Morgunblaðið - 06.03.2010, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 06.03.2010, Blaðsíða 46
46 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2010 Dýrahald Am. Cocker Spaniel Til sölu Am. Cocker Spaniel hvolpar. Tilbúnir til afhendingar í byrjun mars. Ættbók frá HRFÍ. Uppl. í síma 845- 6678 eða á www.eldhuga.com Tómstundir Markaðslaugardagur Opið hús kl. 13.00 - 15.00. Allir velkomnir. Síðumúla 17, 2. hæð. Félag frímerkjasafnara Verslun Trúlofunarhringar, gamaldags og nýmóðins. Auk gullhringa eigum við titanium-, silfur- og tungstenpör á fínu verði. Sérsmíði, skart, silfur og vönduð armbandsúr. ERNA, Skipholti 3, s. 5520775, www.erna.is Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL ! Ég, Magnús Steinþórsson gull- smíðameistari, kaupi gull, gull- peninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Upp. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Til sölu Bókhald Bókhald og Fjármál ehf. Ársreikningur, skattframtal, bókhald og fjármálaráðgjöf fyrir fyrirtæki, ein- staklinga og húsfélög. Sími 568-7400 / 842-5500, tp.: bfm@simnet.is Stigamaðurinn Stigar og handrið úti sem inni. Járn og tré. Gerum föst verðtilboð. Uppl. í s. 898 779 og 897 1479. Bílar óskast Góður bíll óskast, staðgreitt. Óska eftir góðum bíl gegn stað- greiðslu. Verðflokkur frá 250 þús +. Aðeins skoðaður 2010 kemur til greina. Uppl. í síma 691-5308. Bílskúr Flash 2 Pass fjarstýringar Fjarstýringar f. bílskúrshurðaopnara. Virkar með ljósabúnaði bílsins eða mótorhjólsins. Kynntu þér málið. www.orkuver.is Sími 534 3435. Húsviðhald Þak og utanhússklæðningar og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647. Smíði, múrun, málun, flísalögn... Iðnaðarmannateymi óskar eftir verkefnum inni og úti. Baðherbergi, eldhús, verönd, skjólveggir, allt kemur til greina. Sjá verkadvinna.is Upplýsingar í síma 770 5599. Umönnun og hjúkrun Sjúkraliði með mikla starfsreynslu óskar eftir starfi. Hef unnið mikið með öldruðum og fötluðum. Starf í heimahúsi kemur vel til greina. Uppl. í síma: 8207414/5651744 Heilsa Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl ✝ Ragnar ÞráinnGuðmundsson, bóndi Nýhóli, Hóls- fjöllum, fæddist 28. febrúar 1923 á Rafn- kelsstöðum í Garði. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Þingeyinga á Húsavík 25. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru merkis- og dugn- aðarhjónin Guðrún Kristbjörg Jón- asdóttir, kennari frá Fagradal á Hóls- fjöllum, f. 12.8. 1895, d. 3.5. 1975, og Guðmundur Jónsson, útgerð- armaður á Rafnkelsstöðum í Garði, f. 18.7. 1892, d. 10.4. 1984. Systkini Ragnars voru 1) Jón Garðar, f. 2.4. 1918, d. 4.1. 1960. 2) Kristján Val- geir, f. 2.4. 1918, d. 26.5. 1963. 3) Jónas Frímann. f. 3.4. 1919, d. 25.12. 1998. 4) Jörundur, f. 16.10. 1920, d. 15.10. 1927. 5) Karólína Ásthildur, f. 22.9. 1921, d. 8.6. 1988. 6) Jörundur, f. 2.10. 1930, d. 19.7. 1931. 7) Gunnar, f. 13.4. 1936, d. 1.4. 2008. Ragnar fór fjögurra ára gam- all á Hólsfjöllin til afa síns, Jónasar Krist- jánssonar og móð- ursystkina sinna Kar- ólínu og Sveins vegna veikinda móður sinn- ar. Hann ílengdist þar og bjó þar alla tíð síð- an. Hann fór í Héraðs- skólann á Eiðum í einn vetur og ennfremur sótti hann Bændaskólann á Hólum. Vegna veikinda dvaldi hann á Heilbrigð- isstofnun Þingeyinga á Húsavík frá árinu 2004. Ragnar var ókvæntur og barnlaus. Útför Ragnars fer fram frá Húsa- víkurkirkju í dag, 6. mars 2010, og hefst athöfnin kl. 14. Jarðsett verður frá Víðirhóli. Mig langar að minnast mágs míns