Morgunblaðið - 06.03.2010, Síða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2010
FRÉTTASKÝRING
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
FYRSTA háskastig viðbragðs-
áætlunar almannavarnadeildar
vegna eldgoss í Eyjafjallajökli var
virkjað í gær. Endurtekin kvikuinn-
skot hafa verið undir jöklinum allt
frá árinu 1994 en undanfarið hefur
skjálftavirkni farið vaxandi og verið
viðvarandi síðustu sólarhringa.
Verulegar líkur eru því á að
ókyrrðin endi með gosi í jöklinum, ef
ekki nú þá á næstu árum. Styrkur
nýjustu skjálftanna, sem hafa
nokkrir verið af stærðinni 2-3 stig,
hefur þó gefið Almannavörnum til-
efni til að vera í viðbragðsstöðu.
Öskufall og jökulhlaup
Eyjafjallajökull er megineldstöð
og þótt gos þar hafi almennt ekki
verið hamfaragos gætu afleiðing-
arnar orðið miklar á stóru landsvæði
allt umhverfis jökulinn þar sem eru
blómlegar sveitir, en rýmingar-
áætlun almannavarnadeildar nær
allt frá Pétursey undir Eyjafjöllum
út Fljótshlíðina og til Þykkvabæjar.
Verði gosið með svipuðum hætti
og fyrir 189 árum þegar síðast gaus
má búast við töluverðu öskufalli í
sveitum og því nauðsynlegt að forða
fé frá flúoreitrun auk þess sem ekki
er hægt að útiloka hættu af hraun-
rennsli. Þar sem eldgosið yrði undir
ís stafar þó mest hætta af jökul-
hlaupi. Í hættumati sem gefið var út
árið 2005 fyrir ríkislögreglustjóra
vegna eldgosa og hlaupa frá vest-
anverðum Mýrdalsjökli og Eyja-
fjallajökli kemur fram að gos á
þessu svæði eru talin geta valdið
jökulhlaupum með rennsli á bilinu
3.000-30.000 m³/s.
Viðvörunartími vegna eldgosa og
hlaupa á svæðinu getur verið mjög
stuttur en þar skiptir máli hvar upp-
tök gossins eru. Í hættumatinu kem-
ur fram að víðast hvar næðu hlaup
fjallsrótum og byggð aðeins 15-30
mínútum eftir að gos hefst. Verði
gos í norðvestanverðum Eyjafjalla-
jökli gæti hlaup náð að varnar-
görðum við Fljótshlíð á 45-60 mín.
Spá því hvar gos kemur upp
Ármann Höskuldsson, eldfjalla-
fræðingur við Jarðvísindastofnun
Háskóla Íslands, segir erfitt að
segja nákvæmlega fyrir um hvar
gosið muni koma upp í jöklinum.
Hópur vísindamanna undir stjórn
Bryndísar Brjánsdóttur jarðeðl-
isfræðings setti í gær niður fær-
anlega skjálftamæla til að þétta
skjálftanetið.
„Við fáum þá betri staðsetningu á
skjálftunum og kannski betri hug-
mynd um hvar við eigum von á því
að þetta komi upp, en við vitum ekki
fyrir víst hvort það kemur úr suður-
eða vesturhlíðunum eða úr tind-
inum,“ segir Ármann.
Eldfjöll ólíkar persónur
Hann ítrekar þó að „ef“-in séu
mörg. Meðgöngutími gosa í eld-
fjöllum eins og Eyjafjallajökli sé 10 -
20 ár og það geti allt eins verið að
skjálftavirknin dofnaði aftur og ekk-
ert yrði af gosi í þetta skiptið.
„Við þekkjum ekki aðdragandann
að gosi í Eyjafjallajökli því síðast
þegar gaus voru engin mælitæki til.
Eldfjöll eru eins og persónur og
ekkert þeirra hegðar sér eins og
annað, þess vegna er svo mikilvægt
að skilja hvert og eitt eldfjall fyrir
sig.“
Ýmsar breytur eru því fyrir hendi
sem ekki sjást fyrr en hugsanlegt
eldgos byrjar. „Nú verða bara fræði-
menn og íbúar að vera vakandi og
því viðbúnir að það gerist eitthvað
en líka að það gerist alls ekki neitt.“
Óvissa undir Eyjafjallajökli
Rýmingarsvæði vegna eldgosa í Eyjafjallajökli
Hella
Hvolsvöllur
Skógar
Rýming
forgangur 1
Rýming
forgangur 2
Rýming
forgangur 3
Rýming
forgangur 4
Upplýst um hættu,
ekki rýming
Fjöldahjálparstöð
Þykkvibær
Eyjafjallajökull Mýrdalsjökull
Tindfjallajökull
Þórsmörk
Vestmannaeyjar
Almannavarnadeild virkjaði í gær viðbragðsáætlun vegna eldgoss í Eyjafjallajökli á óvissustigi
Gos í jöklinum hafa almennt ekki verið hamfaragos en hættan af jökulhlaupi og öskufalli er fyrir hendi
Í HNOTSKURN
»Jarðskjálftahrinan hófst íEyjafjallajökli á miðviku-
dag og hafa síðan mælst um
3.000 skjálftar.
