Morgunblaðið - 28.01.2010, Qupperneq 40
40 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2010
Í kvöld kemur fram í fyrsta sinn
tvíeykið Hreimur og Heiða; en um
er að ræða söngspíru Lands og
sona og Idol og útvarpsstjörnuna
Heiðu. Munu þau leika saman á
Pósthúsinu – vínbar og bistró.
Stefnt að léttri og lifandi stemningu
og spurning hvort þetta samstarf
skili sér í plötu á árinu?
Nýr ofurdúett lítur
dagsins ljós
Fólk
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÞRJÁR þriggja manna hljómsveitir hafa nú tek-
ið sig til og eru á leið í sex félagsmiðstöðvar á
höfuðborgarsvæðinu þar sem þær munu halda
ókeypis tónleika. Sveitirnar gáfu allar út plötur
á vegum Kimi Records í haust við prýðisviðtökur
en þær eru Me, The slumbering Napoleon, Morð-
ingjarnir og Kimono. Í gær var kíkt í Frosta-
skjól, í kvöld er það Hitt húsið og á morgun Mið-
berg í Breiðholti. Á mánudeginum er það svo
Tónabær, á þriðjudaginn Engyn í Grafarvogi og
á miðvikudaginn Tían í Árbæ.
Sudden Weather Change spilaði einnig með í
Frostaskjóli og leikur líka í Miðbergi og Tóna-
bæ, en hún er nýkomin úr stuttu en vel heppnuðu
tónleikaferðalagi til Englands.
Að sögn Péturs Eggertssonar hjá Kima kom
hugmyndin frá hljómsveitunum sjálfum.
„Þeim fannst vanta þessa tónleikamenningu í
félagsmiðstöðvarnar en slíkt var mjög algengt í
gamla daga. Krakkar á félagsmiðstöðvaaldr-
inum komast ekki inn á staði og því er þetta gott
tækifæri fyrir þau að upplifa þessa neðanjarðar-
rokksstemningu. Að sjá heita rokksveit á fullu
spani þegar þú ert fjórtán ára er nokkuð sem sit-
ur eftir vel og lengi í næmum unglingshuganum.
Ef vel gengur verður framhald á, og þá fáum við
mögulega aðrar hljómsveitir inn í þetta. Förum
jafnvel út á land og heimsækjum félagsmiðstöðv-
arnar þar.“
Þrjár rokksveitir taka félagsmiðstöðvarúnt
Morgunblaðið/Árni Torfason
Brattir Morðingjarnir, bestu vinir unglinganna.
Nemendaleikhús LHÍ sýnir nú
leikritið Bráðum hata ég þig í
Smiðjunni við Sölvhólsgötu. Und-
irtektir hafa verið glimrandi góðar,
svo góðar reyndar að ákveðið hefur
verið að bæta við fjórum aukasýn-
ingum. Fara þær fram 10., 11., 12.
og 13. febrúar. Þessi árgangur er
því greinilega ekkert slor og gaf
leikshúsrýnir Morgunblaðsins sýn-
ingunni einkar jákvæðan dóm eins
og lesa má í blaði gærdagsins.
Nemendaleikhúsið
slær í gegn
Hinir norðlensku Hvanndals-
bræður eru orðnir hundleiðir á því
að vera kallaðir Hvannadalsbræður
og leiðrétta þann misskilning á Fés-
bókinni á þennan hátt:
„Hvað eru útvarpsmenn ennþá að
kalla okkur Hvannadalsbræður
HVANNDALSBRÆÐUR HVANN-
DALSBRÆÐUR HVANNDALS-
BRÆÐUR HVANNDALS-
BRÆÐUR … Ef einhver biður
ykkur um pulsu, prufið að bjóða
honum eða henni pulsner með
… hehe“. Þar höfum við það. Takk
fyrir þetta Hvanna …æ sorrí, ég
meina Hvannadalsbræður.
Hvanndalsbræður
alveg brjálaðir
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
LJÓSMYNDARINN og kvikmyndagerðarmaðurinn Börkur
Sigþórsson sýnir þessa dagana í galleríi einu í Los Angeles,
Blythe Projects. Börkur sýnir þar ljósmyndir annars vegar og
hluta stuttmyndar sem er í vinnslu hins vegar. Hann mun
brátt klára tökur á stuttmyndinni hér á landi en hún ber titil-
inn Come to Harm og er handritið að henni skrifað af hand-
ritshöfundinum Stuart Beattie sem hefur gert það býsna gott
í Hollywood. Sýningin í LA ber titilinn Work in Progress.
Blaðamaður sló á þráðinn til Barkar sem staddur var í LA og
spurði hann fyrst út í ljósmyndirnar á sýningunni.
Stórgerður stúlkulíkami
„Ég er að sýna myndir úr verkefni sem kallast Conditions.
Myndirnar á sýningunni eru fyrsti hluti þess og sam-
anstendur af níu nektarmyndum af mjög stórgerðum stúlku-
líkama. Þemun í verkefninu ganga m.a. út á neyslu, kynhneigð
og fíkn og hvernig þau birtast í sinni ýktustu mynd. Ég gekk
út frá því að mynda fyrsta hlutann, þann sem er til sýnis núna,
í formi líkamlegra landslagsmynda og þannig velta upp spurn-
ingum um hvernig aðstæður fólks, félagslegar jafnt sem and-
legar, brjótast fram í líkamsgerð þeirra. Samanber titilinn á
verkefninu, Conditions,“ segir Börkur.
– Ertu á mála hjá þessu galleríi?
