Morgunblaðið - 06.03.2010, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 06.03.2010, Blaðsíða 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2010 Í FYRRADAG voru Stjórn- endaverðlaun Stjórnvísi veitt í fyrsta sinn að viðstöddum forseta Íslands. Stjórnendaverðlaunin hljóta þeir stjórnendur sem þykja hafa skarað fram úr á sínu sviði. Verðlaunin voru veitt í fjórum flokkum: Fjármála-, mannauðs- og þjónustustjórnun ásamt hvatning- arverðlaunum. Hjörleifur Pálsson, fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs Öss- urar, hlaut verðlaunin í fjár- málastjórnun, Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Securitas, hlaut mannauðsverðlaunin, Einar S. Ein- arsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs ÁTVR, hlaut verð- laun fyrir þjónustustjórnun, og hvatningarverðlaunin hlaut Unnur Ágústsdóttir, sviðsstjóri rekstr- arsviðs Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík. Stjórnendaverð- laun Stjórnvísi VERKEFNISSTJÓRN rammaáætl- unar um mögulega virkjanakosti mun standa fyrir opnu kynningar- og umsagnarferli um niðurstöður faghópa um 2. áfanga rammaáætl- unar dagana 8. mars–19. apríl nk. Fyrsti opni kynningarfundurinn verður í húsnæði Kennaraháskól- ans á þriðjudag nk. kl. 14. Þá verða líka fundir á Kirkjubæjarklaustri og Selfossi hinn 13. mars nk. Aðrir fundir verða auglýstir síðar. Öllum er frjálst að senda inn um- sögn um niðurstöður faghópanna og geta gert það í gegnum heima- síðuna www.rammaáætlun.is þar sem einnig er að finna ítarefni um rammaáætlunina. Rammaáætlun í kynningarferli Á NÆSTU vikum mun SFR – stéttarfélag standa fyrir ráð- stefnuröð um jafnrétti og verður ráðstefna haldin í öllum lands- fjórðungum. Fyrsta ráðstefnan verður á Akureyri hinn 8. mars nk. á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Síðan verður haldið til Egilsstaða 14. apríl, til Ísafjarðar 20. apríl og endað í Reykjavík hinn 28. apríl. Markmiðið með ráðstefnuröðinni er að vekja umræður og spurn- ingar um jafna stöðu kynjanna. Fyrirkomulag ráðstefnanna verður með nýstárlegum hætti en á hverri ráðstefnu verða tveir fyrirlesarar sem fjalla um ólík efni. Ráðstefnan er öllum opin. Fjallað um jafnrétti Í dag, laugardag, kl. 14:00 standa Hagsmunasam- tök heimilanna ásamt öðrum grasrótarsam- tökum fyrir kröfugöngu nið- ur Laugarveg frá Hlemmi. Gangan endar á Austurvelli þar sem „Al- þingi götunnar“ verður formlega stofnað. Fólk er hvatt til að mæta með kröfuspjöld og segja meiningu sína. „Gefum lýðræðishugsjónum byr undir báða vængi. Gefum skýr skilaboð til umheimsins, lýðræði er númer eitt, valdið er fólksins,“ seg- ir í tilkynningu. Kröfuganga niður Laugaveg í dag STUTT FIMLEIKADEILD Keflavíkur fékk í gær afhent nýtt æfingahúsnæði í Íþróttaakademíunni í Krossmóa. Árni Sigfússon bæjarstjóri afhenti Helgu Hildi Snorradóttur formanni lyklavöldin og gestir fylgdust með opinni æfingu hóps eldri iðkenda í nýju aðstöðunni. Reykjanesbær ætlaði að byggja fimleikahús en vegna efnahags- kreppunnar var hætt við það og ákveðið að breyta íþróttahúsi Íþróttaakademíunnar. Þar hefur fimleikafólkið gryfju og öll sín tæki og þarf ekki að bera tækin fyrir og eftir æfingar. helgi@mbl.is Fimleikahús í notkun Ljósmynd/Hilmar Bragi - njóttu lífsinsNánari upplýsingar í síma 420 3408 og á www.nesvellir.is Láttu drauminn rætast Með búsetu í íbúð eða raðhúsi á Nesvöllum losnar þú undan áhyggjum og fyrirhöfn við lóð og viðhald á eigin húsi. Byggðakjarninn er innan seilingar frá höfuðborgarsvæðinu og Keflavíkurflugvelli. Íbúðir í lifandi samfélagi . Kynning á Nesvöllum á sunnudag Íbúðir með þjónustu fyrir eldra fólk Sýning á sunnudag kl. 13-17, kaffi og meðlæti í boði Framúrskarandi búsetukostur í Reykjanesbæ fyrir eldra fólk sem vill búa við bestu skilyrði Lifandi samfélag fyrir fólk á besta aldri Öryggi - þægindi - lífsgæði Tilboð í þína fasteign Við létum drauminn rætast! Eigirðu fasteign sem þú vilt selja, gerum við tilboð í eignina ef áhugi er fyrir leigu- og búseturéttarsamningi við Nesvelli. Íbúðirnar eru til leigu með búseturétti. Þær eru hannaðar með þarfir og þægindi eldri borgara í huga. Innangengt er frá íbúðum í glæsilega þjónustumiðstöð, þar sem í boði er félags- og tómstundarstarf, veitingaþjónusta, hárgreiðslu- stofa, snyrtistofa, heilsurækt, verslun, sjúkraþjálfun, skipulagðir viðburðir og afþreying af ýmsu tagi. Við bjóðum ykkur að skoða fullbúna sýningaríbúð og raðhús á sunnudag frá kl. 13-17. Að auki bjóðum við öllum sem koma að þiggja kaffi og meðlæti í þjónustumiðstöðinni. Kynnið ykkur málið betur á heimsíðunni www.nesvellir.is, en þar er að finna leiðarlýsingu að Nesvöllum í Reykjanesbæ. Hafið samband í síma 420-3408
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.