»Skjálftarnir hafa verið á 7-10 km dýpi. Flestir eru að-
eins um 1 stig en stærsti
skjálftinn hingað til var í gær-
morgun og náði 3 stigum.
»Stærstu skjálftarnir hafafundist í Fljótshlíðinni.
Hátt í 200 ár eru síðan Eyjafjalla-
jökull gaus síðast en hugsast
getur að nú stefni í næsta gos.
Áhrifin á nærsveitir gætu orðið
afdrifarík og verður náið fylgst
með þróun mála næstu daga.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
FÁIR tengja nú Eyjafjallajökul við eldgos enda gaus
fjallið síðast árið 1821-1823. Það er með hærri fjöllum,
1.666 metrar og dregur nafn sitt af Vestmannaeyjum
sem eru skammt undan. Fjallgarðurinn liggur í vestur af
Mýrdalsjökli og er á eldvirkasta svæði landsins. Páll
Einarsson jarðeðlisfræðingur hefur bent á að mikil
tengsl séu á milli eldstöðvanna í jöklunum tveim og
stundum hafi gos í Eyjafjallajökli ýtt undir Kötlugos.
Gossaga Eyjafjallajökuls síðustu 1.500 ár er þekkt, á
því tímabili hefur jökullinn gosið fjórum sinnum með 300
til 700 ára millibili. Um árið 600 hefur gosið í toppgígnum
og um 920 við Skerin, hrygg sem liggur upp eftir norð-
vesturhlið jökulsins. Árið 1612 gaus í toppgígnum og aft-
ur á árunum 1821-1823. Öll þessi gos munu hafa verið
fremur lítil samanborið við Kötlugos.
Hvergi sást í stein milli Fljótshlíðar og Eyjafjalla
Síðasta gosið í Eyjafjallajökli hófst 20. desember 1821.
Samtímalýsingar segja að fyrstu dagana hafi vötn og
fljót vaxið nokkuð. Fyrri hluta ársins 1822 urðu einstök
vatnsflóð við og við „með nokkru jökulhruni“. Eitt þeirra
varð þó langstærst og fyllti alla farvegi Markarfljóts að
fornu og nýju, hvergi sást í stein milli Fljótshlíðar og
Eyjafjalla, að sögn heimildarmanna.
Almannavarnir ríkisins létu skömmu eftir aldamótin
2000 vinna hættumat og áhættugreiningu vegna gosa og
jökulhlaupa í Mýrdalsjökli og Eyjafjallajökli og ritstýrðu
Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði,
og Ágúst Gunnar Gylfason hjá almannavarnadeild Rík-
islögreglustjórans verkinu sem kom út 2005.
Sagt er í skýrslunni að stór jökulhlaup hafi á síðustu
árþúsundum farið niður Markarfljót á 500-800 ára fresti
að jafnaði, orsök hlaupanna hafi verið gos í vesturhluta
Kötluöskjunnar. „Gos í tindi Eyjafjallajökuls verða á
nokkur hundruð ára fresti en þau eru yfirleitt mun minni
en Kötlugos,“ segir í skýrslunni. Leggja höfundar
hættumatsins því áherslu á að vöktun sé ávallt í góðu
horfi.
Gaus síðast árið 1821
Eyjafjallajökull er á einu eldvirkasta svæði landsins
Jökullinn dregur nafn sitt af Vestmannaeyjum
Morgunblaðið/Einar Falur
Stilltur? Fljótshlíð og Eyjafjallajökull, sakleysislegur í
sumarblíðunni en hann getur sýnt á sér aðra hlið.
» Gos í jöklinum gætu stundum
hafa „startað“ Kötlugosum
» Hamfarahlaup niður Markarfljót
gætu náð Fljótshlíðinni á þrem
klukkustundum
Óvissustigið sem lýst hefur verið
yfir undir Eyjafjallajökli er fyrsta
háskastig almannavarnardeildar
ríkislögreglustjóra af þremur.
