikstjór- um sem hafa aldrei hist eða talað saman. Leikstjórunum er frjálst að vinna handritið eins langt og þeim hentar og því er líklegt að myndirnar verði jafn ólíkar og þær verða margar. Næsta mynd 150 mínútur – Nú hlaustu mikla athygli fyrir stuttmyndina Support og ert greinilega hrifinn af stuttmyndarforminu, sérðu fyrir þér að gera einhvern tíma kvikmynd í fullri lengd? „Já, næsta verkefni verður mynd í fullri lengd. Support var ein og hálf mínúta að lengd og Come To Harm verður fimm- tán mínútur, þannig að samkvæmt hefðinni sem er að mynd- ast verður næsta mynd eiginlega að vera 150 mínútur,“ segir Börkur kíminn að lokum. Verkefni í vinnslu  Börkur Sigþórsson sýnir ljósmyndir af stórgerðri stúlku og stuttmynd í vinnslu í galleríi í LA  Stuttmyndin endar með fimm öðrum í kvikmynd Ljósmynd/Börkur Sigþórsson Stórgerð stúlka Ein af ljósmyndum Barkar í röðinni Conditions, mynd sem notuð var á umslag breiðskífu Mínuss, The Great Northern Whalekill, www.borkurs.com www.blytheprojects.net  Lýsendur í kappleikjum geta stundum verið algerlega úti að aka en Adolf okkar Ingi fer á kostum miklum í lýsingum sýnum á leikjum Íslands í Evrópumótinu. Ástríðuna vantar ekki og hann leyfir sér að sleppa sér á réttu stöðunum. Þegar skorað er á móti okkur jaðrar jafn- an við ruðning en ef Sverre „Dreki“ Jakobsson tekur tvo andstæðinga niður fagnar Adolf gríðarlega. Svona á þetta að vera! Áfram Ís- land!!! Adolf Ingi gerir það gott í Austurríki Börkur Sigþórsson á vægast sagt glæsi- lega ferilskrá. Auk þess að hafa haldið ljósmyndasýningar hefur hann hefur leik- stýrt auglýsingum fyrir vörumerki á borð við Nike, Honda, Bai- leys og The Guardian og auk þess tónlistar- myndböndum fyrir ekki ómerkari menn og hljómsveitir en Richard Ashcroft, Su- pergrass og Nine Black Alps. Stutt- mynd hans Support, með Þresti Leó Gunn- arssyni í aðalhlut- verki, hefur hlotið viðurkenningu á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum en henni er dreift af Canal + í Frakklandi. Stuart Beattie, handritshöfundur Come to Harm, hefur getið sér gott orð í Hollywood. Hann var m.a. einn af handritshöfundum Pirates of the Caribbean- kvikmyndanna og handritshöfundur kvikmynda á borð við G.I. Joe, Australia, Derailed, 30 Days of Night og Collateral. Þá vinnur hann að handriti kvikmyndarinnar Tarzan sem á að frumsýna 2011 auk þess að sinna öðrum stórverkefnum. Nike, Honda, Baileys, Ashcroft og Supergrass Börkur Fjölhæfur listamaður og fyrirsætulegur. Ljósmynd/Saga Sig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.