Ragnars Þráins. Ragnar flutti aðeins fjögurra ára gamall að Ný- hóli á Hólsfjöllum með móðursystur sinni Karólínu vegna veikinda móð- ur sinnar. Ég kynnist ekki Ragnari fyrr en hann kemur sem ungur maður í heimsókn suður í Garð, en þar var æskuheimili hans. Hann kom í heimsókn til okkar Jónasar (bróður síns) að Melstað og frá þeim tíma mynduðust góð vina- tengsl sem héldust í gegnum bréfa- skriftir, símtöl og síðar var farið að keyra norður einu sinni á sumri. Þessar ferðir eru mér ógleyman- legar. Ragnar tók við búinu á Nýhóli og var einbúi frá árinu 1970. Nokkrum sinnum hafði hann ráðskonu og margir unglingar dvöldu hjá honum yfir sumarið. Ragnar var þekkt- astur fyrir geitabúskap og nýtti hann geitamjólkina til drykkjar, í smjör, osta og skyr. Hann var ein- staklega laginn við prjónaskap, hvort sem það voru sokkar eða peysur og varð ég þess aðnjótandi að fá sendar peysur frá honum. Ragnar hætti búskap árið 2003, þá orðinn 80 ára. Síðustu árin dvaldi hann í Hvammi, heimili aldraðra á Húsa- vík, en hann lést á Heilbrigðisstofn- un Þingeyinga hinn 25. febrúar og var rétt að verða 87 ára. Þakkir vil ég senda öllum þeim sem önnuðust hann af alúð í veikindum hans á þessum stöðum. Ég kveð Ragnar nú með þökk og virðingu og óska honum góðrar ferðar í landi hins óþekkta. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Björg Árnadóttir (Lilla). „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt„ faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Ein- stakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Terri Fernandez.) Elsku frændi. Nú er nýtt/gamalt hlutverk tekið við hjá þér, nú þarftu að sjá um dýrin sem hafa beðið eftir þér í nokkurn tíma. Það var einstakt þegar ég heimsótti þig sem barn og unglingur, sjá geitur og íslensk hænsni í fyrsta skipti og hvað þau voru hænd að þér. Það var einstakt þegar við fjölskyldan heimsóttum þig sumarið 2002 og Thelma María sem var fjögurra ára sagði við mig „mamma, Ragnar frændi er svo mikil dúlla“. Það var einstakt og ennfremur blendnar tilfinningar sem komu hjá okkur að heimsækja þig á Húsavík þar sem þú varst fjarri þínu sem þér þótt svo vænt um. Nú var Aron Ingi kominn í heiminn og fannst frændi sinn áhugaverður en þá var hann rétt rúmlega eins árs. Það var einstakt að bjóða þér á rúntinn um Aðaldal- inn og bara spjalla. Við eigum ein- stakar minningar um þig, yndislegi frændi. Þú skilar kveðju til elsku pabba. Kærar kveðjur, Unnur, Hreiðar, Thelma María og Aron Ingi. Frændi minn og vinur, Hóls- fjallabóndinn ljúfi, Ragnar á Ný- hóli, er fallinn frá. Margs er að minnast þegar við hugsum til baka. Í rúman aldar- fjórðung höfum við verið í góðu sambandi við Ragnar og eigum um það bara ljúfar og góðar minningar. Þegar við hittum Ragnar fyrst árið 1983 á túninu á Nýhóli var hann í miðjum heyflekk að vinna og tók okkur strax einstaklega vel. Alla tíð síðan hefur vináttan og trúnaðartraustið styrkst með árun- um. Það var gaman að spjalla við hann um liðna tíma. Hann sagði okkur frá því þegar hann var send- ur á Hólsfjöllin vegna veikinda móður sinnar, Guðrúnar Jónasdótt- ur úr Garðinum, með strandferða- skipi til Vopnafjarðar og þaðan var farið með hann á hestum heim á Hólsfjöllin, þá fjögurra ára gamlan til afa síns Jónasar Kristjánssonar og móðursystkina Karólínu og Sveins. Maður getur ímyndað sér að það hafi verið mikil gleði á heim- ilinu að fá þangað lítinn dreng. Skólaganga var ekki mikil á þess- um árum, en hann var svo heppinn að fá að fara á Héraðsskólann á Eiðum í