Á þessu stigi hefst samráð milli
almannavarna og annarra stofn-
ana og rannsóknir og vöktun
svæðisins er aukin. Hin tvö stigin
eru hættustig og neyðarstig, en
þau einkennast af tafarlausum að-
gerðum til lífsbjargandi aðstoðar.
Um 500-600 manns búa á rým-
ingarsvæðinu undir Eyjafjallajökli í
Rangárþingi ytra. Komi til eldgoss
verður unnið eftir nýrri rýming-
aráætlun sem útbúin var síðustu
vikur og verður kynnt íbúum á
næstunni. Að sögn Kjartans Þor-
kelssonar, sýslumanns á Hvols-
velli, hafa þrír íbúafundir verið
boðaðir um miðjan mánuðinn, 15.-
17. mars, þar sem viðbragðsáætl-
un verður kynnt og farið yfir rým-
ingaráætlunina. „Það verða eft-
irfarar og björgunarsveitir sem sjá
um hvert hólf fyrir sig en fólk sér
sjálft um að rýma og hengir út
tjöld þegar það fer,“ segir Kjartan.
Ekki er hægt að vita fyrir víst
hvert hlaupið fer fyrr en gos byrjar,
en að sögn Kjartans verður allt
svæðið rýmt til öryggis ef hætta er
talin á gosi. Hann segir íbúa taka
aðstæðum af stakri yfirvegun.
500-600 manns búa á rýmingarsvæðinu
„VIÐ fylgjumst með þessu en það er
nú svo sem ekki mikið stress í gangi
hjá okkur, við erum þannig staðsett
undir Eyjafjöllum að við teljum okk-
ur ekki í mikilli hættu svo við erum
ekkert í startholunum,“ segir Ásgeir
Árnason, bóndi á Stóru-Mörk.
Á Stóru-Mörk er rekin ferðaþjón-
usta en hún hefur ekki orðið fyrir
meiri áhrifum af hugsanlegri gos-
hættu en svo að Ásgeir og kona hans
Ragna Aðalbjörnsdóttir áttu von á
ferðamönnum í gistingu í gærkvöldi.
Þakka fyrir að bjarga sjálfu sér
Á Stóru-Mörk er auk þess bæði
fjárbú og kúabú. Ásgeir segir að þar
sem þetta beri nú að um vetur hafi
þau litlar áhyggjur af mögulegum
áhrifum öskufalls á búpeninginn, en
ef gysi um sumar væri hættan vissu-
lega til staðar þó að hann telji lítið
hægt að gera til að sporna við henni.
„Þó að það væri hætta er þetta svo
gríðarlegt að ég held að það væri erf-
itt að gera nokkurn skapaðan hlut og
fólk verður bara að þakka fyrir að
bjarga sjálfu sér, fyrst og fremst.“
Hann segist hins vegar hafa vanist
tilhugsuninni um náttúruna sem ná-
granna enda sé þetta ekki í fyrsta
skipti sem útþensla verði í jöklinum.
„Ég held að ég sé nú bara búinn að
lifa þrjár svona aðgerðaáætlanir og
ætli það séu ekki komin 30 ár síðan
ég lifði þá fyrstu.
Ef maður væri
alltaf með ferða-
töskuna úti í dyr-
um gerði maður
lítið annað.
Mesta hættan
er kannski sú að
það sé of oft byrj-
að að kalla úlfur,
úlfur og maður
hætti að taka mark á því. En ein-
hvern tíma gýs, það er alveg ljóst, og
það er greinilega eitthvað að gerast
þarna núna.“
Verður bankað á gluggann
„Auðvitað fylgist maður með
þessu, það er greinilega eitthvað að
krauma þarna en það þýðir ekkert að
velta sér upp úr því,“ segir Sigurður
Þór Þórhallsson, bóndi í Önundar-
horni undir Eyjafjöllum.
„Ég treysti því að það sé fylgst vel
með þessu og það verði komið hérna
og bankað á svefnherbergisglugg-
ann ef við þurfum að fara.“ Sigurður
segist ekki hafa leitt hugann sér-
staklega að því hvað hann myndi
reyna að hafa með sér ef rýming-
aráætlunin yrði sett af stað.
„Það verða bara börnin, held ég.
Ætli þetta sé ekki bara spurning um
að koma sér burtu ef til þess kemur.“
Ekki með ferða-
töskuna í dyrunum
Íbúar taka umhleypingum af æðruleysi
Heklugos