Morgunblaðið - 06.03.2010, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 06.03.2010, Blaðsíða 24
24 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2010 Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Þetta verður stærsta net-bókaverslun sinnar teg-undar á Íslandi, með sexþúsund titla notaðra bóka. Auk þess verða tvö þúsund titlar nýrra bóka,“ segir Bjarni Harðarson bóksali í Sunnlenska bókakaffinu á Selfossi en í næstu viku ætlar hann að opna bókabúðina sína í net- heimum. „Vissulega eru nokkrir að- ilar hér á landi að selja notaðar bæk- ur á netinu en í flestum tilvikum eru það lítil söfn. Fornbókabúðin hjá Braga er til dæmis aðeins með brot af þeim mikla fjölda bóka á netinu sem finna má í þeirri búð.“ Kaupir bækur í kassavís Sunnlenska bókakaffið hefur ein- beitt sér að því sem á ensku kallast second hand books eða notaðar bæk- ur, sem margir hér á landi tengja við fornbækur. „Þessar bækur eru ekk- ert endilega mjög gamlar, þær geta verið frá öllum tímum. Þarna er hægt að finna einhverja ákveðna skáldsögu eftir íslenskan höfund sem kom út fyrir örfáum ár- um, nú eða fræðirit sem kom út fyrir fimmtíu árum. Flestar bækur sem komu út fyrir meira en fimm árum eru uppseldar hjá forlögunum og því finnst mér mjög ánægjulegt að geta boðið upp á þennan stóra bóka- grunn,“ segir Bjarni og bætir við að megnið af bókunum sé íslenskt en eitthvert slangur erlendra bóka sé þar líka að finna. Bjarni viðar að sér bókum með ýmsum hætti, hann kaupir til dæmis bækur af dánarbúum. „Þá eru þetta oft eitt til tvö þúsund bækur sem ég fer í gegnum og hendi auðvitað alltaf heilmiklu, sumar bækur eru al- gjörlega óseljanlegar eða hreinlega ekki þess verðar að fórna undir þær hilluplássi. Ég tek líka við bókum sem fólk vill losna við og fólk er dug- legt að koma til mín með bækur.“ Að njóta bókar lengi og vel Það er metnaðarmál fyrir Bjarna að hafa bækurnar á viðráðanlegu verði og hann segir meðalverð bóka í gagnagrunni Bókakaffisins vera undir þúsund krónum. „Inn á milli eru vissulega dýrar og sjaldgæfar bækur frá nítjándu öld, jafnvel þeirri átjándu. En mikið af bókunum er á þrjú til fimm hundruð krónur,“ segir Bjarni sem finnur greinilega fyrir auknum áhuga á bókum. „Þó margt slæmt sé hægt að segja um kreppuna þá hefur hún komið vitinu fyrir þessa þjóð sem taldi að einhverju leyti að ekki væri hægt að gera sér glaðan dag nema eyða stórum upphæðum til þess. Núna lyftir fólk sér upp með því að kaupa sér eina fallega bók og nýtur hennar í marga daga. Mér finnst mjög ánægjulegt að sjá fólk sem hefur ekkert verið að stunda það að skoða gamlar bækur, koma hingað í bóka- kaffið og læra á þennan heim. Gamla bókasöfnunin sem byggðist á því að fjárfesta í bókum, hún er aftur á móti hverfandi. En það að fólk kunni að meta góðar bækur, fer greinilega vaxandi. Þó svo að krónan hafi fallið í verði þá hefur vit þjóðarinnar ekki gert það.“ Nýkominn heim af þvælingi um Eþíópíu Bjarni er mikill ævintýramaður og víðförull eins og algengt er með slíka menn. Hann er nýkominn heim úr þriggja vikna ferðalagi um Eþíópíu. „Ég fór að heimsækja Egil son minn sem hefur verið á flakki um Afríku undanfarna fjóra mánuði. Afríka er gríðarlega heillandi heimsálfa og ég hef komið þangað nokkrum sinnum áður. Þó þeir séu á eftir okkur Vest- urlandabúum í ýmsum málum þá er ég sannfærður um að margar þess- ara þjóða eiga eftir að rísa hratt. Þau voru til dæmis óskaplega frjósöm landbúnaðarsvæðin þar sem við feðgarnir ferðuðumst um vest- urhluta Eþíópíu. Þetta svæði vest- urfjallanna er ólíkt öllu öðru og við rákumst ekki á einn einasta vestræn- an ferðamann. Við gistum á sömu gististöðum og innlendir, sem var mjög ævintýralegt og skemmtilegt, svo ekki sé meira sagt.“ Að bana kominn af mæði Þeir Bjarni og Egill skelltu sér meðal annars í reiðhjólaferð þegar þeir voru í henni Eþíópíu og hann segir hana hafa verið mjög eftir- minnilega. „Við leigðum reiðhjól og ætluðum að hjóla út í sveit, en lent- um fljótlega í því að bæði hjólin biluðu. Og það voru engir vegir. Við þurftum því að bera hjólin og vorum orðnir mjög móðir þegar leið á dag- inn, ég raunar að bana kominn af mæði. Þá hittum við bændur sem voru við bústörf og vildum fá hjá þeim te eða eitthvað að drekka því við vorum orðnir vatnslausir, sem er mjög vont á þessu svæði. Þeir áttu engan drykk handa okkur annan en heimabrugg, sem við gátum ekki þegið því við drekkum hvorugur áfenga drykki. Við þurftum því að halda áfram göngu okkar með hjólin, enn þyrstari en áður,“ segir Bjarni og bætir við að heimabrugg í Eþíópíu sé vægast sagt varasamur drykkur. „Það er ákveðin hætta á að í því sé tréspíri og þá geta menn nú orðið snarlega blindir. Maður veit í raun ekkert hvað er í þessum görótta drykk og þess vegna fannst okkur svolítið merkilegt að á kaffihúsum drakk fullorðna fólkið kaffi en krakk- arnir sátu og sötruðu heimabrugg.“ Ljósmynd/Egill Bjarnason Ævintýr Bjarni umvafinn heimamönnum í litlu þorpi á fjallasvæði í Eþíópíu þar sem hann var nýlega. Yfirvertinn Bjarni er gríðarlega einbeittur þegar hann bakar pönnukökur ofaní gesti sína og það er alltaf tími til að spjalla og spekúlera. Bók fram yfir hjóm Hann fullyrðir að þó svo að krónan hafi fallið í verði þá hafi vit þjóðarinnar ekki gert það. Fólk sæki nú meira í bækur en áður. Bjarni Harðarson bóksali opnar í næstu viku stærstu vefverslun hér á landi með notaðar bækur. Kennir margra grasa Margt gersemið má finna ef gramsað er í bókunum á bókakaffinu. Hér eru það För Gullivers til Putalands og Kvenhatarinn. Grúsk Andrúmsloftið er notalegt á Sunnlenska bókakaffinu. Sungið Kórskóli Elínar eiginkonu Bjarna er starfræktur í bókakaffinu og hefur útskrifað tvo hópa forskólabarna á þessum vetri. „Við leigðum reiðhjól og ætluðum að hjóla út í sveit, en lentum fljótleg í því að bæði hjólin biluðu. Og það voru engir vegir.“ Slóð nýju vefverslunarinnar er: www.bokakaffid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.