einn vetur og einnig á Bændaskólann á Hólum. Hans lífsstarf var að vera bóndi. Þegar við kynntumst honum var hann með sauðfé, geitur og hænsni. Hann var einstaklega laginn og góður við dýrin, og það var unun að horfa á hvernig skepnurnar hóp- uðust í kringum hann þegar hann var úti við. Ragnar var vissulega mikill ein- stæðingur því hann bjó einn eftir að ættingjar hans létust. Hann var þó stundum með ráðskonur og sum- arstráka, eins og hann kallaði þá, og margir þeirra urðu vinir hans ævilangt. Það varð föst venja í mörg ár að við fórum með hann í sumarferðir vítt og breitt um Norður- og Aust- urland og skoðaðir voru ýmsir merkir staðir. Þá kom vel í ljós hvað hann var minnugur á menn og staðhætti og vel lesinn. Nesti var haft með í för og þess neytt í fal- legu umhverfi og alltaf vorum við heppin með veður. Gamlir sveit- ungar Ragnars voru heimsóttir og urðu þá fagnaðarfundir. Hann sá mikið eftir þessum góðu vinum sín- um þegar þau fluttu af fjöllunum. Stundum var farið í sund og heitu pottana, en það fannst honum mjög gott. Af Hólsfjöllunum varð ekki aftur snúið, hann ílengdist í þessu fallega umhverfi, þar sem Herðubreið skartaði sínu fegursta í suðri og víðátta heiðarinnar virtist nánast endalaus. Þegar ellin bar hann ofurliði fór hann á Heilbrigðisstofnun Þingey- inga á Húsavík, þar dvaldist hann síðustu árin og átti gott atlæti hjá því góða starfsfólki sem annaðist um hann, en þá var hann orðinn ansi lélegur til heilsu. Við kveðjum góðan vin og sjáum í huganum móður hans taka á móti honum en hennar saknaði hann allt- af mikið. Hafðu þökk fyrir allt kæri vinur. Guðrún og Birgir. Ragnar á Nýhóli er dáinn. Fetar sig yfir svellið mikla á gúmmískóm með tvíþumla belgvettlinga og prjónahúfu. Geiturnar og kindurnar birtast honum út úr þokunni. Ragnar Þráinn Guðmundsson bjó einn öll sín fullorðinsár á Nýhóli í gamla Fjallahreppi í Norður-Þing- eyjarsýslu. Að mörgu leyti stóð Ragnar föst- um fótum í fortíðinni, hefði allt eins getað verið uppi á 18. öld. Það hefði aðeins þurft að skipta Landróvern- um og Zetornum út fyrir hross enda var Ragnar ekki mikill véla- maður (sléttkeyrði alltaf í fyrsta í lága í botni). Hann var sjálfum sér nægur, bakaði og prjónaði til heim- ilisins á milli þess sem hann sinnti bústörfum. Ragnar bjó lengi með geitur sem voru honum afskaplega kærar auk kindanna sem gegndu allar nafni. Ragnar var svo ná- tengdur skepnum sínum að hann gat ekki lógað þeim sjálfur ef eitt- hvað kom upp á, heldur fékk hann Grímsstaðabændur til að koma. Eins og títt er meðal bænda hafði Ragnar brennandi áhuga á veðrinu. Hann skrifaði spá dagsins á lítið bréfsnifsi og geymdi. Búrið var orð- ið fullt af þessum miðum undir það síðasta. Veðurstöðin var, og er, á Grímsstöðum og hringdi Ragnar gjarnan eftir veðrið í útvarpinu í Grímsstaði til að skeggræða spána og minntist þá ósjaldan á að það hefði nú verið heldur kaldara – eða hlýrra – á Nýhóli en Grímsstöðum. Á hinn bóginn var Ragnar ekki helgimynd hins íslenska bónda með þúsund ára þjáningar á bakinu og meitlaða frasa úr Íslendingasögun- um á takteinum. Nei, Ragnar var skrafhreifinn og talaði um ólíkleg- ustu málefni. Hann fékk sér mynd- bandstæki löngu áður en þau fóru almennt að sjást á heimilum. Sem unglingur á Grímsstöðum fór mað- ur til Ragnars með sígarettupakka og kannski bjór sem maður lapti eftir að hafa drukkið Melroses með sykri og göróttri geitamjólk. Hjá Ragnari gat maður verið harla full- orðinn og ef ske kynni spjallað um stelpur og jafnvel rekkjubrögð. Seinna