„Nei, ég er ekki formlega á mála hjá Blythe Projects. Hill-
ary Metz, sem rekur galleríið, situr í nefnd hjá MOCA, Mu-
seum Of Contemporary Art í Los Angeles, og þeim þótti
áhugavert að vekja athygli á því hvernig ljósmyndun og leik-
stjórn fer saman. Þannig að við ákváðum að setja upp sýningu
á tveimur verkefnum sem ég er að vinna að samtímis, annars
vegar ljósmyndaverkefninu Conditions, og hins vegar leik-
stjórnarverkefninu Come To Harm. Og þar sem verkefnin eru
enn í vinnslu, þá fékk sýningin nafnið Work In Progress.
Myndirnar á sýningunni eru til sölu og rennur söluhagn-
aður af þeim beint til framleiðslunnar á myndinni. MOCA er
stærsti samstarfsaðili okkar og er sýningin hluti af sérstöku
prógrammi á þeirra vegum sem kallast MOCA Contempor-
aries,“ segir Börkur.
Sama sagan sögð sex sinnum á sex mismunandi vegu
Um fjórðungur stuttmyndarinnar Come to Harm var tek-
inn upp í október en klippan sem er til sýnis í galleríinu er gróf
fimm mínútna samsetning á því efni. En um hvað er myndin?
„Come To Harm fjallar um mann sem er illa haldinn eftir
röð persónulegra áfalla. Þegar hann fer að gruna að einhver
hafi brotist inn á heimili hans, þá grípur hann til ráða sem hafa
örlagaríkar afleiðingar. Björn Thors leikur aðalhlutverk
myndarinnar, sem verður 15 mínútur að lengd og öll tekin upp
í Reykjavík. Myndin er framleidd af íslenska framleiðslufyr-
irtækinu Republik og styrkt af Kvikmyndamiðstöð Íslands.
Hún er hluti af stærra, alþjóðlegu verkefni sem kallast POV,
Point Of View. Ástralskt framleiðslufyrirtæki, Magic Films,
bað Stuart Beattie um að skrifa einfalt og hnitmiðað stutt-
myndahandrit sem var síðan sent til sex leikstjóra um víða
veröld. Leikstjórarnir tóku handritið og unnu það áfram, stað-
færðu að sínu samfélagi og eru nú að taka upp hver í sínu
landi. Magic Films kemur síðan til með að taka myndirnar sex
og pakka þeim saman í eina kvikmynd í fullri lengd, þannig að
eftir stendur mynd sem segir sömu söguna á sex mismunandi
vegu í sex mismunandi löndum, af sex mismunandi leikstjór-
um sem hafa aldrei hist eða talað saman. Leikstjórunum er
frjálst að vinna handritið eins langt og þeim hentar og því er
líklegt að myndirnar verði jafn ólíkar og þær verða margar.
Næsta mynd 150 mínútur
– Nú hlaustu mikla athygli fyrir stuttmyndina Support og
ert greinilega hrifinn af stuttmyndarforminu, sérðu fyrir þér
að gera einhvern tíma kvikmynd í fullri lengd?
„Já, næsta verkefni verður mynd í fullri lengd. Support var
ein og hálf mínúta að lengd og Come To Harm verður fimm-
tán mínútur, þannig að samkvæmt hefðinni sem er að mynd-
ast verður næsta mynd eiginlega að vera 150 mínútur,“ segir
Börkur kíminn að lokum.
Verkefni í vinnslu
Börkur Sigþórsson sýnir ljósmyndir af stórgerðri stúlku og stuttmynd í
vinnslu í galleríi í LA Stuttmyndin endar með fimm öðrum í kvikmynd
Ljósmynd/Börkur Sigþórsson
Stórgerð stúlka Ein af ljósmyndum Barkar í röðinni Conditions, mynd sem notuð var á
umslag breiðskífu Mínuss, The Great Northern Whalekill,
www.borkurs.com
www.blytheprojects.net
Lýsendur í kappleikjum geta
stundum verið algerlega úti að aka
en Adolf okkar Ingi fer á kostum
miklum í lýsingum sýnum á leikjum
Íslands í Evrópumótinu. Ástríðuna
vantar ekki og hann leyfir sér að
sleppa sér á réttu stöðunum. Þegar
skorað er á móti okkur jaðrar jafn-
an við ruðning en ef Sverre „Dreki“
Jakobsson tekur tvo andstæðinga
niður fagnar Adolf gríðarlega.
Svona á þetta að vera! Áfram Ís-
land!!!
Adolf Ingi gerir það
gott í Austurríki
Börkur Sigþórsson á
vægast sagt glæsi-
lega ferilskrá. Auk
þess að hafa haldið
ljósmyndasýningar
hefur hann hefur leik-
stýrt auglýsingum
fyrir vörumerki á borð
við Nike, Honda, Bai-
leys og The Guardian
og auk þess tónlistar-
myndböndum fyrir
ekki ómerkari menn
og hljómsveitir en
Richard Ashcroft, Su-
pergrass og Nine
Black Alps. Stutt-
mynd hans Support,
með Þresti Leó Gunn-
arssyni í aðalhlut-
verki, hefur hlotið viðurkenningu á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum en henni er dreift af
Canal + í Frakklandi. Stuart Beattie, handritshöfundur Come to Harm, hefur getið sér
gott orð í Hollywood. Hann var m.a. einn af handritshöfundum Pirates of the Caribbean-
kvikmyndanna og handritshöfundur kvikmynda á borð við G.I. Joe, Australia, Derailed,
30 Days of Night og Collateral. Þá vinnur hann að handriti kvikmyndarinnar Tarzan sem
á að frumsýna 2011 auk þess að sinna öðrum stórverkefnum.
Nike, Honda, Baileys, Ashcroft og Supergrass
Börkur Fjölhæfur listamaður og fyrirsætulegur.
Ljósmynd/Saga Sig.