heyrði ég frá pabba að hann hefði líka hlotið uppfræðslu á hinu kyninu hjá Ragnari rúmum tuttugu árum fyrr. En Ragnar var bindind- ismaður á vín, tóbak og konur alla tíð. Ég var nýkominn með bílpróf og ætlaði að skutla Ragnari inn á Ak- ureyri á gömlum bíl. Ferðin endaði þannig að bíllinn valt í Mývatns- sveitinni með þeim afleiðingum að Ragnar hálsbrotnaði og þurfti að sitja uppi á sjúkrahúsinu á Húsavík með þyrnikórónu í þrjá mánuði. Þetta var mikið áfall. Ragnar náði sér býsna vel á strik og mörgum ár- um seinna áttum við stórkostlegar stundir á landinu hans þegar ég var að skrá þar fornleifar. Hann var nokkuð farinn að gamlast svo við leiddumst um móana eða höktum um á langa Landróvernum hans Braga og hann sagði mér af land- inu. Honum þótti blágresi fegurst blóma en hafði skömm á kjóanum og minknum. Það var dapurleg stund fyrir nokkrum árum þegar við pabbi og Bragi hjálpuðum Ragnari að setja síðustu rollurnar hans upp á kerru til að keyra með í sláturhúsið á Kópaskeri. Þrátt fyrir söknuð, þá er gott til þess að vita að Ragnar vinur minn sé laus úr sjúkrarúminu og sé á leið í smalamennsku hinum megin. Uggi Ævarsson. Mig langar að minnast frænda míns Ragnars Þ. Guðmundssonar, bónda á Nýhóli, en við Ragnar vor- um systkinabörn. Fyrst man ég eft- ir Ragnari þegar pabbi og öll fjöl- skyldan ásamt fleiri sveitungum fór í rútu til að vera viðstödd vígslu á Jökulsárbrú á Fjöllum 1948. Við gistum á Nýhóli og var tekið ljóm- andi vel á móti okkur en þá bjuggu þar Karólína og Sveinn, móður- systkini Ragnars, og Ragnar. Ragnar var tilbúinn að gantast við okkur krakkana og var alltaf jafn ljúfur, brosmildur og skemmtilegur. Eftir að Karólína og Sveinn féllu frá bjó Ragnar einn á Nýhóli og gekk hann í öll verk, jafnt úti sem inni. Það var alltaf sérstaklega hlýtt og notalegt þegar við komum að Nýhóli. Ragnar var einstaklega gestrisinn og alltaf tilbúinn með ljómandi gott bakkelsi sem hann bakaði sjálfur. Á Nýhóli voru geitur, kindur og hænsni. Geitamjólkin var nýtt í stað kúamjólkur en þar voru ekki kýr. Geiturnar voru léttar á sér, létu ekki ókunnuga plata sig en komu hlaupandi til Ragnars. Hænurnar hans voru íslenskar og einstaklega skrautlegar og í hópnum var hani sem vakti á morgnana. Kindurnar sem Ragnar var með voru sérstak- ar, líklega allt forystuær. Þær voru í öllum litum, mögóttar, flekkóttar og mórauðar en styggar. Ragnar hafði gott lag á skepnum og hafði mikið yndi af því að sinna bústofni sínum. Á árum áður réð hann á sumrin til sín ráðskonu og vinnustráka til aðstoðar við hey- skapinn en annars var hann einbúi í mörg ár og sjálfum sér nógur. Við frænkurnar fórum í áttræð- isafmæli Ragnars sem var haldið að Nýhóli hinn 28. febrúar 2003 og það var ógleymanlegt. Það var yndis- legt veður um hávetur og hann var glaður og reifur og bauð upp á kaffi, kakó, brauð og tertur með að- stoða vina sinna. Við gistum í tvær nætur og mikið var talað og haft gaman. Í minningunni eru þetta ómetanlegar stundir. Síðustu árin sem Ragnar lifði var hann lélegur til heilsunnar. Hann fór frá Nýhóli á Öldrunarheimilið á Húsavík og naut þar góðrar að- hlynningar þar til yfir lauk. Ragnar var sérstaklega nærgæt- inn maður, umburðarlyndur en hlé- drægur. Við minnumst þess að aldrei talaði Ragnar illa um nokk- urn mann. Hann sýndi hverjum manni hlýju og góðvild. Blessuð sé minning Ragnars. Þorbjörg og Þórólfur. Ragnar Þ. Guðmundsson  Fleiri minningargreinar um Ragn- ar Þ. Guðmundsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.